Morgunblaðið - 27.04.1994, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 1994
21
Bílaiðnadur
Stórfellt tap var hjá
Mercedes-Benz ífyrra
Stuttgart. Reuter.
FRAMLEIÐENDUR Mercedes-Benz, sem eru deild í risafyrirtæk-
inu Daimler-Benz, segja að tap af rekstri hennar 1993 hafi numið
1.198 milljónum marka samanborið við hreinan hagnað að upphæð
849 milljónir marka 1992.
„Niðurstaðan ber vott um erfið-
leika, sem við var að stríða á fyrra
árshelmingi,“ sagði Helmut Wemer
stjómarformaður á blaðamanna-
fundi, „og sílækkandi verð á bifreið-
um handa fyrirtækjum í Evrópu.“
Mercedes er mesti framleiðandi lúx-
usbfla í heiminum og helzta gróða-
lind Daimlers, sem skýrði einnig frá
taprekstri í fyrra fyrir skömmu.
Mercedes skýrði frá sérstökum
hagnaði upp á 1,4 milljarða marka
vegna leiðréttinga á reikningum
þess til þess að samræma þá
bandarískum GAAP-bókhaldsað-
ferðum. Móðurfyrirtækið Daimler-
Benz tók upp þær reglur þegar
það lét skrá sig fyrst þýzkra fyrir-
tækja á kauphöllinni í New York.
Framleiðsla á fólksbílum
minnkaði í 508.000 úr 520.000
árið á undan, em framleiðsla á
fyrirtækjabílum minnkaði í
254.000 úr 275.000 ári áður.
Werner kvaðst búast við að tekj-
ur mundu aukast á þessu ári, en
benti á ekkert áþreifanlégt því til
sönnunar. Hann var ekki eins
bjartsýnn á framleiðslu bifreiða
handa fyrirtækjum. „Þrátt fyrir
batahorfur á\sumum mörkuðum í
Vestur-Evrópu.“
Deutsche Bank
Talið að um
skipulögð fjársvik
sé að ræða
Bankamenn létu leika á sig
Frankfurt. Reuter.
FORRÁÐAMENN Deutsche Bank, aðallánardrottins hins horfna
fasteignajöfurs Jurgens Schneiders, segjast hafa orðið fyrir barð-
inu á skipulögðum fjársvikum,
hundraða milljóna marka tjóni.
Aðalframkvæmdastjóri Deutsc-
he Bank, Hilmar Kopper, viður-
kenndi á þriggja tíma blaða-
mannafundi að bankanum hefðu
orðið á mistök með því að láta
leika á sig. „Mistökin bitna aðeins
á bönkunum, engum öðrum,“
sagði hann. „Enginn iðnaðarmað-
ur verður látinn gjalda mistaka
okkar,“ bætti hann við og átti við
ógreidda reikninga Schneiders.
Schneider skuldaði bönkum
rúmlega fimm milljarða marka og
skildi eftir ógreidda reikninga að
upphæð um 250 milljónir marka
þegar hann hvarf fyrir þremur
vikum. Þýzkir fjölmiðlar hafa haft
Deutsche Bank að háði og spotti
fyrir að lána Schneider háar fjár-
upphæðir á grundvelli að því er
virðist falsaðra skjala.
Að dómi Koppers er sökudólgur-
inn ekki Deutsche Bank heldur
Júrgen Schneider. Kopper sagði
að Schneider hefði hlaupizt á brott
sem kunni að valda bankanum
með nokkur hundruð milljóna
marka, en tiltók seinna upphæðina
219 milljónir.
í yfirlýsingu sinni gaf Kopper
í skyn að hann teldi að Schneider
hefði ekki verið einn að verki.
„Augljóst er að veðdeild Deutsche
Bank hefur fengið falsaðar skýrsl-
ur frá opinberum matsmönnum
og að falsaðar leigusamningar
voru notaðir,“ sagði Kopper, en
neitaði að skýra mál sitt nánar.
En Georg Krupp úr stjórn bank-
ans, sem hefur þegar rætt þann
möguleika að heill hringur fólks
hafi verið í vitorði með Schneider,
sagði: „Ég get varla ímyndað mér
að Schneider hafi drýgt þennan
verknað einn síns liðs.“
Kopper kvað ógerning að tiltaka
nákvæmlega hve mikinn hluta 1,2
milljarða marka lána bankans til
Scheiders yrði að afskrifa, en sagði
„það geta verið nokkur
hundruð milljóna marka“.
Suður-Kórea
Daewoo stofnsetur
stærsta einkafyrir-
tæki S-Kóreu
Seoul. Reuter.
EIGNARTENGDU fyrirtækin Daewoo Heavy Industries Ltd. og
Daewoo Shipbuilding and Heavy Machinery Ltd. í Suður-Kóreu eru
þess albúin að koma á fót stærsta einkafyrirtæki landsins á þessu ári.
Ef fyrirtækin sameinast 1. októ-
ber eins og ráðgert er munu umsvif
hins nýja fyrirtækis ná frá skipa-
smíði til iðnaðarvéla og iðjuvera,
vélaverkfæra, flutningabíla, eld-
flauga og geimfara og samsetningar
bifreiða.
Hið sameinaða fyrirtæki mun
kallast Daewoo Heavy Industries
Ltd. og verður annað stærsta fyrir-
tæki Suður-Kóreu, næst á eftir raf-
magnseinokun ríkisins, KEPCO.
Fjármunir fyrirtækisins munu
nema 2,27 milljörðum dollara, að
viðbættum 1,67 milljörðum dollara
frá skipasmíðadeildínni. Sérfræðing-
ar telja að samejningin verði báðum
aðilum til góðs. Ymsir segja að hagn-
aður og skipasmíði muni aukast á
næstu 10 árum, en þótt afköst Da-
ewoo Heavy Industries séu mikil
muni draga úr þeim vegna fjárfestin-
gatregðu.
Aukið lausafé mun gera hinu
stækkaða fyrirtæki kleift að fjárfesta
í þungaiðnaði. Það gæti einnig staðið
af sér hugsanlegan samdrátt í skipa-
smíðaiðnaði í heiminum með því að
gera sig óháðari þeirri grein. Daewoo
hyggst skera niður skipasmíði í 31,3%
af heildarsölu úr 50,1% nú.
Daewoo segir að velta hins sam-
einaða fyrirtækis verði 4,19 milljarð-
ar dollara á ári, eða heldur minni
en gert hefur verið ráð fyrir í mati
fyrirtækisins Hyundai Heavy Ind-
ustries, sem nú er stærsta þungaiðn-
aðarfyrirtæki Suður-Kóreu. Sér-
fræðingar segja. þó að enn vanti
mikið upp á að Daewoo geti staðið
þessum keppinauti sínum á sporði.
„Fyrirtæki getur ekki talizt gott
aðeins vegna þess að það ræður yfir
miklu fjármagni," sagði sérfræðing-
ur í Seoul. „Daewoo stendur enn
Hyundai langt að baki í tækni, arð-
semi og stjórnunarhæfni."
Daewoo vill tvöfalda sölu hins
sameinaða félags á tveimur árum.
Það gerir ráð fyrir 8,64 milljarða
dollara veltu 1998, þar af 3,4 millj-
arða dollara vegna skipasmíði, 3,3
milljarða dollara vegna þungaiðnað-
ar og 1.85 milljarða dollara vegna
farartækja.
Hlutabréfum í nýja fyrirtækinu
mun fjölga í 367,24 milljónir og er-
lendum fjárfestum verður gefinn
kostur á 27,16 milljónum nýrra
hlutabréfá.
Daewoo Shipbuilding skilaði
247,65 Tnilljóna dollára hagnaði á
almanaksárinu 1993 og gerir ráð
fyrir 407,40 milljóna dollara hagnaði
á þessu ári.
Iðnaður
Hagur Siemens
vænkast óvænt
Bonn. Reuter.
Siemens AG, stærsta raf-
magnsfyrirtæki Evrópu, hefur
skýrt frá lítið eitt auknum hagn-
aði á sex mánaða tímabili til
marzloka og sérfræðingar telja
að það kunni að tákna að afkoma
fyrirtækisins allt árið 1994 kunni
að verða betri en spáð hefur
verið.
Hagnaður jókst í 879 milljónir
marka úr 877 milljónum marka ári
áður. Sala jókst um 3%, í 38 millj-
arða marka úr 37 milljörðum.
Stór verkefni og sameining Osr-
am Sylvania í Norður-Ameríku
stuðluðu mest að aukinni sölu er-
lendis, að því er segir í tilkynningu
frá fyrirtækinu.
MICROTGK
skila betri úrangri
Tilbob l
Microtek Scanmaker II
fyrír PC og Macintosh
Tegund: Lit/gráskalaskanni
3 skannyfirferðir
Fyrirmynd: 21,6 cm x34.5 cm
Litur: 24 bita í lit og 8 bita í gráskala
Upplausn: 300x600 dpi raunupplausn
1200 dpi með hugbúnaði
Hugbún.: TWAIN hugbúnaður
Photoshop LE fyrir Mac eða 1
Imagestar fyrjr PC
Tengi: SCSI
Athugiö einnig önnur tilboö frá ACO hf.
Microtek borðskannarnir eru þeir
mest seldu á Islandi. Þeir eru útbúnir
öllu sem þarf til skönnunar og góðum
vélbúnaði sem skilar hágæða myndum.
Nýjasta útgáfa af myndvinnsluforritinu
Photoshop fylgir með.Til að tryggja bestu
gæði við hverja skönnun er forritið DCR
notað, en það stjórnar réttum stillingum.
Microtek skannarnir eru með upplausn
á bilinu 1200-2400 punkta
og eru 24 eða 36 bita.
aco
SKIPHOLT117 • 105 REYKJAVlK • SlMI: 91-627333 • FAX: 91-628622
Elsta tölvufypírtæki á Islandi