Morgunblaðið - 18.02.1994, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 18.02.1994, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 18. FEBRUAR 1994 VIÐSKIFTIAIVINNULÍF Byggðamál Byggðastofnun geti átt hlutafé ífyrirtækjum Atvinnutryggingasjóður gjaldþrota, sagði Matthías Bjarnason á Alþingi DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra segir að endurskoðað verði ákvæði í reglugerð um Byggðastofnun, sem kveður á um að stofnunin megi ekki eiga hlutabréf í fyrirtækjum. Matthías Bjarnason sljórnarfor- maður Byggðastofnunar gagnrýndi þetta reglugerðarákvæði í um- ræðum um ársskýrslur Byggðastofnunar á Alþingi í gær. Matthías Bjarnason sagði að bankar og sparisjóðir hefðu eignast miklar eignir frá fyrirtækjum sem hefðu farið í gjaldþrot, Hann vitnaði í upplýsingar sem komu fram á Al- þingi í vetur um að 5 milljarða króna og auk þess ættu dótturfyrirtæki bankanna þijá milljarða. Þetta skipt- ist misjafnlega á milli atvinnugreina en af 5 milljörðunum væru aðeins 542 milljónir í sjávarútvegi en af- gangurinn væri íbúðarhúsnæði, verslunar- og skrifstofuhúsnæði og Heimsmynd seld HERDÍS Þorgeirsdóttir seldi í gær Friðriki Friðrikssyni tímarit- ið Heimsmynd sem hún stofnaði í ársbyrjun 1986 og hefur lengst af ritstýrt. Það var útgáfufélagið Ofeigur hf. sem gefið hefur Heimsmynd út og var Herdís þar stærsti hluthafinn. Heimsmynd er að hefja sitt 9. út- gáfuár en 1. tölublaði sem er í vinnslu núna mun koma út undir ritstjórn Herdísar í mars að því er kemur fram í frétt frá Heimsmynd. Friðrik Friðriksson gefur út auk Heimsmyndar vikublaðið Pressuna iðnaðarhúsnæði. Á sama tíma og bankar væru orðnir stórir hluthafar í fyrirtækjum sem hefðu farið á hausinn og verið rétt við aftur, þá væri hart að stofnun 'eins og Byggðastofnun mætti ekki gerast hluthafi neins staðar og hefði þó stjórn stofnunarinnar alltaf verið mjög íhaldssöm í að kaupa hlut í fyrirtækjum. Davíð Oddsson svaraði Matthíasi og sagði að rök þau sem hann hefði fært fram um viðskiptabankana gæfu tilefni til þess að þetta ákvæði reglugerðarinnar um Byggðastofn- un yrði tekið til endurskoðunar þannig að samræmi yrði þar á milli. Umrædd reglugerð um Byggða- stofnun var sett í febrúar 1992. Þar er ákvæði um að stofnunin geti stuðlað að stofnun nýrra fyrirtækja samkvæmt ákvörðun stjórnar stofn- unarinnar og það geti hún gert með ráðgjöf, lánum, ábyrgðum og óaft- urkræfum framlögum en aðeins lagt fram hlutafé ef um er að ræða fjár- festingar- eða þróunarfélög. Sam- kvæmt þessu getur Byggðastofnun ekki breytt lánum illa stæðra fyrir- tækja í hlutabréf á sama hátt og bankar gera, og sagði Ólafur Þ. Þórðarson þingmaður Framsóknar- flokks á Alþingi í gær, að reglugerð- in, eins og hún væri nú, kæmi í veg fyrir að Byggðastofnun geti varið Atvinnutryggingardeild gjaldþrota Matthías sagði einnig á þingi í gær, að Atvinnutryggingarsjóður væri gjaldþrota, en atvinnutrygging- ardeild Byggðastofnunar tók við umsjón sjóðsins eftir að hætt var að veita lán úr honum. Sagði Matthías að skuldir deildarinnar umfram eign- ir væru nú á þriðja milljarð og sagð- ist hann vera sannfærður um að sú upphæð verði ekki undir fimm millj- örðum króna þegar upp yrði staðið. VIÐSKIPTAÐEILA BANDARIKJANNA OG JAPANS Bandaríkjamenn hóta því aö beita viðskiptaþvingunum gagnvart Japan sem á miðvikudag tilkynnti um aö umdeildur viðskiptajöfnuöur rfkjanna hefði enn oröið Japönum verulega í hag - hækkaö í 3,13 milljarða dollara í janúar 1994 úr 2,93 milljöröum í janúar 1993. 100 milljaröar. BANDA- RÍKIN Utflutningur frá Japan til Bandarfkjanna Útflutningur frá Banda- rlkjunum til Japajjs JAPAN 1974 76 78 80 82 84 86 88 90 92 1 11 1 BANDARÍKIN JAPAN ( Fólksfjðldi 1122 milljónir Flatarmál i 9.373.000 ferkm. 1372.000 ferkm. Útflutn. (jan.-nóv. 1993) |43'799mili| íj'tllJapan) 187.403 m l|. $ H' Bandar.i Landsframleiðsla (1992) P 5.920 milljarðar dollara 13,671 milljaröar dollara Landsframl. á ibúa (1992) i 24.065 dollarar 1 30.090 dollarar Atvlnnuleysi (des. 1993) Im% 1 2,9% Veröb. (des. 93 - des. 92) wmmMmmmm m~ 1 0.9% < REUTER Japanar reyna að draga úr illdeilum Tókýó (Reuter). Forsætisráðherra Japans, Morihiro Hosokawa, fól helztu ráðuneytum á fimmtudag að undirbúa skyndiráðstafanir til þess að opna japansk- an markað fyrir innflutningi, ef til vill fyrir lok næstu viku, til þess að halda harðnandi viðskiptadeilu við Bandaríkin í skefjum. Hosokawa mun einnig halda sér- stakan stjórnarfund á föstudag til þess að flýta fyrir „ráðstöfunum af fúsum vilja,“ sem hann hét þeg- ar fundur hans og Bills Clintons Bandaríkjaforseta fór út um þúfur fyrir viku vegna kröfu Bandaríkja- manna um að sett verði mörg mark- og tímaritið Efst á baugi. sína fjármuni. mið, sem verði að ná til þess aó Rekstnarkostnaðun lífeyrissjóða 1992 Sjóðir með ábyrgð launa- greiðanda SAL- sjóðir ALLIR SJÓÐIR Allir sjóðir nema sjóðir m. áb. launagr. Sjóðirm. áb. launagr. r.áv.=7,6% SAL-sjóðir r.áv.=7,6% F (fjármunatekjur) 2.295.663 5.058.730 14.708.945 12.413.282 2.616.045 5.020.000 A (hrein eign í ársbyrjun) 27.978.001 52.407.792 157.593.520 129.615.519 27.978.001 52.407.792 B (hrein eign í árslok) 31.027.083 60.875.214 181.268.999 150.241.916 31.027.083 60.875.214 j=hækkun LV 0,0156 0,0156 0,0156 0,0156 0,0156 0,0156 i=ávöxtun eigna 0,0810 0,0935 0,0908 0,0928 0,0928 0,0927 r=raunávöxtun 0,0644 0,0767 0,0740 0,0760 0,0760 0,0760 Útreikningar: Samband alm. Itfeyrissjóða. Heimild: Skýrsla Bankaettirlits Seðlabanka Islands um irfeyrlssjóði. Lífeyrissjóðir Mikill fórnarkostnaður hjá opinberum lífeyrissjóðum REKSTRARKOSTNAÐUR lífeyrissjóða með ábyrgð launagreiðenda þar sem vægi opinberra sjóða vegur langþyngst, var 14,43% af iðgjöld- um árið 1992. Þetta kemur fram í samantekt Sambands almennra lífeyr- issjóða (SAL) þar sem tekinn er með í reikninginn fórnarkostnaður opinberu sjóðanna af lágri raunávöxtun, þ.e. ávöxtun hreinnar eignar sjóðanna á árinu miðað við iánskjaravísitölu. Samsvarandi útreikningar fyrir árið 1991 gefa til kynna 17,25% rekstrarkostnað opinberu sjóð- Kostnaður af iðgjöldum lífeyris- sjóða með ábyrgð launagreiðenda var 2,74% árið 1992 samkvæmt upplýs- ingum í skýrslu Bankaeftirlits Seðla- banka íslands um lífeyrissjóðina. Kostnaður SAL-sjóðanna var 5,70% af iðgjöldum. Raunávöxtun þeirra var hins vegar 7,67% á árinu 1992 samanborið við 6,44% raunávöxtun sjóða með ábyrgð launagreiðenda. Meðalraunávöxtun allra lífeyrissjóða var 7,40%. I útreikningum SAL kemur fram að meðalraunávöxtun allra lífeyris- sjóða nema sjóða með ábyrgð launa- greiðenda var 7,60 árið 1992. Ef sjóðir með ábyrgð launagreiðenda hefðu haft þá raunávöxtun hefðu íjármagnstekjur þeirra verið 2.616 milljónir króna í stað 2,296 milljóna. „Munurinn er 320 milljónir sem þess- ir sjóðir sjá á eftir vegna þess að ávöxtun eigna þeirra er ekki eins góð og hinna. Líta má á þessar 320 mi- ljónir sem fómarkostnað og sé hon- um bætt við rekstarkostnað sjóðanna með ábyrgð launagreiðenda verður kostnaðarhlutfaliið 14,43%,“ segir í samantektinni. Miðað við sömu útreikninga var kostnaðarhlutfall lífeyrissjóða með ábyrgð launagreiðenda 17,25% árið 1991 ef fórnarkostnaði vegna lágrar raunávöxtunar er bætt við. Hjá þeim sjóðum var kostnaður 2,65% af ið- gjöldum en 5,19% hjá SAL-sjóðum. Raunávöxtun hreinnar eignar síðar- nefndu sjóðanna miðað við lánskjara- vísitölu var hins vegar 6,85% en 5,14% hjá sjóðum með ábyrgð launa- greiðenda. Meðalraunávöxtun allra lífeyrissjóða var 6,46%. í útreikning- um SAL kemur fram að séu lífeyris- sjóðir með ábyrgð launagreiðenda teknir út úr meðaltalinu verði raun- ávöxtunin 6,77%. Fjármagnstekjur sjóða með ábyrgð launagreiðenda hefðu orðið 3.595 milijónir miðað við þá ávöxtun í stað 3.199 milljóna. Munurinn er 396 milljónir og við þann fórnarkostnað verður kostnað- arhlutfall þeirra 17,25%. auðvelda aðgang að markaðnum í Japan. „Við verðum að ákveða fleiri áþreifanlegar ráðstafanir eins fljótt og auðið er,“ sagði talsmaður jap- önsku stjórnarinnar þegar Ho- sokawa hafði hvatt helztu samn- ingamenn sína á sinn fund. „Þeir eru sammála um að Japanar eigi næsta leik.“ Talsmaðurinn taldi líklegt að nýju ráðstafanirnar yrðu tiibúnar fyrir næsta fund sjö helztu iðnríkja (G7) í Frankfurt 26. febrúar. Til þess að opna markað sinn íhuga Japanar meðal annars hugmyndir um að afnema höft, stuðla að ijár- festingu til þess að auka innflutning og að stjórnvöld auki kaup á erlend- um varningi að sögn stjórnartals- mannsins. Talsmaðurinn endurtók fyrri áskoranir um að deiluaðilar sýndu rósemi og hættu orðaskaki. Viðurkenning Olís hrepptímark- aðsverðlaun ÍMARKS OLÍUVERSLUN íslands - Olís hlýtur markaðsverðlaun íslenska markaðsklúbbsins - IMARK í ár fyrir framúrskarandi árangur í markaðsstarfi sínu. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega afhöfn á Þingholti í gær af Sighvati Björvinssyni, viðskiptaráðherra. Þetta er í þriðja sinn sem þessi verðlaun eru veitt en í fyrra varð-Miðlun fyrir valinu og árið 1992 Toyota-umboðið P. Samúels- son hf. Það er stjórn ÍMARKS sem veit- ir viðurkenninguna og eru ákveðn- ar reglur hafðar að leiðarljósi við val á fyrirtæki. Lögð er mikil áhersla á sterka viðskiptalega stöðu viðkomandi fyrirtækis jafn- framt því að fyrirtækið hafi náð að skapa sér ákveðna ímynd. Olís hefur á undanförnum árum lagt landgræðslu lið og varið til þess ákveðnum hluta af söluverði bens- íns og þannig tengt umhverfismál ímynd sinni. VERÐLAUN — Sighvatur Björgvinsson viðskiptaráðherra afhendir Einari Benediktssyni, forstjóra Olís, markaðsverðlaunin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.