Morgunblaðið - 09.11.1993, Síða 22

Morgunblaðið - 09.11.1993, Síða 22
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 1993 Fundur forsætisráðherra Norðurlandanna á Álandseyjum Stytting vinnuvikunnar ekki ráð við atvinnuleysi FORSÆTIS- og- fjármálaráðherrar Norðurlandanna ræddu atvinnu- mál á fundi sinum í Maríuhöfn á Álandseyjum í gær og höfnuðu því sem leið til að draga úr atvinnuleysi að stytta vinnuvikuna, að því er Davíð Oddsson forsætisráðherra sagði í samtali við Morgun- blaðið í gær. „Það var tekið sérstaklega á þessu máli,“ sagði Davíð Oddsson, en í yfirlýsingu forsætisráðherr- anna segir að reynsla manna á Norðurlöndum og fræðilegar at- huganir mæli gegn því að almenn Jeltsín hættir við forsetakosningar Hefur tvisvar fengið umboð þjóðarinnar - segir Kasíkov, talsmaður forsetans Moskvu. Reuter. TALSMAÐUR Borís Jeltsíns sagði í gær að Rússlandsforseti hefði ákveðið að hætta við boðaðar forsetakosningar í júnimán- uði á næsta ári þar 'sem hann hefði nú þegar tvívegis fengið skýrt umboð til að sljórna frá fólkinu í landinu. Skýrt var frá þessari ákvörðun forsetans á sunnudag og kom hún á óvart en viðbrögð stjórnmálaleiðtoga á Vesturlöndum hafa einkennst af varfærni. Talsmaður forsetans, Anatolíj Krasíkov, staðfesti áður fram komnar fréttir þess efnis að for- setinn hefði ákveðið að sitja út kjörtímabil sitt en því lýkur 1996. Er Jeltsín leysti upp fulltrúaþing- ið svonefnda og lét til skarar skríða gegn pólitískum andstæð- ingum sínum lýsti hann yfír því að konsingar til þingsins myndu fara fram þann 12. næsta mánað- ar en forsetakosningar 12. júní 1994. Talsmaður Jeltsíns kvað forsetann hafa komist að þeirri niðurstöðu að ástæðulaust væri með öllu að halda forsetakosning- ar. Krasíkov kvaðst vera þeirrar skoðunar að slíkt myndi aðeins verða til þess að dreifa athygli almennings fýrir þingkosning- amar mikilvægu í næsta mánuði. Hann minnti og viðstadda á að Jeltsíns hefði árið 1991 verið kosinn forseti Rússlands í fyrstu lýðræðislegu kosningunum í 1.000 ára sögu landsins. Þá hefði hann einnig hlotið mikinn stuðn- ing í þjóðaratkvæðagreiðslunni sem fram fór í aprílmánuði. Vatnaskil í vændum Anatolíj Krasíkov kvaðst gera sér ljóst að ákvörðun þessi kynni að mælast misjafnlega fyrir jafnt á heimavelli sem á Vesturlöndum. Þeir sem legðu þá mælistiku á þessa ákvörðun Jeltsíns ættu að hafa í huga að í vændum væru þingkosningar sem valda myndu vatnaskilum í sögu Rússlands; fyrsta lýðræðislega þings lands- ins yrði senn kjörið. Viktor Tsjernomyrdín, forsæt- isráðherra Rússlands, lýsti yfir fullum stuðningi við Jeltsín á sunnudag og kvað ríkisstjórnina alla styðja forsetann. Verkefni Jeltsíns væri sögulegt og hann væri í senn maður strangheiðar- legur og vandaður sem bæri djúpa virðingu fýrir skyldum sín- um. Bill Clinton, forseti Bandaríkj- anna, sagði í sjónvarpsviðtali um helgina að Bandaríkjastjórn myndi styðja Jeltsín svo lengi sem hann beitti sér fyrir umbótum jafnt á sviði efnahags- sem man.n- réttindamála. Tekinn að lýjast Ríkisstjórnir á Vesturlöndum lýstu almennt yfir stuðningi við Jeltsín er hann beitti herafla landsins til að brjóta á bak aftur uppreisn andstæðinga sinna í Moskvu í október. Hins vegar lýstu ýmsir yfír efasemdum sín- um um lýðræðisást Rússlandsfor- seta þegar hann bannaði starf- semi stjórnmálaflokka harðlínu- kommúnista og þjóðemissinna, lét loka 15 dagblöðum og koma tímabundið á ritskoðun, sem nú hefur verið aflétt. Talsmaður Jeltsíns tjáði sig ekki um fréttir þær sem birtar voru á sunnudag þess efnis að Jeltsín hygðist hefja leit að hæf- um eftirmanni sínum. Jeltsín, sem er 62 ára, hefur þráfaldlega borið til baka sögusagnir um að hann sé farinn að heilsu en hefur á hinn bóginn viðurkennt að hann sé tekinn að lýjast nokkuð. J ólamyndatökur 3 Ódýrastir Nú er rétti tíminn til að panta jólamyndatökuna við myndum til og með 21. des. og skilum öllum myndum og stækkunum fyrir jól. Jólakortaveröiö hjá okkur er hiö hagkvæmasta á landinu í okkar myndatökum er innifalið að allar myndir eru stækkaðar og fullunnar í stærðinni 13 x 18 cm að auki 2 stækkanir 20 x 25 cm og ein stækkun 30 x 40 cm í ramma. Verð frá kr. 12.000,oo Ljósmyndastofan Mynd sími: 65 42 07 Barna og fjölskylduljósmyndir sími: 677 644 Ljósmyndastofa Kópavogs sími: 4 30 20 stytting vinnuvikunnar muni leiða til aukinnar eftirspumar eftir vinnuafli. Davíð Oddsson sagði ráðherrana hafa verið sammála um að sú hugmynd að stytting vinnuvi- kunnar kalli á fleiri mannaráðning- ar væri illa grunduð. Á fundi forsætisráðherranna í gær og fýrradag var fjallað um Evrópumálin, utanríkis- og öryggis- mál. Þar var sérstaklega rætt um hersveitir Rússa í Eystrasaltslönd- unum og skorað á Rússa að standa við fyrri yfirlýsingar um að fjar- lægja setulið sitt úr löndunum. „Þá var farið yfir sameiginlega sjónvarpsstarfsemi Norðurland- anna. Tillögur forstöðumanna nor- rænu útvarpsstöðvanna þóttu verulega athyglisverðar, en mönn- um leist ekki á að kosta stórkost- legum fjármunum úr ríkissjóði, svo sem þær gera ráð fyrir, og lögðu til að þetta verk yrði unnið áfram en þó út frá þeirri forsendu að það yrði ódýrara en það virtist vera á þessu stigi máls og gæti staðið undir sér. Á sameiginlegum fundi með fjármálaráðherrum Norðurland- anna var farið sérstaklega yfir ástand í atvinnumálum og vaxandi atvinnuleysi. Þar kom fram í öllum töflum að við stöndum og höfum staðið miklu betur en nágrannar okkar. Að ósk Norðmanna ræddum við sérstaklega mál sem tengist rithöf- undinum Salman Rushdie vegna tilræðis við útgefanda hans í Nor- egi nýlega. Forsætisráðherrarnir beindu því til utanríkisráðherranna að fjalla um það mál og álykta og það hafa þeir gert. Þar er lýst mjög ste'rkum áhyggjum út af af- stöðu írana til þessa rithöfundar og þeim dauðadómi sem þeir hafa kveðið upp yfir honum,“ sagði Davíð Oddsson. Umdeild myndbirting FORSÍÐA Sunday Mirror með mynd af Díönu prinsessu sem var tek- in með falinni myndavél þegar prinsessan var á líkamsræktaræfingu. Seldi myndirnar BRYCE Taylor, eigandi líkams- ræktarstöðvar- innar, seldi mynd- irnar fyrir jafn- virði 10 milljóna króna. Spenna í Moskvu á byltingarafmæli bolsjevikka í Rússlandi Fj ölniennt lögreglu- lið hindrar mótmæli Moskvu. The Daily Telegrah. SVEITIR óeirðalögreglu voru nyög áberandi á götum Moskvu á sunnudag en þá voru 76 ár liðin frá byltingu bolsjevikka í Rúss- landi. Um 50.000 lögreglumenn voru á götum höfuðborgar Rúss- lands, tilbúnir til að bijóta á bak aftur hugsanleg fjöldamótmæli andstæðinga Borís Jeltsíns, for- seta. Yfirvöld kváðu þetta gert þar sem grunsemdir hefðu vaknað um að hryðjuverkamenn hygðust láta til sín taka. Aðrir sögðu liðs- styrkinn og brynvagnana sem ekið var um götur borgarinnar til marks um aukna tilburði Jeltsíns til einræðisstjórnar eftir uppreisn- ina blóðugu í Moskvu í byijun fyrra mánaðar. Helstu hópar andstæðinga forset- ans, þar á meðal Kommúnistaflokk- urinn gamli, höfðu hvatt stuðnings- menn sína til að virða bann sem lagt hafði verið við mótmælum í tilefni byltingarafmælisins, sem forðum var stærsti hátíðsdagurinn í lífí Sovét- borgarans. Flokkar þessir höfðu í staðinn hvatt menn til að undirbúa sig fyrir þingkosningarnar sem fram eiga að fara í næsta mánuði. Mótmæli kommúnista Þrátt fyrir þetta komu um 1.500 kommúnistar saman í Medvedkovo- skógi, sem er við ytri hringveginn í Moskvu. Spjöldum með ásjónu og slagorðum byltingarleiðtogans Vlad- Reuter Mótmæli kveðin niður ÞRÍR óeirðalögreglumenn handtaka konu, sem tók þátt í mótmælum kommúnista á sunnudag, þegar 76 ár voru liðin frá byltingu bolsje- vikka í Rússlandi. ímírs Leníns var haldið á lofti en ávarp dagsins flutti Vladímír Kijútskov, fyrrum yfírmaður sovésku öryggislögreglunnar, KGB. Inni í borginni tóku lögreglusveitir sér stöðu við styttu af Lenín sem enn gnæfír yfír Október-torginu við hlið Gorkíj-garðsins. Um 300 stjórnar- andstæðingar voru flæmdir burt er þeir hugðust safnast saman við stytt- una af manninum sem stofnaði Sov- étríkin. Lögreglumenn tjáðu við- stöddum að táragasi yrði beitt hefðu þeir hinir sömu sig ekki á brott. Svæðinu umhverfis Kremlarmúr var lokað en um morguninn var litlum hópum leyft að leggja blómsveiga að grafhýsi Leníns.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.