Morgunblaðið - 18.02.1994, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 1994
19
Atriði úr myndinni Flótti sakleysingjans.
Flótti sakleysingj-
ans í Regnboganum
REGNBOGINN frumsýnir föstudaginn 18. febrúar ítölsku myndina
„La Corsa dell’Innocente“ eða Flótti sakleysingjans.
Þetta er spennumynd sem fjallar
um ungan dreng, Vito, sem verður
fyrir því einn fagran sunnudags-
morgun að fjölskyldu hans er hrein-
lega slátrað. Hann einn sleppur og
leggur á flótta en morðingjamir
fylgja fast á eftir. Á flóttanum
■ ÞAÐ verður austurlensk
stemmning i Geysishúsinu laug-
ardaginn 19. febrúar. í tengslum
við sýningu íþrótta- og tóm-
stundaráðs Reykjavíkurborgar
mun Upplýsinga- og menninga-
miðstöð nýbúa standa fyrir kynn-
ingu á indverskri matargerð. Eldað
verður að hætti indverskra götu-
kokka og gestum og gangandi boð-
ið upp á smökkun á hinum ýmsu
réttum sem framreiddir verða í
Geysishúsinu kl. 12-16.
kemst Vito að því að fjölskylda
hans hafði stundað mannrán og
haft í haldi son auðkýfings nokk-
ums. Mennimir sem drápu fjöl-
skyldu hans voru keppinautar í
bransanum. Eftir því sem á líður
kemur fleira og fleira í ljós, hroða-
legir atburðir fara að gerast sem
engum var ætlað að kynnast, hvað
þá ungum saklausum drengum.
Flótti sakleysingjans markar
ákveðin tímamót í ítölskum kvik-
myndabransa því að þetta var síð-
asta myndin sem Franco Cristaldi
framleiddi áður en hann lést en
hann vann til allra æðstu hugsan-
legra verðlauna í kvikmyndaheimin-
um m.a. þrennra Óskarsverðlauna,
gullpálma í Cannes o.fl. Leikstjór-
inn Carlo Carlei hefur verið nefndur
undrabarn í kvikmyndaheiminum
og líkt við sjálfan Steven Spielberg.
Háskólabíó
sýnir kvik-
myndina Sag-
an af Qiuju
HÁSKÓLABÍÓ frumsýnir kín-
versku verðlaunamyndina Sag-
an af Qiuju eftir leiksjtórann
Zhang Yimou. Hann hefur m.a.
gert myndirnar Rauði lampinn
og Judou sem einnig voru sýnd-
ar í Háskólabíói. Aðalhlutverkið
í öllum þessum myndum leikur
eiginkona leikstjórans, Gong Li,
en hún er þekktasta leikkona
Kínveija.
Sagan af Qiuju lýsir baráttu
ungrar konu við alræði kommún-
ista í Kína. Qiuju á von á fyrsta
barni sínu og framtíðin virðist
björt þegar eiginmaður hennar
lendir upp á kant við þorpshöfð-
ingjann. Þeir lenda í átökum með
þeim afleiðingum að eiginmaður-
inn stórslasast. Hann er ekki mik-
ill bógur og Qiuju tekur af skarið
og freistar þess að ná réttlætinu
fram og heimtar að höfðinginn
biðjist afsökunar. Hann er of stolt-
ur til þess, býður einungis fébætur
og kerfið snýst á sveif með honum.
Qiuju gefst ekki upp og reynir að
þvælast í gegnum miðstýrt kerfið
í Kína körlunum til skapraunar.
Þetta er í fyrsta skipti sem við-
fangsefni leikstjórans er Kína nú-
tímans en í fyrri myndum hans
hefur oft verið skotið undir rós á
alræðiskerfið.
Konur leika stórt hlutverk í
myndum Yimou og hefur Gong
Li hlotið mikið hrós fyrir túlkun
sína á hinni staðföstu Qiuju.
Myndin sigraði á kvikmyndahátíð
í Feneyjum í fyrra.
Atriði úr myndinni Sagan af Qiuju
Vitni vantar
Lögreglan í Reykjavík lýsir eftir
vitnum að árekstri sem varð á
Kringlumýrarbraut sunnan Sléttu-
vegar skömmu fyrir hádegi föstu-
daginn 11. febrúar síðast liðinn.
Opel fólksbifreið og Subaru sendi-
ferðabifreið, sem voru báðar á norð-
urleið, rákust saman með þeim af-
leiðingum að Subaru bifreiðin valt.
Eru sjónarvottar að árekstrinum
beðnir um að gefa sig fram við rann-
sóknardeild lögreglunnar.
------» ♦ «----
■ STARFSMAT - lykill að bætt-
um lífskjörum kvenna er yfirskrift
laugardagskaffis Kvennalistans
19. febrúar. Guðný Björg Hauks-
dóttir og Jóhanna Magnúsdóttir
kynna niðurstöður BA-verkefnis um
starfsmat sem þær unnu í stjóm-
málafræði við Háskóla íslands á liðnu
ári. Kaffið er á Laugavegi 17, 2. hæð
og hefst kl. 11. Allir velkomnir.
GEFÐl) HENNI
BLOM...
...ó konudaginn
ALEXANDRA
Skólavörðustíg 1A Sími 10899
BLÓM 0 G EGYPSKAR VQRUR
ÍJtsöluvörurnara aötumarkad
glunn ar
v E R SLAHj R H*i* Vt|ö L U_R N A R
Rvmuni fyrir MCIIS
[irn^rj nrr 11- 7
Bava fastaddff ag h , _
VÖRURNAR ÚTÁ6QT11' QífflW NIÐURIIR OUöMDI
KRIMGMH
- gatan mín -
| O P I Ð FÖSTUPAG FRÁ K L . 10-19, LAUGARDAG FRÁ K L . 10-16