Morgunblaðið - 27.11.1993, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 27.11.1993, Qupperneq 36
36 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1993 Tómas Guðmunds- son frá Vestmanna- eyjum — Minning Fæddur 14. desember 1930 Dáinn 15. nóvember 1993 Dauðinn gerir ekki alltaf boð á undan sér og getur knúið dyra snöggt og án nokkurs fyrirvara. Þannig bar hann að garði er Tómas Guðmundsson kvaddi þennan heim 15. nóvember síðastliðinn. Tommi var við vinnu sína um borð í Hugin VE 55 er kallið kom. Þeir lágu við bryggjuna á Eskifirði og hann ásamt nokkrum skipsfélögum sínum var kominn á dekk til að færa bát- inn þegar hann varð bráðkvaddur og frá dekkinu á Hugin, þar sem hann hafði staðið við störf sín bróð- urpart starfsævinnar, hélt hann í sína hinstu för yfír móðuna miklu. Tommi var óneitanlega einn af kvistunum sem skreyta lífstréð. Hann var á margan hátt sérstakur persónuleiki og undir yfírborðinu, sem stundum gat virst hrjúft, sló hlýtt og gott hjarta. Hann var hrein- skiptinn í öllum samskiptum og lét skoðanir sínar oftast flakka án þess að slípa þær mikið til enda ekki vanur því til sjós að þurfa að tala einhveija tæpitungu. Sjórinn var starfsvettvangur hans alla tíð og þar kunni hann vel til verka enda vel metinn af skipsfélög- um sínum gegnum tíðina. Hann var góður leiðbeinandi nýliðanna og gat miðlað af mikilli reynslu enda hafði hann stundað sjóinn í hart nær fímm áratugi. Bróðurpart starfsævinnar var Tommi stýrimaður á Hugin VE, hjá Guðmundi Inga bróður sínum. í rúm þijátíu ár starfaði hann á Hugin og var því ekki að undra að hann væri kenndur við bátinn og best þekktur undir nafninu Tommi á Hugin. í mínum huga hefur Tommi alltaf verið hálfgerð þjóðsagnapersóna um borð í Hugin, svo margar skemmti- legar frásagnir hafa verið sagðar af honum og störfum hans þar um borð. Eg fékk að kynnast persónu Tomma af eigin raun er ég starfaði á Hugin, hjá Guðmundi Inga tengdaföður mínum, um hríð. Ég hafði ekki gert mér í hugarlund hversu stórt hlutverk hann spilaði um borð enda þótt ég fyndi alltaf fyrir ákveðinni virðingu í garð hans hjá Bryndísi, konu minni, sem kall- aði hann aldrei annað en Tomma frænda. Tommi var akkerið í áhöfninni á Hugin. Maðurinn með reynsluna og kunnáttuna og persónuleikann sem gerði manninn ógleymanlegan. Til- svör hans voru oft á tíðum skemmti- leg og gátu líka verið hvöss ef sá gállinn var á honum en yfírleitt voru þau krydduð þeim húmor sem Tommi bjó yfír. Það var gaman að sjá til hans við vinnu sína á dekkinu. Þar var ekki gefíð eftir og þegar mikið lá við var eins gott að verða ekki fyrir á dekkinu. Hann böðlaðist áfram af krafti og dugnaði og þó elstur væri og líka þyngstur var hann létt- ari á sér en flestir aðrir og var fljót- ur að hendast til um dekkið og vippa sér upp á lunninguna ef eitthvað ókláraðist í blökkinni þegar verið var að draga nótina. Tommi sagði skoðanir sínar hisp- urslaust og fannst kannski sumum að hann gæti á köflum verið ótæpi- lega hreinskilinn en það var bara hans stfll. Hann sagði hug sinn og menn urðu að taka því. Hann var traustur og góður skipsfélagi og mikils metinn af öllum sem með honum störfuðu. Það gat verið gam- an að koma í brúna til Tomma þeg- ar hann var á vaktinni og oft fuku skemmtilegar setningar og athuga- semdir þegar hann var í góðu stuði. Tommi var mikill sælkeri og naut þess að gæða sér á kræsingum og honum fannst mikilvægt að góður kokkur væri um borð enda var yfír- leitt mikill vinskapur milli hans og kokksins. Tommi var þekktur fyrir skemmtileg tilsvör sín. Honum varð sjaldan svarafátt og gat yfirleitt svarað um hæl og án umhugsunar ef einhveiju var að honum skotið. t Elskuleg móðir og amma, HJÖRDÍS S. KVARAN, áðurtil heimilis á Sólvallagötu 3, lóst á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund 26. nóvember. Ásdis Kvaran Þorvaldsdóttir, Hjördis Einarsdóttir. t Ástkær systir okkar, föðursystir og frænka, ÞORBJÖRG SIGURÐARDÓTTIR, Löndum, Stöðvarfirði, andaðist í Borgarspítalanum miðvikudaginn 24. nóvember sl. Minningarathöfn um hana fer fram í Fossvogskapellu mánudaginn 29. nóvember kl. 10.30. Útför fer fram frá Kolfreyjustaðarkirkju, Fáskrúðsfirði, og verður auglýst síðar. Fyrir hönd systkina og annarra ættingja, Magnús Sigurðsson. t Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, SAMÚEL JÓNSSON frá Snjallsteinshöfða, dvalarheimilinu Lundi, Hellu, lést 25. nóvember. Hlíf Samúelsdóttir, Þórir Guðmundsson, Gunnur Samúelsdóttir, Pétur Kristjánsson, Guðjón Samúelsson, Guðrún Friðriksdóttir, Auður Samúelsdóttir, EggertWaage, Katrín Samúelsdóttir, Ólafur Helgason og barnabörn. Tilsvörum hans fylgdi síðan langt og sérstakt „Haaaa“, svona til að leggja frekari áherslu á orðin. Þekkt er sagan af honum þegar Huginn lá í brælu inni á Siglufírði ásamt mörg- um öðrum loðnubátum. Tommi fór ásamt strákunum í sjoppu uppi í bæ til að ná sér í blöð og fá sér eitt- hvert góðgæti. í sjoppunni voru fyr- ir nokkrir Eyjastrákar af öðrum loðnubát og þegar Tommi kom frá afgreiðsluborðinu með blöðin og með pylsu, sem hann var að gæða sér á, sagði einn strákana við hann: Þú mátt nú ekki við þessu Tommi, þú ert nú nógu feitur. Tommi lét ekki slá sig út af laginu frekar en fyrri daginn og svaraði um hæl: „Haaa, er mamma þín eitthvað betri?" Betur var varla hægt að svara fyrir sig enda sprakk allt í sjoppunni úr hlátri. Þannig duttu svörin af vörum Tomma um leið og án umhugsunar og hittu yfirleitt beint í mark. Það verður sjónarsviptir að Tomma úr sjómannastéttinni í Eyj- um. Dugnaðarforkur er genginn og víst er að hann skilur eftir sig stórt skarð í mannlífsflóru Eyjanna. Víst er að atorkumanns eins og Tomma bíða önnur og meiri verk- efni á nýjum slóðum. Þar mun hann eflaust sigla himinfleyjum á ný mið og örugglega verður ekki slegið slöku við á dekkinu þar þegar Tommi verður tekinn við stjóminni og vonandi verða kokkamir á þeim fleyjum honum að skapi. Við Bryndís og íjölskylda okkar sendum Emu, bömunum og öðram ástvinum innilegustu samúðarkveðj- ur okkar og vonum að Guð veiti þeim styrk á þessum erfiðu tímum. Megi minningin um góðan mann verða þeim huggun í sorg þeirra. Guð blessi minningu Tómasar Guðmundssonar. Grímur Gíslason. í dag verður jarðsunginn frá Landakirkju í Vestmannaeyjum bróðir minn, Tómas Guðmundsson, sem lést hinn 15. nóvember síðast- liðinn. Tómas fæddist í Reykjavík 14. desember 1930. Við systkinin voram fjögur. Elst var Ragnheiður, síðan komu Tómas og Sæmundur, sem vora tvíburar, og yngstur var ég. Foreldrar okkar voru Steinunn Anna Sæmundsdóttir og Guðmund- ur Þórarinn Tómasson sjómaður. Við ólumst upp í Reykjavík og fljótt tók lífsbaráttan við. Faðir okk- ar lést er við vorum á unglingsaldri og urðum við því að hjálpast að við að sjá heimilinu farborða. Það var því fljótt farið að vinna og leið Tomma lá á sjóinn. Hann hóf sjó- mennsku á Heimakletti RE 26, á síldveiðum í Hvalfírði, og stundaði sjóinn síðan nær óslitið til dauða- dags, að þeim áram undanskildum er hann fór í Stýrimannaskólann til að afla sér skipstjómarmenntunar. Árið 1955 útskrifaðist Tommi frá Stýrimannaskólanum i Reykjavík með hið meira fískimannapróf. Að náminu loknu stundaði hann sjóinn á ýmsum toguram frá Reykjavík til ársins 1962 er hann fluttist til Vest- mannaeyja. Þegar Tommi kom til Eyja gerð- ist hann stýrimaður hjá mér á Hug- in VE 65, sem ég var eigandi að og skipstjóri á og upp frá því vann hann nánast óslitið hjá útgerð Hug- ins, ýmist sem stýrimaður eða skip- stjóri. Á þessum árum má segja að við höfum saman siglt í gegnum miklar breytingar í sjávarútvegin- um. Skipin hafa stækkað og breyst og veiðamar eru ekki með sama sniði og á áram áður. Huginn VE 65 sem við byijuðum saman á var 60 tonna trébátur og á honum vor- um við til ársins 1964 er Huginn II VE 55, 216 tonna stálbátur sem smíðaður var Noregi, kom til lands- ins. Nýr Huginn VE 55, 350 tonna stálbátur, var svo smíðaður í Noregi 1975, og á honum var Tommi síðan til dauðadags en hann var við störf sín um borð í Hugin er hann lést. Tommi var góður samstarfsmað- ur og tryggur og góður félagi.' Hann var harðduglegur til vinnu og það var óhætt að treysta því að hann skilaði sínu verki af samviskusemi og dugnaði. Vinnusemi var honum í blóð borin og það var yfirleitt ekk- ert verið að slugsa við hlutina og gengið í þá af krafti. Þó að við væram ekki alltaf sammála um hlut- ina, bræðurnir, þá áttum við gott samstarf enda segir 30 ára sam- starf til sjós allt sem segja þarf í þeim efnum. Fyrir utan að vera góður starfs- maður var Tommi líka góður félagi og á góðum stundum var hann hrók- ur alls fagnaðar. Hann var sérstak- lega orðheppinn og skemmtileg tils- vör hans hittu oft beint í mark. Hann var hreinskiptinn og sagði hlutina oftast umbúðalaust og dró ekkert undan, sama hver í hlut átti. Skömmu eftir að Tommi fluttist + Móðir okkar, AÐALHEIÐUR HALLDÓRSDÓTTIR frá Siglufirði, lést á hjúkrunarheimilinu, Sunnuhlíð, Kópavogi, fimmtudaginn 25. nóvember. Jarðað verður í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á hjúkrunarheimilið í Sunnuhlíð. Jónína Jóhannsdóttir, Stefanía María Jóhannsdóttir, Jóhann Heiðar Jóhannsson. + Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir, SIGRÍÐUR V. EINARSDÓTTIR, andaðist aðfaranótt 26. nóvember sl. í Sjúkrahúsi Akraness. Jaröarförin verður tilkynnt síðar. EinarTjörvi, Gunnar H. Eliasson, Hreinn Elíasson, Ólafur T. Eifasson, Edda Elíasdóttir, Iðunn Eliasdóttir, Guðrún Elíasdóttir, Sigriður Elíasdóttir, Inger J. Eliasson, Guöjónína Sigurðardóttir, Rut Sigurmonsdóttir, Ólöf Sigurðardóttir, Willy Blumenstein, Jón Leósson, Guðmundur Magnússon, Eiríkur Valdimarsson. til Eyja kynntist hann eftirlifandi konu sinni, Ernu Þorsteinsdóttur, og fljótlega gengu þau í hjónaband. Þau eignuðust saman þijú börn, Guðmund Þórarin, fæddan 13. júní 1964, Lilju Þorsteinu, fædda 28. ágúst 1966, og Ásdísi Steinunni, fædda 30. desember 1971. Fyrir átti Ema tvo drengi, Gunnar og Gísla, og gekk Tommi þeim í föður- stað eins og þeir væra hans eigin synir. Ég kveð Tomma bróður með þakklæti fyrir áratuga gott sam- starf og ég veit að bæði ég og aðr- ir vinir hans og skipsfélagar eiga eftir að sakna hans. Við Stína sendum Emu, börnun- um og öðram ástvinum okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Tómasar Guðmundssonar. Guðmundur Ingi Guðmundsson. Þegar fréttin um að Tómas Guð- mundsson, stýrimaður á Hugin VE, væri fallinn frá setti mig hljóðan. Þá allt í einu rann upp fyrir mér að við höfðum verið saman til sjós í tuttugu ár án þess að skuggi félli á samstarf okkar. Fyrir mér var Tommi einn af þeim mönnum sem maður gat alltaf sett traust sitt á, sama á hveiju gekk. Aldrei brást hann því trausti, sem ég ungur maður fékk á honum. Það var sama hvort það var við störf á sjónum þegar mikið lá við eða í daglega líf- inu; alltaf mátti reiða sig á Tomma. Einmitt þess vegna er missirinn mikill. Að maður skuli ekki eiga eftir að spjalla við hann um lífsins gang og nauðsynjar eða heyra gam- anyrði af vöram hans skilur eftir mikið tóm sem aldrei verður fyllt. Eftir situr minningin um góðan dreng og vin sem átti létt með að koma manni til að hlæja. Margar sögur er til af orðheppni Tomma og eiga þær öragglega eftir að ylja mér og öðram sem kynntust honum á lífsleiðinni. Þó að söknuður okkar sem þekkt- um Tomma í leik og starfí sé mik- ill er hann enn meiri hjá Ernu og krökkunum. Þau hafa misst kær- leiksríkan eiginmann og föður, í stað hans kemur enginn. Á sorgarstundu verða orð alltaf fátækleg, en það er von mín og ósk að Guð veiti fjöl- skyldunni þann styrk sem allir þurfa á að halda þegar ástvinamissi ber að höndum. En þau eiga líka dýr- mætar minningar og það er fjársjóð- ur sem ekki fymist. Páll Grétarsson og fjölskylda Tómas Guðmundsson, stýrimaður á Hugin VE 55, sem varð bráð- kvaddur 15. nóvember síðastliðinn, verður til moldar borinn frá Landa- kirkju í Vestmannaeyjum í dag. Okkur skipsfélaga hans langar með línum þessum að minnast okkar góða vinar og skipsfélaga og þakka traust og gott samstarf gegnum árin. Tommi byijaði ungur til sjós og sjómennskan varð hans ævistarf. Hann hafði á löngum sjómannsferli kynnst mörgu misjöfnu og ýmislegt reynt og kom sú reynsla hans oft til góða um borð hjá okkur. Tommi hafði starfað hjá útgerð Hugins í rúm 30 ár og sumir okkar, sem nú erum á bátnum, hafa starfað með honum mjög lengi. Sumir alla tíð frá því þeir byijuðu sjómennsku en aðrir skemur. Öllum okkur var Tommi góður leiðbeinandi og traust- ur skipsfélagi. Tommi var góður sjómaður og skilaði starfí sínu sem stýrimaður og þá um leið verkstjóri um borð af mikilli samviskusemi. Hann hafði mikla þekkingu á flestu því sem að sjómennskunni lýtur, bæði siglingu og veiðarfæram, enda hafði hann á löngum sjómannsferli veitt með flestum þeim veiðarfæram sem not- uð era. Hann gat þvi miðlað okkur, yngri mönnum, af reynslu sinni og munum við eflaust búa að því alla tíð sem hann kenndi okkur. Tommi var eldklár í meðferð veið- arfæra og oft var gaman að sjá til hans ef trollið eða nótin rifnuðu. Þá var hann í essinu sínu og vissi upp á hár hvemig haga átti við- gerð. Það var ekki verið að horfa á

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.