Morgunblaðið - 27.04.1994, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 1994
25
Svíar í
friðar-
samstarf
LÍKLEGT er, að Svíar taki
þátt í friðarsamstarfi NATO-
ríkjanna og undirriti samninga
þar að lútandi í næsta mánuði.
Kom þetta fram hjá Anders
Björck, varnarmálaráðherra
Svíþjóðar, I gær og hann taldi
víst, að tillaga um þetta gengi
greiðlega í gegnum þingið.
fjórtán ríki, Austur-Evrópuríki
og fyrrverandi sovétlýðveldi,
hafa þegar skrifað undir friðar-
samstarfið og sennilega munu
Finnar, sem eru hlutlausir eins
og Svíar, gerast aðilar að því.
Tugmilljónir í
flugvélinni
NÆRRI 47 milljónir ísl. kr.
hafa fundist í flaki rússnesku
Airbus-þotunnar, sem fórst í
Síberíu í síðasta mánuði, og þar
af var rúmur helmingur ijárins
í dollurum. Allir um borð í vél-
inni, 75 manns, létu lífið í slys-
inu. Komið hefur fram, að
nokkrum mínútum áður en vél-
in hrapaði var einn flugstjór-
anna að sýna börnum sínum
hvernig ætti að stjórna henni.
Ovænt heim-
koma
RÚSSNESKUR hermaður
kvaddi nýlega dyra heima hjá
sér í Kúban í Suður-Rússlandi,
sex árum eftir að hann hafði
verið talinn af í Afganistan.
Hafði hann verið í fangelsi í
Pakistan að sögn dagblaðsins
Ízvestíu, sem lét þess þó ekki
getið hvernig hann komst heim
eða hvaða viðtökur hann fékk
hjá fjölskyldu sinni.
Hvað allir eig-
inmenn athugi
DÓMSTÓLL í Bretlandi hefur
komist að þeirri niðurstöðu, að
maður að nafni Martyn Ginder
beri meginábyrgð á því, að
kona hans, Jean, skuli hafa
fallið út um glugga og lamast.
Er ástæðan sú, að hann sinnti
ekki margítrekuðum óskum
hennar um að gera við
gluggann, sem var bilaður. Je-
an Ginder segist þó ekki áfell-
ast mann sinn, heldur hafi hún
neyðst til að fá úr þessu skorið
vegna heimilistryggingarinnar.
Samið við
njósnarahjón
NJÓSNARA-
HJÓNIN Ald-
rich Ames,
fyrrverandi
starfsmaður
bandarísku
leyniþjón-
ustunnar,
CIA, sem sak-
aður er um njósnir fyrir Sovét-
ríkin og síðar Rússland, og
kona hans, Rosario, hafa kom-
ist að samkomulagi við ákæru-
valdið. Samkvæmt því munu
þau segja allt af létta um njósn-
irnar gegn því, að Rosario fái
vægan dóm en Ames verður
að sitja inni ævilangt. Talið er,
að réttarhöldin verði löng og
dýr og muni þar ýmistlegt
koma fram, sem verði ekki til
neins álitsauka fyrir CIA.
Lestarslys í
Svíþjóð
LEST fór út af sporinu í Álvsjö
í úthverfi Stokkhólms um miðj-
an dag í gær. Slösuðust tíu
manns alvarlega er einn lestar-
vagninn féll á hliðina og tveir
aðrir fóru út af lestarsporinu.
Ames
Fundur nokkurra aðildarríkja Alþjóðahvalveiðiráðsins um hvalveiðar
Hagsmunir Norðmamia
og Japana geta skarast
Ósló. Frá Jan Gunnar Furuly, fréttaritara Morgunblaösins.
HELSTU samtök umhverfisverndarsinna harðneita því að hafa
slakað á í baráttunni gegn hvalveiðum. „Á meðan við berjumst
gegn hvalveiðum er óhugsandi að leyfa einhveijar hvalveiðar í
hagnaðarskyni," segir Geir Wang-Andersen hjá Greenpeace í
Noregi við Aftenposten. Samkvæmt frétt í breska blaðinu The
Observer hafa bæði Bandaríkjamenn og Bretar fallist á að slaká
á hvalveiðibanni Alþjóðahvalveiðiráðsins, sem samþykkt var
árið 1984, gegn því að allir hvalir sunnan við 40. breiddargráðu
við Suðurskautið verði friðaðir.
Reuter
Zhírínovskíj-vodka
RÚSSNESKI þjóðernissinninn Vladímír Zhírínovskíj varð 48 ára á
mánudag og hélt upp á afmælið á veitingahúsinu Búdapest í Moskvu.
Þar var honum gefin stór flaska af nýrri vodkategund, „Vladímír Zhír-
ínovskíj", og á myndinni er hann að dást að flöskunni.
t
Blaðið segir að leynilegur fund-
ur um þetta mál hafi verið haldinn
í Lundúnum í síðustu viku og hafi
þær þjóðir, sem hvað harðast hafi
barist gegn hvalveiðum.til þessa,
setið þann fund. The Observer
upplýsir einnig að mörg af helstu
umhverfisverndarsamtökum
heims, s.s. Greenpeace og Alþjóða
Náttúruverndarsjóðsins, WWF,
hafi fallist á þessa áætlun.
Voru á fundinum
Forystumenn Greenpeace í
London vísa því á bug að samtök-
in hafi „selt sig“ í hvalveiðimálun-
um. Cliff Curtis, sem samræmir
baráttu samtakanna gegn hval-
veiðum um allan heim, staðfestir
að hann hafi verið á fundinum í
London í síðustu viku en neitar
að samtökin hafi fallist á áætlun
áþekka þeirri sem Observer grein-
ir frá.
„Curtis flutti fimmtán mínútna
langt erindi þar sem hann gerði
grein fyrir okkar sjónarmiðum í
hvalamálum. Greenpeace tók ekki
þátt í viðræðunum á fundinum og
við höfum því mjög litla vitneskju
um það, hvað þátttökuríkin sjö
ákváðu," segir Wang-Andersen í
Osló. Auk Bretlands og Bandaríkj-
anna, sátu fulltrúar frá_ Ástralíu,
Frakklandi, Þýskalandi, írlandi og
Hollandi fundinn.
Thor-Ivar Guldberg hjá Alþjóða
náttúruverndarsjóðnum segir að
ekki sé hægt að staðhæfa að sam-
tökin muni fallast á áætlun af
þessu tagi. Það sé enn of snemmt
að segja til um það. „Til að byija
með styðjum við hugmyndina um
verndarsvæði við Suðurskautið,"
segir Guldberg. Hann ségist von-
góður um að tillaga þess efnis
verði samþykkt á ársfundi Al-
þjóðahvalveiðiráðsins í Mexíkó í
lok maí.
Bitnar á Japönum
Hugsanleg ákvörðun um vernd-
arsvæði fyrir hvali við Suðurskaut-
ið myndi ekki síst bitna á Japönum
en það er einmitt á því svæði, sem
þeir hafa helst hug á að stunaa
hvalveiðar í atvinnuskyni fyrir
utan strandveiðar. Þá myndi til-
laga um verndarsvæði einnig
koma Norðmönnum í bobba þar
sem þeir hafa til þessa verið helstu
bandamenn Japana innan Alþjóða-
hvalveiðiráðsins. Með því að styðja
tillöguna myndu Norðmenn
styggja Japani en á móti líklega
fá hrefnuveiðikvóta.
Ekki hefur tekist að fá það stað-
fest á skrifstofu Alþjóðahvalveiði-
ráðsins að þessi tillaga verði lögð
fram. „Við höfum ekki hugmynd
um þetta mál. Líklega hafa nokk-
ur aðildarríki ráðsins þarna verið
að ræða málin sín á milli,“ segir
Verity Hunter á skrifstofu ráðsins.
Norskir hvalveiðimenn hafa
tekið ágætlega í þessar hugmynd-
ir. „Við fögnum öllu því sem getur
orðið til að auðvelda okkur að-
Halda áfram hvalveiðum. Það gæt-
ir hins vegar efasemda um hvort
þessi ríki séu í raun reiðubúin til
að samþykkja fyrirkomulag af
þessu tagi,“ segir Gunbjorn And-
ersen, eigandi hvalveiðiskipsins
Reinebuen, sem gert er út frá
bænbum Reine í Lofoten.
Vísindaveiðar að hefjast
Andersen heldur til hafs í næstu
viku og hefur þar með þriðju hval-
veiðivertíð sína á vegum vísinda-
veiðiáætlunar norsku stjórnarinn-
ar. Óttast hann að friðun Suður-
skautslandsins muni bitna á
Japönum. „Við getum ekki tekið
þá áhættu að ganga þvert á vilja
Japana. Japanir hafa árum saman
stutt við bakið á okkur sem hval-
veiðiþjóð og kröfur okkar um rétt
til veiða á Norðurslóðum," segir
hann.
Alls stendur til að veiða 127
hrefnur innan vísindaveiðiáætlun-
arinnar á þessu ári á svæðinu frá
Lofoten til Bjarnareyjar og við
Spitsbergen. Fjögur skip taka þátt
í veiðunum. Norskir vísindamenn
höfðu einnig bundið vonir við að
fá að veiða við Kólaskaga, líkt og
árið 1992, en líkt og í fyrra hafa
Rússar neitað þeim um leyfi.
INIOKIA + KOMIN AFTUR!
ÞESSI VINSÆLU OG VÚNDUÐU FINNSKU
SJÓNVARPSTÆKI ERU KOMIN AFTUR
‘ SÍÐAST SELDUST ÞAU UPP.
NÚ ER TÆKIFÆRID FYRIR
ÞÁ SEM URÐU FRÁ
AD HVERFA.
FRAMTÍÐAR SJÓNVÖRP
UPPFYLLA STRANGAR KRÖFUR UM GÆÐI LEIÐANDI Á SVIÐI TÆKNI OG HÖNNUNAR MÚSARFJARSTÝRING VALMYNDIR Á SKJÁ FÁIR HNAPPAR TVÖ SCART-TENGI HEYRNARTÆKJATENGI VÍÐÓMUR (NICAM OG A2 STEREO)
SJÁLFVIRK STÖÐVA- STILLING - APS
ÍSLENSKT TEXTAVARP
EINFÖLD í NOKUN OG MEÐ ALLT SEM ÞARF
RÖNNING
BORGARTÚNI 24
SÍMI 68 58 68