Morgunblaðið - 27.04.1994, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 1994
5
Semja um afslátt af imian-
landsflugi og bílaleigubílum
Hafin verður sala á 5.000 sætum til stéttarfélaga 1. maí nk.
Samhjálp kvenna cj?
OPIÐ HUS
Atvinnuskapandi
Að sögn Péturs A. Maack í ferða-
nefnd ASÍ er markmiðið með samn-
ingnum m.a. það að auka möguleika
Islendinga til að ferðast um eigið
land í sumar og leggja þannig grunn
að auknum ferðalögum landsmanna
innanlands allt árið. Jafnframt að
stuðla að aukinni atvinnu í ferða-
þjónustu og tengdum greinum.
Rannsóknir hafa sýnt að fyrir hveija
45 ferðamenn innanlands skapast
eitt starf. Við fimm þúsund farþega
aukningu í innanlandsflugi Flugleiða
ættu 111 íslendingar að fá atvinnu
Erkibiskup-
inn heldur
með Arsenal
ERKIBISKUPINN af Kantara-
borg var í frétt í Morgunblaðinu
í gær sagður hafa lýst því yfir í
predikun sinni í Skálholtskirkju á
sunnudaginn að hann væri aðdá-
andi Manchester United í knatt-
spyrnu, en hið rétta er að erki-
biskupinn er mikill aðdáandi Ars-
enal. Ólafur Skúlason biskup er
hins vegar stuðningsmaður Man-
chester United, og þegar erki-
biskupinn sló á létta strengi í
predikun sinni vék hann að því
að þeir væru miklir vinir þrátt
fyrir þetta.
Ólafur Skúlason sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær að það hefði
komið skemmtilega út í predikun
erkibiskupsins þegar hann var að
tala um mynd sem er af Þorláki bisk-
upi í Lincoln að hann hefði getið
þess að Þorlákur væri á myndinni í
sokkum sem væru í litum Arsenal.
„Hann sagði að það ætti aldeilis vel
við hvað sitt áhugamál snerti þar
sem hann styddi Arsenal, en hins
vegar væri hann ekki viss um að
biskup íslands væri jafn ánægður
þar sem hann styddi Manchester
United!“ sagði Ólafur, sem vildi
koma þessari leiðréttingu að þar sem
erkibiskupinn fengi í hendur frá-
sögnina í Morgunblaðinu og ekki
væri vilji til þess að særa Arsenal-til-
finningar hans.
Af því sem haft var eftir Ólafi
Skúlasyni í Morgunblaðinu í gær
mátti skilja að fyrirhugað embætti
ensks prests hér á landi kæmi til
samþykktar á prestastefnu og
kirkjuþingi, en hið rétta er að á
þeim vettvangi mun hann leggja
fyrir svokallað Poi-voo allsherjar-
samkomulag sem nær yfir alla þá
þætti varðandi innri mál í lútersku
kirkjunni og ensku biskupakirkjunni
þar sem talinn er möguleiki á því
að vera samstíga.
NÍU launþegasamtök hafa gert samning við Flugleiðir og bilaleigu
Flugleiða um sölu á fimm þúsund sætum í innanlandsflugi félagsins
og verulegan afslátt á bílaleiguverði i sumar. Vonir standa til að samn-
ingur þessi geti orðið grunnur að nýju viðhorfi Islcndinga til ferða-
laga innanlands með flugvélum. Farseðlar verða seldir til félags-
manna í viðkomandi stéttarfélögum á timabilinu frá 1. maí til 10.
júní nk. á söluskrifstofum Flugleiða.
Samið var um eitt grunnfargjald, víðsvegar um landið, að sögn Péturs.
4.800 kr., fyrir eitt sæti fram og til
baka á öllum flugleiðum Flugleiða,
en til samanburðar má geta þess að
fullt fargjald milli Reykjavíkur og
Akureyrar nemur rúmum 12 þús.
kr. Ferðir til Egilsstaða, Hafnar í
Hornafirði og Húsavíkur verða 1.500
kr. dýrari vegna lengdar flugleið-
anna og fargjald til Vestmannaeyja
verður 1.000 kr. lægra. Börn á aldr-
inum 4-15 ára greiða 3.100-5.100
eftir því hvert förinni er heitið, en
fyrir börn upp að þriggja ára aldri
þarf aðeins að greiða tryggingar-
gjald.
Þau verkalýðsfélög, sem eiga að-
ild að samningnum eru: ASÍ, BSRB,
BHMR, SÍB, KÍ, FFSÍ, VR, Félag
íslenskra hjúkrunarfræðinga og Vél-
stjórafélag Islands, en meðlimir
þessara féiaga eru samtals um 100
þúsund.
Ýmsa skilmála er að finna í samn-
ingnum, m.a. um tveggja nátta
lágmarsdvöl og eins mánaðar há-
marksdvöl. Hægt er að kaupa flugm-
iðana án þess að ákveða þurfi brottf-
arardagana strax, en kaupa skal
farseðla báðar leiðir og er fargjaldið
fyrir félagsmenn viðkomandi aðild-
arfélaga og fjölskyldur þeirra. Allir
fjölskyldumeðlimir verða að hefja
ferð saman en mega koma til baka
hver í sínu lagi. Og svo dæmi sé
tekið er hægt að fljúga til Egils-
staða, taka þar bílaleigubíl á sérkjör-
um og aka til Sauðárkróks og fljúga
þaðan aftur til Reykjavíkur. I fyrsta
skipti er nú boðið upp á ótakmarkað-
an akstur bílaleigubíls hér á landi
þó það fyrirkomulag sé tiltölulega
algengt í öðrum löndum.
Samhjálp kvenna, stuðningshópur kvenna sem fengið hafa
brjóstakrabbamein, hefur opið hús fimmtudaginn 28. aprfl n.k.
kl. 20.30 í Skógarhlíð 8, í húsi Krabbameinsfélagsins. Guðrún
Kristinsdóttir flytur erindi um sögu og starfsemi Samhjálpar
kvenna. Tónlistarflutningur. Hjálpartækjasýning: Fulltrúar
söluaðila kynna helstu nýjungar sem eru á boðstólum.
/
Allir velkomnir Kaffiveitingar
Til hamingju!
Þrjátíu og niu milljónir fimm hundruð og fjörutíu þúsund krónur!
Viðóskum ungaparinu,
sem vann rúmar
39 milljónir í Víkingalottói,
hjartanlega til hamingju.