Morgunblaðið - 27.11.1993, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1993
13
hann segir „þetta fólk áleit sig...“.
Bragi Asgeirsson, ef við ætlum
okkur að vitna í aðrar persónur,
þá skulum við vanda okur og
gæta þess að meining orða þeirra
komist óbrotin til skila. Því öll
notkun á heimildum og heimildar-
mönnum á þennan hátt jaðrar við
algert siðleysi.
Hvað er þá eftir Bragi Ásgeirs-
son, af gagnrýni þinni á sýningu
Tinu Auferio. Er nokkuð annað
eftir en að þú biðjir listakonuna
og Nýlistasafnið afsökunar á
rætninni.
Ég sé mér ekki fært að svara
því sem eftir er af grein Braga
Ásgeirssonar þó svo að hann hafi
ætlað mér það sem svar við mínum
athugasemdum, því ég get einfald-
lega ekki séð hvemig endurvakn-
ing á Gelískri tungu, tilgerð í nú-
listum, sifjar hans við Dani, Brim-
arhólmsvist íslendinga, kemur
henni efnislega við, hvað þá hirð-
líf Kristjáns IV, en hjá mér og
þeim ágæta kóngi, finnur Bragi
það sameiginlegt að vera eirfangr-
unarsinnar. Því ef ég skil Braga
rétt þá átti kóngur þessi það til
að skella hurðum og loka sig af
ef hlutirnir fóru ekki nákvæmlega
eftir hans höfði og hefur þá engu
tauti verið við hann komandi, ef
ég þekki frændur mína rétt. Ég
get svo sem ekki hrakið þessa
samlíkingu Braga Ásgeirssonar á
mér og kónginum, enda hef ég
einsett mér að halda aftur af slíku
launmonti og þarflausum afneit-
unum á eigin göllum. En hitt verð
ég að segja að ýmislegt finnst mér
líkt með Kristjáni IV konungi og
listiýninum Braga Ásgeirssyni en
þó aðallega sú lyndiseinkun kóngs-
ins að vera bókstafstrúar, sú sam-
líking hringir nokkrum bjöllum.
Að lokum þetta. í upphafí grein-
ar sinnar „Gagnrýni á listrýni“ fer
Bragi stórum orðum um fólsku-
brögð og klæki ýmiskonar sem
hafðir eru í frammi af óvönduðu
fólki við erlendar listastofnanir,
nefnir hann listamiðstöðina í Svea-
borg því til áréttingar.
Brellur þeirra, virðast að hans
mati, þjóna þeim einum tilgangi
að gera veg núlista meiri á kostn-
að fijálsrar hugsunar og „einstakl-
ingsframtaks"!!! Allt er þetta sjón-
arspil í þágu miðstýringarafla og
sósíalisma. Má úr fullyrðingum
hans lesa að listin sé orðin nokk-
urs konar Tijóuhestur þessara fúl-
menna, inní vel upphitaðar skóla-
stofur og söfn hér á Norðurlönd-
um. Vil ég nú skora á Braga Ás-
geirsson að hann kortleggi þetta
samsæri, í eitt skiftið fyrir öll, af
þeirri nákvæmni að greina megi
andlitsdrætti þess og listrænan
smekk. Því hugtakið „núlistir" er
á engan hátt tæmandi, og er ein-
ungis til að villa um fyrir lesend-
um. Að öðrum kosti Bragi, dæm-
ast orð þín ómerk.
Höfundur er myndlistarmaður og
varaformaður í stjórn
Nýlistasafnsins.
0 ÁLFABORGf
KNARRARVOGI 4 • 8 686755
80 grömm
J 0 R D A N B lí II 1 1« Fæst hjá íþpóttafélögum um allt lanð
Stónt plaggat fylgir
E II K 0 M 1 N Kostan aóeins 1.880.-