Morgunblaðið - 18.02.1994, Blaðsíða 13
t eei haúhh:« .bi HU0AauT8örí GiGAjanuoHOM
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 1994
*
A ég að gæta
Anna Birna Jensdóttir
Ennfremur að umgangast viðkom-
andi í ljósi þess, sem hann hefur
staðið fyrir um ævina og leggja
rækt við snyrtilegt útlit. Náin sam-
vinna er við aðstandendur varðandi
umönnun vistmanna og lögð er
áhersla á að þeir geti haldið tengsl-
um við sitt fýrra umhverfi eftir at-
vikum. Sá grunnur sem hvítabands-
konur lögðu með byggingu Hvíta-
bandsins hefur reynst ómetanlegur
í þágu sjúkrahúsmála í Reykjavík
og þjónustu við geðsjúka og aldraða
í seinni tíð.
Heimildir:
— Hvítaband, öldrunardeild. Upplýsingar
fyrir aðstandendur. 1991.
— Hvítaband 50 ára 1895-1945. Afmælis-
blað Hvítabandsins.
Höfundur er
hjúkrunarframkvæmdastjóri
öldrunariækningadeildar
Borgarspítalans.
eftir Ester
Sveinbjarnardóttur
í lífí okkar flestra kemur sú stund
að við þurfum styrk og stuðning
frá náunganum t.d. vegna veikinda,
gjaldþrota, fíknar, ástvinamissis
eða annarra brostinna vona.
Sjálf hef ég upplifað erfiðleika í
mínu lífí og skrifa þessa grein til
þess að benda fólki á að lifa alltaf
í voninni og trúnni á kærleikann.
Ég varð fyrir þeirri lífsreynslu
26 ára gömul að missa þann mann
sem ég hafði tengst dýpstu ástar-
og vináttuböndum á minni ævi.
Hann lést af slysförum þann 19.
febrúar 1990 og fæddi ég okkar
annan son á Fæðingarheimilinu í
Reykjavík aðeins þremur dögum
seinna. Ég bar þá gæfu að hafa í
kringum mig yndislegt fólk sem af
kærleika sínum gerði allt sem það
gat, mér og sonum mínum til hjálp-
ar.
A þessum tíma upplifði ég tóm,
líf án tilfinninga, einsemd og sorg,
jafnframt smæð sjálfrar mín. Haft
var samband við mig frá samtökum
um sorg og sorgarviðbrögð. Reynd-
ist það mikill stuðningur fyrir mig
að hitta fólk með svipaða lífs-
reynslu og sjá hvernig það hafði
unnið sig til lífsins aftur.
Presturinn minn, séra Solveig
Lára Guðmundsdóttir, var minn
sálnahirðir og var hún mér mikill
styrkur í trú minni á Jesúm Krist
svo ég gleymdi ekki því að eins og
Guð tekur til sín er hann örlátur
að sama skapi. Hún gaf sér góðan
tíma og er ég henni ævinlega þakk-
„Sem þjóðfélag skiptir
það okkur máli hvað
hver einstaklingur ger-
ir, því spyr ég: Hvers
vegna er fólki ekki boð-
in ódýr og í sumum til-
fellum ókeypis sál-
fræðiþjónusta á heilsu-
gæslustöðvum?“
lát fyrir. Ég get ekki talið þau skipti
sem bankað var uppá hjá mér af
fólki frá hinum ýmsu sértrúarflokk-
um, sem vissu að ég var hjálpar
þurfí.
Við sem missum vitum að það
er áhætta að lifa, elska og vera
elskuð, en trúið því, áhættan er
alltaf þess virði (að lifa lífínu lif-
andi).
Ég hef áhyggjur, ekki af mér og
mínum, heldur því fólki sem af
ýmsum orsökum þarf á sálgæslu
að halda og fær hana ekki. Þjóðfé-
lagskröfurnar gera ráð fyrir að við
séum öll hörkutól og eigum því að
ráða við allt ein og sjálf. Eitt er
víst að enginn getur staðið einn,
hversu sterkur sem hann er. Því
miður leitar fólk oft ekki eftir hjálp-
inni og verður þá til þess að taka
það sem býðst, hvað svo sem það
kann að vera. Þegar fólki líður mjög
illa andlega á það erfitt með að
skynja það fyrr en batinn kemur
eða þegar ástandið er orðið afar
slæmt.
Hagkaup, Bón-
us og lífsbjörgin
eftir Ragnar
Tómasson
í ár fögnum við 50 ára sjálf-
stæði lýðveldisins. Því sjálfstæði
er nú ógnað. Til varnar vantar
ekki vopn heldur vinnu. Hár
launakostnaður á íslandi tak-
markar þau atvinnutækifæri sem
bjóðast í útflutningsgreinum og
ferðaiðnaði. Lækkun vöruverðs er
eina leiðin til að lækka launa-
kostnað án þess að skerða lífs-
kjör. Hagkaup og Bónus hafa með
lækkun vöruverðs aukið kaupmátt
launatekna. Innflutningur á kalk-
únalærum og skinku er hvorki
sölubrella né tilræði við okkar
ágæta landbúnað heldur táknræn
viðleitni til lækkunar vöruverðs.
Öll hagræðing skerðir um stund
kjör hinna fáu en bætir afkomu
hinna mörgu. Þegar Edison fann
upp ljósaperuna fækkaði störfum
við kertagerð en heimurinn naut
góðs af. Við viljum blómlegt
mannlíf til sjávar og sveita en án
vinnu verður slíkt draumsýn ein.
Höfundur er lögmaður.
Ragnar Tómasson
bróður míns?
Ester Sveinbjarnardóttir
Það er mjög dýrt að leita sér
sálfræðiaðstoðar í heilbrigðiskerf-
inu. Sumir veigra sér við því eða
hafa jafnvel ekki efni á að leita
þangað. Þá er annar möguleiki sem
fólk hefur og leitar í auknum mæli
til, að ég tel í stað sálfræðinga.
Þetta eru miðlar, spákonur og aðrir
dulspekingar. Sumt af þessu fólki
starfar af köllun, aðrir m.a. til að
afla sér lífsviðurværis.
Sumir eru heppnir en aðrir ekki!
Þarf þetta að vera svona? Höfum
við val? Sem þjóðfélag skiptir það
okkur máli hvað hver einstaklingur
gerir, því spyr ég: Hvers vegna er
fólki ekki boðin ódýr og í sumum
tilfellum ókeypis sálfræðiþjónusta á
heilsugæslustöðvum? Er óþarfi fýrir
íslensku Þjóðkirkjuna að stunda
trúboð í sínu eigin landi. Myndi virk
samvinna Þjóðkirkjunnar og heilsu-
gæslunnar leiða til markvissra end-
urbóta og hjálpa til að meta þörfina
hverju sinni?
Mín reynsla er bitur en hún hef-
ur þroskað mig, aukið skilning á
lífinu og hjálpað mér til að njóta
þess að lifa í nútíðinni. Ef grannt
er skoðað og með opnum huga eru
kostir og gallar á öllu sem hendir
okkur.
Höfum það hugfast að heilbrigt
fólk lifír í heilbrigðu þjóðfélagi
sjálfu sér og öðrum til heilla. Fólk
í neyð þarf oft ekki langvinna hjálp
til að geta fótað sig á ný.
Höfundur er
iðnrekstrarfræðingur.
FOLLIGEN >
KREiyilÐ EYKUR
HARVÖXT! >
✓
✓
FOLLIGEN er örvandi hárkrem samsett úr 100% náttúrulegum ^
vítamíngjöfum og jurtum.
FOLLIGEN er nuddað í hársvörðinn eftir þvott OG EKKI SKOLAÐ
ÚR HÁRINU.
Efnin í FOLLIGEN örva hársvörðinn, losa stíflur úr hársekkjunum,
koma í veg fyrir hárlos og örva hárvöxt.
FOLLIGEN hefur reynst sérstaklega vel og jafnvel menn, sem
komnir voru með „gljáskalla", hafa fengið hárvöxt á ný.
FOLLIGEN er framleitt af EARTH SCIENCE í Bandaríkjunum. ^
Frá þeim kemur einnig snyrtivörulína fyrir herra, m.a.:
Azulene rakkrem.
Almond „skrúbb" krem fyrir þá, sem eru með djúpa skeggrótJ
Andlitskrem fyrir þurra húð
Andlitst- og líkamskrem eftir bað og sturtu.
Andlitsvatn eftir rakstur, án alkóhóls
Fæst aðelns hjá:
Póst kröf u þjón usta
Greiðslukortaþjónusta
án alkóhóls. ^
beuR^ic i
Borgarkringlunni,
sími 811380
EFTIR ÖLAF HAUÍC SÍM0NARSON
TÓMLIST ÚR SÝNINQU' þJÓÐLEKHÚSSINS
Hljómsveitin NYDONSK semur og flytur ásamt
þriðja tug leikara tónlistina úr þessu frábæra
leikriti sem fjallar á gamansaman hátt um
reykvísk ungmenni og veruleika þeirra í
nútímanum.