Morgunblaðið - 27.11.1993, Síða 48
MORGVNBLADIÐ, KRINGLAN I 10il REYKJAVÍK
SÍMI 691100, SlMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3010 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85
LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1993 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK.
Krónu
lækkun
á bensíni
OLÍUFÉLÖGIN lækka í dag
verð á bensíni um 1 krónu til
1,10 kr. hvern lítra. 92 oktana
blýlaust bensín verður áfram
ódýrast hjá OLIS, alls staðar
verður sama verð á 95 oktana
blýlausu og Esso verður
áfram með lægsta verðið á
98 oktana blýbensíni.
Olíufélögin hafa lækkað verð á
bensíni mánaðarlega að undan-
förnu, síðast 6. þessa mánaðar.
Að sögn Reynis Guðlaugssonar hjá
Olíufélaginu Skeljungi hf. er
ástæða verðlækkunarinnar lækk-
un heimsmarkaðsverðs á olíu,
einkum í fyrradag þegar verðið
lækkaði snöggt og mikið.
Verð á olíu verður
óbreytt að sinni
Reynir sagði að svo virtist sem
heimsmarkaðsverðið héldi áfram
að lækka og yrði útsöluverðið hér
vac skoðað aftur síðar með tilliti til
þess. Olíufélögin breyta ekki verði
á gasolíu og svartolíu að þessu
sinni, en að sögn Bjarna Bjarna-
sonar, markaðsstjóra Olíufélags-
ins hf., verður það mál skoðað um
mánaðamótin.
Morgunblaðið/Kristinn
Komið í veg fyrir fok
BJÖRGUNARMENN reyna að hemja girðingu sem var að fjúka í Borgartúni síðdegis í gær.
Fá óhöpp í ofsaveðrinu
OFSAVEÐUR gekk yfir Suð-
vesturland í gær. Engin teljandi
slys urðu á fólki og var eignatjón
víðast óverulegt.
Þær upplýsingar fengust hjá
slysadeild Borgarspítalans að
nokkrir hefðu komið þangað
lemstraðir eftir fok. Auk þess hæl-
brotnaði einn björgunarsveitar-
maður. Stúlka hljóp fyrir bíl á
Reykjavegi í Mosfellsbæ í gær-
kvöldi. Hún var flutt á slysadeild
slösuð á höfði.
Þak fauk af útihúsi við bæinn
Dalsmynni á Kjalarnesi og nokkurt
tjón varð á tveimur húsum í Njarð-
vík. Allt innanlandsflug lá niðri
eftir hádegi í gær og millilandaflug
raskaðist talsvert.
Sjá fréttir á miðopnu.
Bensínið lækkar
é Verðið Verðið Lækkun
Shell ígær í dag kr./l
92 oktan 65,60 64,50 1,10
95 67,90 66,90 1,00
98 71,50 70,50 1,00
ESSO
92 oktan 65,60 64,50 1,10
95 68,00 66,90 1,10
98 71,40 70,40 1,00
OLÍS Mí ■
92 oktan 65,50 64,40 1,10
95 68,00 66,90 1,10
98 71,50 70,50 1,00
Sjómaniiafélag‘ Reykíavíkur boðar verkfall hjá Eimskip 6. desember
V SÍ skýtur verkfalls-
boðun til félagsdóms
SJÓMANNAFÉLAG Reykjavíkur hefur boðað verkfall hjá Eimskipa-
félaginu 6. desember. Vinnuveitendasamband íslands ætlar að kæra
verkfallsboðunina til félagsdóms á mánudag á þeirri forsendu að
verkfallið sem boðað er sé ólöglegt. Komi verkfallið til framkvæmda
stöðvast siglingar Eimskipafélagsins.
Byggðastofnun vill 300
milljónir til Vestfjarða
Matthías Bjarnason segir sljórnvöld lengi hafa
reynt að eyðileggja sjávarútveg á Vestfjörðum
BYGGÐASTOFNUN hefur sent Davíð Oddssyni forsætisráðherra er-
indi, þar sem farið er fram á 300 milljóna króna fjárveitingu til stofnun-
arinnar, til þess að aðstoða sjávarútvegsfyrirtæki á Vestfjörðum. For-
sætisráðherra kynnti erindi Byggðastofnunar í ríkisstjórn í gærmorg-
un, en ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum að hugsa málið yfir helg-
ina og afgreiða erindið síðan á ríkissljórnarfundi á þriðjudag, sam-
kvæmt upplýsingum Davíðs Oddssonar. Matthías Bjarnason formaður
stjórnar Byggðastofnunar segir að sljórnvöld hafi árum saman mark-
visst unnið að því að eyðileggja sjávarútveg á Vestfjörðum.
„Það kemur fram í bréfi Byggða-
stofnunar, að hún telur að sjávarút-
vegsfyrirtækjum á Vestfjörðum hafi
verið mismunað í bönkum, miðað við
fyrirgreiðslu banka við sjávarútvegs-
fyrirtæki í öðrum Iandsfjórðungum,“
sagði forsætisráðherra í samtali við
Morgunblaðið í gær. Davíð sagði að
hugmyndir Byggðastofnunar um
nýtingu 300 milljónanna gengju m.a.
út á að skuldbreyta lánum fyrirtækja.
Matthías Bjarnason sagði í sam-
tali við Morgunblaðið í gær að Vest-
firðingar sætu ekki við sama borð
og aðrir landsmenn að því er varðaði
lánafyrirgreiðslu banka til sjávarút-
vegsfyrirtækja. „Landsbankinn er
hluthafi í sjávarútvegsfyrirtækjum,
eða rekstraraðili annars staðar á
landinu, en ekki á Vestfjörðum,"
sagði Matthías, „og við Vestfirðingar
höfum fulla ástæðu til þess að vera
argir út í bankakerfið og stjórnvöld.
Stjórnvöld hafa markvisst unnið að
því árum saman að eyðileggja sjávar-
útveginn á Vestfjörðum."
„Það er alveg ljóst að vandi sjávar-
útvegsfyrirtækja á Vestfjörðum, sem
byggja afkomu sína að mestöllu leyti
á þorskafla, er orðinn gífurlegur.
Vandinn er svo stór, að 300 milljón-
ir eru aðeins lítil upphæð, í saman-
burði við hann, þótt talan sé há,“
sagði Guðmundur Malmquist, for-
stjóri Byggðastofnunar.
Jónas Garðarsson, framkvæmda-
stjóri Sjómannafélags Reykjavíkur,
sagði að vinnustöðvun hefði verið
boðuð þar sem Eimskipafélagsmenn
hefðu ekki viljað ræða kröfur félags-
ins en samningar hefðu verið lausir
í marga mánuði. Hann sagði aðal-
kröfuna þá, að kaupskip í reglu-
bundnum rekstri væru mönnuð ís-
lendingum. Eimskip hefði um langt
árabil haft tvö skip í reglubundnum
siglingum til Ameríku og annað skip-
ið gjarnan verið mannað útlending-
um sem væru ódýrari vinnukraftur
en Islendingar. „Við viljum meðal
annars breytingar á því en það vilja
þeir ekki ræða og hafa raunar lýst
því yfir að þeir vilji ekki breyta
þessu,“ sagði Jónas.
Beinist að röngum aðila
Vinnuveitendasamband íslands
fer með samningsumboð Eimskips.
Þórarinn V. Þórarinsson, fram:
kvæmdastjóri VSÍ, sagði að VSÍ
hefði haft spurnir af því að Sjó-
mannafélagið hefði haft uppi hótan-
ir gagnvart Eimskipafélaginu. Það
myndi boða verkfall ef Eimskipafé-
lagið hlutaðist ekki til þess að við-
skiptaaðili þess, þýskt skipafélag
sem rekur annað þeirra tveggja
skipa sem eru í för milli Islands og
Ameríku, setti sína áhöfn frá borði
og tæki meðlimi í Sjómannafélaginu
í staðinn.
„Þetta er krafa sem Vinnuveit-
endasambandið og Eimskipafélagið
eiga enga möguleika á að verða við
því þetta er utan samningssviðsins.
Þetta er verktaka á flutningasviðinu
og það er annar vinnuveitandi sem
hefur með þetta að gera. Krafan
beinist því að röngum aðila. Ef
krafan er hins vegar túlkuð á þann
veg, að Eimskipafélagið skuli hafa
eigin skip í förum, þá er það einfald-
lega utan samningssviðs kjarasamn-
ings og að okkar mati fullkomlega
ólöglegt að fylgja slíku eftir með
verkfalli," sagði Þórarinn.
Jónas Garðarsson sagði að þessi
rök stæðust ekki. „Eimskipafélags-
skipið er splunkunýtt og var mannað
í fyrsta skipti fyrir tveimur vikum.
Þeim var í lófa lagið að manna það
eins og þeir helst vildu,“ sagði Jónas.
Málsókn
Þórarinn sagði að Vinnuveitenda-
sambandið myndi um helgina und-
irbúa málsókn á hendur Sjómanna-
félaginu fyrir félagsdómi til viður-
kenningar á því að þetta væri ólög-
legt verkfall. Jónas sagði að fyrir-
liggjandi væru kröfur frá því í maí
og verkfallið væri boðað á grund-
velli þeirra krafna og því gæti það
varla verið ólöglegt. En ef einhveij-
ir formgallar kæmu í ljós yrði verk-
fallið boðað aftur.