Morgunblaðið - 18.02.1994, Side 15

Morgunblaðið - 18.02.1994, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 1994 15 * Islenskt nautakjöt laust við aðskotaefni N autgripabænd- ur sækja á Banda- r íkj amarkaðinn ÍSLENSKT nautakjöt hefur fengist gæðavottað í Bandaríkjunum sem laust við aðskotaefni, og hefst útflutningur á fullunnum Iqötvörum þangað á vegum Landssamtaka kúabænda og Kaupsýslunnar hf. að öllum líkindum í lok næsta mánaðar, en samningaviðræður við versl- anakeðju í Bandaríkjunum eru nú á lokastigi. íslenska nautakjötið verður markaðssett og merkt sem laust við hormóna, fúkkalyfjaleifar, illgresiseitur og skordýraeitur, en búist er við að allt að því sama verð fáist fyrir kjötið í Bandaríkjunum og nautgripabændur fá greitt fyrir kjötið hér á landi. Nánast öll nautakjötsframleiðslan hér á landi fellur undir gæðavottunarkerfið og er útlit fyrir að flutt verði út á bilinu 200 til 300 tonn til Bandaríkjanna á þessu ári. Að sögn Erlends Garðarssonar hjá Kaupsýslunni hf. fæst um 30% hærra verð en ella hefði fengist í Bandaríkj- unum fyrir íslenska nautakjötið vegna hreinleikastimpilsins, og er það 40-45% hærra verð en fæst fyr- ir nýsjálenskt nautakjöt í Bandaríkj- unum. Mikið magn umframbirgða af nautakjöti er til víða erlendis í frystigeymslum, og eru þær birgðir seldar með útflutningsbótum og rík- isstyrkjum á mjög lágu verði. Af samkeppnisástæðum hefur því reynst nauðsynlegt að vinna að markaðssetningu á íslenskum búvör- um eftir öðrum leiðum, en ljóst þyk- ir að hefðbundnir erlendir nauta- kjötsmarkaðir skila ekki ásættanlegu verði til íslands. Samninghar á lokastigi Undanfarna mánuði hafa staðið yfir samningar við verslanakeðju í bandaríkjunum með aðstoð banda- rískra milliliða, en bæði verslanakeðj- an og milliliðirnir sérhæfa sig í sölu á svokallaðri „hreinni“ vöru. Samn- ingar þessir eru nú á lokastigi, og sagðist Erlendur gera ráð fyrir að fyrsta sendingin færi utan í lok mars, en allur skrokkurinn verður nýttur í framleiðsluna og verður þar um að ræða steikur, hakkefni og hamborg- ara. Nautakjötið verður selt í Banda- ríkjunum sem aðskotaefnalaus vara samkvæmt leyfi frá bandarískum yfirvöldum, en gengið er út frá því að kjötið verði að mestu unnið í neyt- endapakkningar hér á landi, og í fyrstu mun sláturhúsið á Húsavík annast vinnslu kjötsins. Bændur borga mismun Að sögn Guðmundar Lárussonar formanns Landssambands kúa- bænda munu íslenskir bændur sjálfir taka á sigg þann mismun sem kann að verða á kjötinu til Bandaríkjanna og því kjöti sem selt er á innanlands- markaði, en hugsanlega lægra verð í Bandaríkjunum verður ekki til þess að kjötið hér á landi hækki í verði. Varan sem seld verður til Bandaríkj- anna verður unnin samkvæmt eftir- liti frá Rannsóknastofnun landbún- aðarins, en Rala, landbúnaðarráðu- neytið og fleiri aðilar hafa verið í samvinnu við landssamband kúa- bænda og Kaupsýsluna hf. um að koma á útflutningnum til Bandaríkj- anna. Gæðavottað nautakjöt iviorgunuiaoio/ övernr GUÐMUNDUR Lárusson formaður Landssamtaka kúabænda og Erlend- ur Garðarsson hjá Kaupsýslunni hf. við auglýsingaskilti sem komið verður fyrir í þeim verslunum í Bandaríkjunum sem selja munu íslenskt nautakjöt. Samstarfshópur um sölu á lambakjöti undirbýr aðgerðir Neytendur fái lambakjöt á sem hagstæðustu verði Samstarfshópurinn SAMSTARFSHÓPUR um sölu á lambakjöti er samstarfsvettvangur framleiðenda og sláturleyfishafa til að vinna að sölu og markaðsmálum sauðfjárafurða, en hópurinn hefur samráð við kaupmenn þegar um er að ræða aðgerðir til lækkunar á smásöluverði. A myndinni sést samstarfshópurinn samankominn, en talið frá vinstri eru Jón Ragnar Björnsson frá Framleiðsluráði landbúnaðarins, Björn Jónsson framkvæmda- sljóri samstarfshópsins, Árni Helgason frá Kjötumboðinu hf., fulltrúi Landssamtaka sláturleyfishafa, Arnór Karlsson, formaður, frá Landssamtökum sauðfjárbænda, Gunnlaugur Júliusson frá Stéttarsambandi bænda, og Finnur Árnason frá Sláturfélagi Suðurlands, fulltrúi sláturleyfishafa. SAMSTARFSHÓPUR um sölu á lambakjöti mun beita sér fyrir ýmsum aðgerðum á næstunni til að stuðla að því að neytendur geti fengið lambakjöt á sem hagstæðustu verði, en eins og greint hefur verið frá í Morgunblaðinu stendur sauðfjárframleiðslan heldur höllum fæti á markaðinum um þessar mundir vegna verðlækkana sem orðið hafa á öðrum kjöttegundum. Fyrstu aðgerðir samstarfshópsins er sala sem nú er nýhafin á hálfum skrokkum af fyrsta flokks lambakjöti niðursö- guðum í poka, sem selt er undir vörumerkinu „Bestu kaupin", en bændur veija sjálfir fé til lækkunar á verði kjötsins og er auglýst smásöluverð 398 kr. kilóið. Með vorinu verður nokkru fé varið til verðlækkana á dilkakjöti á svo- nefndum lambakjötsdögum, en versl- anir verða þá hvattar til að hafa sérstaka lambakjötsdaga þar sem kjötinu verður gerð sérstaklega góð skil. Afurðastöðvar og verslanir gera þá með sér samkomulag um sölu á ákveðnu magni af lambakjöti á lækk- uðu verði. í sumar verður síðan sér- stök lækkun á kryddlegnu grillkjöti, sem tilbúið verður beint á grillið, og þá hefur kindahakk verið á boðstól- um undanfarið á mjög hagstæðu verði. Gert er ráð fyrir að Samstarfs- hópurinn muni á þessu ári taka þátt í ýmsum öðrum verkefnum tengdum sölu á lambakjöti, ýmist sem styrkta- raðili eða þátttakandi í auglýsingum. Fé til verðlækkana kemur frá bændum Sérstaða sauðíjárframleiðenda í harðnandi samkeppni á kjötmark- aðnum felst í því að verðlagning á kindakjöti er opinber, en frjáls verð- lagning er á öðrum kjötttegundum sem stjórnast af framboði og eftir- spurn. Heildsöluverð kindakjöts er ákveðið af fímmmannanefnd sem skipuð er fulltrúum neytenda og slát- urleyfíshafa með verðlagsstjóra sem formann, en verð til bænda er ákveð- ið af sexmannanefnd þar sem fulltrú- ar bænda og fulltrúar neytenda semja um verðið. Afurðastöðvar greiða síðan bændum skráð verð fyr- ir framleiðsluna, en síðastliðið haust samþykktu bændur og afurðastöðvar að greiða hluta af tekjum sínum í sameiginlegan sjóð, sem notaður yrði til lækkunar á heildsöluverði. Því kemur allt fé til verðlækkana á lambakjöti frá bændum og afurða- stöðvum en ekki úr ríkissjóði. Verðlækkun nauðsynleg á öllum stigum Ótti er meðal sauðfjárframleið- enda um að við óbreyttar markaðsað- stæður megi fastlega búast við áframhaldandi samdrætti í sölu kindakjöts, en síðustu 15 árin hefur salan dregist saman um rúmlega 2% á ári. Salan innanlands á síðasta al- manaksári var liðlega 8.000 tonn, en með áframhaldandi þróun sem verið hefur þykir margt benda til þess að salan verði komin í 6.000 tonn um næstu aldamót. Til þess að koma megi í veg fyrir þessa þróun telja sauðfjárbændur frumskilyrði að þeir sitji við sama borð og aðrar kjöt- greinar, og nauðsynlegt sé að ná fram meiri sveigjanleika í verðlagn- ingu kjötsins þar sem að öðrum kosti verði það alltaf undir í samkeppn- inni. Þá sé nauðsynlegt sé að raun- verðslækkun náist fram á næstu misserum til samræmis við aðrar kjötvörur og önnur matvæli, og þurfi iækkunin að koma fram á öllum stig- um framleiðslunnar, þ.e. á fram- leiðslustigi, slátrun, heildsölu, vinnslu og einnig í smásölu, en ljóst sé að verðlækkun til bóndans skili ekki neysluaukningu nema tryggt sé að lækkunin nái alla leið til neytandans. Kentucky Eríed Chicken 5 daga kjúklingaveisla «. w 22“ Alrbitar á Venjulegir bitar, barbecue bítar og kryddvængir Opiðípa 11-22 ^rúar Kentucky Frfed Chlcken Faxafeni 2 • S: 680588 Hjallahrauni 15 • S: 50828 Shellskálarium Selfossi • S: 98-23466 7» Kentucky Frled Chlcken Kentuckv Frieci Chlcken Kentucky Fried Chicken Kentucky Fried Chicken Kentucky Frled Chicken

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.