Morgunblaðið - 27.11.1993, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1993
11
Engin áætlun til
um lagnir ljósleið-
ara í íbúðarhús
EKKI hefur verið gerð nein endanleg úttekt af hálfu Pósts og síma
á möguleika þess að leggja ljósleiðara í íbúðarhús. Að sögn Harald-
ar Sigurðssonar, framkvæmdasíjóra fjarskiptasviðs Pósts og síma,
hafa þessi mál verið mikið rædd innan stofnunarinnar en engin
áætlun um framkvæmdir verið gerð.
Að sögn Haraldar er búið að
leggja ljósleiðara í kringum landið
og hann tengdur inn á svo til allar
símstöðvar á leiðinni. Hann er uppi-
staðan í hefðbundnum fjarskiptum
út um landið. Varðandi ljósleiðara-
lagnir í þéttbýli sagði Haraldur að
nú væri hugsað til nýrra hverfa, að
undirbúa þau undir að hugsanlega
verði tekin ákvörðun um slíka lögn
en hann ítrekaði að sú ákvörðun
hefði ekki verið tekin.
Framþróun gífurlega hröð
„Þróunin í þessum efnum er gíf-
urlega hröð og við viljum ekki fjár-
festa í dýrum búnaði sem viðskipta-
vinir vilja siðan kannski ekki nota.
Við fylgjumst grannt með þróun í
Vestur-Evrópu og tökum nokkurt
mið af þörfum notenda eins og þær
koma fram þar.
Sáralítil vinna hefur verið lögð í
áætlanir um að glerstrengur verði
lagður í hvert íbúðarhús, enda er
alls ekki útséð um að það sé endi-
lega rétta lausnin. Mjög mikið af
þeirri þjónustu sem slíkur strengur
myndi veita getum við veitt með því
neti sem við höfum í dag þótt það
anni að vísu ekki flutningi tuga sjón-
varpsrása inn í hveija íbúð. Við vit-
um ekki endilega hveijar þarfir við-
skiptavinanna eru umfram það sem
við getum veitt þeim i dag og því
síður hver rekstrargrundvöllurinn
yrði fyrir þéttriðið ljósleiðaranet.
Hitt vitum við að það að grafa upp
og inn í hvert hús, þar sem ekki eru
rör til að draga í, kostar milljarða,"
sagði Haraldur.
Tölvu- og röntgentækni
VERÐLAUNAAUGLÝSINGIN náði yfir tvær opnur og birtist í
októberhefti tímaritsins Face. Myndirnar voru teknar með rönt-
genmyndavél á spítala í London og síðan unnar í tölvu. Þær
myndir, sem hér birtast, eru ekki frummyndir heldur unnar
upp úr tímaritinu.
Verðlaimaauglýsing-
in unnin með rönt-
gen- og tölvutækni
AUGLÝSING sú sem vann fyrstu verðlaun í auglýsingasam-
keppni breska hönnunartímaritsins XYZ og sagt var frá í Morg-
unblaðinu fyrir nokkru var að sögn annars höfundar hennar,
Barkar Arnarsonar ljósmyndara, unnin með röntgen- og tölvu-
tækni.
„Myndirnar voru teknar á spít-
ala í London. Annars vegar voru
teknar röntgenmyndir af fætin-
um á mér og hins vegar af skón-
um sem sagaður var í tvennt.
Tölvuvinnslan fólst síðan í því að
setja myndirnar saman og skýra
vörumerkin. Það gerðum við í
„Paintbox“-kerfi,“ sagði Börkur.
„Þetta var ofsalega gaman fyr-
ir okkur af því fyrirtækið sem ég
vinn hjá, „Blue Source“, er það
lítið. í keppninni tók þátt fjöldinn
allur af stórum auglýsingastofum
með auglýsingar fyrir heims-
þekkt vörumerki. Fyrirtækið okk-
ar er nýlegt og auglýsandinn sem
við vorum þama að auglýsa fyrir
er okkar stærsti viðskiptavinur
þannig að þetta var mikil og góð
uppörvun," sagði Börkur.
Morgunblaðið/Silli
Rek en auðjörð
„ÞAÐ mun sjaldgæft og ég man ekki eftir því að myndast svo mikið rek að háar rastir hafa mynd-
sjá svona mikið rek í Laxá og að ekki sjáist snjór ast meðfram ánni eins og sjá má á myndinni. Áin
á jörðu og ekki einu sinni í nálægum fjöllum, allt hefur flætt inn á túnið við Hólmavað og allt að
marautt,“ sagði Kristján bóndi Benediktsson að húsagarði bónda skammt frá einum velþekktum
Hólmavaði í Aðaldal. En í Laxá í Aðaldal hefur veiðistað í ánni.
Nýjar íslenskar plötur
10 fleiri í ár en í fyrra
Sjálfstæðir útgefendur með meirihlutann
TALIÐ er að 78 nýjar íslenskar plötur verði gefnar út á þessu
ári. Er það tíu plötum fleira en á síðasta ári. Þar af gefa fyrir-
tæki innan Sambands hljómplötuframleiðenda út 32 plötur, sem
er sami fjöldi og í fyrra, þannig að aðilar utan samtakanna gefa í
ár út 46 titla á móti 36 árið á undan. I fréttatilkynningu frá
Sambandi hljómplötuframleiðenda kemur fram það álit að hljóm-
plötuútgáfa á íslandi sé ekki gróðafyrirtæki og allt tal um að
flytjendir auki gróða sinn með því að gefa út sjálfir sé byggt á
óskhyggju.
í fréttatilkynningunni kemur
það fram að nokkrar áherslubreyt-
ingar hafi orðið í störfum hljóm-
plötuútgefenda, þeir starfi með
færri flytjendum en oft áður. Þá
hafi þeir snúið sér í auknum mæli
að endurútgáfum eldra efnis og
safnplötum. Slíkar útgáfur ein-
kenni mjög útgáfu hljómplötu-
framleðenda í ár og væntanlega
einnig næstu ár. Fram kemur að
leitað hafi verið til félaga Sam-
bands hljómplötuframleiðenda með
útgáfu á mörgum þeim plötum sem
sjálfstæðir útgefendur standi nú
að.
Ekki gróðafyrirtæki
„Hljómplötuútgáfa á íslandi hef-
ur aldrei og mun aldrei verða
gróðafyrirtæki vegna smæðar
markaðarins og þeirrar staðreynd-
ar að kostnaður við gerð hljóm-
plötu hér á íslandi er sá sami og
TRÉSMIDJA TIL SÖLU
lónlánasjóður óskar eftir tilboðum í fyrrum Trésmiðju Þor-
valdar Olafssonar hf. á Iðavöllum 6 í Keflavík. Um er að
ræða eftirfarandi vélasamstæður/framleiðslulínur:
Spónaparket og hurðasamstæða.
Spónapressusamstæóa.
Lakklína.
Ymsar sjálfstæðar vélar.
Brennsluofn og spónsugukerfi.
Ymis verkfæri.
Trésmiðjan er í 1.694 fm húsnæði á Iðavöllum 6, Keflavík.
Óskað er eftir tilboðum í ofangreindar eignir þannig:
a. Vélar og fasteign í einu lagi.
b. I fasteign eingöngu.
c. I vélar eingöngu.
d. I einstaka vélasamstæður.
Nánari upplýsingar, s.s. lista yfir vélar, veitir Iðnlánasjóð-
ur, Ármúla 13A, Reykjavík, sími 680 400.
Áskilinn er réttur til þess að taka hvaða tilboði sem er
eða hafna öllum.
Tilboðum skal skilað til lónlánasjóðs, Ármúla 13A, 108
Reykjavík, eða á myndsendi sjóðsins, 91-680 950, i síð-
asta lagi mánudaginn 6. desember nk.
annars staðar í heiminum," segir
í tilkynningunni. Fullyrt er að selja
þurfi 1000-2000 eintök af plötum
sem bera lítinn upptöku- og aug-
lýsingakostnað, en 3000-6000 af
metnaðarfyllri útgáfum. Fram
kemur að meðaltalssala á síðasta
ári hafi hins vegar ekki verið nema
1765 eintök. Þá er bent á að að-
eins ein plata hafi selst í yfir
10.000 eintökum í fyrra og sex til
viðbótar í yfir 5000 eintökum.
Tvö fyrirtæki, Skifan og Spor,
gefa út 23 af þeim 32 nýjum ís-
lenskum plötum sem gefnar eru
út í ár af fyrirtækjum innan Sam-
bands hljómplötuframleiðenda.
Komnar aftur
Kuldahúfur
í miklu úrvali
Verð kr. 1.090
Verð kr. 780
Opið laugardag kl. 10-14.
5% staðgreiðsluafsláttur, einnig af
póstkröfum greiddum innan 7 daga.
UTILIFf
GLÆSIBÆ. S/MI 812922