Morgunblaðið - 19.04.1994, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 19.04.1994, Blaðsíða 4
4 B MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 19. APRIL 1994 HANDKNATTLEIKUR / URSLITAKEPPNIN „Axel vissi ná- kvæmlega hvað hann átti að gera“ Eg er ánægður, enda búinn að spá þretnur leikjum og okkur sigri. Ég stóð við það,“ sagði Þorbjöm Jens- son, þjálfari Valsmanna. „Það tók okkur nokkuð langan tíma til að bijóta Stjönumenn að baki aftur, enda eru liðin mjög áþekk. Ef við berum saman leikmennma í heild sinni, þá höfum við betri leikmenn á nokkrum stöðum, en þeir á öðrum. Þannig fell- ur getan á jöfnu, eins og sást í þrem- ur leikjum liðanna, voru þeir í jámum allan tímann — og svo réði heppnin því í lokin, hveijir fögnuðu sigri. Ég hugsa að Gunnar Einarsson, þjálfari Stjörnunnar, myndi segja það þannig: „Við leyfum þeim að halda í við okkur í fimmtíu mínútur, en svo keyrum við yfir þá úthaldinu,“ eins og hann sagði eitt sinn,“ sagði Þor- bjöm. - Þú lést Axel Stefánsson inná á réttum tíma? „Já, vil meina það. Ég vildi virki- lega láta reyna á Guðmund sem lengst, en síðan að koma með frí- skann leikmann inn undir lokin. Axel er mjög góður markvörður, sem und- irbýr sig vel fyrir átökin. Hann vissi því nákvæmléga hvað hann átti að gera þegar hann kom inná.“ - Herbragð þitt að láta horna- mennina skjótasi inn á línuna heppn- aðist vel? „Já, enda var það tilvalið gegn eins framliggjandi vörn og hjá Stjörnunni. Það var lykilatriði að koma meiri hreyfingu inn á línuna og við hefðum mátt gera meira af því, þannig að við hefðum getað brot- ið vörnina meira niður.“ „Við náðum ekki að klára dæmið“ „Við getum sjálfum okkur um kennt — við vorum tveimur mörkum yfir þegar ellefu mínútur voru til leiksloka. Það var þá sem við vorum of bráðir í sókn — skutum of fljótt. Þá misstum við mann útaf og þar með fór okkar forusta — Valsmenn náðu að jafna og voru síðan alltaf á undan til að skora. Við vorum tvisv- ar sinnum með tveggja marka for- skot — í upphafi seinni hálfleiksins og síðan um miðjan hálfleikinn, en náðum ekki að klára dæmið. Við náðum ekki að halda höfði á þýðing- armiklum augnarblikum — hleyptum Valsmönnum inn i leikinn aftur. Það verður að segja eins og að Valsmenn voru klókari en við síðustu fimmtán mínútur leiksins, það er svo einfalt. Strákar eins og Dagur Sigurðsson og Ólafur Stefánsson héldu út leikinn og gera það mjög skynsamlega," sagði Gunnar Éinarsson, þjálfari Stjörnunnar. Valur Stjarnai Víkingur FH S Selfoss Hvatning Ungu strákarnir hjá Val í hita leiksins. Ólafur Stefánsson hrópar hvatningar að Degi Slgurðssyni — um að nú væri að duga eða drepast. Þessir tveir landsliðsmenn hafa verið lykil- menn sóknarleiks Valsliðsins í vetur. Úrslitakeppnin i handknattleik 1994 Mörk Sóknir % Mörk Sóknir % Mörk Sóknir % Mörk Sóknir % Mörk Sóknir % Mörk Sóknir % 11 19 58 F.h 11 18 61 13 28 46 F.h 13 27 48 12 19 63 F.h 9 19 47 13 19 68 S.h 11 20 55 12 24 50 S.h 11 25 44 15 24 63 S.h 15 23 65 24 38 63 Alls 22 38 58 25 52 48 Alls 24 52 46 27 43 63 Alls 24 42 57 8 Langskot 13 6 Langskot 10 11 Langskot 4 6 Gegnumbrot 3 3 Gegnumbrot 1 4 Gegnumbrot 4 0 Hraðaupphlaup 0 4 Hraðaupphlaup 3 1 Hraðaupphlaup 5 2 Horn 3 2 Horn 3 2 Horn 1 3 Lína 0 5 Lína 3 6 Lína 5 5 Viti 3 5 Víti 4 3 Víti 5 Axel leynivopnið AXEL Stefánsson átti stóran þátt í að Valsmenn tryggðu sér rétt til að leika gegn Selfyssingum í undanúrslitum — hann varði hvað eftir annað mjög vel þegar Valsmenn náðu að snúa leiknum sér íhag, eftir að þeir voru undir 17:19 og ellefu mín. til leiks- loka. Axel tók stöðu landsliðsmarkvarðarins Guðmundar Hrafn- kelssonar, sem fann sig ekki í leiknum. Patrekur Jóhannesson og Sigurður Bjarnason sáu til þess, með því að senda knöttinn hvað eftir annað framhjá Guðmundi. Það var hornamaðurinn Valgarð Thorodsen sem innsiglaði sigur Valsmanna, 24:22, með því að skora þrjú síðustu mörk þeirra og einu mörk sfn í leiknum. Það hafði mikið að segja fyrir Stjörnumenn að fyrirliðinn Skúli Gunnsteinsson var rekinn af leikvelli í tvær mín- Sigmundur Ó. útur- er staðan var Steinarsson 17:19. Það var skrifar strangur dómur. Valsmenn nýttu sér það og Dagur Sigurðsson og Frosti Guðlaugsson jöfnuðu, 19:19. Axel varði þá glæsilega skot frá Patreki Jóhannessyni, eftir gegnumbrot, og Valsmenn komust yfir, 20:19. Axel varði síðan langskot frá Sigurði Bjarnasyni, þegar staðan var 21:20, og 4,43 mín. til leiksloka. Valgarð skoraði 22:20 og lagði grunninn að sætum sigri Valsmanna. „Það var mjög spennandi að koma inní leikinn undir lokin. Eg var búinn að bíða eftir þessu tæki- færi og var ákveðinn að standa mig. Ég vissi að það var stutt i að bijóta leikmenn Stjörnunnar á bak aftur — og þá kom það fram í leikn- um, að við erum með miklu meiri leikmannabreidd en þeir. Við gátum hvílt leikmenn, en sömu leikmenn Stjörnunnar léku inná nær alla þijá leikina,“ sagði Axel Stefánsson. Spennan var mikil á lokasprettin- um. Patrekur átti skot sem hafnaði á þverslánni á marki Valsmanna. Skúli Gunnsteinsson fór fram í hlut- verk „Indíána" í vörninni. Þegar 1,55 mín. var til leiksloka skorar Sigurður Bjarnason með glæsilegu undirhandarskoti, 22:21, en Val- garð svarar fyrir Valsmenn er hann stakk sér inn á línuna, fékk send- ingu frá Jóni Kristjánssyni, og skor- ar - 23:21. Magnús Sigurðsson svarar fyrir Stjörnumenn með lang- skoti, 23:22. 56 sek. til leiksloka og Stjörnumenn reyna að leika maður gegn manni. Það gekk ekki og Valgarð gulltryggði sigur Vals, eftir skemmtilegan samleik við Ólaf Stefánsson. Valsmenn fögnuðu, en Stjörnu- menn sátu eftir með sárt ennið. Þeir byijuðu leikinn betur — skor- uðu þijú fyrstu mörk leiksins, en það tók Valsmenn fimm sóknarlot- ur, 9 mín., að skora sitt fyrsta mark. Ólafur Stefánsson skoraði það með gegnumbroti. Leikmenn Vals gáfust ekki upp þrátt fyrir mótlætin — þeir áttu í miklum erfið- Þannig vörðu þeir Markvarslan í leikjum helgarinnar (innan sviga varið, en knötturinn aftur til mót- heija): Reynir Reynisson, Víkingi - 14(3) 7(1) langskot, 2 hraðaupphlaup, 4(2) af iínu, 1 úr homi. Bergsveinn Bergsveinsson, FH - 12(3) 5 langskot, 3(1) úr horni, 3(1) af línu og 1(1) hraðaupphlaup. Guðmundur Hrafnkelsson, Val - 6(2) 4(2) langskot, 1 úr horni, 1 af línu. Axel Stefánsson, Val - 5(2) 2(1) langskot, 1 úr horni, 1(1) hraðaupphlaup, 1 gegn- umbrot. Gunnar Erlingsson, Stjörnunni - 10(2) 4(1) langskot, 3 úr horni, 2(1) vítaköst, 1 hraðaupphlaup. Hallgrímur Jónasson, Selfossi - 16(4) 5(1) langskot, 7(3) úr homi, 4 af línu. Sigmar Þröstur Óskarsson, KA - 13(8) 5(4) langskot, 2 úr horni, 5(4) af línu og 1 hraðaupphlaup. Björn Björnsson, KA - 1 1 af línu. leikum með Gunnar Erlingsson, markvörð Stjörnunnar, í fyrri hálf- leiknum, en Gunnar varði þá átta skot og þar af eitt vítakast. Patrek- ur Jóhannesson var í miklu víga- móði — skoraði mörg gullfalleg mörk og réði Guðmundur Hrafn- kelsson ekkert við skot hans. Pat- rekur, sem skoraði 9 mörk, skoraði sjö mörk með langskotum. Sigurður Bjarnason var einnig mjög ógn- andi. Það vakti athygli, hvað Stjörnumenn nýttu hornamenn sína lítið — Konráð Olavson og Haf- steinn Bragason . skoruðu ekkert mark úr horni. Eins og fyrr segir lék Axel stórt hlutverk hjá Val, en það var liðs- heildin sem færði Valsmönnum sig- ur. Ólafur Stefánsson og Dagur Sigurðsson leika stór hlutverk og þá má ekki gleyma þætti Rúnars Sigtryggssonar sem lék við hvern sinn fingur þegar Valsmenn breyttu stöðunni úr 11:13 og komust í fyrsta skipti yfir í leiknum, 15:14. Rúnar skoraði þá fjögur mörk í röð — með gegnumbroti, af línu, eftir að Gunnar Erlingsson hafði varið vítakast hans, með Iangskoti og þá gegnumbroti. Það var mikil hreyf- ing á Valsmönnum í vörn sem sókn. Oft mátti sjá hornamennina Val- garð og Svein Sigfinnsson geysast bak við varnarmenn Stjörnunnar á línunni, til að riðla varnarleik þeirra. ÍÞRÚmR FOLK ■ DAGUR Sigvrðsson skoraði jöfnunarmark Vals, 11:11, beint úr aukakasti þegar 4,3 sek. voru eftir af fyrri hálfleik. Eftir það ætluðu leikmenn til búningsklefa, en voru kallaðir inn á völlinn aftur til að leika í þijár sekúntur. ■ RÚNAR Sigtryggsson kom Valsmönnum yfir í fyrsta skipti í leiknum, þegar 11,30 mín. voru búnar af seinni hálfleik, 15:14. Valsmenn komust síðan næst yfir, 20:19, þegar 6,55 mín. voru til leiksloka. ■ LEIKMENN Stjörnunnar skoruðu ekkert mark úr horni og hraðaupphlaupi í leiknum gegn Val. Valsmenn skoruðu heldur ekki úr hraðaupphlaupi. ■ ÞAÐ sýnir best styrk Valsl- iðsins, að leikmenn eins Rúnar Sigtryggsson, Axel Stefánsson, Ingi R. Jónsson, Frosti Guð- laugsson og Júlíus Gunnarsson eru ekki í byijunarliðinu, en allt eru þetta vel liðtækir leikmenn. ■ ÁRNI Sigfússon borgarstjóri í Reykjavík mætti í Víkina á laugardaginn, á leik Víkings og FH í átta liða úrslitum, ásamt öðrum frambjóðanda í borgar- stjórnarkosningunum í vor, Þor- bergi Aðalsteinssyni landsliðs- þjálfara í handknattleik.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.