Morgunblaðið - 27.11.1993, Blaðsíða 46
-46
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 27. N’OVEMBER 1993
SKIÐI / HEIMSBIKARINN I ALPAGREINUM
Wachter vel af stað
CQ9
ANITA Wachter frá Austurríki
fer heldur betur vel af stað í
heimsbikarkeppninni í alpa-
greinum kvenna. Hún vann
opnunarmótið í Sölden í Aust-
urríki fyrir mánuði siðan og
endurtók leikinn í Santa
Catarina á Ítalíu í gær, en þar
var keppt í stórsvigi.
Wachter, handhafi heimsbik-
arsins, var 0,78 sekúndum
á undan Vreni Schneider frá Sviss
sem hélt upp á 29 ára afmælið í
gær. Schneider náði sér ekki vel
á strik í fyrri umferð og kenndi
lasleika um. Franska stúlkan Ca-
role Merle, sem hafði besta tímann
eftir fyrri umferð, náði aðeins
fjórða sæti því Ulrike Maier frá
Austurríki varð þriðja.
„Ég er auðvitað í sjöunda himni
yfir þessari frábæru byijun á tíma-
bilinu," sagði Wachter sem hefur
nú tekið við forystu hlutverkinu
af landa sínum Petru Kronberger,
sem lagði skíðin á hilluna um síð-
ustu jól. „Ég vissi að ég yrði að
keyra vel í síðari umferðinni til
ÚRSLIT
Skíði
Heimsbikarinn
Santa Catarina, Ítalín:
Stórsvig kvenna:
1. AnitaWachter(Austurr.).......2:17.31
(fyrri umferð 1:07.26, seinni 1:10.05)
2. VreniSchneider(Sviss)........2:18.09
(1:07.91, 1:10.18)
3. Ulrike Maier (Austurr.)......2:18.44
(1:07.78, 1:10.66)
4. CaroleMerle (Frakkl.)........2:18.65
■> (1:07.25, 1:11.40)
5. Deborah Compagnoni (Ítalíu)..2:19.15
(1:08.36, 1:10.79)
6. Pemilla Wiberg (Svíþjóð).....2:19.32
(1:08.52, 1:10.80)
7. Spela Pretnar (Slóveníu).....2:19.37
(1:08.58, 1:10.79)
8. Eva Twardokens (Bandar.).....2:19.62
(1:08.44, 1:1L18)
9. MartinaErtl (Þýskal.)........2:20.04
(1:08.32, 1:11.72)
10. Corinne Rey-Bfellet (Sviss)..2:20.21
(1:08.79, 1:11.42)
Staðan eftir tvö mót: stig
1. Wachter....................... 200
2. Schneider.......................130
3. Merle...........................110
4. Lefranc...........:.............100
5. Maier.......................... 92
6. Panzanini........................60
7. Twardokens.......................54
8. Pretnar..........................51
' 9. Eder.............................50
10. Ertl.......:.....................49
Körfuknattleikur
Evrópukeppni meistaraliða
A-RIÐILL
Barcelona, Spáni:
Barcelona - Leverkusen (Þýskal.)....64:90
Fred Roberts 16, Andres Jimenez 15 -
Thomas Garrick 27, A. Shamsid-Deen 26.
Staðan
Olympiakos (Grikkl.).............3 3 0 6
Mechelen (Belgíu)................3 3 0 6
Limoges (Frakkl.)................3 2 15
Real Madrid (Spáni).............3 12 4
Benetton Treviso (Ítalíu).......3 1 2 4
Barceiona (Spánn)...............3 12 4
Bayer Leverkusen (Þýskal.).......3 1 2 4
Guildford Kings (Englandi).......3 0 3 3
B-RIÐILL
Aþena, Grikklandi:
Panathinaikos — E. Pilsen (Tyrkl.).. 67:82
Stojan Vrancovic 18, Fragiskos Alvertis 15
- Ufuk Sarica 34, Volkan Aydin 17.
Badalona, Spáni:
Joventut — Cibona Zagreb..........75:60
Dani Perez 16, Mike Smith 15, Comy
Thompson 14 - Veljko Mrsic 15, Ivica Zuric
13.
Cantu, Ítalíu:
Clear Cantu — Benfica.............74:65
Viselli 6, Bargna 11, Tonut 13, Rossini 12,
Hammink 8, Montecchi 11 - Santos 14,
Canceicao 8, Neves 17, Plowden 14, Guim-
araes 10, Silvestre 2.
Bologna, Ítalíu:
Buckler — Pau Orthez (Frakkl.)....76:61
Coldebella 6, Moretti 12, Morandotti 21,
Levingston 8, Carera 7, Bmnamonti 3,
Danilovic 14, Savio 5 - Carter 19, Gadou
9, Pressley 12, Fathoux5, Guinot 16.
B-RIÐILL
Efes Pilsen Istanbul (Tyrkl.)....3 3 0 6
JoventutBadalona(Spánn)..........3 3 0 6
Panathinaikos Athens (Grikkl.)...3 2 15
Virtus Bologna (ítalla)..........3 2 15
Pau-Orthez (Frakkl.).............3 12 4
Cantu (Ítalíu)...................3 12 4
Cibona Zagreb (Króatíu)..........3 0 3 3
Benfica (Portúgal)...............3 0 3 3
að eiga möguleika og sú varð raun-
in. Ég held að rásnúmerið (nr. 1)
hafi fært mér heppni að þessu
sinni.“
Schneider var með fjórða besta
tímann í fyrrf umferð en náði
næst besta í síðari umferð á eftir
Wachter. „Flensan sat í mér en
ég reyndi að gleyma henni í síðari
umferðini. Ég er ánægð með ann-
að sætið miðað við aðstæður,"
sagði svissneska stúlkan, sem hef-
ur unnið 43 heimsbikarmót á ferl-
inum.
Merle, sem er heimsmeistari í
greininni, náði ekki að fylgja góðri
fyrri ferð eftir í þeirri síðari og
var þá 1.35 sek. hægari en Wac-
hter. Merle átti erfitt með að út-
skýra hvað fór úrskeiðis í síðari
umferðinni. „Ég hef enga afsökun,
aðstæður voru þær sömu í báðum
umferðum og ég þekkti brautina
vel. Ég þarf að setjast niður og
reyna að fínna út hvað ég gerði
rangt. Ég veit aðeins að ég byij-
aði of hægt og náði aldrei að finna
rétta taktinn eftir það,“ sagði
Merle.
Pernilla Wiberg frá Svíþjóð, sem
heimsótti ísland fyrir tveimur
árum, er komin á fulla ferð eftir
fótbrot á síðasta keppnistímabili.
Hún var tíunda eftir fyrri ferð en
náði sér upp í 6. sæti eftir síðari
umferðina. Wiberg var sátt við
árangurinn því hún hafði rásnúm-
er 21 í fyrri umferð.
Anita Wachter frá Austurríki er í miklu stuði í upphafi keppnistímabilsins.
Hún sigraði í stórsvigi á Ítalíu í gær.
SNOKER / HM AHUGAMANNA
Norðurströndin: Skip
siglir með eldinn til staða
á norðurströndinni.
Svalbaröi:
J' fJ /j Flogið meö
\| kyndilinn til
Svalbarða
Gulifaks C:
Flogið með
kyndilinn í
þyrlu á
olíuborpall í
Norðursjó.
Lillehammer: Hákon
prins tendrar eldinn á
opnunarhátíðinni 12
febrúar.
Ósló: Norski eldurinn
sameinaður gríska
eldinum frá Olympíu
4. febrúar.
Morgedal: Martha Lovísa
prinsessa hleypur fyrsta
spölinn með
ólympíukyndilinn 27.
november.
KRT
LYFTINGAR
Jónog
GuðniáHM
íSvíþjóð
Jón Gunnarsson og Guðni Sigur-
jónsson verða fulltrúar Islands á
heimsmeistaramótinu í kraftlyft-
ingum sem fram fer í Jönköping
í Svíþjóð dagana 27. nóv. til 5.
desember. Jón keppir í 90 kg flokki
en Guðni í 125 kg flokki. Ólafur
Sigurgeirsson verður íslensku
keppendunum til aðstoðar á mót-
inu, en hann mun einnig dæma á
mótinu.
UM HELGINA
Handknattleikur
Laugardagur:
Bikarkeppni HSÍ
Karlar:
Austurberg: Valur-b-FH...........kl. 13
Digranes: UBK-ÍBV................kl. 14
Varmá: UMFA-ÍR................kl. 16.30
Víkin: Víkingur-Valur.........kl. 16.30
Vfkin: Víkingur-b - ÍBV-b.....kl. 18.30
Konur:
Höllin: KR-ÍBV...................kl. 14
Höllin: Ármann - Haukar.......kl. 15.45
Sunnudagur:
Bikarkeppni HSÍ
Karlar:
Seltj’nes: Grótta-KR.............20.30
Konur:
Kaplakriki: FH - Stjaman.........20.30
Körfuknattleikur
Laugardagur:
1. deild karla:
Akureyri: Þór-UBK................kl. 14
Seljaskóli: ÍR-Höttur............kl. 14
1. deild kvenna:
Keflavík: ÍBK-KR.................kl. 14
Sunnudagur:
1. deild karla:
Hagaskóli: Léttir-ÍS............kl. 14
Mánudagur:
1. deild kvenna:
Kennarahsk.: ÍS-UMFG............kl. 20
Blak
Laugardagur:
1. deild kvenna:
Víkin: Víkingur - Sindri.....kl. 13.30
Sund
Bikarkeppni 1. deildar SSÍ verður
framhaldið í Sundhöll Reykjavíkur um
helgina. í dag verður keppt frá kl. 14
- 16 og sama tíma á morgun og þá
ráðast úrslit. Liðin sem keppa um bik-
armeistaratitilinn eru; ÍA, SFS, SH,
KR og Ægir, sem sendir tvö lið, A og
B-lið.
Skylmingar
Islandsmeistaramótið í ólympískum
skylmingum fer fram í dag laugardag
í íþróttahúsinu Kaplakrika í Hafnar-
firði og hefst kl. 16. Keppt verður í
þremur flokkum vopna, Epee (þungt
lag'sverð), Foil (stungusverð) og Sabfe
(höggsverð).
Bardagalist
f dag verður haldið mót í bardagalist
og verður keppnin í hnefaleikahring.
Mótið fer fram að Ármúla 30 og hefst
kl. 13. Þar varða júdómenn, karate-
menn og þeir sem æfa fujuka-do,
kung-fu, kick box og ninjutsu. Þetta
er fyrsta mót sinnar tegundar hér á
landi.
Kraftlyftingar
Bikarmót KRAFT verður haldið í
Garðaskóla í Garðabæ í dag, laugar-
dag, og hefst kl. 13. Keppt er í kvenna
og karlaflokkum.
Badminton
Afmælismót TBR verður haldið í TBR-
húsinu um helgina. Keppni hefst kl.
13 í dag, laugardag, en verður fram-
haldið ki. 10 á morgun. Keppt er í
einiiða-, tvíliða- og tvenndarleik í
þremur flokkum; meistaraflokki, a-
flokki og b-flokki.
Morgunblaðið/RAX
Jóhannes B. Jóhannesson og Kristján Helgason, til hægri, hafa æft vel undanfama mánuði, um átta klukkustundir
á dag, enda ætla þeir að ná langt á HM áhugamanna í Pakistan.
Kristján og Jóhannes
á HM í Pakistan
Tveir íslendingar verða meðal
keppenda á Heimsmeistaramóti
áhugamanna í billiard sem hefst í
Pakistan föstudaginn 3. desember og
stendur til 18. desember. Þetta eru
Kristján Helgason og Jóhannes B.
Jóhannesson.
Kristján er heimsmeistari í flokki
21s árs og yngrí en í því móti varð
Jóhannes í fjórða sæti. Kristján sagði
í samtali við Morgunblaðið að enn
væri ekki ákveðið hvenær þeir félag-
ar færu út en ætlunin væri að vera
í London í nokkra dagi og taka þátt
í mótum áður en haldið yrði til Pakist-
an.
„ísland hefur aldrei komist upp úr
riðlum í þessu móti og markmiðið hjá
okkur er að komast í átta manna
úrslit og ég held að það sé raun-
hæft,“ sagði Kristján, en í mótinu
verða um 80 billiardspilarar.
Þátttaka í móti sem þessu kostar
mikið. Mikið ferðalag og langur tími
og sagði Kristján að Billiardsamband-
ið væri í hálfgerðum sárum eftir HM
21s árs sem var haldið hér. Þeir félag-
ar eru nú að safna fé vegna fararinn-
ar og er styrktarsími landsliðsins
45046, þangað sem hægt er að
hringja ef fólk vill styrkja þá.