Morgunblaðið - 26.04.1994, Qupperneq 8
8 B
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 1994
SKIÐI / ANDRESAR ANDAR-LEIKARNIR
Frændurnir aftur á pall
Ragnheiður Tinna Tómasdóttir og Fjölnir Finnbogason.
Hef aldrei unnið áður
- sagði Fjölnir Finnbogason
Fjölriir Finnbogason frá Dalvík sigraði í svigi 11 ára drengja.
Hann var með besta tímann í fyrri umferð stórsvigsins en datt
í síðari umferð. „Ég bjóst ekki við því að sigra, enda hef ég aldrei
unnið áður á Andrés. En ég gerði mér smá vonir,“ sagði Fjölnir
sem byijaði að æfa skíði 7 ára gamall. Hann varð annar í báðum
greinum á Andrés í fyrra og sagðist hafa unnið nokkur mót á Dalvík
í vetur.
Ragnheiður Tinna Tómasdóttir frá Akureyri sigraði í svigi 11
ára stúlkna eftir hörku keppni við Sæunni Ágústu Birgisdóttur úr
Ármanni. Þetta var í íjórða sinn sem hún sigrar á Andrés. „Ég
er mjög ánægð með svigið því ég datt í stórsviginu. Þetta er lang
skemmtilegasta mótið. Gaman að hitta alla krakkana," sagði Ragn-
heiður Tinna, sem segist halda mest upp á Pernillu Wiberg. „Ég
á kisu sem heiti í höfuðið á Pernillu. Ég held líka svolítið upp á
Alberto Tomba.“
I lausu lofti
GUÐJÓN B, Hálfdánarson frá Ólafs-
fírði tók þátt í stökki í flokki 10 ára.
Hér svífur hann í lausu lofti.
Frændumir Einar Ingvi Andrésson
og Rögnvaldur Egilsson frá
Sigiufírði skiptu með sér gullverð-
laununum í flokki 8 ára drengja. Ein-
ar Ingvi sigraði í stórsviginu og Rögn-
valdur í sviginu. Þeir voru að keppa
á Andrésarleikunum í þriðja sinn.
„Við erum alltaf saman, æfum
saman bæði skíði og fótbolta. Ég
vinn eigilega oftar,“ sagði Einar
Siglfirskir stökkv
arar stálu senunni
Siglfírðingar voru sigur-
sælir í stökkinu að
vanda og unnu í öllum fjórum
flokkunum. Það má því segja
að þeir hafi stolið senunni í
stökkinu, skutu grönnum
sínum frá Ólafsfírði ref fyrir
rass.
Jóhann Guðbrandsson
sigraði í flokki 9 ára, Ingvar
Steinarsson í flokki 10 ára,
Jóhann Þór Guðjónsson í 11
ára og Helgi Steinar Andrés-
son í flokki 12 ára. Helgi
Steinar átti lengsta stökkið
í keppninni ásamt Amari
Gauta Rejmissyni úr ÍR, en
þeir stukku báðir 19 metra.
Siglfirðingamir sögðust
ekki æfa stökkið reglulega
og töldu að það væri ekki Stökkvararnlr Jóhann G., Jóhann
mikil framtíð í stökkíþrótt- Þór, Ingvar og Helgi.
inni hér á landi, enda enginn
stökkpallur til nema á Ólafsfírði. „Við tökum þátt í stökkinu meira
upp á grín. Við æfðum stökkið í tvo daga rétt fyrir Andrésarleik-
ana og það var nóg. Við emm líka oft að leika okkur að stökkva
þegar svigæfíngamar eru búnar,“ sögðu þeir félagar. Þeir sögðust
ekki hafa prófað að stökkva á stökkskíðum, sögðu betra að stökkva
á svigskíðum því þau væm léttari.
Ingvi, sem vann báðar greinar í
fyrra og þá varð Röpvaldur annar.
Þeir sögðu að það væri ofsalega
gott að æfa skíði á Siglufirði. „Við
ætlum að halda áfram að æfa til
að reyna að komast á Andrés næsta
ár,“ sagði Rögnvaldur. Uppáhalds
skíðamaður hans er Norðmaðurinn
Lassi Kjus, en Einar Ingvi sagðist
halda mest upp á Marc Girardelli.
- segir Óðinn Árnason sem hefur starfað við móthald í 30 ár
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Systkinin úr Ármanni
HLYNUR og Sæunn Ágústa Birgisböm sögðust hafa skemmt sér vel þrátt
fyrir misjafnt gengi. Hlynur varð fyrir því óhappi að fótbrotna en Sæunn Ág-
ústa náði bestum árangri í flokki 11 ára stúlkna og fékk gullhjálm að launum.
Morgunblaðið/V alur
Frœndurnlr og vlnlrnir Einar Ingvi og Rögnvaldur.
AKUREYRINGAR fengu sér heitt kakó á milli ferða enda kalt og gott að fá heitt í kroppinn. Þeir eru frá vinstri:
Smári Sigurðsson, Stefán Jökulsson, Þórður Þorbergsson, Hjálmar Freyr Valdimarsson og Jóhann Bjarnason.
ÓÐINN Árnason hefur starfað
lengi við mótahald í Hlíðar-
fjalli. Hann hefur verið í Andr-
ésarnefndinni frá upphafi og
segist hafa starfað við móta-
hald í fjallinu ítíu ár þar á und-
an eða í samtals 30 ár. „Ég er
alltaf ánægður þegar Andrés-
arleikunum er lokið. Okkur
tókst að keppa í öllum greinum
á tilsettum tíma og það er
ánægjulegt þrátt fyrir leiðinlegt
veður," sagði Óðinn.
Hann sagði að framkvæmdin
væri alltaf erfiðari í leiðinlegu
veðri. „En við vorum alltaf á rétt-
um tíma og hefðum ekki getað
keyrt þetta hraðar þó veðrið hefði
verið betra. Við erum með gott
starfsfólk sem veit hvað þarf að
gera,“ sagði Óðinn.
Verður þú aldrei þreyttur á
þessu skíðastússi?
„Jú, ég segi alltaf við sjálfan
mig á vorin; nú hætti ég þessu.
En um leið og snjórinn fer að falla
Hvílt milli ferða
„Nefndin er þegar farin að
hugsa um næsta ár. Við ætlum
að gera leikana enn stærri en áður.
Við viljum lengja mótið, úr þremur
dögum í fjóra. Ég reikna með að
við sleppum stökkinu því það hefur
ekki skilað tilætluðum árangri.
Þess í stað höfum við hug á að
taka upp keppni í samhliðasvigi
alla vega í elstu flokkunum 11 og
12 ára til að byija með. Við erum
búnir að vera með stökk í tíu ár
og það hafa aðeins nokkrir strákar
úr alpagreinunum keppt í stökki.
Við gefum fleirum möguleika á að
vera með — til dæmis stelpunum,
ef við tökum upp keppni í sam-
hliðasvigi."
Hann sagði að sumir þjálfaram-
ir væm famir að setja einum of
mikla pressu á yngstu krakkana.
„Við megum ekki láta þetta fara
út í of mikið kapp og vitleysu. Við
lítum fyrst og fremst á þetta mót
sem leik og þannig á þetta líka
að vera.“
Óðinn Árnason
að hausti fæ ég fiðring og bíð eft-
ir að komast í fjallið. Ég hef svo
gaman af því að starfa með böm-
unum. Þetta er svo góður félags-
skapur og þetta er eina áhugamál-
ið.“
Nú em afmælisleikar á næsta
ári, hvað verður gert til að minn-
ast tímamótanna?
Hef svo gaman af
starfa með bömunum