Morgunblaðið - 13.01.1994, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 13.01.1994, Blaðsíða 4
4 C MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 1994 4 Ferðamál Breyttar áherslur í rekstri Urvals- Útsýnar Aukin áhersla á mótttöku erlendra ferðamanna. Hlutur áætlunarflugs eykst á kostnað leiguflugsins í kjölfar lækkandi fargjalda Ferðaskrifstofan Úrval-Útsýn hefur tekið í gagnið nýtt bókun- arkerfi sem gerir mönnum kleift að einfalda til muna úrvinnslu ferðagagna innan fyrirtækisins. í kjölfarið hefur sviðum fyrir- tækisins verið fækkað úr fjórum í tvö, skrifstofu- og fjármála- stjórn annars vegar og sölu- og markaðssvið hins vegar. „Hér er um að ræða grundvallar- breytingu í rekstri ferðaskrif- stofunnar og það sem við erum fyrst og fremst að sækjast eftir er að mæta breyttum ferðavenj- um Islendinga og almennu ytra rekstrarumhverfi sem er að breytast í heiminum í dag,“ seg- ir Hörður Gunnarsson, forstjóri Úrvals-Útsýnar. Þá hefur ferða- skrifstofan aukið umsvif innan- landsdeildarinnar til muna þar sem móttaka á erlendum ferða- mönnum hefur aukist um rúm 50% á síðustu tveimur árum. Á síðasta ári fiutti Úrval-Útsýn um 24,5 þúsund farþega til út- landa, þar af um 11 þúsund í leigu- flugi. Hörður segir hagkvæmni leigufiugs minni en áður þar sem alls staðar í heiminum sé_ þróun í átt til lækkandi fargjalda. í kjölfar- ið séu möguleikar áætlunarflugs að aukast verulega. „Það er því gjörbreytt rekstrarumhverfi sem blasir við okkur og meðal annars þess vegna erum við að fjárfesta í nýjum tæknibúnaði sem tekur mið af breyttum aðstæðum." Goði Sveinsson e_r sölu- og mark- aðsstjóri Úrvals-Útsýnar. Hann tekur undir með Herði að sam- dráttur í leiguflugi sé fyrirsjáan- legur og að sama skapi aukning í áætlunarflugi. Það sé í takt við almenna þróun í flugheiminum. „Leiguflug hefur lengi verið stór þáttur í starfseminni hér. Nú er hins vegar almennt flugfargjald að lækka mjög mikið og færast nær þeim fargjöldum sem hafa verið í gildi í leiguflugi. í náinni framtíð mun því aukið framboð á skipulegum hópferðum verða í gegnum áætlunarflugið frekar en leiguflugið,“ sagði Goði. Hörður segir aðra meginástæðu vera fyrir auknum vinsældum áætlunarflugsins. Þar sem stór hluti íslensku þjóðarinnar sé að verða verulega ferðavanur fjölgi þeim sem óski eftir aukinni fjöl- breytni á ferðalögum sínum. Því verði ekki svarað nema í gegnum áætlunarflug. Tíu þúsund erlendir ferðamenn í fyrra Aukin áhersla á áætlunarflug leggur meiri vinnu á starfsfólk ferðaskrifstofunnar, meðal annars varðandi frágang ferða og úr- vinnslu farseðla. „Nú erum við komin með eigin bókunarkerfi hér innandyra sem sér um allan ferilinn frá því að við fáum viðskiptavin inn um dyrnar hvort sem um er að ræða leiguflug eða áætlunar- flug. Kerfið heldur utan allt alveg frá því að fyrirspurn er gerð og þar til viðkomandi viðskiptavinur gengur frá ferð sinni og fær af- henta farseðla," segir Hörður. „Úrvinnsluþátturinn sem var áður í hverri deild, þ.e. sá hluti pöntun- ar sem fer í gegnum reikningagerð og annan frágang ferðagagna, er ekki lengur undir beinum sölu- deildum fyrirtækisins heldur er allur úrvinnsluþáttur ferðagagna kominn undir fjármálasvið. Þetta er nýtt í ferðaskrifstofurekstri á íslandi og kemur til vegna þeirrar vélrænu tengingar sem við fáum með nýja kerfinu. Þá gerir nýtt bókhaldskerfið okkur kleift að samnýta bókanir fyrir sölu utanlandsferða og mótt- töku eriendra ferðamanna sem er sívaxandi þáttur í starfseminni. Á síðasta ári fóru tíu þúsund erlend- ir ferðamenn í gegnum ferðaskrif- stofuna. Þar er um að ræða skipu- legar ferðir, ráðstefnur, hvataferð- ir, sérferðir einstaklinga o.fl. Þetta er veruleg aukning og það er okk- ur til hægindaauka að geta sett úrvinnsluþáttinn undir sama hatt og úrvinnslu utanlandsferða,“ seg- ir Hörður. Að sögn Harðar hefur ferða- skrifstofan þurft að mæta lækk- andi tekjum vegna lægri fargjalda með ákveðinni naflaskoðun og niðurstaðan hafi orðið bylting á skipulaginu. „Við þurftum að búa okkur undir að lækkunin gæti orð- ið enn meiri. Það eru tvær lausnir á vandanum, að íjölga viðskipta- KYNNIIMGARSTARFSEMI — Mikil vinna hefur verið lögð í að kynna ísland fyrir erlend- um ferðamönnum og Úrval-Útsýn hefur ekki látið sitt eftir liggja. Hér má sjá nokkra af þeim bæklingum sem fyrirtækið hefur látið hanna og sent til söluaðila víða um heim. Hugmyndasamkeppni Snjallar hugmyndir verðlaunaðar Hugmyndasamkeppninni Snjallræði hleypt af stokkunum í annað sinn HUGMYNDIR ■— Unnið að smíði frumgerðar að raufarfræs- ara. F.v. Bjarni Harðarson, eigandi hugmyndarinnar, Einar Bjarna- son, verkfr. og Guðni Ingimarsson, verkfr. IÐNTÆKNISTOFNUN hefur ákveðið að efna í annað sinn til hugmyndasamkeppninnar Snjallræðis í samstarfi við iðnað- arráðuneytið og sjóði atvinnulífs- ins, I samkeppninni eru verð- launaðar snjallar hugmyndir ein- staklinga sem geta leitt til fram- leiðslu nýrra vara sem líklegar eru til að spjara sig á markaði. Verðlaununum verður varið til að vinna hugmyndinni brautar- gengi. Heildarverðlaun fyrir ein- staka hugmynd geta numið allt að liðlega tveimur milljónum króna. Hugmyndasmiðurinn verður að leggja fram mótfram- lag sem getur numið allt að sautj- án hundruð þúsundum, að mestu í formi vinnuframlags viðkom- andi hugmyndaeiganda. Á móti kemur að allur hagnaður af hug- myndinni rennur til eiganda hug- myndarinnar. Síðast þegar keppnin var haldin bárust um 250 hugmyndir. Nokkrar af verðlaunahugmynd- unum úr fyrra snjallræðisverkefn- inu eru nú á lokastigi. Meðal þeirra má nefna búnað sem notaður er í heitum pottum, fræsari til að gera raufar í límtré og mælitæki fyrir díselvélar skipa. Allar þessar hug- myndir eru algerar nýjungar á við- komandi sviði og eru taldar eiga góða markaðsmöguleika. Einar Gunnlaugsson tækniteikn- ari átti hugmyndina að búnaði sem festur er í þar til gert niðurfall á heitum pottum. Hér er um að ræða einfalda og fjölþætta lausn. Talið er að hönnun niðurfallsins komi í veg fyrir slys sem hafa orðið vegna sogsins sem myndast þegar vatninu er hleypt úr pottinum. Dæmi eru um að hár barna hafi lent í soginu og barnið dregist niður að niðurfall- inu. Á niðurfallið er fest sérstök fjölnota súla sem notuð má til að festa borðplötu í miðjan heita pott- inn fyrir glös o.þ.h., auk þess sem hægt er að festa við hana vínildúk til að loka pottinum. Nú eru ein- göngu fáanleg lok sem eru þyngri en svo að einn maður geti flutt það, en með nýju lausninni einfald- ast málið verulega. Ennfremur hef- ur Einar hannað lok úr harðplasti sem yrði hugsanlega frekar nótað yfir vetrartímann, lok sem er tví- skipt og mjög létt en nýtist þar að auki sem garðborð. Súluna er einn- ig hægt að nota til fleiri hluta, t.d. sem gosbrunn, fyrir útiljós o.fl. Lokunarbúnaður Einars, bæði vín- ildúkurinn og harða lokið, uppfyllir öll ákvæði byggingarreglugerðar. Raufarfræsari fyrir límtré Bjarni Harðarson vélvirki á Flúð- um átti hugmynd að þróun fræsara til að fræsa raufar úr límtré fyrir innlímdar stálplötur. Slíkt tæki mun ekki vera til annars staðar, en ís- lendingar eru brautryðjendur á sviði innlímdra horna. Raufarfræsari Bjarna sagar raufar upp í stóra lím- trébita af mikilli nákvæmni og auð- veldar mjög alla vinnu við innlímd horn. Innlímdu hornin hafa það m.a. í för með sér að samsetningar tveggja límtrésbita sjást ekki þar sem stálplatan hefur verið flutt inn í viðinn. Örn Marelsson tæknifræðingur hefur fundið upp einkaleyfishæft mælitæki m.a. fyrir díselvélar fiski- skipa. Galdurinn við mælitækið felst í því að það gerir mönnum kleift að fylgjast með snúningi ventla vélanna. Enginn slíkur bún- aður er til svo vitað sé, en slíkt tæki getur sparað allt að 4-500 þúsund að meðaltali í viðgerðar- kostnað árlega á meðalstóru skipi. Snjallræði í tveimur hlutum Snjallræði er skipt í tvo hluta: Fyrst eru valdar átta hugmyndir sem geta fengið allt að 600.000 kr. verðlaun. Peningunum er varið til að kanna hvort hugmyndin sé arð- vænleg til frekari vinnslu. Hug- myndasmiðurinn leggur að auki til 200.000 kr. í flestum tilvikum í formi vinnu. Síðari hlutinn hefst u.þ.b. sex mánuðum síðar. Þar eru valdar fjór- ar af þeim átta hugmyndum sem upphaflega voru valdar. Verðlauna- upphæðin í seinni hlutanum nemur allt að 1,5 millj. kr. og mótframlag hugmyndasmiðsins er 50% eða allt að 1,5 milljónum króna. I síðari hlutanum er unnið að fullnaðarþró- un, frumgerðarsmíð og undirbún- ingi framleiðslu og markaðssetn- ingu. . Tilgangur keppninnar er að að- stoða einstaklinga sem vilja koma hugmyndum sínum á framfæri, en hafa ekki fjárhagslegar eða tækni- legar forsendur til þess. Auk Iðn- tæknistofnunar styrkja iðnaðar- ráðuneytið, Iðnlánasjóður og Iðn- þróunarsjóður verkefnið. Umsókn- arfrestur í Snjallræði er til 18. febrúar næstkomandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.