Morgunblaðið - 13.01.1994, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 13.01.1994, Blaðsíða 10
10 c MORGUNBLAÐIÐ VIDSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 1994 r Svíþjóð Wallenberg-veldið á tímamótum UMRÓTIÐ í efnahag’s- og stjórnmálum á Ítalíu hefur leikið gömlu ættarveldin þar í landi mjög grátt. Agnelli- og Ferruzzi-fjölskyld- an eru nú aðeins svipur hjá sjón en það á ekki við um Wallen- berg-veldið í Svíþjóð. Það er líklega öflugra en nokkru sinni fyrr en það er að koma að mikilvægum tímamótum í sögu þess. Þær forsendur, sem tryggðu vöxt þess og viðgang, eru að breytast og ef Wallenbergamir vilja halda sinum hlut verða þeir innan tíðar að taka erfiðar en afdrifaríkar ákvarðanir um framtíðina. ÆTTARHÖFÐINGIIM “ Peter Wallenberg hefur stýrt fjöl- skyldufleyinu í 12 ár og hann hefur lofað því að halda ekki um taum- ana fram í rauðan dauðann eins og sumir forvera hans. Þegar Peter Wallenberg tók við stjómvelinum í einni mestu iðn- aðarsamsteypu í heimi að föður sínum látnum efuðust margir um, að honum tækist að halda henni saman. Þetta var árið 1982 en nú hefur Peter, sem er 67 ára gam- all, fyrir löngu þaggað niður í efa- semdamönnunum. Honum hefur ekki aðeins tekist að hrinda öllum árásum á ættarveldið, heldur hefur hann stöðugt verið að treysta tök- in á fyrirtækjum fjölskyldunnar. Wallberg-veldið hefur í sínum höndum um 40% hlutafjármarkað- arins í Svíþjóð og er slík samþjöpp- un efnahagslegs valds einsdæmi í Evrópu. Auk hlutabréfa í eigu eignarhaldsfélagsins Investors hafa Wallenbergamir riðið þétt net bandalaga við aðra sænska fjár- festa en meðal stórfyrirtækja, sem þeir ráða, má nefna ASEA, sem á helming í ASEA Brown Boveri, sænsk-svissneska rafeindarisan- um; SKF, heimsins stærsta kúlu- leguframleiðanda, og Stora, mesta pappírsframleiðanda í Evrópu. Vöxtur þessara fyrirtækja ber þolinmæði Wallenberganna ágætt vitni. Með því að gefa stjómendum þeirra mikið sjálfstæði hefur þeim tekist að laða að sér og halda í hæfileikamenn eins og Perey Bamevik, aðalframkvæmdastjóra ASEA Brown Boveri, og fjölskyld- an hefur alltaf verið alþjóðleg í hugsunarhætti. Eigendur Volvo ákváðu að snúa baki við samstarfi við frönsku bflasmiðjurnar Renault en í Wallenberg-fyrirtækjunum er hugsað á Evrópuvísu. Rúmlega 80% af sölu þeirra, 450 milljarða skr., eru utan Svíþjóðar og aðal- lega í Evrópu. Erfiðir tímar Þetta mun vafalaust skila sér þegar fram í sækir en efnahags- samdrátturinn í Evrópu hefur ekki bitnað síður á Wallenberg-fyrir- tækjunum en öðrum. Hagnaður Investors fyrir skatt á fyrstu níu mánuðum síðasta árs var 216 milljónir skr. á móti 1,6 milljörðum á sama tíma árið áður en auk þess verða Wallenbergamir nú að glíma við tvö mjög erfíð vandamál. í október sl. varð fjölskyldan að taka þátt í að bjarga Skandin- aviska Enskilda Banken, stærsta banka Svíþjóðar, sem hafði tapað gífurlegu fé. Það vom Wallenberg- amir, sem stofnuðu hann árið 1856 og Peter Wallenberg er fyrsti aðstoðarstjórnarformaður hans. Þessi vandi er þó lítill og ekki jafn niðurlægjandi og erfiðleikar Saab- Scania, sem tapaði 302 milljónum skr. á fyrstu níu mánuðum síðasta árs vegna minni eftirspurnar eftir stórum vöraflutningabílum og flugvélum. Litlar líkur era á, að hún aukist fyrr en á næsta ári í fyrsta lagi og það kemur sér sér- staklega illa vegna þess, að 1991 tók Wallenberg-fjölskyldan mikil lán og keypti út minnihlutaeigend- ur fyrir 13 milljarða skr. Dæmið um Saab-Scania hefur sýnt fram á nokkra veikleika í Wallenberg-veldinu. Yfirleitt á fjölskyldan ekki meirihluta hluta- fjár í fyrirtækjum, heldur treystir hún annars vegar á sænska hluta- bréfakerfíð, sem gefur sumum WALLENBERG- VELDIÐ Svið Sept.1993 % % at- hluta- kvaaöa fjár ASEA Rafiðnaður 33 25 Astra Lyf 12 10 AtlasCopco Verkfæri/tæki 22 15 Ericsson Fjarskipti 22 2 Electrolux Heimilistæki 93 6 Incentive Eignarhald 34 26 Saab-Scania Flugvélar/bílar 100 100 SKF Legur 38 14 Stora Trjávara 20 16 hlutabréfum allt að 1.000-falt at- kvæðavægi á við önnur, og hins vegar á sænsku bandamennina. Þrátt fyrir það tókst sænska fast- eignakónginum Sven Olof Johans- son að koma Wallenbergunum á óvart 1990 með því að ná undir sig 22% hlut í Saab-Scania. Hann var keyptur út fyrir mikið fé en til að koma í veg fyrir tilraunir af þessum toga var fyrirtækið tek- ið af almennum markaði 1991. Peter Wallenberg segir, að Sa- ab-Scania hafi virst kjarakaup á þessum tíma og þá var ætlunin að nota peningalega eign fyrirtæk- isins, um 10 milljarða skr., til að auka hlut fjölskyldunnar í öðram fyrirtækjum. Nú þarf hins vegar Saab-Scania á þessu fé að halda. Fyrirtækið er að leita að sam- starfsaðila í smíði farþegaflugvéla og á í viðræðum við British Ae- rospace um samstarf í smíði her- flugvéla. Sérfræðingar eru sam- mála um, að rætist ekki fljótlega úr neyðist Wallenbergamir til að selja nokkuð af 50% hlut Saab- Scania í samstarfsfyrirtækinu með General Motors. Síðasta ár var Wallenbergunum erfítt en á þessu ári munu þeir eins og aðrir sænskir útflytjendur njóta gengislækkunar sænsku krónunnar. Fjölskyldunnar bíða þó ýmsar erfiðar ákvarðanir, til dæmis að stokka upp Investor, skipa fyrirtækjunum saman í stærri einingar og búa í haginn fyrir arftakana. Svo dæmi sé tekið af Investor þá hefur gengið illa að sannfæra fjárfesta um, að betra sé að festa fé í eignarhaldsfélaginu en í ein- stökum dótturfélögum. Er ástæð- an sú, að flókin uppbygging þess er fyrst og fremst miðuð við að tryggja yfírráð fjölskyldunnar. Erlendir fjárfestar era því á varð- bergi enda eiga þeir aðeins 6% í Investor en 39% í lyíjafyrirtækinu Astra, sem hefur verið í miklum vexti. Sænsku hluthafarnir að vakna Áður fyrr gátu Wallenbergarnir treyst á aðgerðaleysi sænskra hluthafa en eins og Renault-Volvo- málið sýnir, era þeir nú farnir að láta í sér heyra. Þeir era líklegir til að fara að krefjast meiri arðs af hlutafé sínu. Við því mætti bregðast með því að brjóta upp Investor en það gæti aftur stefnt í voða öllu Wallenberg-veldinu. Einnig mætti skrá Investor á al- mennum markaði en það myndi hins vegar takmarka getu þess til að útvega nýtt íjármagn. Claes Dahlback, forseti Investors, segir, að lendingin verði sú að setja fyrir- tækjunum ákveðið hagnaðar- markmið og hugsanlega einnig að steypa þeim saman í færri eining- ar. Þetta síðastnefnda tengist svo því, að óhjákvæmilegt er fyrir Wallenbergana að endurmeta fyrirtækjaeign sína. Investor hefur verið að lækka skuldir með því að selja eignir, atkvæðavægi hluta- bréfa í SKF fór úr 38% í 34% í haust, og fjölskyldan reiðir sig á, að sænska hlutabréfakerfíð muni tryggja ítök hennar áfram. Á móti því vegur hins vegar, að hömlur á eignarhluta útlendinga í sænskum fyrirtækjum vora afn- umdar í bytjun síðasta árs. Ef Wallenberg-fjölskyldan einbeitti sér hins vegar að fáum fyrirtækj- um, sem hún leggur mikla áherslu á að ráða, gæti hún komist hjá kostnaðarsömum átökum síðar. Fátt bendir til þess nú, að þessi kostur verði valinn enda hefur fjöl- skyldan barist hart fyrir að halda fyrirtækjunum saman. Það er því eins líklegt, að það komi í hlut erfíngjanna, Jacobs, sonar Peters Wallenbergs, og frænda hans, Marcus, að taka ákvörðun um hvaða fyrirtæki verði seld. Þeir munu þá kannski minnast orða afa síns, sem sagði einu sinni, að eina rétta stefnan væri „taka upp nýtt fyrir gamalt“. SAS áformar 25 milljarða niðurskurð Flugmenn vilja launalaust leyfi í stað uppsagna Kaupmannahöfn. Frá Sigrúnu Davíðs- dóttur, fréttaritara Morgunblaðsins. STJÓRN SAS hefur ákveðið að félagið þurfi að spara sem sam- svarar 25 milljörðum íslenskra króna á þessu ári, ef takast eigi að rétta afkomu félagsins. Niður- skurðurinn er sérlega brýnn, þar sem ekki tókst að koma á sam- runa félagsins og annarra flugfé- laga. Áætlað er að spara um fjóra milljarða á flugáhöfnum einum saman. Stjórnarnmenn í starfsmannafé- lögum áhafnarmeðlima hafa lýst yfir miklum áhyggjum yfir fyrirætl- uðum sparnaði, sem hljóti þýða að um 1.200 manns úr þeirra hópi verði sagt upp. Þeir benda á að þegar hafi verið hagrætt svo mikið í starfí áhfafna að nýtingin hafí batnað um fjórðung og meira sé ekki hægt að gera, nema það komi niður á þjón- ustunni. Félag flugmanna í SAS hefur sýnt skilning á að stytta vinnutíma þeirra, svo að komist verði hjá upp- sögnum. Talað er um að flugmenn taki sér ólaunað vikufrí árlega og einnig era þeir til viðræðu um að fækka flugmönnum í áhöfnum, en slíkt hefa þeir ekki tekið í mál áður. Flugmenn segjast ekki eiga annarra kosta völ, því að ekki sé í önnur hús að leita eftir vinnu. Stjórn SAS mun halda fund síðar í mánuðinum til að kynna í smáatrið- um hvernig tekið verði á sparnaði og niðurskurði félagsins. Flug Aer Lingus fær skilyrta aðstoð Má ekki fjölga flugvélum eða auka sætaframboð til Bretlands FRAMKVÆMDASTJÓRN Evrópubandalagsins hefur fallist á rúmlega 18 milljarða ísl. kr. aðstoð írsku stjórnarinnar við ríkis- flugfélagið Aer Lingus. Hefur það átt í miklum erfiðleikum en vonast er til, að með endurskipulaguingu megi koma því á réttan kjöl. Ströng skilyrði fylgja samþykki framkvæmdastjórnarinnar og eru þessi helst: Aer Lingus má ekki fjölga flugvélum næstu tvö árin eða í þann tíma, sem endurskipu- lagningin tekur; Evrópuflug Áer Lingus, Atlantshafsflugið og áætlun um lág fargjöld milli Dyflinnar og Lundúna, Aer Ling- us Express, verði sérstakar ein- ingar, lagalega sem rekstrarlega; Komi Aer Lingus Express til framkvæmda verði aðeins notaðar þær vélar, sem félagið á nú; Sæta- framboð milli Irlands og Bret- lands verði ekki aukið. Þá er tek- ið fram, að ekki verði um frekari aðstoð að ræða við Aer Lingus. Sir Michael Bishop, stjórnar- formaður British Midland, helsta keppinauts Aer Lingus á leiðinni Dyflinni-Heathrow, hefur fagnað þessum „ströngu og skynsam- legu“ skilyrðum framkvæmda- stjórnarinnar og segir, að með þeim hafi verið brotið í blað í langri sögu gegndarlauss fjára- usturs í illa rekin ríkisflugfélög. Hann tók hins vegar fram, að yrði aðstoðin við Aer Lingus notuð í annað en endurskipulagningu, yrði athugað með málshöfðun. Aer Lingus hefur tapað um 125 milljónum ísl. kr. á viku og skuld- ir þess nema nú um 57 milljörðum kr.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.