Morgunblaðið - 09.11.1993, Síða 4

Morgunblaðið - 09.11.1993, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 1993 Fyrirhugað að leysa Byggung upp 12. nóv. FYRIRHUGAÐ er að leysa Byggung, Byggingarsamvinnufélag ungs fólks, Reykjavík, upp á aðalfundi félagsins sem haldinn verður 12. nóvember næstkomandi. A sama fundi er einnig ætlunin að leggja fyrir ársreikning félagsins fyrir árið 1990 svo og reikningsskil frá janúar 1991 til júní 1992. Héraðsdómur vísaði i síðustu viku frá kröfugerð félagsins á hendur byggjendum á þeim forsendum að ekki væri hægt að byggja skuldakröfu félagsins á ársreikningum sem ekki hefðu hlotið löglega meðferð á aðalfundi. Telur félagið sig eiga óinnheimtan byggingarkostnað upp á 76 milljónir króna inni hjá byggjendum. Reynir Karlsson héraðsdómslög- maður, sem rekur málið fyrir Bygg- ung, sagði í samtali við Morgun- blaðið að ætlunin væri að lagfæra grundvöll sem byggja mætti kröf- una á með því að halda aðalfund. Þvínæst yrði aðalfundargerðin Iögð fyrir Hæstarétt þegar úrskurðurinn yrði kærður. Færi málið aftur fyrir Héraðsdóm myndi dómur að öllum líkindum falla félaginu í hag enda hefði sagt í niðurstöðu að stefnandi kynni að eiga kröfu á hendur stefndu. Að sögn Reynis verða 2/3 fund- armanna að samþykkja félagsslitin á aðalfundinum. Síðan verði haldinn framhaldsfundur þar sem málið verði tekið fyrir aftur. Þegar sam- þykki liggur fyrir verður félagið afhent skilanefnd sem tekur við hlutverki stjórnar og framkvæmda- stjórnar og lýkur uppgjöri. Skuldir 57 milljónir Skuldastaða fyrirtækisins nú er með þeim hætti, að sögn Reynis, að óinnheimtur byggingarkostn- aður nemur 76 milljónum. Af þeirri upphæð er talið að 20-25 milljónir megi afskrifa vegna gjaldþrota. Skuldir Byggung nemi 57 milljón- um króna og eignir tæpum 5 millj- ónum. Því verði hægt að gera félag- ið upp með sóma takist að inn- heimta útistandandi kröfur. ------» ♦ «---- Fundur um viðreisnarárin FÉLAG frjálslyndra jafnaðar- manna efnir til opins fundar um viðreisnarárin í kvöld, þriðjudag, klukkan 20.30 á Hótel Borg í til- efni af útgáfu bókar dr. Gylfa Þ. Gíslasonar, fyrrverandi ráð- herra, um þetta tímabil. Á fundinum mun Gylfi fara yfir helstu atriði sem fram koma í bók- inni, en auk hans munu Styrmir Gunnarsson ritstjóri og Gunnar Helgi Kristinsson, dósent í stjórn- málafræði, fjalla um tímabilið. Fundarstjóri verður Stefán Ólafs- son prófessor. VEÐUR ÍDAGkl. 12.00 Heimild: Veðurstofa íslands (Byggt á veðurepá kl. 16.30 í gær) VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að f$l. tíma hiti veður Akureyri 8 skýjað Reykjsvík 7 skúrásíð.kls. Bergen 6 skýjað Helsinki 0 snjók.ásíð.kls. Kaupmnnnahöfn 6 rignlng Narssarssuaq +1 snjókoma Nuuk T0 snjókoma Osló 2 kornsnjór Stokkhólmur E alskýjað Þórshöfn 7 rigning Algarve 16 skýjað Amsterdam vantar Bercelona 15 mistur Berlín 7 rigning Chicago 0 skýjað Feneyjar 13 alskýjað Frankfurt 8 alskýjað Glasgow 8 rigning Hamborg 6 rigning mistur London 10 Los Angeles 16 þokumóða Ltíxemborg 5 þokumóða Madríd 12 skýjað Malaga 16 skýjað Mallorca 19 léttskýjað Montreal 3 alskýjað NewYork 3 heiðskírt Oriando 15 skýjað París 9 alskýjað Madelra 18 skýjað Róm 19 skýjað Vín 11 rign.ásfð.kls. Washington 0 hálfskýjað Winnípeg •f8 snjóél Kostnaður vegna Perlunnar áætlaður 35 milljónir á árinu REKSTRARGJÖLD Hitaveitu Reylgavikur vegna Perlunnar fyrstu níu mánuði ársins voru samkvæmt bráðabirgðatölum 36,4 milljónir króna, en rekstrartekjur á sama tímabili námu sjö milljónum. Að sögn Eysteins Jónssonar, fjármálastjóra Hitaveitunnar, eru stærstu liðirnir í rekstrargjöldunum fasteignagjöld og tryggingar, eða rúm- lega helmingur gjaldanna. Samkvæmt útkomuspá fyrir árið í heild er gert ráð fyrir að leigutekj- ur Hitaveitunnar vegna Perlunnar verði samtals níu milljónir króna og rekstrargjöldin verði 43,9 millj- ónir. Rekstrarkostnaður Hitaveit- unnar vegna Perlunnar er því áætl- aður 35 milljónir króna á árinu, en að sögn Eysteins Jónssonar koma þar nærri 18 milljónir til baka í formi fasteignagjalda til Reykjavík- urborgar, þannig að hrein útgjöld eru 17 milljónir. Á síðasta ári námu tekjur vegna Perlunnar 9,6 milljón- um króna, en rekstrargjöld voru 33,1 milljón. Eysteinn sagði að hærri rekstrargjöld á þessu ári væru fyrst og fremst til komin vegna viðhaldskostnaðar og lagfær- inga sem gera þurfti eftir fram- kvæmdir við byggingu hússins. „Það var alltaf ljóst að það yrðu töluverð útgjöld fyrir Hitaveitu Reykjavíkur að eiga þetta hús, en það er þannig uppbyggt að það er nokkuð dýrt í rekstri. Það er því borin von að veitingarekstur, sem er auðvitað bara hluti af starfsemi hússins, geti staðið undir þessu. Það kom aldrei til greina,“ sagði hann. Ný ljóðabók eftir Hannes Pétursson NÝ LJÓÐABÓK eftir Hannes Pétursson er komin út, hin fyrsta í áratug og fer ekki hjá því að margir hafi beðið nýrrar ljóða- bókar skáldsins með eftirvænt- ingu. Bókin nefnist Eldhylur og skiptist í fimm kafla. í kynningu útgefanda segir: „Bókin Eldhylur geymir myndauð- ug, beitt og margræð ljóð þar sem ógnin býr undir; þetta er skáldskap- ur sprottinn úr reynslu'og skynjun skálds sem tengt er náttúru, sögu og umhverfi nánum böndum; mátt- ug ljóð þar sem hvert orð vegur þungt; bók sem verður ljóðunnend- um hagstæð." Útgefandi er Iðunn. Bókin er prentuð í Prentbæ hf. Verð 2.680 kr. Hannes Pétursson Þátttaka í keppninni um Óskarsverðlaunin Hin helgn vé valin KVIKMYND Hrafns Gunnlaugs- sonar, Hin helgu vé, var valin til þátttöku í keppninni um Óskars- verðlaunin 1994 fyrir bestu er- lendu myndina. Kosið var um þijár kvikmyndir á kosningafundi í Rúgbrauðsgerð- inni sl. sunnudagskvöld, sem Félag kvikmyndaframleiðenda, Samband íslenskra kvikmyndaframleiðenda og Samtök kvikmyndaleikstjóra buðu til. Alls kusu 92 og atkvæði féllu þannig: Stuttur Frakki 5 atkvæði, Karlakórinn Hekla 28 atkvæði og Hin helgu vé 48 atkvæði. 7 töldu að ekki ætti að senda íslenska kvik- mynd í keppnina í ár, 3 seðlar voru auðir og 1 ógildur. Loðnuveiðar liggja niðri LOÐNUVEIÐAR liggja nú niðri þar sem loðnan gengur dreifð fyrir Norðurlandi og veiðisvæðið fyrir Vestfjörðum er lokað vegna smá- loðnu. Um 440 þúsund tonn af loðnu hafa borist á land á vertíðinni en 270 þúsund tonn eru óveidd af loðnukvótanum. Rannsóknarskipin Bjami Sæ- mundsson og Ámi Friðrikson em bæði við loðnurannsóknir. Loðnan dreifð Að sögn Hjálmars Vilhjálmsson- ar, leiðangursstjóra á Árna Frið- rikssyni, er mestur hluti veiðistofns- ins út af vestanverðu Norðurlandi og norður af Vestfjörðum. Svæðinu norður af Vestfjörðum hefur verið lokað vegna smáloðnu og loðnan gengur dreifð fyrir Norðurlandi. Nokkrir loðnubátar hafa leitað loðnu út af Norðausturlandi og fengið slatta en flestir loðnubát- anna eru komnir á síld. ► i > \ ) \ i i

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.