Morgunblaðið - 27.11.1993, Side 38
38
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1993
1
WÚM
VAGNHÖFÐA 11, REYKJAVÍK, SÍMI 685090
Dansleikur í kvöld frá kl. 22-3
Hljómsveitin TÚNIS leikur fyrir dansi
Fríttinntil kl. 24.00
Mióo- og boróapontanir
í símum 685090 og 670051.
* ffíliófn&oeít
GEIRMUNDAR
Valtýssonar
Konungur sveíflunnar
ásamt fríðu föruneyti í kvöld
frá kl. 22 til 03
MIÐAVERÐ 850 KR.
fólk í
fréttum
ÚTGÁFA
Söguleg kort með spámannslegu ívafí
Morgunblaðið/Kristinn
Ólafur G. Guðlaugsson myndlistarmaður og Guðrún G.
Bergmann höfundur kortanna.
Morgunblaðið/Kristinn
Rafn Jónsson með sonum sínum Agli (t.v.) og Ragnari.
túnleikS
Kjuðar miffi kynslóða
Ut eru komin ný íslensk
spákort, Víkingakort-
in, viska norðursins ætluð
hinum „andlega víkingi,
landkönnuði hins nýja tíma“
eins og segir í kynningu
aftan á spilunum og bókinni
sem fylgir með. Guðrún G.
Bergmann er höfundur
kortanna. Segir hún að þau
séu ætluð öllum sem vilji
vinna í sjálfsrækt, hafi al-
mennan áhuga á spilum eða
vilji kynna sér atriði úr sög-
unni. „Með kortunum 32 er
hægt að gera sér grein fyr-
ir því hver væntanleg fram-
tíð getur orðið ef við vinnum
vel úr henni. Einnig eru þau
tæki til að hjálpa manni til
að vera meðvitaður um hver
maður er.“
Níðstöng þýðir umtal í
kortunum
Kortin eru lögð þannig
upp að í hvert skipti eru
skoðaðar bæði jákvæðar og
neikvæðar hliðar. Ef tekið
er til dæmis 6. kort sem er
Níðstöng og þýðir umtal,
þá er fyrst sagt frá því hvað
níðstöng er. Um jákvæða
birtingu stendur m.a.: „Níð-
stöðin er táknræn fyrir um-
tal í lífi þínu, bæði umtal
um sjálfan þig og umtal þitt
um aðra. Ef níðstöngin hef-
ur verið reist í kortum þín-
um í dag, þá er henni ætlað
að minna þig á að allt um-
tal krefst gætni og varúð-
ar.“ Um neikvæða birtingu
stendur m.a.: „Níðstöngin
er þér áminning um að þú
eyðir of mikilli orku í umtal
um aðra og oftar en ekki
er það umtal miður gott.
Hættu að velta þér upp úr
lífi annarra og reyndu að
koma reglu á eigið líf.“
Framangreind dæmi eru
aðeins brot af því sem stend-
ur með hverju korti.
Guðrún hófst handa við
kortin í febrúar sl. Á einum
degi skissaði hún upp kort-
in, því textann í bókinni
ætlaði hún að vinna út frá
þeim. Daginn eftir hóf hún
vinnu við textann og reynd-
ist það auðvelt. Hver mynd
á spilunum er sérmáluð af
Ólafi G. Guðlaugssyni
myndlistarmanni og auglýs-
ingateiknara, en hann sá
einnig um útlitshönnun.
„Honum tókst sérlega vel
upp. Litasamsetningin er
góð og margar myndanna
eru hreint listaverk," sagði
Guðrún.
Andlegar hefðir á Islandi
Ástæða þess að hún fór
að velta kortunum fyrir sér
var m.a. sú að hana langaði
að gera eitthvað sem- ætti
rætur að rekja í íslenskar
hefðir. „Við leitum alltaf til
útlanda í sambandi við and-
legar leiðir. Við eigum
margar andlegar hefðir hér
á landi sem lítið hefur verið
ijallað um. Ég nota t.d.
landvættina í spilunum,"
segir Guðrún og vekur at-
hygli á að ennþá séu notað-
ir heiðnir verndarvættir í
skjaldarmerkinu, þrátt fyrir
að Islendingar haldi senn
upp á að þúsund ára kristni-
töku.
„Þetta sýnir að ýmislegt
úr andlegri hefð hefur fylgt
okkur frá heiðnum sið. í
fornsögum er einnig sagt
frá andlegum hefðum en við
höfum oftast litið eingöngu
á menningarlegu hliðina
þegar fjallað er um þær út
á við.“
Til þess að hafa góðan
bakgrunn segist Guðrún
hafa þurft að lesa sér mikið
til. „Þetta var goð upprifjun
og skemmtileg lesning. Mér
fannst koma fleiri upplýs-
ingar í ljós en ég hafði búist
við. Ég reyndi líka að lesa
á milli línanna og studdist
þar við bakgrunnsþekkingu
mína á seiðmenningu sem
ég lærði m.a. hjá indíánum.
Með hana í huga skoðaði
ég atburði eins og t.d. þegar
Þorgeir ljósvetningagoði
lagðist undir feld við
kristnitökuna. Það er alveg
dæmigerð athöfn seið-
manns sem leitar andlegrar
leiðsagnar. Síðar var seiður
kallaður galdur því menn
gátu ekki útskýrt þetta at-
hæfi, en hjá nútímafólki
kallast þetta hugleiðsla.“
Guðrún vinnur að því um
þessar mundir að þýða bók-
ina sem fylgir spilunum yfir
á ensku með það í huga að
selja hana hérlendis og er-
lendis og kynna þannig
menningararfleifð okkar.
að var tilfinningaþrungið
andrúmsloft í Borgar-
leikhúsinu í vikunni, þegar
Rafn Jónsson lagði frá sér
kjuðana og fór frá trommu-
settinu, en synir hans tveir,
Egill og Ragnar, spiluðu
áfram. Þannig lauk opinber-
um trommuleik Rabba og
fólkið í salnum stóð á fætur
ogjiyllti hann.
Á tónleikunum voru flutt
lög af nýrri geislaplötu
Rabba, Ef ég hefði vængi, og
fyrri plötunni, Andartaki.
Fjöldi söngvara og hljóðfæra-
leikara kom fram og viðtökur
tónleikagesta voru hinar
beztu. Ágóði af tónleikunum
og plötusölunni rennur til
Rannsóknasjóðs MND félags
íslands. En þótt Rafn sé hætt-
ur að spila á trommur opin-
berlega, er tromman hreint
ekki þögnuð. „Ég sagði ykkur
að þeir væru hörkurokkarar,“
sagði Rafn stoltur, þegar þeir
feðgar stóðu á sviðinu í lok
tónleikanna. Og í viðtali í síð-
asta sunnudagsblaði Morgun-
blaðsins sagði Rafn m.a.
„Fyrir mig skiptir mestu að
hafa nóg að gera“. Þannig
verður það áfram.
DANSSVEIHN
ásamt
Evu Ásrúnu Albertsdóttur
Opið frá kl. 22-03.
Borðapantanir í síma 68 62 20
\ •
-=iÁz-.
HARMONIKUUNNENDUR
Hilmar, Guðmundur
og fleiri sjá um fjörið
Ódýrustu steikur
á íslandi
MAMMA
RÓSA
llamrabor)' 11, sími 42166