Morgunblaðið - 27.04.1994, Side 10
10
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. APRIL 1994
Sinfóníuhljómsveit Islands
Kínverskir tónleikar
KÍNVERSKIR tónleikar í grænni áskriftarröð verða á morgun fimmtu-
daginn 28. apríl í Háskójabíói kl. 20. Hljómsveitarstjóri er Lan Shui
og einleikari Zhou Ting. Á efnisskránni er; Sprout eftir Chen Yi, Píanó-
konsert nr. 2 eftir S. Rakhmaninoff, Orchestrai theatre I eftir Tan
Dun og Francesca da Rimini eftir P. Tsjajkofskíj.
Á Qórðu og síðustu tónleikum í
grænu röðinni þræðir Sinfóníuhljóm-
sveitin ókunna stigu. Hljómsveitar-
stjóri, einleikari og hluti af efnisskrá
kemur frá Kína. Á það ekki illa við
þar sem í ár er 40 ára afmæli Kín-
versk-íslenska menningarfélagsins.
Hijómsveitarstjórinn, Lan Shui, hóf
fiðlunám ungur að árum, en fljótlega
beindist áhuginn að hljómsveita-
stjórn. Hann er fyrstur Kínverja frá
meginlandi Kína til að vinna verðlaun
í hinni þekktu alþjóðlegu Besancon-
keppni í Frakklandi. í kjölfar þeirrar
keppni hefur hann stjórnað mörgum
af fremstu hljómsveitum beggja
vegna Atlantshafsins. Þetta er í ann-
að sinn sem Lan Shui heimsækir
ísland. Lan Shui er nú búsettur í
Baltimore og starfar þar með sinfón-
íuhljómsveitinni í Baltimore.
Einleikarinn Zhou Ting, sem er
nítján ára gamall, kemur frá Shang-
hai. Þegar hann var ellefu ára var
hann í hópi barnungra kínverskra
listamanna sem fóru til að sýna list
sína í Bandaríkjunum. Vakti frammi-
staða hans þar mikla athygli. Það
var fyrir tilstilli Þorkels Sigurbjöms-
sonar tónskálds og Stefáns Edel-
steins skólastjóra Tónmenntaskóla
Reykjavíkur að Zhou Ting varð fyrir
valinu til þess að leika á þessum
tónleikum en þeir hlýddu á hann í
Shanghai fyrir tæpum tveim árum
og hrifust mjög af leik hans.
Á efnisskrá tónleikanna eru tvö
rússnesk og tvö kínversk tónverk.
Tónleikarnir hefjast á verki fyrir
strengi eftir kínverska tónskáldið
Chen Yi. Chen Yi er af menntafólki
komin og hóf hún snemma að læra
á fiðlu. Á heimili hennar var tónlist
mikið iðkuð þar til menningarbylt-
ingin batt enda á slíka iðju og var
Chen Yi send út á land til að vinna
á ökrunum í tvö ár. Sautján ára
gömul gat Chen Yi snúið til baka
og tekið upp fyrri iðju við fiðlunám
og tónsmíðar og kynnti hún sér sér-
staklega þjóðlega kínverska tónlist
og kínverska hljómfræði, jafnframt
gerðist hún konsertmeistari og tón-
skáld við Pekingóperu.
Chen Yi hefur hlotið fjölda viður-
kenninga fyrir tónlist sína. Verk
hennar Sprout var frumflutt árið
1986 af China Central Philharmonic
hljómsveitinni í Peking undir stjórn
Lan Shui. Það sama ár flutti hún til
Bandaríkjanna þar sem hún býr nú.
Fáir píanókonsertar hafa náð eins
miklum vinsældum og sá nr. 2 eftir
Rakhmaninoff. Píanókonsertinn til-
einkaði Rakhmaninoff sálfræðingi
sínum, Dahl, en honum tókst að
glæða trú Rakhmaninoffs aftur á
eigin getu eftir að hann hafði misst
trú á sjálfum sér sem tónskáldi.
Tan Dun er meðal þekktari kínver-
skra tónskálda. Hann er frá Hunan-
héraði í Kína og ólst upp við menn-
ingu, forna trú og siðvenjur þess
afskekkta héraðs. A tímum menning-
arbyltingarinnar vann hann við hrís-
grjónarækt en að henni lokinni vann
hann sem fiðluleikari og útsetjari
með Peking-óperuflokki. Eftir nám
við tónlistarháskólann í Peking fór
hann til Bandaríkjanna og lauk dokt-
orsgráðu í tónsmíðum við Columbia
háskólann. Tan Dun hefur hlotið al-
þjóðlegar viðurkenningar fyrir verk
sín og nú vinnur hann að gerð óperu
um ferð Marcos Polos til Kína. Eins
og Chen Yi og Lan Shui býr Tan
Dun nú í Bandaríkjunum.
Vorið 1876 hugðist Tsjajkofskíj
semja óperu sem byggð væri á sög-
unni um elskendurna Francescu og
Paolo úr „Hinum guðdómlega gleiði-
leik“ eftir Dante. Fékk hann til liðs
við sig textahöfund, Zvantzev að
nafni. Fljótlega kom upp misklíð
milli tónskáldsins og textahöfundar
þannig að Tsjajkofskíj hætti við óper-
una en samdi í þess stað sinfóníska
fantasíu byggða á harmsögunni.
ÁRNAÐ HEILLA
ára afmæli. í dag, 27.
apríl, er níutíu og
fimm ára Hlíf Matthíasdótt-
ir, frá Haukadal, Dýrafirði.
Eiginmaður hennar var Ólaf-
ur Magnússon, skipstjóri,
en hann lést árið 1961.
SKIPIN__________________
REYKJ A VÍKURHÖFN: í
fyrradag komu Þinganes SF,
Haukafell, Laxfoss og
Freyja fór. í gær komu Snæ-
fugl, Stapafell, Úranus,
Klakkur, Topas, Múlafoss,
Norland Saga, Dettifoss.
Út fóru Helga II, Oddgeir,
Romo Mærsk, Stapafell,
Akurey, Jón Baldvinsson,
Þinganes SF og Haukafell.
Í dag eru væntanlegir Otto
N. Þorláksson, Skógarfoss,
Birte Richter, Vædderen og
Bootes.
KIRKJUSTARF
ÁSKIRKJA. Samverustund
fyrir foreldra ungra barna í
dag kl. 10-12.
BÚSTAÐASÓKN. Félags-
starf aldraðra í dag kl. 13.
DÓMKIRKJAN: Hádegis-
bænir kl. 12.10. Orgelleikur
frá kl. 12. Léttur hádegis-
verður á kirkjulofti á eftir.
Opið hús í safnaðarheimili kl.
13.30-16.30._________
HALLGRÍMSKIRKJA: Opið
hús fyrir foreldra ungra barna
á morgun, fimmtudag, kl.
10-12._______________
HÁTEIGSKIRKJA: Kvöld-
og fyrirbænir í dag kl. 18.
ára afmæli. í dag, 27.
apríl, er fimmtug
Ingunn Ragnarsdóttir, bók-
ari hjá Heilsugæslunni í
Reykjavík. Hún er gift Má
Óskari Óskarssyni. Þau
verða að heiman á afmælis-
daginn.
LANGHOLTSKIRKJA. Aft-
ansöngur kl. 18.
NESKIRKJA: Bænamessa
kl. 18.20. Sr. Frank M. Hall-
dórsson.
SELTJARNARNES-
KIRKJA: Kyrrðarstund kl.
12. Söngur, altarisganga, fyr-
irbænir. Léttur hádegisverður
í safnaðarheimili.
ÁRBÆJARKIRKJA:
Mömmumorgunn í fyrramálið
kl. 10-12. Opið hús fyrir eldri
borgara í dag kl. 13.30. Fyrir-
bænaguðsþjónusta í dag kl.
16. Starf 10-12 ára (TTT) í
dag kl. 17.
BREIÐHOLTSKIRK J A:
Kyrrðarstund kl. 12 á há-
degi. Tónlist, altarisganga,
fyrirbænir. Léttur málsverður
í safnaðarheimili eftir stund-
ina. Unglingastarf (Ten-Sing)
í kvöld kl. 20.
FELLA- og Hólakirkja:
Helgistund í Gerðubergi kl.
10.30 á morgun, fimmtudag.
Umsjón Ragnhildur Hjalta-
dóttir. ____________________
KÁRSNESSÓKN. Mömmu-
morgunn í dag kl. 9.30-12 í
safnaðarheimilinu. Starf fyrir
10-12 ára í dag kl. 17.15-19.
fimmtugur Heimir Pálsson,
cand.mag. Skólagerði 14,
Kópavogi, ritstjóri hjá
Námsgagnastofnun. Eigin-
kona hans er Guðbjörg D.
Sigmundsdóttir, hjúkrun-
arfræðingur. Þau hjónin
taka á móti gestum á afmæl-
isdaginn kl. 18-20 í Félags-
heimili Kópavogs.
HJALLAKIRKJA: Starf fyr-
ir 10-12 ára börn TTT í dag
kl. 17-19.
FRIÐRIKSKAPELLA:
Guðsþjónusta í kvöld kl.
20.30. Prestur sr. Lárus Hall-
dórsson. Kaffi í gamla félags-
heimili Vals að guðsþjónustu
lokinni.
VEGURINN, kristið samfé-
lag, Smiðjuvegi 5, Kópa-
vogp. Biblíuiestur sr. Halldórs
S. Gröndal í dag kl. 18.
HAFNARFJARÐAR-
KIRKJA: Kyrrðarstund kl.
12 á hádegi og léttur hádegis-
verður í safnaðarathvarfinu,
Suðurgötu 11, að stundinni
lokinni.
MINNINGARKORT
ITC-minningarkort og ITC-
gjafabréf minningarsjóðs
Ingibjargar Ástu Blomster-
berg eru seld hjá Guðrúnu
Lilju í s. 679827. Einnig gefa
uppl. Halldóra í s. 678499,
Kolbrún í s. 36228 og Edda
í s. 26676. Sjóðurinn veitir
ferðastyrki ITC-félögum til
að sækja eða flytja fræðslu
utan heimabyggðar.
.1 í - .1 t * . .
Lan Shui.
Zhou Ting.
Morgunblaðið/Benedikt Sigurðsson
Ahugafólk um bætta söngmenningu á Héraði. Ragnhildur Rós Indr-
iðadóttir, Sigurlaug Gunnarsdóttir, Baldur Grétarson, Broddi Bjarna-
son, Ingibjörg Ingadóttir, Ásmundur Þórhallsson og Laufey Egils-
dóttir, ásamt undirleikurum.
Áhugafólk um bætta söngmenningu á Héraði
Söngkennara vantar
Egilsstöðum.
TÓNLEIKAR voru haldnirnýlega á Egilsstöðum til að opna augu fólks
fyrir því að skortur á söngkennara er tilfinnanlegur á Héraði. Undir-
skriftarsöfnun hefur verið í gangi að undanförnu til könnunar á því
hversu margir styðja framtakið og ennfremur hversu margir hyggja
á söngnám og raddþjálfun. Um eitt hundrað manns skrifaði undir list-
ann og tók Ásta Sigfúsdóttir, forseti bæjarsljórnar á Egilsstöðum, við
undirskriftunum, sem fulltrúi stærsta sveitarfélagsins á Héraði.
Tónleikarnir voru haldnir í Egils-
staðakirkju og voru flutt verk eftir
innlenda og erlenda höfunda. Und-
irleikur var í höndunum á Suncönu
Slamnig og Charles Ros. Áhugahóp-
ur um bætta söngmenningu á Hér-
aði stóð fyrir tónleikunum og sá um
Nýr geisladiskur
Björgvin
Þórðarson
tenór frá
Flateyri
ÚT ER kominn geisladiskur með
Björgvini Þórðarsyni tenór frá
Flateyri. Tilefni útgáfunnar er 60
ára afmæli Björgvins í mars sl.
Á geisladisknum eru 14 velþekkt
einsöngslög við undirleik Jónasar
Ingimundarsonar og 4 þekkt sálma-
lög við undirleik Kjartans Siguijóns-
sonar. Upptökustjóri var Sigurður
Rúnar Jónsson hjá Stúdíói Stemmu.
Að auki eru á disknum 4 kóralög
sem tekin voru upp hjá Ríkisútvarp-
inu 1985, en þar syngur Björgvin
einsöng með karlakórunum á Isafirði
og Bolungarvík við undirleik James
Haugthon.
Björgvin hefur á sl. árum mest.
sönginn. Var boðið upp á kvartett,
tvísöng og einsöng. Mæting var góð
og sótti á þriðja hundrað manns tón-
leikana. Áf þvi má ráða að mikil
áhugi sé fyrir bættri söngmenningu
á Héraði.
-Ben.S
sungið með karlakórunum á Isafirði
og Bolungarvík og farið í söngferðir
með þeim m.a. til Færeyja, Finn-
lands og Englands. Einnig fór hann
í söngferðalag um Evrópu með
karlakórnum Þröstum frá Hafnar-
firði. Einsöngvari í þessari afmælis-
ferð Þrastanna var auk Björgvins,
söngvarinn Kristinn Sigmundsson.
Björgvin hefur sungið við ótal
önnur tækifæri bæði á Vestfjörðum
og sunnan heiða, m.a. á skemmtun-
um átthagafélaga Súgfirðinga og
Önfirðinga.
Geisladiskurinn verður til sölu hjá
Japis og hjá Björgvini Þórðarsyni á
Flateyri.