Morgunblaðið - 09.11.1993, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 1993
19
Faldhúning’ur Fríðu í réttum litum, samkvæmt lýs-
ingu Mayers.
Myndin af Fríðu, íklæddri faldbúningi eins og hún
er birt i íslensku útgáfunni af „Islandsmyndum
Mayers 1838“.
Litavíxl í myndinni af Fríðu
4 4
MlllÐl
OO lllÐflRfORLflWR
Páls Isólfssonar
í Langholtskirkju
fimmtudaginn 11. nóvember, kl. 20.00
í tilefni af aldarafmæli tónskáldsins
Kór Islensku óperunnar og Karlakórinn Fóstbræður
ásamt Sinfóníuhljómsveit Islands
Stjórnandi: Garðar Cortes
Einsönguari: Þorgeir J. Andrésson
Ljóðalestur: Arnar Jónsson
Sala aðgöngumiða:
A Skrifstofu Sinfóníuhljómsveitarinnar Háskólabíói kl. 9 -17
í íslensku óperunni kl. 16 - 19. Sími 11475.
Við innganginn í Langholtskirkju.
Tæknin lék grátt mynd í sunnu-
dagsblaði, sem sýna átti rétta liti í
faldbúningi Fríðu á mynd, sem m.a.
hafði birst í röngum litum í bókinni
íslandsmyndir Mayers 1836, sem
nýlega kom út hjá Erni og Orlygi,
en þar voru myndirnar litaðar hér
á landi. Hafði Giselle Jónsson í
París fundið í Þjóðarbókhlöðu
Frakka lýsingu Mayers á búningn-
um, þar sem segir í lista yfir teikn-
ingarnar að treyjan hafi verið græn
með gylltum borðum og pilsið fjólu-
blátt (violet) með rauðum legging-
um, belti og hálsmen úr silfri. Ekki
tókst betur til en svo við prentun
að litirnir snerust við í pilsi og
treyju, en leggingarnar á henni
misstu líka lit. Birtist myndin hér
eins og hún var upphaflega og átti
að birtast í blaðinu.
Elsa E. Guðjónsson, textílfræð-
ingur á Þjóðminjasafni, er ekki sátt
við þegar svart/hvítar ljósmyndir
eru litaðar svona og skrifaði um
það grein 1977 þegar Ferðabók
Eggerts og Bjarna kom út. Hún
segir að í Þjóðminjasafni sé til ein
Sameining sveitarfélaga
Óánægja með að
skipta A- Húna-
vatnssýslu í tvennt
^ Blönduósi.
Á FJOLMENNUM kyriningarfundi um sameiningu sveitarfélaga sem
haldinn var á Blönduósi sl. miðvikudag kom fram mikil óánægja
með tillögu umdæmanefndar að skipta sýslunni í tvö sveitarfélög.
Þessi kynningarfundur var fyrir
íbúa sveitarfélaga innan Laxár á
Refasveit. Á þessu svæði eru sex
sveitahreppar og Blönduósbær. Til-
laga umdæmanefndar er sú að A-
Hún. verði skipt í tvennt með tvo
byggðarkjarna, Blönduós og
Skagaströnd. Grundvöllur þessarar
tillögu er sá, að sögn Magnúsar
B. Jónssonar sveitarstjóra á Skaga-
strönd, að illdeilur séu á milli
Blönduóss og Skagastrandar. Pétur
Arnar Pétursson, forseti bæjar-
stjórnar á Blönduósi, vísar á bug
að illdeilur séu á milli staðanna og
neitar að taka þeim rökum að í
sýslunni búi tvær þjóðir.
Fulltrúar sveitahreppanna innan
Laxár sýndu sameiningu lítinn
áhuga að Engihlíðarhrepp undan-
skildum. í máii margra kom fram
að með því að greiða tillögu umdæ-
manefndar atkvæði sitt væri fólk
að greiða atkvæði um klofning sýsl-
unnar en með mótatkvæði gæti
atkvæðið bæði sýnt áhugaleysi fyr-
ir sameiningu eða ósk um nýja til-
lögu frá umdæmanefnd. Reyndar
kom fram hugmynd frá fulltrúa
K-lista í bæjarstjórn Blönduóss að
ef tillaga umdæmanefndar næði
fram að ganga fengi hið nýja sveit-
arfélag nafnið Sveinsstaðahreppur.
Jón Sig.
Námskeið í um-
ferðarveðurfræði
ENDURMENNTUNARSTOFNUN Háskóla íslands heldur námskeið
í umferðarveðurfræði mánudaginn 15. nóvember nk. Námskeiðið er
einkum ætlað tæknimönnum sveitarfélaga, vega- og samgöngustofn-
ana, en er opið öllum áhugamönnum um vetrarumferð og hálkuvarn-
ir.
Fjallað verður um slys af völdum Auk íslenskra fyrirlesara frá
hálku, hálku- og snjóspár, vetrar- Vegagerð ríkisins og Veðurstofu
umferð í dreifbýli og þéttbýli, að- Islands munu sérfræðingar frá Nor-
gerðir gegn hálku og öðrum erfið- egi og Finnlandi flytja fyrirlestra á
leikum í vetrarumferð, skipulag námskeiðinu.
snjómoksturs og hálkuvarna, sjálf- Skráning á námskeiðið fer fram
virkar veðurstöðvar á vegum, veð- hjá Endurmenntunarstofnun Há-
urathuganir og upplýsingakerfi skóla íslands og eru allar nánari
Vegagerðar ríkisins. upplýsingar veittar þar.
græn treyja af faldbúningi og þótt
pilsin hafi oftast verið svört, þá séu
þar til tvö sem eru dökkblá. Einnig
er vitað um svart pils með dökk-
fjólubláum borðum.
Sími
622255
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS
We MAKE
THE WORLD'S
BEST MATTRESS
VIÐ BÚUM
TIL HEIMSINS
BESTU DÝNUR
" WE MAKE THE WORLD S BEST MATTRESS" er hið viðurkennda
vörumerki og auglýsingaslagorð Serta verksmiðjanna í Ameríku.
It’s <)ut óf This Worid.
Þegar þú ákveður að kaupa þér amerískt rúm þá skaltu koma
til okkar og prófa hvort þér líkar best stíf eða millistíf dýna eða
mjúk. Við eigum þær alltaf til á lager og getum afgreitt þær strax
og þeim fylgir 20 ára ábyrgð.
SERTA dýnan er einstök að því leyti að hún er eina breiða rúm-
dýnan á markaðnum sem er bundin í báðar áttir sem þýðir
að hjón sem sofa saman á dýnunni verða lítið vör hvort við annað
þegar þau bylta sér. Þetta er augljós kostur þegar annar aðilinn
er þyngri því þá truflar hann ekki léttari aðilann á SERTA dýnu.
Einti. aðmaft SEHh A alltaf
Búsgagnahöllin
BILDSHOFÐA 20 - 112 REYKJAVIK - SIMI 91-681199