Morgunblaðið - 27.04.1994, Blaðsíða 52
vlsA
1 I
RAFRÆNT
ÞJÓNUSTUKORT
roguiilribifrife
MORGUNBLAÐW, KRINCLAN 1 103 RBYKJA VÍK
---- AO.SlMBRÉF
SlMI 0 91100, ,
IF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
MIÐVIKUDAGUR 27. APRIL 1994
VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK.
SPRON auglýsir eftir lántakendum
Góð lausafjár-
staða ástæðan
SPARISJÓÐUR Reykjavíkur og nágrennis auglýsir eftir nýjum og
góðum lántakendum vegna góðrar lausafjárstöðu eftir því sem Bald-
vin Tryggvason sparisjóðsstjóri segir. Hann segir að töluvert hafi
verið keypt af ríkisbréfum. Hins vegar sé ekki stefnan að fjármagna
ríkissjóð og því hafi þessi leið verið valin.
Baldvin sagði að auglýsing I
Morgunblaðinu í gær væri nýjung.
„Við ákváðum að fara þessa leið
vegna þess að lausafjárstaða okkar
hefur verið góð. Fest hefur verið
kaup á hvers kyns ríkisbréfum á
síðastliðnu ári og að undanförnu en
þar sem stefna okkar er ekki að fjár-
magna ríkissjóð ákváðum við að leita
'•tif nýrra góðra lántakenda. Hingað
til hafa innlánsstofnanir sóst um-
fram allt eftir nýjum innlánum en
auðvitað er líka þörf fyrir lántakend-
ur,“ sagði Baldvin og fram kom að
almennar reglur giltu um útlán eins
og áður.
Hann sagði að sparisjóðurinn væri
ekki í vandræðum með hvað hann
ætti að gera við peningana sína.
„Hins vegar viljum við gjaman bæta
við viðskiptavinum, fyrirtækjum og
ekki síst einstaklingum," sagði hann
og taldi ekki ólíklegt að aðrar lána-
stofnanir fylgdu í kjölfarið.
Þokast í samkomulags-
átt hjá meinatæknum
^íev
HELDUR þokaðist í samkomu-
lagsátt á fundi meinatækna og
aamninganefndar ríkisins,
eykjavíkurborgar og Landakots
í gærkvöldi. Var verið að ræða
tillögur samninganefndar ríkisins
sem þýðir um 6% launahækkun
að meðaltali fyrir meinatækna.
Sáttafundinum var ekki lokið þeg-
ar Morgunblaðið fór í prentun í
nótt.
Edda Sóley Óskarsdóttir, formaður
Meinatæknafélags íslands, segist
„eygja skímu“ í samningaviðræðun-
um. „Við ákváðum að sjá hvort grund-
völlur væri til að halda þessu eitthvað
áfram,“ segir Edda Sóley sem sagði
einnig að sér virtist meiri sáttatónn
hjá báðum aðilum deilunnar.
Tillögumar sem verið er að ræða
eru röðun í launaflokka og mat á
'■'Bðbótarmenntun og þýða í raun um
6% hækkun að meðaltali.
Hertar verkfallsaðgerðir
gengið vel
Edda Sóley segir að hertar verk-
fallsaðgerðir hafi gengið nokkuð vel
frá þeirra sjónarhomi séð. „Við telj-
um að við höfum haldið okkur innan
ramma laganna að öllu leyti og við
höfum reynt að skilgreina betur hvað
er brýn neyðarþjónusta," sagði hún.
„Hve glöð er vor æska“
Morgunblaðið/Sverrir
ÞEIR sem hugðust skreppa í Kringluna í gær hafa
eflaust orðið hvumsa við vegna skyndilokana sem
beitt var síðla dagsins. Hafði margt glaðlyndra ung-
linga lagt leið sína þangað yfir daginn til að gera
sér dagamun, en samræmdum prófum lauk í gær.
Ríkti mikil kæti í verslunarhöllinni og virtust marg-
ir ölvaðir af gleði á þessum tímamótum. Því fóru
leikar svo að húsráðendur þreyttust á hinum tíðu
heimsóknum og settu vörð við dyrnar til að stemma
stigu við hátíðahöldunum.
Sýkíng komin upp í sextán hrossum 1 einu af hesthúsum Fáks í Víðidal
Grunur leikur á að um al-
varlega farsótt sé að ræða
Sýkt hross hafa verið sett í einangrun - einkenni hósti og lungnakvef
GRUNUR leikur á að komin sé upp alvarleg farsótt i hestum í einu
af hesthúsum Fáks í Víðidal. Frá þessu var skýrt á framhaldsaðal-
fundi Hestamannafélagsins Fáks, sem haldinn var í gærkveldi og sat
hann m.a. Brynjólfur Sandholt yfirdýralæknir. Hann sagðist í samtali
við Morgunblaðið í gærkveldi, líta þetta mjög alvarlegum augum og
mæltist til þess að hestamenn héldu hestum sínum inni og að þeir
kæmust ekki í samneyti við aðra hesta. Ennfremur ættu menn hvorki
að flytja hross né hestakerrur í Víðidal, þar sem smitið er. Veikinnar
varð fyrst vart á miðvikudag í fyrri viku, en síðan hafa öll hrossin í
sýkta húsinu veikzt, 16 að tölu.
Samkvæmt heimildum Morgun- I upp í einu húsa Fáks og hafa menn
blaðsins hefur sóttin aðeins komið gefið hrossunum meðul, sem ekki
Afkoma íslandsbanka frá ársbyrjun 1992 til loka 1993
Heildarraunávöxtun
var neikvæð um 41,5%
2,1 milljarð króna vantar upp á að raunávöxtun hluthafa
jafnist á við ávöxtun bankanna á lánsfé sínu sl. þrjú ár
HLUTABRÉF í íslandsbanka voru um síðustu áramót tæplega 2,5
milljörðum króna minna virði á markaði en þau voru um áramótin
1991-1992. Gengi bréfanna um síðustu áramót var skráð 0,86, en
þegar bankaráð íslandsbanka ákvað nýtt hlutabréfaútboð í árslok
1991, að nafnvirði 900 milljónir króna, ákvað ráðið að bréfin skyldu
■túld á genginu 1,5. Heildarraunávöxtun hluthafa frá 1. janúar 1992
til ársloka 1993 var neikvæð um 41,5%.
Miðað við gengið 1,5 voru hluta-
bréf í íslandsbanka í ársbyrjun
1992 5,67 milljarða króna virði.
Heildarraunarðsemi hluthafanna
var neikvæð sem nemur 2,46 millj-
örðum króna frá 1. janúar 1992 til
ársloka 1993 og heildarraunávöxt-
trfi hluthafa frá 1. janúar 1992 til
ársloka 1993 var neikvæð um
41,5%. Ef ávöxtun eigin fjár bank-
ans hefði samsvarað meðalútlán-
avöxtum bankanna á árunum 1991
til og með 1993, ættu hluthafarnir
2,1 milljarði króna hærri upphæð í
dag en þeir áttu um áramótin 1990-
1991. Gengi hlutabréfa íslands-
banka var 0,86 um áramót og mark-
aðsvirði bréfanna þannig í árslok
1993 3,78 milljarðar króna. Gengið
hefur enn fallið frá áramótum. Við-
skipti í fyrradag, þann dag sem
aðalfundur íslandsbanka var hald-
inn, voru á genginu 0,8, en í síð-
ustu viku var gengið enn lægra,
því viðskipti fóru fram á genginu
0,72. Miðað við gengið 0,8 eru
hlutabréf Islandsbanka rétt liðlega
3,1 milljarður króna að markaðs-
virði í dag.
Sjá ennfremur Af innlendum
vettvangi: „Hluthafarnir töp-
uðu 2,5 milljörðum króna á
árunum 1992-1993“ í miðopnu.
hafa haft áhrif á sjúkdóminn, sem
lýsir sér með hósta og kvefi í lung-
um. Var jafnvel óttast að um hrossa-
lungnabólgu væri að ræða, en vegna
þess hve íslenzki hestastofninn hefur
verið einangraður, er talið að sá
sjúkdómur geti valdið miklu tjóni
hér á landi. Brynjólfur Sandholt
sagði að ekki væri enn vitað um
hvaða sjúkdóm væri að ræða. Sent
hefur verið sýni í rannsókn til Dan-
merkur og er búizt við niðurstöðum
í vikulokin. Brynjólfur kvað menn
telja sjúkdóminn bráðsmitandi og
sagði að vegna einangrunar og þétt-
býlis hér á höfuðborgarsvæðinu
gæti sóttin farið um eins og eldur í
sinu. Því hafi hann mælzt til þess á
Fáksfundinum í gærkveldi að hesta-
menn. mynduðu nefnd með dýra-
læknum til þess að freista þess að
koma í veg fyrir útbreiðslu veikinn-
ar.
A Fáksfundinum í gær var rætt
um varúðarráðstafanir, sem unnt
væri að grípa til og var þar rætt
um að banna mönnum að fara milli
húsa og gefa hrossum, tamninga-
menn færu ekki milli húsa og var
einnig rætt á hvern hátt unnt yrði
að einangra sýktu hrossin, svo að
þau kæmust ekki í samneyti við
önnur hross. Brynjólfur Sandholt
mæltist til þess á fundinum í gær-
kveldi að að ekki yrði farið með
hesta út úr húsunum, sem sýktu
hrossin væru í. Þessi sjúkdómur mun
ekki vera líkur þeim veikindum, sem
íslenzk hross fá að jafnaði, þegar
þau koma á erlenda grund.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins mun árla í dag vera ráð-
gerður fundur með dýralæknum og
hrossaeigendum vegna þessa sjúk-
dóms.
Flugvirkjafélag íslands
SamningTi-
um sagt upp
Á FÉLAGSFUNDI Flugvirkjafé-
lags Islands í gærkvöldi var sam-
þykkt samhljóða að segja upp
kjarasamningi félagsins við Flug-
Ieiði og tekur uppsögnin gildi 28.
júlí nk. að sögn Hálfdáns Her-
mannssonar, formanns félagsins.
AIls mættu um 50 manns á fund-
inn sem haldinn var eftir að stjórn
og trúnaðarmannaráð félagsins sam-
þykktu að segja samningnum upp.
Enn baríst við sinuelda
SLOKKVILIÐIÐ í Reykjavík barðist við sinuelda í gær eins og und-
anfarna daga. Alls voru 10 útköll vegna sinuelda í gær, en útköllin
voru 22 í fyrradag.
Svo virðist sem brennuvargar um eldum. Lögreglumenn og
hafi því eitthvað hlustað á tilmæli slökkviliðsmenn fóru í grunnskóla í
lögreglunnar og slökkviliðsins um Reykjavík í gær og ræddu við krakk-
að láta gróðurinn í friði. Ekki varð ana um hættuna af því að kveikja í
tjón á tijágróðri eða eignum í þess- sinu.