Morgunblaðið - 27.04.1994, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 1994
Orri styður Pétur
„Er sáttur
við niður-
stöðuna“
ORRI Vigfússon, framkvæmda-
sljóri, segist vera sáttur við þá
niðurstöðu sem varð á aðalfundi
íslandsbanka í fyrrakvöld, en
Orri féll úr stjórn bankans og
Pétur Blöndal kom í hans stað.
„Ég er mjög vel sáttur við þessa
niðurstöðu. Það voru hluthafamir
sem réðu þarna ferðinni og þeir
eiga að ráða. Ég tel að tekið hafi
verið tillit til minna sjónarmiða
þetta eina ár sem ég sat í bankaráð-
inu og ég er viss um að Pétur á
eftir að fylgja þeim eftir þama og
gera enn betur,“ sagði Orri.
„Ég er eins og allir afar óánægð-
ur með afkomu bankans, en held
að við séum komnir yfir versta hjall-
ann. Við erum með reksturshagnað
eins og er og þegar við náum tökum
á þessum útlánavanda þá sýnist
mér þetta stefna í að verða mjög
vænlegt fyrirtæki."
Pétur Blöndal gagnrýndi harð-
lega ýmislegt í rekstri íslandsbanka
á aðalfundinum í fyrradag. Orri
sagðist geta tekið undir sumt í
gagnrýni Péturs og annað ekki eins
og gengur. „Ég held að Pétur sé
afar fær og góður maður og mjög
heppilegt að hafa hann í bankaráð-
inu,“ sagði Orri.
Kinstján
formaður
bankaráðs
NÝKJÖRIÐ bankaráð íslands-
banka kom saman til fyrsta
fundar strax að loknum aðal-
fundi bankans í fyrrakvöld og
var þar gengið frá verkaskipt-
ingu bankaráðsmanna.
Kristján Ragnarsson verður
áfram formaður bankaráðsins
og Guðmundur H. Garðarsson
verður áfram varaformaður.
Næsti fundur bankaráðsins hef-
ur verið boðaður 10. maí næst-
komandi.
í dag
Viðskipti
Ávöxtunarkrafa húsbréfa er
komin niður í 5,02% og hefur
ekki áður verið lægri 20
Jqpqn________________________
Minnihlutastjórn virðist vera
eina leiðin út úr stjómarkrepp-
unni í Japan 24
Fjölmiðlar
Dregið hefur úr blaðalestri und-
anfarið 4
Leiðari
Samtakamáttur litlu hluthaf-
anna 26
rtUimtni'httnfr
Wú*VER!NUk
Stmui um Sjávarutveo
► Þorskeldi í PatreksFirði -
Marel selur fiæðilínu til Fær-
eyja - Franskir toghlerar
► Dregið í páskagetraun -
Ljóð - Þrautir - Pennavinir -
Svipmynd af ungu tónlistar-
fólki
Aðalstræti 16
Reykjavíkurborg
kaupir Aðalstræti 16
BORGARRÁÐ hefur samþykkt kaup borgarsjóðs á fasteigninni
Aðalstræti 16 og er kaupverðið 40 milljónir króna. Talið er að
elsti hluti hússins sé frá tímum Innréttinganna eða frá árinu
1762. Útlit hússins er friðað samkvæmt þjóðminjalögum.
í erindi Hjörleifs Kvarans,
framkvæmdastjóra lögfræði- og
stjómsýsludeildar, til borgarráðs
er vitnað til samþykktar borgar-
ráðs frá árinu 1992. Þar kemur
fram að stefnt er að því að
Reykjavíkurborg eignist lóðirnar
Aðalstræti 14 og 16 með það
fyrir augum að reisa á þeirri fyrri
hús samkvæmt teikningum frá
tímum Innréttinganna. Á þeirri
síðamefndu verði fomleifaupp-
gröftur og eftirlíking af skála
iandnámsbæjar til minningar um
Ingólf Arnarson og Hallveigu
Fróðadóttur, fyrstu íbúa Reykja-
víkur. í skálanum verði minja-
safn tengt landnámi íslands og
fyrstu byggð í Reykjavík.
Ingi Björn Albertsson, alþingismaður
Framboð til borg-
arstjómar kannað
Bjöm S. Stefánsson undirbýr framboð L-lista
„MÁLIÐ er á því stigi í dag að það er ekki hægt að fullyrða hvort
af framboði verður, en það skýrist fyrir helgina, því framboðsfrestur
rennur út á laugardag," sagði Ingi Björn Albertsson, alþingismaður,
i samtali við Morgunblaðið. Hann er í hópi manna sem hefur rætt
möguleika á framboði til borgarstjórnar, en segir óvíst hvort hann
muni leiða listann ef af yrði.
Ingi Bjöm sagði að í þeim hópi,
sem nú væri að ræða möguleikann
á framboði, væru menn sem hefðu
áður átt í viðræðum við föður hans,
Albert heitinn Guðmundsson, um
hugsanlegt framboð. Hann staðfesti
að Björgólfur Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri, og Jón Magnússon,
lögmaður, væru í þessum hópi.
„Við erum að velta þessu fyrir
okkur og höfum tíma fram að helgi
ti! að komast að niðurstöðu,“ sagði
Ingi Björn. „Á meðan við höfum
ekki ákveðið að fara í framboð er
auðvitað of snemmt að ræða stefnu-
mál, en við teljum nauðsynlegt að
bjóða fram valkost við þau tvö fram-
boð sem nú eru í gangi. Þeir kostir
sem nú bjóðast eru ágætir til síns
brúks, en ég held að það sé gott
fyrir kjósendur að hafa fleiri kosti.
Ég hef fundið skýrt að það er vilji
fólksins í borginni að fá fram nýtt
og ferskt framboð."
L-Iistinn í framboð?
Björn S. Stefánsson, hagfræðing-
ur, undirbýr nú framboð til borgar-
stjórnar undir nafni L-lista, eða Lýð-
ræðisframboðsins. Helsta stefnumál
hans er að sú meginregla verði sett
í samþykktir borgarinnar, að þriðj-
ungur borgarfulltrúa í Reykjavík
geti'skotið málum til almennrar at-
kvæðagreiðslu borgarbúa í aðhalds-
skyni fyrir meirihluta í borgarstjóm.
Einnig er lagt til að stofnuð verði
hverfisráð sem borgarfulltrúar til-
nefni í grunnskólahverfum borgar-
innar, sem þjóni sem vettvangur er
greiði fyrir aðgangi borgara að full-
trúum sínum í borgarstjórn. Björn
segir að ekki sé um skipulögð sam-
tök að ræða, en aðstandendum sé
full alvara um að bjóða fram fullskip-
aðan lista. „Við viljum fyrst og
fremst knýja aðra, fremur en leggja
undir okkur borgina, og lítum svo á
að stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins
og Reykjavíkurlistans séu vel not-
hæfar," segir Björn. Hann segir að
koma muni í ljós á hádegi á laugar-
dag hvort af framboði verði. Með
Bimi hefur starfað að undirbúningi
framboðsins Halldóra Einarsdóttir,
húsmóðir og amma.
Ríkisendurskoðun telur söluverð SR-mjöls of lágt og bæði tilboðin í fyrirtækíð ógild
Hefði verið rangt af okkur
að selja fyrirtækið Haraldi
— segir Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra
SKÝRSLA Ríkisendurskoðunar um sölu á hlutabréfum rikisins í SR-
n\jöli var kynnt alþingismönnum í gær. Þar er sett fram margvísleg
gagnrýni á undirbúning og framkvæmd sölu fyrirtækisins. Ríkisendur-
skoðun telur að hvorugt þeirra tilboða sem bárust í hlutabréfin, ann-
ars vegar frá Haraldi Haraldssyni og hins vegar frá þeim sem keyptu
fyrirtækið, hafi uppfyllt skilyrði útboðsskilmála og að endanlegt sölu-
verð fyrirtækisins hafi verið of lágt. í niðurstöðum skýrslunnar segir
að sú ráðgjöf sem stjórnvöld nutu við sölu hlutabréfanna hafi ekki
verið eins vönduð og æskilegt hafi verið og er átalið að sérstakur sölu-
hópur hafi verið iátinn sjá um söluna í stað þess að nýta þá sérþekk-
ingu sem Framkvæmdanefnd um einkavæðingu hafi aflað sér og láta
hana annast undirbúning málsins.
Eftir að skýrslan var lögð fram
ritaði Þorsteinn Pálsson sjávarút-
vegsráðherra bréf tii VÍB og Starfs-
hóps um sölu hlutabréfa ríkisins í
SR-mjöli og óskaði eftir að þessir
aðilar skiluðu greinargerðum um þær
athugasemdir sem þar komi fram og
einnig ritaði ráðherra fjárlaganefnd
Alþingis bréf þar sem þess er óskað
að VIB og söluhópnum muni gefast
tækifæri til að skýra sjónarmið sín
þegar greinargerðir þeirra liggi fyrir
„Mér sýnist skýrslan staðfesta að
Haraldur Haraldsson hafí ekki sýnt
fram á að hann hefði þann fjárhags-
lega styrk sem krafist var til þess
að kaupa verksmiðjumar. Deilan sem
Hrútafjörður
Borgarverk
baud best
BORGARVERK hf. í Borgarnesi
átti lægsta tilboð í lagningu
Norðurlandsvegar hjá Staðar-
skála í Hrútafirði í útboði Vega-
gerðar ríkisins á dögunum.
Kostnaðaráætlun fyrir verkið var
4,1 milljón kr. Borgarverk hf. bauð
tæpar 2,5 milljónir og eru það 60%
af kostnaðaráætlun. Sjö önnur til-
boð bárust í verkið.
staðið hefur undanfama mánuði um
að við hefðum átt að selja honum
er skýrð með þessum hætti. Það
hefði beinlínis verið rangt af okkur
að selja honum,“ sagði Þorsteinn
Pálsson sjávarútvegsráðherra, þegar
hann var spurður um skýrsluna.
Þorsteinn sagði að meginatriðið
væri að þeir sem keyptu SR-mjöl
hefðu staðist þær kröfur sem til
þeirra voru gerðar. Þar að auki hefði
tekist að tryggja dreifða eignaraðild,
aðild starfsmanna og heimamanna.
Þorsteinn sagði að endalaust sé
hægt að deila um söluverð fyrirtæk-
isins. Dómur markaðarins hljóti þó
að ráða hér ferðinni. VÍB hefði met-
ið fyrirtækið á 695-1.011 milljónir
króna. Það hefði síðan verið selt fyr-
ir 725 milljónir. Þorsteinn sagði að
þó að verðið sé í lægri kanti verðbils-
ins þá sé það innan þess.
Þorsteinn tók ekki undir gagnrýni
Ríkisendurskoðunar á framkvæmd
sölunnar, en sakaði stofnunina um
óvönduð vinnubrögð og rangfærslur.
Meðal niðurstaðna í skýrslu Ríkis-
endurskoðunar er að verklagsreglum
sem ríkisstjórnin hafí samþykkt að
fylgja skyldi við framkvæmd einka-
væðingar hafí ekki verið fylgt sem
skyldi við undirbúning og sölu hluta-
bréfanna og ráðgjöf sem stjórnvöld
nutu hafí ekki verið að öllu leyti eins
vönduð og æskilegt hefði verið. Þá
sé ólíklegt að Landsbréf sem átti
lægsta tilboð í sölu bréfanna yrði
talið vanhæft til að annast söluna
og eðlilegt hefði verið að láta reyna
á tilboð Landsbréfa sem var 9,5 millj-
ónum lægra en tilboð VÍB, sem ann-
aðist söluna samkvæmt munnlegum
samningi og telur Ríkisendurskoðun
aðfínnsluvert og ekki í samræmi við
lög og ekki hafi verið gerður skrifleg-
ur samningur um þjónustu VÍB við
söluna.
Einnig gagnrýnir Ríkisendurskoð-
un m.a. að skilyrði þau sem sett
voru fyrir samþykki útboða hafí ekki
verið kynnt í áberandi auglýsingu
um útboð bréfanna, og grunnupplýs-
ingar um fyrirtækið hafí ekki verið
veittar fyrr en við afhendingu út-
boðsgagna. Einnig hafí verið sett
óeðlileg skilyrði fyrir þátttöku í út-
boðinu þar sem bjóðendum var skylt
að veita ýmsar upplýsingar um fjár-
mögnun, fjárhagsstyrk og lánveit-
ingar, áður en grunnupplýsingar um
fyrirtækið lágu fyrir.
Sjá bls. 18: „Söluverð..."
JÓNAS R. Jónsson, dagskrár-
stjóri Stöðvar 2, lét af störfum
lyá fyrirtækinu í gær.
Morgunblaðið innti Pál Magnús-
son, sjónvarpsstjóra, eftir því í gær
hvort rétt væri að Jónasi hefði
verið sagt upp störfum. „Ég get
staðfest að Jónas lét af störfum
frá og með deginum í dag, en að
öðru Ieyti svara ég ekki til um
málefni einstakra starfsmanna,“
sagði Páll. Hann sagði þó aðspurð-
ur að nýr dagskrárstjóri hefði ekki
verið ráðinn.
Samkvæmt heimildum Morgun-
í dag fylgir Morgunblaðinu
auglýsingablað frá Happ-
drætti DAS, sem nefnist „Das-
skrá“.
blaðsins munu ástæður uppsagnar
Jónasar R. Jónssonar vera þær,
að hann sat ekki i ferðamannarými
(Tourist Class) þotu, sem hann
ferðaðist með á vegum Stöðvar 2.
Fyrirtækið hafði útvegað honum
farseðil í viðskiptarými (Business
Class eða Saga Class) með fyrir-
mælum um að hann óskaði eftir
að sitja í ferðamannarými. Þegar
Jónas var staðinn að því að sitja
í viðskiptarými leit yfirmaður hans
á Stöð 2 svo á, að hann hefði rof-
ið fyrirmæli og sagði honum upp
störfum.
Dagskrárstjóri Stöðv-
ar tvö lét af störfum