Morgunblaðið - 05.01.1994, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. JANUAR 1994
47
STÆRSTA
TJALDIÐMEÐ
GEIMVERURNAR
Geimverurnar eru lentar í Laugarásbíói (ath. ekki á Snæfellsnesi).
Grínmynd fyrir alla, konur og kalla og líka geimverur.
Dan Akroyd og Jane Curtin í speisuðu gríni frá upphafi til enda!
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
FULLKOMIN AÆTLUN
„The Program" fjollar um óslir, kynlif, kröfur, heiður,
svik, sigra, ósigra, eiturlyf. Svona er lífið ■ héskólanum.
ATH.: i myndinni er hraðbrautiiratríðið umtal-
oða, sent bannað vor í Btmdaríkjunum.
Sýnd kl. 5,7,9 og 11.05
HÆTTULEGT SKOTMARK
Hörkuspenna með Van Damme.
★ ★’A G.E. DV. ★★'/= S.V. MBL.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Strangl. b. i. 16.
R N M
SÍMI: 19000
„Nýliðinn Stahl sýnir undraverða hæfileika.
Ung persóna hans er dýpri og flóknari en flest
það sem fullorðnir leika í dag og er það með
ólíkindum hvað stráksi sýnir mikla breidd í
leiknum. f ári uppfullu af góðum leik frá ungum
leikurum ber hann höfuð og herðar yfir alla.
Gibson sjálfur hefur sjaldan verið betri.“
G.E. DV.
★ ★ ★A.I.MBL.
„Ein besta mynd ársins 1993. Mel Gibson er
stórkostlegur leikari og hæfileikaríkur
ieikstjóri."
New York Post.
Aöalhlutverk: Mel Gibson og Nick Stahle.
Leikstjóri: Mel Gibson.
Sýnd kl. 4.50, 6.50, 9 og 11.10
„Gunnlaugsson vag in i
barndomslandet ar
rakare án de flestas."
Elisabet Sörensen,
Svenska Dagbladet.
„Pojkdrömmar ár en
oerhört chármerande
och kánslig film som jag
tycker ár váldigt bra.“
Nils Peter Sundgren,
Gomorgon TV
★ ★ ★ ★
íslenskt - já takkl
Sýnd í B-sal kl. 5,7, 9 og 11.
„Ég hvet alla sem vilja sjá
eitthvað nýtt að drifa sig
í bfó og sjá Hin helgu vé.
Þetta er yndisleg Iftil saga
sem ég hefði alls ekki
viljað missa af!“
Bíógestur.
„Hrifandi, spennandi, eró-
tfsk.“ Alþýðublaðið.
„...hans besta mynd til
þessa ef ekki besta fs-
lenska kvikmynd sem
gerð hefur verið seinni
árin.“ Morgunbiaðið.
★ ★★1/2„MÖST“
Pressan
MAÐUR ÁN
ANDLITS
Cyrano De Bergerac
Vegna fjölda áskorana endursýnum vlö stórmyndina Cyrano
de Bergerac f nokkra daga. Aðalhlutv.: Qérard Depardieu.
Sýnd kl. 5 og 9.
PÍANÓ
Sigurvegari Can-
nes-hátíðarinnar
1993
„Píanó, fimm stjörn-
ur af fjórum mögu-
legum.“
★ ★★★★ G.Ó.
Pressan
Aðalhlutverk: Hoily
Hunter, Sam Neill og
Harvey Keitei.
Sýnd kl. 4.50,
6.50,9 og 11.10.
Fjölskyldumynd fyrir alla
TIL VESTURS
Aðalhlutverk: Gabriel Byrne, Ellen Barkin.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
„Fullkomin bíómyndl Stórkostlegt »v-
intýri fyrir alla aldurshópa til að
skemmta sér konunglega." Parenting
Magazine.
Robin Williams
í Aladdín
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Aladdín. Sýnd í Bíóhöllinni og
Bíóborginni. Leiksfjórar: Ron
Clemens og John Musker.
Raddir: Robin Williams, Scott
Weinger, Linda Larkin, Jonat-
han Freeman, Frank Welker,
Gilbert Gottfried.
Varla hefur farið framhjá nein-
um að tvær útgáfur eru sýndar i
Sambíóunum af Disheyteikni-
myndinni Aladdín, önnur með ís-
lensku tali þar sem Þórhallur Laddi
Sigurðsson og fleiri góðir leikarar
tala inná myndina og hin á frum-
málinu þar sem Robin Williams fer
á kostum sem andinn blái í lampan-
um.
Það er vel til fundið að sýna
myndina einnig á frummálinu því
þá geta þeir sem það vilja séð
upprunalegu útgáfuna þótt í raun-
inni lítill munur sé á þeim svo
ágæt er íslenska talsetningin. Það
skemmtilegasta við frummálið er
leikur Williams, einhvers annálað-
asta og besta grínleikara Banda-
ríkjanna, í hlutverki hins brjálæðis-
lega anda en hann gefur honum
slíka innspýtingu af fjöri og leik-
araskap að fáu er til að jafna úr
veröld teiknimyndanna.
Ólíkt því sem margir gætu hald-
ið tala leikarar fyrst inná band
þegar gerðar eru teiknimyndir og
skapa persónuleika sem teiknarar
---- — --------------------——
síðan fullmóta á teikniborðinu.
Williams er frægur fyrir spuna í
upptökum og fer þá út og suður í
gríni og glensi svo sagt er að eng-
in upptaka með h'onum sé eins og
hann talar svo hratt að hlustandinn
þarf á allri sinni einbeitingu að
halda.
Teiknimyndin fer í annan gír
þegar andinn birtist og allir kostir
Williams sem grínara koma fram
í honum, ekki síst eftirhermuhæfi-
leikar hans og ótrúlegur hraði.
Andinn, sem Eric Goldberg teiknar
snöfurmannlega, bregður sér bók-
staflega í allra kvikinda líki, í
franskan sjóara, þjón, sauð, bí-
flugu, Arnold Schwarzenegger og
Groucho Marx svo aðeins fátt eitt
sé nefnt. Andinn hefur einstakan
áhuga á nútíma poppmenningu og
sérstaklega er gaman að því þegar
hann tekur fyrir Robert De Niro
(líklega úr „Taxi Driver") og Jack
Nicholson (kvennaflagarinn). Allt
gerist þetta á svo ofsalegum hraða
að áhorfandinn þarf að hafa sig
allan við til að missa ekki af neinu.
Frásöguháttur myndarinnar er
ekkert síður hraður og skemmti-
legur, bæði spennandi og róman-
tískur með magnaðri flugeldasýn-
ingu í lokin þegar hinn illi Jafar
ætlar allt að gleypa. Aladdín er
hin besta skemmtun fyrir alla ald-
urshópa en þeir sem eldri eru og
allir kvikmyndaáhugamenn ættu
að gefa frummálinu gaum.
Varði doktorsritgerð
í hjartalækningum
AXEL F. Sigurðsson læknir
varði 15. október sl. doktorsrit-
gerð sína í lyflækningum og
hjartalækningum. Ritgerðin
ber heitið „Neurohormonal
activation in patients with ac-
ute myocardial infarction or
chronic congestive heart fail-
ure - with special reference to
treatment with angiotensin
converting enzyme inhibitors".
Doktorsvörnin fór fram við
háskólann í Gautaborg þar sem
Axel hefur stundað doktorsnám
frá árinu 1988. Andmælandi við
doktorsvörnina var John Kjeks-
hus, sem er prófessor i hjarta-
lækningum við Rikshospitalet í
Ósló.
Algengasta orsök hjartabilunar
á Vesturlöndum er kransæðastífla
sem valdið hefur hjartadrepi.
Horfur sjúklinga með bráða krans-
æðastíflu hafa batnað verulega á
síðustu árum, samtímis sem al-
gengi langvinnrar hjartabilunar
hefur farið vaxandi. Doktorsrit-
gerð Axels lýsir niðurstöðum
mælinga á ákveðnum hvötum,
boðefnum og hormónum í blóði
sjúklinga sem fengið hafa krans-
æðastíflu annars vegar og hins
vegar í blóði sjúklinga sem þjást
Dr. Axel F. Sigurðsson.
af langvinnri hjartabilun. Megint-
ilgátan er á þá leið að í mörgum
tilvikum geti offramleiðsla líkam-
ans á þessum efnasamböndum
verið skaðleg fyrir hjartað og leitt
til þess að hjartabilunareinkenna
verður vart eða til þess að hjarta-
bilun versnar, Niðurstöður rann-
sóknanna samræmast þessari til-
gátu.
Axel F. Sigurðsson fæddist í
Vestmannaeyjum 21. ágúst 1959
og fluttist ásamt fjölskyldu sinni
til Reykjavíkur árið 1963. Foreldr-
ar hans eru Linda Axelsdóttir, sem
búsett er í Reykjavík, og Sigurður
Finnsson, fyrrverandi kennari og
skólastjóri, sem lést 1962. AxeL
lauk stúdentsprófi frá Mennta-’
skólanum við Hamrahlíð 1978 og
hóf sarna ár nám við læknadeild
Háskóla íslands. Hann lauk emb-
ættisprófi í læknisfræði árið 1984,
öðlaðist almennt laskningaleyfi hér
á landi í október 1985 og sérfræði-
leyfi í lyflækningum og hjarta-
lækningum í maí 1992. Hann lauk
sérfræðingsprófi sænska hjarta-
læknafélagsins árið 1990. Frá árs-
bytjun 1988 hefur hann starfað
við lyflækningadeild og hjartadeild
Östra-sjúkrahússins í Gautaborg^
þar sem hann nú gegnir stöðu
sérfræðings í hjartalækningum.
Eiginkona Axels er Elínborg Sig-
urðardóttir hjúkrunarfræðingur
sem starfar við gjörgæsludeild
Sahlgrenska-sjúkrahússins í
Gautaborg. Börn þeirra eru Tómas
Andri, sem fæddur er 1988, og
Arnar Kári, sem fæddur er 1990: