Morgunblaðið - 09.11.1993, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 1993
15
inna útvarps- og sjónvarpsstöðva
annars vegar og Ríkisútvarpsins hins
vegar en það nýtur skyldubundinna
afnotagjalda. Kveðið er á um að
nauðsynlegt sé að bæta samkeppnis-
stöðu einkarekinna ljósvakafjölmiðla
gagnvart ríkisfjölmiðlum og lagt er
til afnotagjöld verði afnumin og Rík-
isútvarpinu markaður annar tekju-'
stofn. Þá verði starfsemi RÚV endur-
skoðuð með það að markmiði að það
gegni fyrst og fremst menningar-
hlutverki, komi fram sem samnefn-
ari þjóðarinnar og efli innlenda dag-
skrárgerð. Það verði best gert með
markvissri og vel skipulagðri sjón-
varpsdagskrá og hljóðvarpi á einni
rás, sem höfði til breiðs hlustenda-
hóps. Einnig er lagt til að skipulag
RÚV verði endurskoðað með það
fyrir augum að draga úr yfirbygg-
ingu og leggja aukna áherslu á fram-
leiðslu dagskrárefnis. Komi þar út-
boð vel til álita þar sem þau séu vel
fallin til að styrkja stöðu sjálfstæðra
framleiðenda.
í umræðum á landsfundinum
komu vel fram auknar áhyggjur yfir
auknu ofbeldi á öldum ljósvakans og
var samþykkt að spornað skyldi við
ofbeldismyndum í ljósvakafjölmiðl-
um. Þá var einnig fjallað um hlut-
verk Kvikmyndaeftirlits ríkisins og
samþykkt að starfsemi þess skyldi
vera einskorðuð við vernd barna og
ungmenna.
I menningarmálaályktun lands-
fundarins segir að Menningarsjóð
útvarpsstöðva skuli leggja niður í
núverandi mynd en tryggja beri Sinf-
óníuhljómsveit íslands aðra tekju-
stofna.
Höfundur situr í sljórn
Menningarmálanefndar
Sjálfstæðisflokksins.
Að sveitarfélagið verði mun per-
sónulegra og mannlegra í alla staði,
samvinna og þjónusta við íbúa verður
hagstæðari og betri.
Góð stjórn vel rekins sveitarfélags
á að geta leyst vel af hendi þau verk-
efni og þær skyldur sem þarf að
takast á við fyrir sitt sveitarfélag.
Sveitarfélögin hafa og geta fyllilega
staðið undir umsjón samfélagslegra
þátta eins og t.d. grunnskóla, heilsu-
gæslu og félagsþjónustu (málefni
aldraðra, fatlaðra, barnavernd o.fl.).
Það skal tekið fram að þeirri félags-
legu þjónustu sem sveitarfélögum
veita er gerð góð skii.
Ég er undrandi á þeim látum sem
nú eiga sér stað um sameiningu
sveitarfélaga, allsheijar uppstokkun
og það í hvelli. Satt best að segja
hélt ég að íslenskt þjóðfélag hefði
ekki efni á slíku um þessar mundir
því allt þetta brölt kostar peninga. í
það minnsta er skuldastaðan sú að
íslenskt þjóðfélag er á sömu leið og
Færeyingar, ef ekki verður snúið
strax við, ríkissjóður rekinn með
tekjuafgangi og byijað að greiða nið-
ur erlendar skuldir þjóðarbúsins.
Sameining er engin lausn nema
að uppfylltum ákveðnum forsendum.
Full sátt um sameiningu þarf að ríkja
og skuldastaða eftir sameiningu
verður að vera þannig að um rekstr-
arhæfa einingu sé að ræða og að
verulegur sparnaður náist fram í
rekstri.
Það er engin lausn að sameina
alla skapaða hluti til að gera bara
eitthvað. Það er kjaftæði.
Höfundur er
heilsugæsluljúkrunarfræðing-ur
og var fulltrúi sjálfstæðismanna í
svcitarstjórn Ölfushrepps á
árunum 1982-86.
- Einfaldur í notkun
- Mikill tímasparnaður
PÖNTUN: Frá þinni skrifstofu með teiefaxi
eða simtali við söludeild Odda
AFGREIÐSLA: Samdlaegurs ,ef pantað er
fyrir hádegi.
ALLTIEINNIFERÐ
SKRIFSTOFUVÖRUR
Vörutista Odda verður dreift til fyrirtækja,stofnana og félagasamtaka um land allt
á næstunni. Óskir þú eftir að fá vörulistan sendan eða sölumann í heimsókn, þá
hafðu samband við söiudeiid okkar.
SKRIFSTOFUBUNADUR
HIRSLUR
PAPPÍR OG UMSLÖG
LÍMMIDAR
PRENTÞJÓNUSTA
opnunartími sóludeildar : mánud.-fimmtud. kl. 8.00-18.00
föstudagar. kl. 8.00-17.00
HEILSHUGAR I HALFA OLD
Stórmarkaður
með skrifstofuvörur
NYJUNG í ÞJONUSTU VIÐ FYRIRTÆKI OG STOFNANIR
ALLT GOÐAR VÖRUR MEÐ STÓRAFSUETTI!
Dæmi: Peysur frá kr. 875 - B.olir frá kr. 440 - Pils frá kr. 550
Buxur frá kr. 699 - Jakkar frá kr. 1.100 - Kjólar frá kr. 1.399
Skyrtur frá kr. 525 - Skór frá kr. 629 - Kápur frá kr. 1.599
og margt, margt fleira á frábæru verði!
POSTVAL , Skútuvogi 1, sími 68 44 22