Morgunblaðið - 13.01.1994, Síða 12
VZterkurog
Ll hagkvæmur
auglýsingamiðill!
VEDSKIPn AIVINNULÍF
FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 1994
Höfðar til
.fólksíöllum
starfsgreinum!
rmnmTiTf
Borgar-Bræður amm ekki
eftirspum eftirreyktum laxi
Flytja út 5 tonn á mánuði til Evrópulanda
FYRIRTÆKIÐ Borgar-Bræður hf. hefur að undanförnu verið að
flytja út um 5 tonn af reyktum og gröfnum laxi á mánuði til ýmissa
Evrópulanda undir heitinu Borgarlax. Þessi útflutningur hófst í júlí
í fyrra í framhaldi af þátttöku fyrirtækisins í sjávarútvegssýningu
í Brussel og frá þeim.tíma hefur
Fyrirtækið er í eigu fimm
bræðra, dóttursona Þorbjarnar Jó-
hannessonar sem kenndur var við
Kjötbúðina Borg en hún var starf-
rækt um langt árabil á Laugavegi
68. Tveir bræðranna störfuðu lengi
í Kjötbúðinni hjá afa sínum þar til
rekstri hennar var hætt á sl. ári. í
framhaldi af því hófu þeir bræður
rekstur kjötvinnslu við Smiðjuveg í
Kópavogi. Sá markaður reyndist
hins vegar erfiðari viðfangs en búist
var við. Lögðu þeir bræður kjöt-
vinnsluna niður um áramótin og
ætla alfarið að einbeita sér að út-
flutningnum, rekstri veislueldhúss
og innflutningi. Auk reykta laxsins
hefur fyrirtækið framleitt hunangs-
reyktan lax og graflax
Lærðu laxareykingu
af afa sínum
„Við lærðum að reykja lax hjá
afa okkar, Þorbirni í kjötbúðinni
Borg,“ sagði Elías Guðmundsson,
einn Borgarbræðra, í samtali við
Morgunblaðið. „Upphafið að út-
flutningi okkar má rekja til þess
að við tókum þátt í sjávarafurða-
sýningu í Brussel á síðasta ári.
Raunar var laxinn frá okkur valinn
á matseðlinn á Hilton hóteli í borg-
inni þar sem haldin var ráðstefna
fyrir sýninguna. Útflutningurinn
hófst í júlí sl. og í fyrstu sending-
verið nóg að gera í reykingunni.
unni sem fór til Sviss voru aðeins
50 kíló. Núna erum við að flytja
út um 5 tonn á mánuði bæði til
Sviss, Belgíu, Frakklands, Þýska-
lands og Slóveníu.
Viðskiptaaðilar okkar erlendis
segjast aldrei hafa kynnst jafn góð-
um móttökum og segja sumir að
þetta sé besti reykti lax í heimi.
Við höfum vart getað sinnt eftir-
spurn. Það virðist engin hindrun
þó 13% tollur sé lagður á laxinn
vegna þess að hann er talinn hafa
mikla sérstöðu á markaðnum. Er-
lendir aðilar hafa hvatt okkur
óspart til að einbeita okkur að reyk-
ingunni og útflutningi. Við höfum
t.d. fengið mikið hrós frá virtum
veitingahúsum, hótelum og fleiri
aðilum. Aðspurður um hvers vegna
svo vel hefði tekist til hjá Borgar-
bræðrum sagði Elías að hráefnið
væri ákaflega gott en einnig væru
afurðirnar án allra aukaefna. Með
sérstöku innra eftirlitskerfi væri
fylgst með gæðum framleiðslunnar
og hefði kerfið hlotið viðurkenningu
Fiskistofu eins og kveðið væri á um
í lögum. Þetta opnaði greiða leið inn
á markaði Evrópska efnahagssvæð-
isins. Hins vegar hefðu ekki fengist
neinir styrkir frá hinu opinbera eða
aðstoð af neinu tagi frá hinu opin-
bera.“
Hráefni keypt frá
Silfurstj örnunni
Elías segir að fengist hafi mjög
gott verð fyrir laxinn í Evrópu.
„Markaðurinn hefur verið í mikilli
lægð vegna norska laxins sem seld-
ur er fyrir 500-900 krónur kílóið.
Við fáum hins vegar 1.400-1.500
krónur fyrir kílóið. Aætlanir okkar
fyrir þetta ár gera ráð fyrir að flytja
allt að 14 tonn á mánuði.“
Borgarlax hefur keypt eldislax
frá Silfurstjörnunni í Öxarfirði.
„Við fáum laxinn glænýjan frá þeim
en jafnframt höfum við keypt lax
frá Miklalaxi sem er einnig með
mjög góðan fisk. Vandamálið virð-
ist vera að fá nægt hráefni og við
höfum velt því fyrir okkur að flytja
inn norskan lax. Við höfum áhuga
á samvinnu við íslensku laxeldis-
stöðvarnar til að leysa þetta mál,“
sagði Elías.
T o r g i ð
Fólk
Framkvæmda-
sijóri Alpan hf.
ULÁRUS Elíasson, viðskipta- og
verkfræðingur hefur verið ráðinn
sem framkvæmda-
stjóri hjá Alpan hf.
á Eyrarbakka.
Lárus útskrifaðist
sem vélaverkfræð-
ingur' frá Háskóla
íslands árið 1983
og tók Dipl-Ing.
próf í vélaverkfræði
frá Karlsruhe Uni-
versitat árið 1986. Hann starfaði
hjá Verkfræðistofu Guðmundar og
Kristjáns frá árinu 1986 til 1988.
Lárus lauk síðan MBA-prófi frá
Ohio University árið 1990. Hann
starfaði um tíma hjá Iðnþróunar-
sjóði þar til hann réði sig til Eim-
skips árið 1990, fyrst í hagdeild og
síðar sem deildarstjóri skipa- og út-
flutningsþjónustu. Lárus er kvæntur
Ingibjörgu Óðinsdóttur, blaða-
manni og eiga þau einn son.
Framkvæmda-
stjóri Bræðr-
anna Ormsson
UANDRÉS B. Sigurðsson hefur
verið ráðinn framkvæmdastjóri hjá
Bræðrunum
Ormsson hf. Hann
útskrifaðist sem
viðskiptafræðingur
frá Háskóla ís-
lands árið 1971.
Að námi loknu hóf
hann störf sem ijár-
mála- og fram-
kvæmdastjóri hjá Vörumarkaðnum
hf. þar sem hann starfaði til ársins
1983. Hann varð framkvæmdastjóri
Entek á íslandi hf. árið 1984 og
hefur verið framkvæmdastjóri Alpan
hf. á Eyrarbakka frá árinu 1985.
Andrés er forseti bæjarstjórnar
Garðabæjar. Sambýliskona hans er
Hallgunnur Skaptason.
Lárus
Gjaldeyrisreikningar höfðu vinninginn
Raunávöxtun á bankareikningum
Sérkjarareikningar
Landsbankinn
Kjörbók 2,02-4,02%
Landsbók 6,05%
Grunnur 6,55%
Búnaðarbankinn
Gulibók
Metbók
Stjörnubók
Bústólpi
íslandsbanki
Sparil. 2
Sparileið 3
Sparileið 4
Sparileið 5
Sparisjóðir
Trompbók
Öryggisb.
Bakhjarl
2,18%
4,34%
6,64%
6,85%
1,91-2,38%
4,20%
6,11%
6,11%
2,37-2,61%
3,69-4,18%
6,64%
Húsnæðissp.r. 6,85%
Miðaö er við inni-
stæðu sem legið
hefur óhreyfð frá
upphafi til loka árs.
MISMUNANDI
reglur gilda
um sérkjara-
reikninga.
Vextir fara ýmist
stighækkandi
eftir fjárhæðum
eða hversu lengi
innistæðan
stendur óhreyfð
á reikningnum.
Nánari upp-
lýsingar um
sérkjarareikn-
ingaerað
finna í mánaðar-
legu vaxtayfírliti
Seðlabankans.
Ýmsir reikningar
Reikningur
Almenn sparisjóðsbók
Ávísanareikningar
######
Lands
bankinn
-1,94%
-1,94%
Innlendir gjaldeyrisreikningar
Bandaríkjadollar
Sterlingspund
Þýsk mörk
Danskar krónur
Norskar krónur
Sænskar krónur
Franskir frankar
Svissn. frankar
Japanskt yen
ECU
11,92%
11,30%
8,02%
9,19%
6,54%
-1,02%
9,42%
11,06%
23,94%
8,03%
Búnaöar-
bankinn
-2,10%
-2,10 -
-2,56%
12,22%
11,84%
8,42%
8,94%
7,20%
-0,27%
9,36%
11,48%
24,65%
Islands-
banki
-2,29%
-2,28-
-2,59%
12,35%
11,61%
8,15%
8,88%
7,16%
-0,32%
8,80%
11,33%
24,58%
9,03%
Spari-
sjóðir
-2,17%
-2,17%
12,21%
11,87%
8,15%
8,83%
6,80%
-0,72%
9,31%
11,73%
24,61%
8,82%
Gengisbundnir krónureikningar
SDR (Sérstök dráttarréttindi) 14,73% 15,19%
ECU (European Currency Unit) 8,61 % 7,72%
16,01%
8,46%
14,95%
7,80%
Bankar og sparisjóðir keppast
nú við að sannfæra sparifjáreig-
endur um ágæti þeirra sérkjara-'
reikninga sem þar eru í boði eins
og jafnan á þessum tíma árs enda
liggja núna fyrir ávöxtunartölur
reikninganna á síðasta ári. Þannig
státar íslandsþanki sig af þestu
ávöxtuninni á óbundnum reikningi
árið 1993. Sparisjóðirnir benda á
hæstu ársávöxtun á innlánsreikn-
ingi en Búnaðarbankinn segist
hafa hæstu ávöxtun húsnæðis-
sparnaðarreikninga og almennra
innlánsreikninga. Þá hefur Lands-
bankinn kynnt Kjörbókina sína
með hefðbundnum hætti og leggur
áherslu á að hún sé traust, óbund-
in og áhættulaus og tryggi eigend-
um sínum háa og örugga ávöxtum.
Líklegt er að æði margir sparifjár-
eigendur eigi erfitt með að átta
sig á öllum þeim valkostum sem í
boði eru á þessum markaði svo
ekki sé talað um flóknar reglur
banka og sparisjóða um reikning-
ana. Þar ofan á bætast síðan ótal
sparnaðarmöguleikar á verðbréfa-
markaði, verðbréfasjóðir, ríkis-
verðbréf, ýmiskonar skuldabréf og
hlutabréf.
Samanburður á sérkjarareikn-
ingum bankanna leiðir í Ijós að
Búnaðarbanklnn og sparisjóðirnir
voru með hæstu raunávöxtun árs-
ins 1993 6,85%, á húsnæðis-
sparnaðarreikningum. Um þessa
reikninga gilda sem kunnugt er
sérstök lög enda veita þeir rétt til
skattaafsláttar. Þeir sem hins veg-
ar hafa kosið að hafa fé sitt óbund-
ið gátu varðveitt það á Kjörbók
Landsbankans, Gullbók Búnaðar-
bankans, Sparileiðum 2 og 3 hjá
íslandsbanka eða Trompbók spari-
sjóðanna. Þriðja tegund sérkjara-
reikninga eru svokallaðir bundnir
skiptikjarareikningar, en þar er um
að ræða Metbók Búnaðarbankans
og Öryggisbók sparisjóðanna. Þá
eru í fjórða lagi til vísitölubundnir
reikningar, þ.e. Landsbók Lands-
banka. Sparileið 4 hjá íslands-
banka, Stjörnubók Búnaðarbanka
og Bakhjarl sparisjóða. Það væri
að æra óstöðugan að fjalla um
þann frumskóg reglna sem um
þessa reikninga gilda. Það gefur
þó augaleið að þeir sem hafa
bundið fé sitt í 2-2 '/5 ár bera mest
úr bítum af innlánsreikningum í
íslenskum krónum.
Hins vegar hrósa þeir líklega
mestu happi sem kusu að varð-
veita sparifé sitt á gjaldeyrisreikn-
ingi og gengisbundnum krónu-
reikningum á síðasta ári því þeir
gáfu allt að tæplega 25% raun-
ávöxtun. Þar var um að ræða reikn-
inga með japönskum jenum en sá
gjaldmiðill hækkaði mikið á árinu
á alþjóðamarkaði. Háa raunávöxt-
un á þessum reikningum almennt
má hins vegar skýra með gengis-
fellingunni í júnímánuði. Þá eru
ónefndir sparifjáreigendur sem af
einhverjum ástæðum geymdu fé
sitt á almennum sparisjóðsbókum
eða tékkareikningum, en þeir biðu
skarðan hlut frá borði eins og
vænta mátti. Rýrnuðu innstæður á
þeim reikningum um 2-2,6%. Það
var því margs að gæta á síðasta
ári við ávöxtun fjármuna í bönkum
og sparisjóðum. Markaðurinn
verður síst einfaldari á þessu ári
því nýjar reglur hafa tekið gildi um
verðtryggingarviðmiðanir og nýir
sérkjarareikningar eru að líta dags-
ins Ijós. KB