Morgunblaðið - 18.02.1994, Qupperneq 9
9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 1994
ÚTSALA ÚTSALA
ÚTSALA ÚTSALA
ÚTSALA ÚTSALA
Gullbrá,
Nóatúni 17, sími 624217.
Gæðafatnaður á börn
Vetrarjakki, vind- og vatnsþéttur
kr. 6.950,- 30% lækkun.
Fleece peysur kr. 4.900,-
Eldri úlpugerðirkr. 3.900,-
S?o*t
ÚTIVISTARBÚÐIN
við Umferðarmiðstöðina,
símar 19800 og 13072.
_____
Fólk er alltaf
að vinna
íGullnámunnk
31 milljón
Halldór Blöndal landbúnaðarráðherra
Gróðurvernd -
landgræðsla
„Þessi ráðstefna endurspeglar þá
breiðu samstöðu, sem nú hefur náðst
um landgræðslu- og gróðurverndarstarf-
ið. Sú glæsilega sýning, sem hér er efnt
til af stofnunum landbúnaðar- og um-
hverfisráðuneyta, endurspeglar líka vax-
andi vægi rannsókna og þekkingar í land-
græðslustarfinu og nýja tækni, sem við
erum óðfluga að færa okkur í nyt." Þann-
ig mælti Halldór Blöndal landbúnaðarráð-
herra á ráðstefnu um landgræðslu á
Selfossi 12. febrúar sl.
Fagráð í land-
græðslu
Halldór Blöndal land-
búnaðarráðherra sagði
m.a. á Selfossráðstefnu
um landgræðslu:
„Hinn 28. október árið
1992 skipaði ég fagráð í
landgræðslu til að fjalla
um viðfangsefni Land-
græðslunnar. Fagráðið
skal m.a. vera ráðgefandi
um: 1) Markmið og leiðir
í landgræðslustarfinu; 2)
Framkvæmdaáætlanir;
3) Tengsl við félagasam-
tök og stofnanir; • 4)
Starfsaðferðir í varð-
veislu og endurheimt
landgæða; 5) Leiðir til
sjálfbærrar landnýting-
ar; 6) Ráðgjöf, fræðslu
og kynningu, 7) Skipulag
landgræðslustarfsins.
Auk þess lætur fagráð,
í saniráði við land-
græðslustjóra, til sín taka
önnur mál, sem varða
vekefnasvið Land-
græðslu ríkisins eftir því
áslæða kann að vera
til...“
Landgræðslu
áætlanir
„Landgræðsluáætlanir
hljóta eftirleiðis að vera
byggðar á ítarlegri út-
tekt á jarðvegseyðingu á
öllu landinu og taka tillit
til allra sviða land-
græðslustarfsins.
í því sambandi hlýtur
ekki sízt að vera tekið
tillit til landssvæða, sem
okkur þykja mikilfeng-
leg og mikilúðleg eða
hafa sögulega eða nátt-
úrulega þýðingu. Það var
af þeim sökum, sem ég
tók ákvörðun um það á
haustdögum 1992 að
Landgræðsla og Skóg-
rækt skyldu í sameiningu
standa undir sérstökum
ráðunaut á Húsavík
vegna þeirrar tröllauknu
verkefna, sem blasa við
okkur á afréttarlöndum
Mývetninga og Bárðdæla
ekki sízt.
Með sama hætti hefi
ég átt fund með hrepps-
nefnd Skaftárhrepps um
það, hvemig bezt verði
staðið að samstarfsverk-
efni heimamanna og
Landgræðslunnar um
þau miklu verkefni, sem
þar bíða úrlausnar, ekki
sízt vegna tíðra hlaupa í
Skaftá..."
Breyttir bú-
skaparhættir
„Búskaparhættir eru
að taka miklurn og örum
breytingum. Sauðfjár-
stofninn hefur dregizt
saman um 50% frá því
sem mest var. Og á síð-
ustu þremur árum hefur
flatur niðurskurður hjá
bændum numið 33%, sem
þýðir um 50% samdrátt
ráðstöfunartekna, sem er
meira en aðrar stéttir
hafa orðið að þola. Af
þessu sökum er sú spurn-
ing áleitin, hvemig við
getum nýtt þekkingu
þein-a, atorku og vélakost
til landgræðslustarfa og
við gróðurvemd. Engir
þekkja landið jafnvel og
þeir, engum þykir jafn
vænt um það: „nýt ég
aðeins míns erfiðis og
landið hefur menjar
þess,“ segir Eggert Ólafs-
son í Búnaðarbálki..."
Fræðsla um
vistkerfið
„Eg hefi ákveðið að
beita mér fyrir stórauk-
inni fræðslu um gróður-
og jarðvegsvemd og vist-
kerfið í heild í samvinnu
við þá, sem þessi mál
varða. Hugmyndin er sú
að leita eftir fjámiagni
frá helzu hagsmunaaðil-
um og ráða tvo reynda
kennara til tveggja ára
sem skuli: 1) Draga sam-
an efni, sem nú þegar
kami að vera til hjá kenn-
urum og skólastofnunum;
2) Kyima sér tilhögun á
fræðslu um vemdun jarð-
vegs og gróðurs erlendis
og finna kennsluefni, sem
þykir frammúrskarandi,
3) Skrifa kennslu- og
verkefnabækur fyrir hin
minsmunandi aldursstig
skólakerfisins.
Ég tel einboðið að
stjórn þessa verkefnis
verði í höndum Land-
græðslunnar vegna þeirr-
ar þekkingai- og reynslu
sem sú stofnun og starfs-
menn hennar ráða yíír.“
Vikuna 10. janúar til 16. febrúar voru
samtals 31.559.000 kr. greiddar út
í happdrættisvélum um allt land.
Þetta voru bæöi veglegir Siifurpottar
og fjöldinn allur af öðrum vinningum.
Silfurpottar í vikunni:
Dags. Staöur: Upphæö kr.:
12. feb. Mamma Rósa, Kópavogi...... 232.475
12. feb. Ölver........................ 58.862
16. feb. Ölver....................... 131.662
Staða Gullpottsins 17. febrúar, kl. 12.00
var 5.742.679 krónur.
Silfurpottarnir byrja alltaf í 50.000 kr. og Gullpottarnir í 2.000.000 kr.
og hækka síðan jafnt og þétt þar til þeir detta.
Þingmaður breska Ihalds-
flokksins á hádegisfundi SVS
JULIAN W. H. Brazier, þingmaður
breska lhaldsflokksins flytur laug-
dnginn 19. febrúar erindi á sameig-
ingum hádegisverðarfundi Sam-
tnkavestræna samvinnu (SVS) og
Varðbergs í Atthagasal Hótels
Saþuúnn verður opnaður kl. 12. Ný
viðfangsefniNATOerheitiðáerindi
breska þingmanns-
inslulian W. H. Brazier hefur verið
þingmaður Ihaldsflokksins fyrir
Kantaraborg frá árinu 1987. Hann
fór fyrst í framboð í Berwiek-upon-
Tweed árið 1983, gegn þingflokks-
formanni Fijálslyndaflokksins, Alan
Beith, en laut í lægra haldi. Brazier,
sem er fæddur 24. júlí 1953, er með
MA próf í stærðfræði og heimspeki
frá Oxford háskólanum. Á árunum
1990 til 1993 var hann aðstoðarráð-
herra í stjórnsýslu-
og atvinnumála-
ráðuneytinu í Lond-
on.
Þingmaðurinn
hefur mikinn áhuga
á vamar- og utan-
ríkismálum og hef-
ur m.a. birt skýrslur
um stefnu Breta í
varnarmálum.
Julian W. H. Hann var í 13 ár í
Brazier. varaliði breska
hersins, þ.m.t. nokkur ár í flughern-
um.
Brazier hefur tekið virkan þátt í
kristilegu starfi og stuðlað að því á
þingi að börn sem orðið hafa fyrir
misrétti og misnotkun fái bætta
meðferð í dómskerfinu. Þá hefur
hann beitt sér gegn vaxandi glæpa-
starfsemi og lagt sitt á vogarskálarn-
ar til að herða hegningarlög í heima-
landi sínu.
Áhugamál hans eru heimspeki,
vísindi og skokk. Eiginkona Brazier
heitir Katharine. Þingmaðurinn er
félagi í The Atlantic Council of the
United Kingdom sem er systurfélag
SVS á Bretlandseyjum.
Fundurinn er opinn félagsmönnum
SVS og Varðbergs og öðrum þeim
er áhuga hafa á þróun öryggis- og
stjórnmála í Evrópu.
Viðtalstími borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins verða
til viðtals f Valhöll, Háaleitisbraut 1,
á laugardögum frá kl. 10-12 f.h.
Er þá tekið á móti hvers kyns fyrirspurnum
og ábendingum.
Allir borgarbúar velkomnir.
Metsölublad á hverjum degi!
Laugardaginn 19. febrúar verða til viðtals Vilhjálmur Þ. Vilhjálms-
son, formaður skipulagsnefndar, í borgarráði, í hafnarstjórn, í stjórn
sjúkrastofnana, í byggingarnefnd aldraðra, og Hulda Valtýsdóttir,
formaður menningarmálanefndar.