Morgunblaðið - 09.11.1993, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 1993
Hver á að verja höfund-
arrétt á hugbúnaði?
eftir Hauk
Nikulásson
Á undanfömum árum hefur
einkatölvum fjölgað gífurlega hér á
landi sem annars staðar. Næstum
allir hafa aðgang að tölvu, í fyrir-
tækjum, stofnunum, skólum og
heimilum. Margir teija að í 90% til-
vika, þar sem harður diskur er, séu
eitt eða fléiri forrit notuð þar sem
höfundarréttur er ekki virtur. Þetta
þýðir að þúsundir „heiðarlegra" ís-
lendinga eru brotlegir við lög og
þykir það í sjálfu sér vart umtalsvert.
Um 13 ára skeið hefur undirritað-
ur fylgst með framvindu í þessum
málum. Engar framfarir hafa orðið
í þá veru að innræta tölvunotendum .
betri siði. Ástandið hefur versnað
með árunum, ólögleg eintök af hug-
búnaði finnast nú næstum alls stað-
ar sé að gáð. Hér áður fyrr töldu
margir að einstaklingar væru einir
um þessi lítilfjörlegu lögbrot, en
fyrirtækin væru lögleg. Nú er ljóst
að fyrirtæki, stofnanir og skólar
hafa komið sér hjá miklum fjárútlát-
um með frjálslegri meðferð á hug-
búnaði. Þeir fjármunir sem ekki þarf
að leggja út fyrir í kaupum á hug-
Innilegar þakkir fœri ég öllum, sem glöddu
mig d 80- ára afmœlisdegi mínum þann
2. nóvember sl.
Sérstakar þakkir fœr MorgunblaðiÖ fyrir sýndan
hlýhug.
Valgaröur Klemenzson,
Álftamýri 42.
CITIZEN
ALLTAF GOÐ HUGMYND
VERÐ AÐEINS
32.993
M/VSK
HUGLJOMUN SEM
GERIR GOTT BETUR
Citizen 200 er hljóðlátur og afkastamikill einlita prentari.
Prentar meðal annars á nótur í 4-riti og umslög.
£
I
X
VERÐ AÐEINS
44.994
M/VSK
INNBLASTUR I LIF
SKRIFSTOFUNNAR
Citizen 240C er hljóðlátur og góður litprentari.
Prentar meðal annars á nótur í 4-riti og umslög.
Öfíugur prentari. Arkamatari innifalinn.
Umboðsaðili fyrir Citizen prentara og rekstrorvörur:
SNILLDARH UGMYN D
SEM FÆDDIST EKKI í GÆR
Citizen 90 er hljóðlátur og hentugur prentari. Prentar meðal
annars á nótur í 4-riti og umslög. Fæst einnig sem litprentari.
Tæknival
Skeifunni 1 7 - Sími 91 -681665
„Nú er ljóst að fyrir-
tæki, stofnanir og skól-
ar hafa komið sér hjá
miklum fjárútlátum
með frjálslegri meðferð
á hugbúnaði. Þeir fjár-
munir sem ekki þarf að
leggja út fyrir í kaupum
á hugbúnaði má nefni-
lega nota í annað þarf-
ara og áþreifanlegra á
tímum þrenginga.“
búnaði má nefnilega nota í annað
þarfara og áþreifanlegra á tímum
þrenginga.
Fijálsleg meðferð hugbúnaðar
hefur nú tekið á sig nýja og öllu
ógeðfelldari mynd. Á síðasta ári fékk
Tæknival hf. umboð fyrir Novell,
sem er einn stærsti hugbúnaðar-
framleiðandi heims. Maður skyldi
ætla að ein af skyldum þeirra
Tæknivalsmanna væri að koma í veg
fyrir að Novell-hugbúnaður sé ólög-
lega afritaður. Nýlega fékk greinar-
höfundur í hendur vitnisburð og
sannanir fyrir því að Tæknival hafi
afritað dýran hugbúnað frá Novell
og selt hann allmörgum aðilum í
Haukur Nikulásson
mun fleiri eintökum en heimilt er.
Sannreynt var að a.m.k. fimm aðilar
voru að nota sama raðnúmer af 250
notenda nethugbúnaði frá Novell.
Sama raðnúmerið, 03388875, var í
gangi hjá Verkmenntaskólanum á
Akureyri, Iðnskólanum í Reykjavík,
Menntaskólanum við Hamrahlíð,
Háskólanum á Akureyri og á bæjar-
skrifstofum Mosfellsbæjar. Hvert
eintak kostar á fullu verði 1.100.000
krónur og samtals myndi þessi hug-
búnaður kosta um fimm og hálfa
milljón króna. Taka verður fram að
þeir aðilar sem hér eru taldir eru
ekki hinir brotlegu í þessu sam-
bandi. Því verður ekki slegið fram
hér hvort einhveijir þeirra hafi vitað
að ekki var allt með felldu á af-
greiðslu hugbúnaðarins til þeirra.
Það er þekkt fyrirbrigði að tölvu-
fyrirtæki afgreiði oft tölvuhugbúnað
til bráðabirgða á meðan beðið er
endanlegs pakka frá framleiðanda.
Þessi afgreiðsla Tæknivals til áður-
talinna aðila á ekkert skylt við það
því að í flestum tilvikum er afgreiðsl-
an orðin vel rúmlega ársgömul og
ber með sér annað yfirbragð. Í kjöl-
far fyrirspurnar blaðamanns DV hjá
Tæknivali hefur verið reynt að fela
verksummerki þessa máls, sem að
sjálfsögðu er of seint. Þegar fjölföld-
un af þessu tagi blasir við hjá að-
gengiiegum opinberum aðilum,
hvemig er þá afgreiðsla þessara
mála háttað hjá lokuðum einkafyrir-
tækjum?
Sem betur fer finnast enn ein-
staklingar, fyrirtækj, stofnanir og
skólar sem vilja eiga lögleg eintök
af þeim hugbúnaði sem þeir nota.
Fyrir þessa aðila hlýtur að vekja
gremju að vita að hugbúnaðurinn
sem þeir kaupa löglega er kannski
of dýr, einmitt vegna þess að rétt-
hafi fær ekki það sem honum ber.
Á sama hátt er staða þeirra sem
eiga í samkeppni við Tæknival mjög
erfið. Þá ekki síst í stórum útboðum
þar sem engu má muna í verði. Það
hugnast nefnilega ekki öllum að
stela aðföngum á borð við hugbúnað
ýmist í þeim tilgangi að bjóða óeðli-
lega lágt verð (jafnvel lægra en inn-
kaupsverð!) eða hreinlega að gefa
hann til að vera með lægra verð en
keppinautarnir.
Af öllu framansögðu vaknar sú
spurning hver eigi að gæta hags-
muna höfundarrétthafa ef umboðs-
menn þeirra hér á landi gera það
ekki, og eru, að því virðist, brotleg-
astir allra.
Höfundur er framkvæmdastjóri
HKH í Reykjavík.
Helgarskákmótið á Egilsstöðum
Hannes Hlífar sigr-
aði örugglega
Skák
Margeir Pétursson
FJÓRIR íslensku stórmeistar-
anna í skák fóru beint frá heims-
meistaramóti landsliða í Luzern
á helgarmótið á Egilsstöðum,
með stuttri viðkomu heima í
Reykjavík. Þau voru líka auðséð
þreytumerkin á taflmennsku
þeirra á helgarskákmótinu,
nema þjá þeim yngsta, Hannesi
Hlífari Stefánssyni, sem vann
öruggan sigur, hlaut tíu vinn-
inga af ellefu mögulegum. Hann-
es hafði fullt hús fram í næstsíð-
ustu umferð er hann tapaði fyr-
ir Jóhanni Hjartarsyni sem
komst upp í annað sætið með
þvi að leggja Guðmund Gíslason
Á meðan Hannes komst beint á
sigurbraut urðu hinir stórmeistar-
amir fyrir þungum áföllum strax
í upphafi. Jóhann Hjartarson tap-
aði fyrir Áskeli Erni Kárasyni og
þeir Helgi Ólafsson og Jón L. Áma-
son töpuðu báðir fyrir ísfirðingnum
sókndjarfa, Guðmundi Gíslasyni.
Að sögn Jóhanns Þóris Jónsson-
ar mótsstjóra fór mótið vel fram
að öllu leyti. Teflt var á Hótel
Valaskjálf og þar bjuggu líka að-
komnir keppendur við bestu að-
hlynningu. Ráðgert er að næsta
helgarskákmót fari fram í Keflavík
síðustu helgina í þessum mánuði.
Úrslit:
1. Hannes Hlífar Stefánsson 10 v.
2. Jóhann Hjartarson 8V2 v.
3. -4. Guðmundur Gísiason og
Andri Áss Grétarsson 8 v.
5.-6. Helgi Ólafsson og Áskell
Örn Kárason 7 Vi v.
7.-9. Jón L. Ámason, Rúnar
Berg og Hlíðar Þór Hreinsson 7
v.
10.-13. Sævar Bjarnason, Jó-
hann Þorsteinsson, Reyðarfirði,
Páll A. Þórarinsson og Björa
Þorfinnsson 6'/2 v.
14.—18. Viðar Jónsson, Stöðvar-
firði, Bragi Þorfinnsson, Jón
Viktor Gunnarsson, Sigurður
Krisljánsson og Magnús Magn-
ússon, Akranesi, 6 v.
19.-24. Gunnar Björnsson, Ein-
ar K. Einarsson, Gunnar Finns-
son, Fellabæ, Jónas A. Þ. Jóns-
son, Seyðisfirði, Sverrir Gests-
son, Fellabæ, og Guðmundur
Ingvi Jóhannsson, Egilsstöðum,
5V2 v.
Unglingaverðlaunin hlutu þeir
Hlíðar Þór Hreinsson, Páll A. Þór-
arinsson og Bjöm Þorfinnsson.
Verðlaun fyrir bestan árangur
dreifbýlismanns hlaut Jóhann Þor-
steinsson og fyrir bestan árangur
heimamanns Guðmundur Ingvi Jó-
hannsson.
Þátttakendur voru 40 talsins.
Austfirskir skákmenn þóttu koma
mjög sómasamlega frá mótinu þar
sem tefldu margir af bestu og efni-
legustu skákmönnum landsins.
Umhugsunartíminn á helgar-
mótunum er 25 mínútur á skákina
fyrir hvorn keppanda. Við skulum
líta á mikilvægan sigur Hannesar
á Helga Ólafssyni. Helgi sigraði á
helgarmótinu á Akranesi í septem-
ber með fullu húsi vinninga, en
náði ekki sínu besta að þessu sinni:
Hvítt: Helgi Ólafsson
Svart: Hannes H. Stefánsson
Katalónsk byrjun
1. d4 - d5 2. Rf3 - Rf6 3. c4 -
e6 4. g3 - Be7 5. Bg2 - 0-0 6.
Rc3 — dxc4 7. Re5 — Rc6! 8.
Bxc6 — bxc6 9. Rxc6 — De8 10.
Rxe7+ - Dxe7 11. Da4 - Bb7?!
Það er tímaeyðsla að þvinga
hvít til að hróka. Eftir íl.v— c5
12. Dxc4 — cxd4 13. Dxd4 e5 14.
Dh4 — Hb8 ætti svartur að hafa
nægar bætur fyrir peð, en síðra
er 14. - Hd8 15. 0-0 - Hd4 16.
e4 eins og skákin Karpov-Jóhann
Hjartarson, Belfort 1988, tefldist.
12. 0-0 — c5 13. Dxc4 — cxd4
14. Dxd4 - e5 15. Dh4 - De6
16. e4!? - Hac8 17. f3
Eftir 17. Bg5 — Rxe4 18. Rxe4
— Hc4 19. f3 — f5 er-staðan afar
óljós.
17. - Db6+ 18. Kg2 - Hc4
Vonast eftir að geta brotist í
gegn á hvítu reitunum seinna meir,
en hér getur svartur ekki talist
hafa nægar bætur fyrir peðið. Ein-
faldast virðist nú 19. Hf2 sem
Hannes Hlífar Stefánsson
svartur verður að svara með 19. —
h6 til að mæta hótuninni 20. Bg5.
Nú fær Hannes að halda áfram að
hlaða mönnum sínum á hvíta reiti.
19. Hel - Hd8 20. g4 - Hd3 21.
Df2 - De6 22. h3 - h5 23. g5?
Gefur færi á glæsilegri leikfiéttu
sem vinnur taflið. Nauðsynlegt var.
að skjóta inn 23. He3! sem hefði
bægt mestu hættunni frá.
23. - Hcxc3! 24. bxc3 - Rxe4!
25. De2 Auðvitað ekki 25. fxe4?
— Dxh3+ og 25. Dxa7 — Rxg5!
26. Bxg5 - Hxf3! 27. Hhl - Dc6!
var lagleg vinningsleið.
25. - Hxf3!
Nú verður hvítur að gefa drottn-
inguna. —-
26. Dxf3 - Rd6 27. Dxb7 - Rxb7
Hvítur hefur slæma kóngsstöðu
og peðastöðu og sigur blasir því
við svarti. En nú fékk skákin skjót-
an endi er hvítur lék af sér manni:
28. Bf4?? — Dd5+ og hvitur gafst
upp.