Morgunblaðið - 13.01.1994, Síða 1

Morgunblaðið - 13.01.1994, Síða 1
BÍLAR: Bílaumboðin berjast um síminnkandi köku /4 SVÍÞJÓÐ: Wallenberg-veldið stendur á tímamótum /10 JHergtmMfi&fö Fyrirtæki íslenska útvarpsfélagið með um 142 millj. hagnað — samkvæmt milliuppgjöri fyrir-fyrstu 10 mánuði ársins HAGNAÐUR íslenska útvarpsfélagsins fyrstu 10 mánuði ársins nam alls um 142 milljónum króna samanborið við um 117,6 milljóna hagn- að á sama tíma árið áður. Þrátt fyrir bætta afkomu á þessu tímabili er gert ráð fyrir að hagnaður síðasta árs í heild verði svipaður og árið 1992 eða um 170 milljónir króna. Þetta stafar af því að auglýs- ingatekjur í desember drógust saman frá sama tíma í fyrra m.a. vegna þeirrar ákvörðunar bókaútgefenda að auglýsa ekki í ljósvaka- miðlum. Skuldir félagsins hafa lækkað nokkuð vegna góðrar afkomu þrjú sl. ár en eru þó enn miklar eða um 1 milljarður króna, skv. 8 mánaða milliuppgjöri á síðasta ári. Rekstrartekjur félagsins fyrstu tíu mánuði ársins námu alls um 1.261,8 milljónum og jukust þær um 7,4% frá árinu áður. Þar vegur þyngra aukning á auglýsingatekj- um en áskriftartekjum, að sögn Páls Magnússonar, forstjóra Is- lenska útvarpsfélagsins. „Við höf- um boðið betra snertiverð heldur en keppinauturinn, þ.e.a.s. það er ódýrara að ná til hverra 10 þúsund áskrifenda hjá okkur en hjá RÚV. Einnig höfum við lagt meiri áherslu á að upplýsa auglýsendur okkar um snertiverð og hvaða markhópa þeir ná til. Allar kannanir og fleiri upp- lýsingar eru settar inn í svokallað Telmar-tölvukerfi og þannig höld- um við uppi mjög öflugu upplýsinga- streymi til viðskiptavina okkar.“ Rekstrargjöld íslenska út- varpsfélagsins námu 1.046,5 millj- ónum fyrstu tíu mánuði ársins og jukust um 8,22%. „Stærsta einstaka skýringin á þessu er einfaldlega dýrara dagskrárefni,“ sagði Páll. „Á árinu 1993 lukum við samning- um við þau fyrirtæki sem dreifa langstærstum hluta kvikmynda í heiminum t.d. Walt Disney og Warner Brothers. Þetta þýðir að kvikmyndirnar sem við erum að sýna eru betri og nýrri og þarafleið- andi dýrari en áður. Stærstur hlut- inn af kostnaðaraukningunni felst einfaldlega í vandaðri og dýrari dagskrá.“ Aðspurður um hvernig áskriftir hefðu þróast hjá félaginu sagði Páll að áskrifendum fækkaði jafnan yfir sumarmánuðina. Núna hefði hins vegar bæst við 14% vii'ðisauka- skattur á áskriftargjaldið 1. júlí. „Við merktum aukið brottfall við það og sömuleiðis tóku margir sér lengra hlé um haustið. Stækkun á dreifikerfinu úti á landi og nýir áskrifendur í tengslum við það hef- ur hins vegar gert meira en að vega það upp. Þess vegna voru áskriftar- tekjurnar um 100 milljónum meiri fyrstu 11 mánuðina heldur en þær voru árið 1992. Auk þess kom tölu- verður kippur í áskriftir þegar við byrjuðum að lána áskrifendum myndlykil." Pjármagnskostnaður lækkaði milli ára hjá félaginu úr um 89 milljónum í 74,9 milljónir þar sem tekist hefur að greiða niður skuldir undanfarin tvö ár vegna góðrar afkomu. Á móti kom að félagið varð fyrir nokkru gengistapi vegna gengisfellingarinnar í júní. Samkvæmt efnahagsreikningi eftir fyrstu 10 mánuðina var eigin- fjárstaðan jákvæð um nálægt 200 milljónir. Eftir átta mánaða uppgjör voru heildarskuldir kringum 1 millj- arður. „Ef gert er ráð fyrir að árið endi með svipuðum hætti og 1992 ætti eiginfjárstaðan að vera jákvæð um 230 milljónir í árslok. Hins veg- ar hefur ekki gengið eins mikið á skuldirnar eins og við vildum vegna þess að við fjárfestum talsvert í dreifikerfinu. Það bættust við 20 nýir þéttbýlisstaðir í dreifikerfið fyrir Stöð 2 og síðan tjárfestum við í Fjölvarpinu." Páll sagði að íjjölvarpið hefði farið rólega af stað og stofnkostn- aður hefði reynst nokkur þröskuld- ur. „Pjöldi þeirra sem keypt hafa búnaðinn til að taka á móti Fjöl- varpinu er kringum 600 en fjöldi áskrifenda er kringum 400. Ennþá þarf ekki myndlykil til að ná send- ingunum en auðvitað reiknum við með því að þeir sem fjárfest hafi í mótttökubúnaðinum gerist áskrif- endur.“ Innlán og uenðbrefautgafa banka og spanisjoða 31.12.1993, míllj. kn Bráðabirgðatöiur SPARISJÓÐIR: W Innlán 31.12.93 Aukning 1993 Innlán og verðbréfa- útgáfa Aukning 31.12.93 1993 Sparísj. Reykjavíkur og nágr. 6.074,4 12,4% 7.123,6 12,7% Sparísj. í Kefiavík 4.603,6 8,8% 5.361,5 3,3% Sparisj. Hafnarfjarðar 3.914,0 6,6% 4.765,7 5,2% Sparísj. vélstjóra 3.058,0 15,5% 3.627,5 15,9% Sparisj. Mýrasýslu 1.850,8 7,4% 1.995,7 15,8% Sparisj. Kópavogs 1.434,8 -1,4% 1.549,1 6,5% Sparisj. V-Húnavatnssýslu 778,8 9,2% 778,8 9,2% Sparisj. Vestmannaeyja 778,1 6,9% 1.241,1 19,7% Sparisj. Svarfdæla 754,0 4,5% 866,8 9,3% Sparisj. Bolungarvíkur 707,9 , 7,7% 918,9 15,9% Sparisj. Siglufjarðar 670,8 8,6% 670,8 8,6% Sparisj. Ólafsfjarðar 639,3 26,2% 866,5 20,4% Eyrasparisjóður 451,6 8,7% 564,7 15,8% Sparisj. Norðfjarðar 404,9 5,8% 404,9 5,8% Sparisj. Glæsibæjarhrepps 368,0 10,2% 368,0 10,2% Sparísj. S-Þingeyinga 363,3 10,8% 363,3 10,8% Sparisj. Þórshafnar og nágr. 310,2 15,3% 310,2 15,3% Sparísj. Akureyrar og Árn.hr. 285,0 10,6% 285,0 10,6% Sparisj. Hornafjarðar og nágr. 280,2 63,6% 280,2 63,6% Sparísj. Ólafsvíkur 245,8 4,7% 268,7 14,4% Sparisj. Þingeyrarhrepps 231,6 8,3% 231,6 8,3% Aðrir 1.080,7 - 1.080,7 - Sparisjóðir alls: 29.285,8 9,7% 33.923,3 10,5% BANKAR: ti Landsbanki 61.548,3 9,0% 70.136,7 8,2% Búnaðarbanki Upplýsingar fengust ekki íslandsbanki 34.895,0 5,4% 42.310,0 6,2% Vandi fylgir vegsemd hverri Nú geta íslendingar fjárfest erlendis án fjárhæðatakmarkana. Okkur bjóðast því aukin tækifæri til áhættudreifingar og ávöxtunar sparifjár. En gengi erlendra verðbréfa getur sveiflast mikið og því ber að fara varlega af stað og kynna sér vel það sem í boði er. Ráðgjafar VÍB veita frekari upplýsingar um ávöxtun í erlendum verðbréfúm í afgreiðslunni í Ármúla 13a eða í síma 91-68 15 30. Sigurður É. Stefánsson, framkvœmdastjóri VIB. VlB VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF. • Aöili aö Veröbréfaþingi íslands • Ármúla 13a, 155 Reykjavík. Sími 68 15 30. Myndsendir 68 15 26.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.