Morgunblaðið - 19.04.1994, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 19.04.1994, Blaðsíða 12
18 M!GI JIJMA .ei HUðAQULQIH<I GIQ/wiaMUOflOM ném SKIÐI Kristinn veitti Fredrik INlyberg harda keppni SÆNSKI skíðakappinn Fredrik Nyberg tók þátt ítveimur alþjóð- legum stórsvigsmótum í blíðskaparveðri f Hlfðarfjalli um helgina og sigraði í þeim báðum. Kristinn Björnsson veitti Svíanum þó harða keppni ífyrra stórsviginu, en datt illa ífyrri umferð ísíð- ara og meiddist á hné. Þrír erlendir keppendur tóku þátt í mót- inu. Akureyrarstúlkur voru einráðar í stórsvigi kvenna. Nyberg, sem er einn besti stór- svigsmaður heims, átti fyrir- fram ekki von á mikilli keppni á mótunum hér. En Kristinn Björnsson sýndi að hann er ekki svo langt undan. Hann var með sama tíma og Nyberg í fyrri umferð fyrra móts- ins og aðeins 0,23 sek. á eftir í síð- ari umferð. „Þetta gekk mjög vel og ég er ánægður. Eg fékk 24,17 (fis) stig fyrir árangurinn og ég bætti mig verulega. Eg byija næsta keppnistímabil með um 23 punkta sem ætti að gefa mér sæti í kringum 140 á heimslistanum," sagði Krist- inn sem var áður númer 290 á heims- listanum í stórsvigi. Það gekk ekki eins vel hjá Kristni í síðara mótinu. „Eg krækti fyrir stöng og fór heljarstökk og kom illa niður. Eg fékk mikið högg á hægra hnéð og læknar segja að liðbönd hafi aðeins tognað svo þetta ætti að lagast fljótlega. Það má segja að þetta óhapp hafi komið á besta tíma því þetta var síðasta mótið á þessu keppnistímabili,“ sagði Kristinn. Nyberg sigraði með yfirburðum í síðara stórsviginu, var rúmlega tveimur sekúndum á undan Uros Pavlovcic. frá Slóveníu. Akureyring- urinn Vilhelm Þorsteinsson varð þriðji og Arnór Gunnarsson, Isafirði, í fjórða sæti. Akureyrarstúlkurnar skiptu með sér verðlaununum í kvennaflokki, en þar var enginn erlendur keppandi og íslandsmeistarinn Ástá Halldórs- HANDBOLTI Drott meistari Drott tryggði sér Svíþjóðar- meistaratitilinn í hand- knattieik með því að leggja ggBHBg Sávehof að velli Frá í þremur leikjum Grétari í úrslitakeppn- Þ. Eyþórssyní jnnjt Drott vann ^viþjóð þrið[ja lejkinn á sunnudaginn, 23:16. Ekki fór mikið fyrir úrslitaleikjunum, en aðeins voni sýndar þijár mín. frá hveijum leik í sænska sjón- varpinu — í fréttatíma. Oia Lind- gren lék ekki með Drott, þar sem hann handarbrotnaði á dögun- um. Drott hefur haft mikla yfir- burði í Svíþjóð í vetur og þess má geta að félagið leikur til úrslita í Borgarkeppni Evrópu. Það er mikið áfall fyrir félagið að missa Lindgren. dóttir var erlendis. Harpa Hauks- dóttir sigraði í fyrra mótinu, var sekúndu á undan Hildi Þorsteins- dóttur sem varð önnur. Hildur tók síðan við gullinu í síðara stórsviginu og systir hennar, Brynja, vann silfr- ið. Harpa var með næst besta tím- ann í fyrri umferð en datt í síðari umferð en hélt áfram og varð fimmta. Nyberg, sem er í öðru sæti á heimslistanum í stórsvigi, sagðist mjög ánægður með heimsóknina til íslands. Farið var með hann í jeppa- ferð og í skoðunarferð að Gullfossi og Geysi. Auk þess fékk Nyberg sér sundsprett í Bláa lóninu. ■ Úrslit / B11 Morgunblaðið/Rúnar Þór Morgunblaðið/Guðmundur Jakobsson Fredrik Nyberg, einn besti stórsvigsmaður heims, keppti hér á landi um síðustu helgi. Hann fór m.a. í skoðunarferð að Gullfossi og Geysi og fékk sér sund- sprett í Bláa lóninu. Hann lét mjög vel að heimsókn- inni. Stærri myndin var tekin af Svíanum við Gullfoss í klakaböndum í síðustu viku. Á minni myndinni er hann á fullri ferð í stórsvigskeppninni í Hlíðarfjalli á laugardaginn. KNATTSPYRNA / DRENGJALANDSLIÐIÐ Búið að veljahóp- inn sem fer til írlands Fyrsti leikurinn í úrslitakeppni EM gegn Tyrkjum 26. apríl Íslendingar taka þátt í 16 liða úrslitakeppni Evrópumóts dren- gjalandsliða_ í knattspyrnu, sem fram fer á írlandi og hefst í næstu viku. Ásgeir Elíasson og Gústaf Adolf Björnsson, þjálfarar liðsins, hafa valið hópinn sem heldur utan. Hann skipa eftirtaldir: markverðir eru Gunnar Sveinn Magnússon úr Fram og Tómas Ingason, Val. Aðr- ir leikmenn eru: Kúnar Ágústsson, Fram, Sigurður Elí Haraldsson, Fram, Unnar Örn Valgeirsson, ÍA, Arnar Viðarsson, FH, ívar Ingi- marsson, Val, Sigurður Þór Guð- mundsson, Stjörnunni, Valur Fann- ar Gíslason, Fram, Lárus Long, FH, Eiður Smári Guðjohnsen, Val, Jón Freyr Magnússon, Grindavík, Ás- geir Ásgeirsson, Fylki, Jóhann Birnir Guðmundsson, Víði, Árni Ingi Pjetursson, KR og Þorbjörn Atli Sveinsson, Fram. Farið verður til Irlands 24.apríl. íslendingar eru í D-riðli og mæta Tyrkjum í fyrsta leik sínum í riðla- keppninni 26. apríl, síðan, mæta þeir Belgum 28. apríl og loks Úkra- ínumönnum 30. apríl. Hafni liðið i 1. eða 2. sæti í riðlakeppninni leik- ur það í 8-liða úrslitum 3. maí. Undanúrslit fara fram 5. maí og leikir um 1. og 3. sæti 8. maí. I A-riðli eru Spánn, Hvíta-Rúss- land, Austurríki og Albanía. I B- riðli Portúgal, England, Tékk- land/Slóvakía og írland og í C-riðli eru Sviss, Danmörk, Þýskaland og Rússland. BLAK HKhefur 2K)yfir HK treysti tak sitt á íslands- meistaratitlinum þegar þeir lögðu Þrótt R. öðru sinni í úrsli- takeppninni í Digranesi í gær- kvöldi. Úrslitahrinan endaði 24:22 fyrir HK eftir miklar svipt- ingar. Þróttarar byijuðu leikinn betur og unnu fyrstu hrinuna, 15:11 en HK svaraði _með því að vinna tvær næstu, 15:13 og 15:4. Gamla Guðmundur H. Þróttaraseiglan var Þ°3[e'nsson svo sannarlega til staðar í fjórðu hrin- unni og leikmenn liðsins hirtu flesta bolta sem HK kom yfir netið og andstæðingunum gekk að sama skapi illa að finna gólfið. HK-ingar slökuðu helst til of mikið á og það gengur ekki gegn Þrótturum sem voru ekki lengi að þefa það uppi og baráttan tryggði úrslitahrinu. Úrslitahrinan varð æsispennandi í lokin og minnstu munaði að Þrótt- urum tækist að snúa vonlausu dæmi sér í hag en heppnin var HK megin þegar á þurfti að halda í lokin og heimamenn sigruðu 24:22 eins og áður segir. KAPPAKSTUR Senna komst ekki hring ij%jóðveijinn Michael Schumac- her, sem ekur fyrir Benetton, sigraði í öðrunfe Formula 1 kapp- akstrinum á'Tiessu tímabili, sem fram fór í Japan. Þrefaldur heims- meistari, brasilíumaðurinn Ayrton Senna, hefur ekki enn fengið stig, hann komst ekki einn hring á braut- inni í Japan um helgina. I fyrstu beygju ók Finninn Mika Hakkinen, sem er fyrrum félagi Senna hjá McLaren, aftan á bíl Senna, sem nú ekur fyrir Williams, og lenti hann á ítalanum Nicola Larini og urðu þeir báðir að hætta keppni. Senna var að vonum súr og vildi ekki taka í hönd Finnans eftir keppnina og sagði hann hafa ekið of nærri sér. Finninn sagði hins vegar að Senna og Schumac- her, sem voru fremstir, hefðu bremsað allt of fljótt, löngu áður en þeir komu í beygjuna, og því hefði hann ekki getað forðast að rekasta á Senna. Brautin var því greið fyrir Schumacher og þrátt fyrri að Bret- inn Damon Hill veitti honum keppni framan af varð hann að hætta eftir 49 hringi. Ekki dagur þeirra sem óku Williams bílum. HANDBOLTI Teka gegn Bida- soa í úrslitum Lið Alzira, sem Geir Sveinsson og Júlíus Jónasson leika með, tapaði þriðju viðureigninni fyrir Bidasoa í undanúrslitum spænsku meistarakeppninnar í handknattleik um helgina. Áður höfðu liðin unnið sinn leikinn hvort. Bidasoa leikur því til úrslita við Teka Santander, sem kom verulega á óvart og sló út stórlið Barcelona. SVIÞJ./ENGL.; 2X1 X11 X 2 X 2111 ITALIA: X X 1 12X 111 21X1 %

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.