Morgunblaðið - 13.01.1994, Page 8

Morgunblaðið - 13.01.1994, Page 8
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 1994 * 8 C Utanríkisviðskipti Evrópskt viðskipta- líf undir smásjá Eftirlitsstofnun EFTA tekin til starfa EFTIRLITSSTOFNUN EFTA eða ESA eins og heiti stofnunarinnar er skammstafað á ensku, tók formlega til starfa nú um áramótin um leið og samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið tók gildi. Ef að líkum lætur á þessi stofnun eftir að koma talsvert við sögu viðskiptalífsins hér á landi og raunar hefur komið fram að Verslunar- ráð íslands hyggst þegar í stað vísa einu máli til úrskurðar eftirlits- stofnunarinnar, þ.e. hvort það fyrirkomulag sem gilt hefur hér á landi í áfengissölumálum samrýmist reglum hins sameiginlega efna- hagssvæðis. Það er því ekki úr vegi að kynna starfsemi þessarar stofnunar lítið eitt nánar og verður hér á eftir í öllum meginatriðum byggt á upplýsingum úr erindi Björns Friðfinnssonar sem hann flutti fyrir íslenska alþingismenn, embættismenn og fjölmiðlamenn í aðal- bækistöðvum EFTA í Brussel nú skömmu fyrir áramótin. Björn er einn af fimm aðalstjórnendum stofnunarinnar og hefur verið frá því í september sl. Að sögn Bjöms er meginhlutverk ESA að tryggja, að EFTA-ríkin sem aðild eiga að EES-samningnum fari eftir ákvæðum hans. Þá fer stofn- unin með framkvæmd sameigin- legra samkeppnisreglna að því er varðar þessi ríki og hún hefur einn- ig sérstöku hlutverki að gegna í sambandi við eftirlit með ríkis- styrkjum og opinbemm innkaupum. Einstök ríki sem aðild eiga að EES geta borið fram kæmr og kvartanir til stofnunarinnar svo og einstak- lingar og fyrirtæki sem hagsmuna hafa að gæta á hinum sameiginlega markaði. Eftirlitsstofnunin mun rannsaka hugsanlegt brot á sameig- inlegum leikreglum, bæði af tilefni slíkra kærumála og kvartana og eíns að eigin fmmkvæði. Bjöm segir að ESA láti álit sitt í ljós í ákvörðunum, tilkynningum og með setningu leiðbeinandi reglna. í flestum tilvikum mun slík- um gerðum beint að ríkisstjóminni, en við framkvæmd samkeppnis- reglna mun hún einnig beina þeim beint að fyrirtækjum og stofnunum og getur ESA í sumum tilvikum lagt á stjórnvaldssektir vegna brota á samkeppnisreglum á sama hátt og Samkeppnisráð getur lagt á slík- ar sektir skv. nýju samkeppnislög- unum hér á landi. Með stjóm ESA fer fímm manna stjóm er nefnist „collegium“ eða „stjórnarráð" og er einn stjómar- maður frá hvetju þeirra EFTA-ríkja sem aðilar eru að Evrópska efna- hagssvæðinu. Stjómarsetan er fullt starf og skulu stjórnarmenn vera sjálfstæðir í störfum sínum og ekki taka við fyrirmælum frá ríkisstjórn- um sínum um afstöðu til einstakra mála. Stjórnarmenn eru útnefndir af aðildarríkjunum sameiginlega en hvert ríki gerir tillögu um einn mann. Formaður er útnefndur sér- staklega til tveggja ára í senn. Fyrsti stjórnarformaður ESA er Knut Almestad frá Noregi. Björn Friðfinnsson er hins vegar fyrsti fulltrúi íslendinga í stjórnarráði ESA. Samkvæmt upplýsingum Björns eru starfsmenn ESA nú um 90 tals- ins og verða væntanlega 115-120 þegar starfsemin er komin í fullan gang. Af þeim starfsmönnum sem þegar hafa verið ráðnir eru 11 ís- lendingar, en starfsmenn EFTA og ESA í Brussel nú eru samtals um 20 talsins. Kostnaður við rekstur stofnunarinnar á ársgrundvelli verður væntanlega á bilinu 23-24 milljónir svissneskra franka eða 1.120-1.170 milljónir íslenskra króna. Af þessum kostnaði greiða íslendingar 1,88% eða um það bil 21 milljón íslenskra króna. Stofnunin hefur aðsetur í tveimur byggingum í Brussel, í byggingu við Rue de Tréves og við Maire- Thérése götu í sama húsi og sendi- ráð íslands er í. Vinnumál ESA er enska, en hægt er að senda stofnun- inni erindi á öllum tungumálum Evrópska efnahagssvæðisins. Verk- efnum stofnunarinnar er skipt niður á nokkrar deildir og samsvara helstu deildimar höfuðmálaflokkum EES-samningsins, en auk þeirra eru svo stoðdeildir eins og lögfræði- deild og rekstrardeild. Starfsemi ESA Að sögn Bjöms verður stór hluti af starfsemi ESA almennt eftirlit með framkvæmd EES-samningsins að því er EFTA-ríkin varðar. Stofn- unin mun fara yfir þau lög og aðr- ar reglur sem einstök EFTA-ríki setja til fullnustu skuldbindinga sinna skv. EES-samningnum og hún tekur við tilkynningum EFTA- ríkja um slíka fullnustu. Ef upp koma vafaatriði um það, hvort sett- ar reglur séu í samræmi við EES- samninginn, mun ESA að eigin frumkvæði rannsaka málið í nánu samráði við viðkomandi stjómvöld í aðildarríkinu. Komi misræmi í ljós verður viðkomandi ríki að skuld- binda sig til nauðsynlegra breytinga á reglunum, en ef þau af einhveijum Vetrartilboð - 3jci rétta kvöldmdltíð kr. 2.250- 1ÍTIL LÍf'TLIIiIl Hádegisverðarhlaðborð alla daga kr. 1.395- VERKSTJÓRN Námskeið ætlað öllum verkstjórnendum, bæði nýjum og þeim sem vilja bæta námi við reynslu. Verkstjórnarfræðsian á Iðntæknistofnun býr yfir meira en þriggja áratuga reynslu við fræðslu verkstjórnenda. Námsþættirnir eru alls yfir 20. Meðal þeirra eru: - Almenn samskipti, - vinnusálfræði og stjórnun, - hvatning og starfsánægja, - valdframsal, áætlanagerð, stjórnun breytinga. Námskeiðið er samtals 90 stundir og skiptist í tvo hluta: 24.-29. janúar og 14.-19. febrúar. Innritun fyrir námskeiðið 24. janúar - stendur yfir í síma 68 7000. tt IÐNTÆKHISTOFNUN ÍSLANDS Keldnaholt,112 Reykjavlk ástæðum ekki gera það, t.d. sökum mismunandi skilnings á EES-samn- ingnum, getur ESA lagt málið fyrir EFTA-dómstólinn. Dómstóllinn kveður þá upp dóm um það, hvort reglurnar séu í andstöðu við samn- inginn eða ekki og er dómur hans bindandi. Ef ríkið fullnægir ekki dómnum þrátt fyrir að hann sé bindandi, getur stofnunin lagt málið aftur fyrir dómstólinn. Þar með er af- skiptum hennar af því lokið, en gengið er út frá því að viðkomandi aðildarríki muni fara að dómnum sökum þrýstings frá opinberri um- ræðu og frá öðrum aðildarríkjum. Björn segir að ESA muni á þrem- ur sviðum hafa víðtækari völd en að framan greinir, en þar er átt við samkeppniseftirlit, opinber innkaup og ríkisstyrki sem brengla sam- keppni á markaðnum. Samkeppniseftirlit I því skyni að jafna samkeppnis- skilyrði fyrirtækja innan EES- svæðisins munu sameiginlegar regl- ur gilda á svæðinu öllu að því er viðskipti yfir landamæri milli ríkj- anna eða samkeppni við þau varð- ar. Þessar reglur, sem er að finna í 53.-60. gr. EES-samningsins, eru byggðar á samkeppnisreglum EB. EES-samningurinn leggur bann við samningum og viðskiptavenjum, sem hindra samkeppni í viðskiptum og misbeitingu markaðsráðandi stöðu. í samningnum eru einnig ákvæði sem heimila afskipti af sam- þjöppun markaðsvalds með sam- runa fyrirtækja. Samkeppnisregl- urnar gilda jafnt um fyrirtæki í einkaeigu sem fyrirtæki í eigu opin- berra aðila. Ef um er að ræða ein- göngu innanlandsviðskipti sem eng- in áhrif hafa utan landamæra við- komandi ríkis gildir hins vegar landslöggjöf þess, t.d. nýju sam- keppnislögin hérlendis. Samningurinn um eftirlitsstofn- un og dómstól EFTA veitir eftirlits- stofnuninni sambærilegt vald og svipað hlutverk í samkeppnismálum og framkvæmdastjórn EB hefur skv. Rómarsáttmálanum. Hins veg- ar hefur eftirlitsstofnunin ekki sam- bærilegt löggjafarhlutverk og fram- kvæmdastjórnin hefur innan EB. EES-samningurinn hefur að geyma sérstakar reglur um skipt- ingu lögsögu milli eftirlitsstofnun- arinnar og framkvæmdastjórnar EB í samkeppnismálum. Ef um er að ræða samninga milli viðskiptaað- ila, sem hindrað geta samkeppni á hinum sameiginlega innri markaði mun eftirlitsstofnunin fjalla um þau mál, sem hafa eingöngu áhrif á viðskipti milli EFTA-ríkjanna og framkvæmdastjórnin um þau mál sem einungis hafa áhrif á viðskipti milli EB-ríkja. Ef slíkir samningar hafa áhrif á viðskipti jafnt milli EFTA-ríkja sem EB-ríkja gilda sér- stakar reglur um skiptinguna og er þá miðað við hlutfall veltu við- komandi fyrirtækja annars vegar í EFTA ríkjunum, sem aðild eiga að samningnum og hins vegar í EB- ríkjunum. Sams konar reglur gilda um mál, sem varða misbeitingu markaðsráðandi stöðu og sam- þjöppun markaðsvalds. Hægt er samkvæmt EES-samn- ingnum að veita undanþágu frá al- mennu banni við samningnum sem hindra samkeppni. í slíkum tilvikum þurfa samningarnir að uppfylla nánar tiltekin skilyrði og getur eft- irlitsstofnunin annars vegar og framkvæmdastjórn EB hins vegar STJÓRNARRÁÐ — Björn Friðfinnsson er fulltrúi íslands í stjórnarráði ESA og fer þar með mikilvæga mála- flokka. veitt almenna undanþágu eftir því hvorum megin lögsaga i málinu liggur. Auk almennrar undanþágu er hægt að veita yfirlýsingu um aðgerðarleysi, sem felst í því að eftirlitsstofnunin gefur út yfirlýs- ingu um að á grundvelli þeirra gagna sem fyrir liggja sjái stofnun- in ekki ástæðu til að hafa afskipti af málinu. Til þess að undanþága sé veitt í einstöku tilviki þarf að tilkynna um samninginn til viðkomandi eftirlits- stofnunar. Sé tilkynningin send þeirri eftirlitsstofnun, sem ekki hef- ur lögsögu í málinu, mun hún sjálf- krafa senda hana til hinnar eftirlits- stofnunarinnar. Tilkynningu má senda á hvaða opinberu tungumáli EES-ríkja sem er og verða útbúin sérstök eyðublöð fyrir tilkynningar sem samkeppnisstofnanir hvers að- ildarríkis munu láta aðilum í té. Sé um meint brot á samkeppnis- reglum að ræða, getur stofnunin hafið rannsókn á því, hvort sem er að eigin frumkvæði eða í tilefni af kæru. Eftirlitsstofnunin getur lokið máli með ákvörðun um að hætta frekari rannsókn eða með því að ákveða viðurlög við broti. Getur hún lagt stjómvaldssekt á það eða þau fyrirtæki sem brotið hafa framið og geta sektirnar numið allt að 10% af ársveltu viðkomandi fyrirtækis eða fyrirtækja. Til að tryggja rétta framkvæmd eftirlitsreglnanna hefur eftirlits- stofnuninni verið veitt víðtækt rannsóknarvald. Getur hún krafist upplýsinga frá fyrirtækjum og hún getur framkvæmt rannsóknir á staðnum. Þar sem mál falla undir lögsögu ESA en fyrirtæki í EB-ríkj- um koma við sögu, getur stofnunin óskað eftir aðstoð frá framkvæmda- stjórn EB við rannsókn á þeim þætti málsins, sem gögn er að finna um á yfirráðasvæði EB-ríkis og mega starfsmenn ESA taka þátt í slíkri rannsókn. Framkvæmda- stjórn EB hefur samsvarandi heim- ildir varðandi rannsóknir á yfirráða- svæði þeirra EFTA-ríkja, sem aðilar eru að EES-samningnum. Fyrirtæki, sem tekin eru til rann- sóknar samkvæmt framansögðu hafa andmælarétt skriflega og eins skal þeim gefinn kostur á að koma athugasemdum sínum munnlega á framfæri á skýringafundi um málið, sem sérstaklega skal efnt til. Samkeppnisstofnanir EFTA-ríkj- anna sem aðilar eru að EES-samn- ingnum munu aðstoða .ESA í verk- efnum stofnunarinnar. Getur ESA m.a. óskað upplýsinga frá þeim og aðstoðar við rannsókn mála. Aður en endanleg ákvörðun er tekin í einstöku máli mun ESA ráð- færa sig við EFTA-ríkin með milli- göngu sérstakrar ráðgjafanefndar um samkeppnismál, þar sem sam- keppnisyfirvöld ríkjanna geta komið skoðunum sínum á framfæri. Álit ráðgjafanefndarinnar er þó ekki bindandi fyrir ESA. EES-samningurinn gerir ráð fyr- ir samstarfi milli ESA og fram- kvæmdastjórnar EB í þeim tilgangi að koma á samræmdri og einsleitri

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.