Morgunblaðið - 18.02.1994, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 18.02.1994, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 1994 17 Bandaríkin Viðskiptahalli eykst um 37% Aldrei meiri halli á viðskiptum við Japan Washington (Reuter) VIÐSKIPTAHALLI Bandaríkjanna við útlönd jókst um 37% 1993 í alls 115,8 milljarða dollara og hallinn á viðskiptunum við Japana hefur aldrei verið meiri samkvæmt upplýsingum viðskiptaráðuneytis- ins í Washington á fimmtudag. Hallinn gagnvart Japan nam 51 af hundraði hins óhagstæða við- skiptajöfnuðar Bandaríkjanna við útlönd og halli Bandaríkjanna í tvíhliða viðskiptum jókst í 59,3 milljarða dollara þannig að slegið var fyrra met frá 1987 þegar hann nam 56,3 milljörðum. í desembermánuði einum minnkaði raunar alþjóðlegur við- skiptahalli Bandaríkjanna í 7,4 milljarða dollara úr 9,68 milljörð- um í nóvember. Hagfræðingar í Wal! Street voru því ekki sannspá- ir, þar sem þeir höfðu spáð 10,1 milljarða dollara halla í desember. Heildarhallinn 1993 var sá mesti síðan 1988 þegar hann nam 118,5 milljörðum. Hallinn 1992 var 84,5 milljarðar dollara og hallinn 1991 66,7 milljarðar. Álagið á tilraunir Bandaríkjanna til þess að auka útflutning hefur aukizt. Stjórn Clintons forseta hót- ar refsiaðgerðum gegn Japönum og kann að <grípa til hefndarað- gerða gegn tilteknum ríkjum, sem kunna að verða sökuð um ósann- gjarna viðskiptahætti. Saudi-Arabar kaupa 50 bandarískar farþegaþotur Dubai. Reuter. VIÐRÆÐUR Saudi-Araba og bandarískra flugvélaverksmiðja um öflun fjár til kaupa á 50 farþegaflugvélum að andvirði sex milljarða dollara geta tekið margar vikur og munu ráða úrslitum um pöntun Saudi-Araba í einstökum atriðum að sögn stjórnarerindreka á fimmtudag. Viðræður Boeing, McDonnell Douglas og saudi-arabískra emb- ættismanna hefjast 20. marz og ákvarðanir um pantanirnar og hvernig þær munu skiptast milli Boeing og McDonnell Douglas fara eftir því hvernig staðið verður að fjármögnuninni. Fjármögnunin mun ráða því hve margar flugvélar verða keyptar frá hvorri verk- smiðju að sögn heimildarmannsins. Blöð í Saudi-Arabíu hafa birt fréttastofufregnir um tilkynningu Bills Clintons forseta þess efnis að samkomulagið um flugvéla- kaupin muni tryggja atvinnuöryggi þúsunda Bandaríkjamanna. Kaup- in jafngilda 15% útflutnings Bandaríkjanna á farþegaflugvélum á ári. Fjár verður aflað til kaupanna með lánum í bandaríska Export- Import-bankanum og bandarískir embættismenn segjast treysta því að Saudi-Arabar geti borgað, þótt þeir eigi í greiðsluerfiðleikum vegna lækkunar á olíuverði. Að sögn Hvíta hússins náðist sam- komulagið „eftir harða samkeppni bandarískra og evrópskra fyrir- tækja.“ Athugasemd vegna fréttar um Silfurtún hf. Morgunblaðinu hefur borist eftirfarandi athugasemd frá Sigurði Bjarnasyni, upplýsingafulltrúa Félags íslenskra hugvitsmanna, vegna fréttar blaðsins um fyrirtækið Silfurtún hf. sl. þriðjudag: „Samkvæmt beiðni Gests Gunn- arssonar, tæknifræðings og fyrr- verandi starfsmanns Silfurtúns hf. í Garðabæ, skal eftirfarandi upp- lýst: Gestur starfaði hjá Silfurtúni hf. tímabilið frá ágúst 1991 til september 1993. A því tímabili hannaði hann og þróaði vél til end- urvinnslu á pappír og framleiðslu á eggjabökkum. Þá var fyrir í verk- smiðju Silfurtúns hluti vélasám- stæðu, sem keypt hafði verið frá enska firmanu Tomlionson á önd- verðum níunda áratugnum til framleiðslu á eggjabökkum úr pappír. Það hafði verið „prjónað" við þessa samstæðu þannig að hægt var að framleiða um eitt þúsund eggjabakka á dag með þremur starfsmönnum. Gestur byijaði að endurbæta vélina þegar hann kom til starfa hjá Silfurtúni hf., en síðan hóf hann hönnun nýrrar vélar, sem forstjórinn nefndi eftir sjálfum sér og kallaði FJ-4. Frumeintak þeirrar vélar var selt til Jemen, án þess að hafa verið reynslukeyrð nægilega. Þar á eftir hannaði Gestur vélina Trai- matic-360, sem var eins konar „mini“ útgáfa af eggjabakkavél. í ársbyijun 1993 byijaði Gestur að hanna nýja tegund, FJ-4 AUTO og vann að því starfí hörðum hönd- um fram eftir árinu eða þar til Silfurtún hf. sleit öllu samstarfi við hann 17. september 1993, en nákvæmlega þann dag var hún til- búin til útflutnings. Frumeintak vinnuteikninga af þessari vél voru lögð inn til skráningar 24. septem- ber 1993, kl. 11 f.h. Deila er um framleiðslurétt á vél milli Gests Gunnarssonar sem höfundar og Silfurtúns hf. sem framleiðanda. Gagnvart framleiðanda hefur Gestur áskilið sér allan rétt í þessu sambandi. Á bls. 20 í Morgunblaðinu 20. þ.m. er grein um útflutning á vél- um til eggjabakkaframleiðslu með tilheyrandi upplýsingum frá for- stjóra Silfurtúns hf. Þar er hvergi getið um höfund nefndra véla og er því ofangreindum upplýsingum hér með komið á framfæri með leiðréttingu og nauðsynlegum við- auka við frétt Morgunblaðsins. Hafa skal það sem sannara reyn- ist.“ BjOrK GuÐmUndsDóTTir á íónleikum \ Royalty fheatre í West Eud fimmtudagskvöldiö 24, !© h i'Úðr Sérstök tónleikaferð með Flugleiðuni. Flogið út á miðvikudagsmorgni og komið lieim á föstudegi. Flug, gisting, Vm-ð á m.mn i tvíbýli fr.i morgunverður ^ og miði á ' [ ] I 7^ 1 tónleikana / / með Björku. \y ) \ ^ > \ I AOEINS ÖRFA SÆTI k Farpantanir og miðar í ferðina Jtr^ seldir á söluskrifstofu Flugleiða i Kringlunni. Opið mánudaga - föstudaga frá kl. 10.00 - 19.00 \ og á laugardögum frá kl. 10.00 - 14.00. Nánari upplýsingar og farpantanir einnig i sima (91) 690 300. FLUGLEIDIR I rtmstur /slenskur uðtlátimii , Metsölublaó á hverjum degi! Dagana 18. til 26. febrúar er útsala á öllum vörum í verslun Seglagerðarinnar. Seglagerðin Ægir er í fremstu röð verslana, sem býður úrvals ferðaútbúnað fyrir alla fjölskylduna. /SgS. w©oa®@ Fatnaður, svefnpokar, tjöld, skór, sólhúsgögn, o.fl. Aíií er tækifærið! ..þar sem ferðalagið byrjar! SEGLAGERÐIN ÆGIR EYJASL0Ð 7 101 REYKJAVIK S. 91-621780

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.