Morgunblaðið - 27.04.1994, Side 1
64 SIÐURB/C
93. tbl. 82. árg.
Serbar virt-
ust hlíta
úrslitakost-
um NATO
Genf, Sar^jevo, London, Moskvu. Reuter.
WARREN Christopher, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, sagði í
gærkvöldi að svo virtist sem Bos-
níu-Serbar myndu hlíta úrslita-
kostum Atlantshafsbandalagsins
(NATO) um að flytja öll þunga-
vopn að minnsta kosti 20 km frá
Gorazde fyrir miðnætti liðna nótt.
Christopher, sem er staddur í
Genf, þar sem hann fundaði með
hinum rússneska starfsbróður
sinum, Andrej Kozyrev, sagði að
yrði raunin sú að Serbar hefðu
ekki flutt öll vopn á brott, yrði
ekki af loftárásum fyrr en seinni-
part dagsins í dag. Seint í gær-
kvöldi staðfesti talsmaður Sam-
einuðu þjóðanna að Serbar hefðu
flutt vopn sín á brott.
Á blaðamannafundi að viðræðum
loknum lögðu utanríkisráðherrarnir
áherslu á að lausn á stríðinu í Bosn-
íu næðist einungis eftir pólitískum
leiðum, hemaðarátök ein og sér
myndu ekki binda endi á það. Sögðu
þeir ríkin myndu leggja mikla áherslu
á samstarf í máiefnum Bosníu.
Kosyrev hefur verið gagnrýndur
harðlega á rússneska þinginu fyrir
að gefa í skyn að loftárásir NATO
á Bosníu-Serba fyrr í mánuðinum
hafi átt rétt á sér. Þá þykir þjóðern-
issinnuðum þingmönnum að Rússar
hafi ekki veitt Bosníu-Serbum fullan
stuðning í stríðinu við múslima.
Skiptar skoðanir voru uppi um
hvenær ljóst yrði hvort Serbar hefðu
flutt vopn sín á brott. Taldi Warren
Christopher að það yrði tæpast fyrr
en í dag.
Finnar á
leið út úr
kreppunni
Helsinki. Reuter.
SAMDRÆTTINUM í finnsku
efnahagslífi er iokið, að mati
finnska fjármálaráðuneytis-
ins, sem spáir því, að hagvöxt-
ur á þessu ári verði 2% og
5% á því næsta. Iðnfram-
leiðsla og útflutningur hafa
aukist verulega og svo virðist
sem botninum sé náð hvað
varðar eftirspurnina innan-
lands.
„Á þessu ári mun efnahags-
lífið loksins komast út úr krepp-
unni og horfurnar framundan
eru góðar, jafnt hvað varðar
atvinnulífið og einkaneysluna,"
sagði í tilkynningu fjármála-
ráðuneytisins, en þar sagði
einnig, að spáin um 5% hagvöxt
á næsta ári væri byggð á því,
að Finnland yrði aðili að Evr-
ópusambandinu frá næstu ára-
mótum. Ef það brygðist yrði
hagvöxturinn eitthvað minni.
Gert er ráð fyrir, að greiðslu-
jöfnuðurinn verði hagstæður á
þessu ári í fyrsta sinn í 16 ár,
eða frá 1978, og enn hagstæð-
ari á næsta ári. Atvinnuleysi í
Finnlandi er nú 18,5%.
STOFNAÐ 1913
MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 1994
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Reuter
Blökkumenn í Suður-Afríku kjósa í fyrsta sinn
BLÖKKUMENN í Suður-Afríku kusu í fyrsta sinn í þingkosningum í
gær eftir fjögurra áratuga kynþáttaaðskilnað og 350 ára yfirráð hvíta
minnihlutans. Einni mínútu fyrir miðnætti var gamli fáni Suður-Afríku
dreginn niður í síðasta sinn. Á miðnætti tók gildi ný bráðabirgðastjórnar-
skrá, sem færir blökkumönnum sömu pólitísku réttindi og hvítum. Mín-
útu síðar var nýr fáni landsins dreginn að húni. Nelson Mandela, leið-
togi Afríska þjóðarráðsins, sem verður líklega fyrsti blökkumaðurinn í
embætti forseta landsins eftir kosningarnar, hvatti landsmenn til að
neyta atkvæðisréttar síns í þágu friðar og gefa sig ekki fyrir hvítum
öfgamönnum, sem staðið höfðu fyrir mannskæðum sprengjutilræðum
til að trufla kosningarnar. F.W. de Klerk, forseti Suður-Afríku, tók í
sama streng. „Við eigum við bijálaða hægriöfgamenn að etja ... Við
mætum þeim af fullri hörku og það gerir einnig þjóðstjórnin sem mynd-
uð verður eftir kosningarnar,“ sagði forsetinn. Kjörfundurinn stendur í
þijá daga og Mangosuthu Buthelezi, leiðtogi Inkatha-frelsisflokksins,
fór þess á leit við kjörstjórnina að kjördögunum yrði fjölgað, en beiðni
hans var hafnað. Buthelezi sagði að flokkurinn hefði ekki haft nægileg-
an tíma til að ná til kjósenda. Flokkurinn ákvað ekki fyrr en átta dög-
um fyrir kosningarnar að taka þátt í þeim.
Sjá einnig „Mandela hvetur. . . “ á bls. 24.
261 fórst er Airbus A-300 þota frá Tævan brotlenti í Nagoya í Japan
Annað mt
sem orðið
‘sta flugslysið
hefur í Japan
Reuter
Komst lífs af
ÞESSI litla stúlka var ein þeirra tíu farþega sem komust lífs af úr
flugslysinu í Nagoya í gær.
Nagoya, Tókýó. Reuter.
261 lést er þota af gerðinni Air-
bus A-300 frá tævanska flugfé-
laginu China Airlines brotlenti í
lendingu á Nagoya-flugvellinum
í Japan í gær. 257 farþegar voru
um borð í vélinni og 14 manna
áhöfn. Ekki er vitað hvað olli slys-
inu, sem varð um kl. 20 að staðar-
tíma, en veður var gott. Spreng-
ing varð í vélinni við brotlending-
una og gaus upp mikið eldhaf.
Liðu um 40 mínútur frá því að
slysið vaið og þar til slökkviliðs-
mönnum tókst að ráða að niður-
lögum hans. Tíu manns lifðu slys-
ið af og voru fluttir á sjúkrahús
með alvarleg brunasár.
Japönsk sjónvarpsstöð sýndi
beint frá slysstað, sem er um 260
km vestur af Tókýó. Sáu áhorfend-
ur flak vélarinnar standa í ijósum
logum og tugi líka, sem komið
hafði verið við flugbrautina og
breitt yfir. 158 farþeganna voru
Japanir, 63 Tævanir og 36 af öðru
þjóðerni.
„Vélin var á leið inn yfir flug-
brautina á leið til lendingar, en
reis skyndilega upp að framan. Svo
sá ég kvikna í hreyflunum. Vélin
brotlenti og mikil sprenging varð,“
sagði sjónarvottur að slysinu.
Japönsk samgönguyfirvöld
sögðu flugstjórann hafa reynt lend-
ingu en síðan virst reyna að hefja
vélina á loft að nýju en þá rakst
hægri vængur hennar í jörðu og
hún brotlenti.
Framleiðendur vélarinnar, Air-
bus A-300-600R, segja hana þá
fyrstu sinnar tegundar sem brot-
lendir. Þetta er hins vegar í annað
sinn á hálfu ári sem vél frá China
Airlines lendir í slysi; í nóvember
sl. þeyttist vél flugfélagsins út af
rennvotri flugbraut í Hong Kong.
Þetta er annað mesta flugslysið
sem orðið hefur og annað mesta
sögu Japans, árið 1985 fórust 520
manns er Boeing 747-þota Japan
Airlines brotlenti í fjallshlíð norð-
austur af Tókýó.