Morgunblaðið - 27.04.1994, Qupperneq 44
44
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 1994
135 min
Nýr greiðslumáti
í kvikmyndahúsum.
Háskólabíó ríður á vaðið
- þú átt góða mynd VÍSA.
ROBOCOP er mættur aftur í nýrri, hraðri og harðri mynd sem þykir
mesta bomban í seriunni. Bönnuð innan 16 ára.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.10
***
Al. MðL
Snilldarmynd um ungan snilling.
Aöalhlutverk: Ben Kingsley, Joe
Mantegna, Laurence Fishburne og
Max Pomeranc.
Sýnd kl. 5 og 7
Fjögur ungmenni freista gæfunnar
í leit ad frægö og frama.
Aöalhlutv. River Phoenix og
Samantha Mathis.
Sýnd kl. 9 og 11.10.
LJTLi &UDDA
„Þetta einstaka listafólk hefur
skilað afar tregafullri en engu að
síður einni bestu mynd ársins.
*★* S.V. MBL
Sýnd kl. 5 og 7
STÆRSTA BÍÓIÐ.
ALLIR SALIR ERU
FYRSTA FLOKKS.
Sýnd kl. 9.10. B.i. 14 ára.
SCIIINDltlfilíST
Leikstjófí Steven Spielberg
Bönnuð innan 16 ára.
Sýnd kl. 5.15 og 9.15
Stórmynd frá Bertolucci leik-
stjóra Síðasta keisarans.
AÐALHLUTV.: KEANU REEVES,
BRIDGET FONDA OG CHRIS ISAAK.
Sýnd kl. 5 og 9
BLÁR
HASKOLABIO
SIMI 22140
Háskólabíó
SV.Mbl.
/ NAFN! FÖÐURINS
HH PRESSAN
A.I. MBL
****
Ö.M. TÍMINN . ,,f. ý.k. EINTAK
. Rás 2
Framboðslisti Framsókn-
arflokksins á Siglufirði
Siglufirði.
BIRTUR hefur verið framboðslisti Framsóknarflokksins á Siglufirði
fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Talsverðar breytingar hafa
orðið á listanum frá því í siðustu sveitarstjórnarkosningum og má í
því sambandi nefna að Asgrímur Sigurbjörnsson, annar af bæjarfull-
trúum flokksins, skipaði áður 2. sætið á listanum en er nú í 18. sæti,
að eigin ósk.
Listann skipa eftirfarandi:
Skarphéðinn Guðmundsson, kenn-
ari, Freyr Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri, Guðrún Ólöf Péturs-
dóttir, skrifstofumaður, Kristinn
Bogi Antonsson, fiskeldisfræðing-
ur, Pétur Bjamason, skipstjóri, Ás-
dís Magnúsdóttir, framkvæmda-
stjórij Sverrir Jónsson, húsasmiður,
Páll Ágúst Jónsson, sjómaður, Her-
dís Erlendsdóttir, bóndi, Aðalbjörg
Þórðardóttir, húsmóðir, Þorsteinn
Sveinsson, fískvinnslumaður, Þor-
geir Bjamason, nemi, Sigríður
Björnsdóttir, húsmóðir, Hilmar Þór
Zóphoníasson, útgerðarmaður, Sig-
urður Jón Gunnarsson, skrifstofu-
maður, Þorsteinn Bjarnason, nemi,
Karólína _ Sigutjónsdóttir, verka-
kona og Ásgrímur Sigurbjömsson,
umboðsmaður.
- S.I.
Út á þjóðveginn
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Fingralangur faðir („Father-
hood). Sýnd í Sagabíó. Leik-
stjóri: Darrell James Roodt.
Framleiðandi: Jeffrey
Chernov. Aðalhlutverk:
Patriek Swayze, Halle Berry,
Sabrina Lloyd og Diane Ladd.
Fingralangur faðir með
Patrick Swayze reynir að blanda
saman gríni og spennu í frásögn
af kolómögulegum föður og
tveimur börnum hans á flótta
undan réttvisi og unglingaheimil-
isvist. Þetta er vegamynd sem
lýsir því hvemig smákrimmaleg-
ur faðirinn verður að betri manni
(og föður) með því að umgang-
ast börnin sín en hana skortir
bæði alvöru grín og spennu til
að virka skemmtileg. Sagan er
máttlaust Disneyefni og áður en
lýkur hefur leikstjórinn Darrell
James Roodt leyft ekta banda-
rískri fjölskylduvæmni að her-
taka þessa einfeldningslegu
mynd með öllu sínu löðri svo eft-
ir stendur algerlega minniháttar
þrjúbíó pakkað inní meiriháttar
klisju.
Swayze hefur átt í vandræðum
með að fínna sér góð hlutverk í
seinni tíð og þetta á ekki eftir
að gera neitt jákvætt fyrir hans
feril. Myndin, sem byrjar á endin-
um af einhveijum undarlegum
ástæðum, er eiginlega samansett
úr þremur sögum. Forstöðumenn
unglingaheimilisins, sem börn
Swayze búa á, eru gerspilltir svo
það þarf að koma upp um þá,
Swayze er talinn hafa rænt böm-
unum sínum og því er löggan á
hælunum á þeim þar sem þau
þeytast um þjóðvegi Bandaríkj-
anna og Swayze hefur mælt sér
mót við vin sinn en þeir ætla að
ræna dóppening frá einhveijum
mafíósum.
Þannig virðist ætlunin að setja
allt tilfallandi í myndina svo aldr-
ei slakni á frásögninni, fjöl-
skyldudramatík, bílaeltingarleiki,
misnotkun á unglingaheimili og
mafíósa, en útkoman er hálfgerð-
ur hrærigrautur. Leikurinn er
ólíkindalegur hjá Swayze sem í
byijun er svona oddhvass Ieður-
jakkagaur með glötuð áform í
lífínu og jafnmikla föðurtilfinn-
ingu og stóri kádiljákurinn hans.
En eins og reikna mátti með
gera börnin úr honum þennan
dæmigerða mjúka mann og um-
hyggjusama föður áður en lýkur.
Swayze reynir of mikið á sig við
rullu sem býður í raun ekki upp
á neitt sérstakt. Versti leikurinn
er þó hjá Halle Berry, sem á að
vera rannsóknarblaðamaður en
virðist vera að leika eitthvað allt
annað eins og ábúðamikið tí-
skumódel. Best er þegar hún er
að reyna að vera alvarleg í síman-
um.
Leikstjórinn Roodt reynir að
lappa uppá slakt handritið með
því að sýna spennuatriðin hægt
og jafnvel stoppa myndina alveg
en allt kemur fyrir ekki. Fingra-
langur faðir er slakt skemmti-
efni.
Morgunblaðið/Theódór
Systurnar Ingveldur og Ásta Lára Jóhannsdætur
ásamt Benedikt Gunnarssyni, listmálara, og sr.
Hreini Hákonarsyni við einn steinda gluggann.
Fáskrúðarbakkakirkja.
Fáskrúðarbakkakirkja í
Miklaholtshreppi endumýjuð
Borg í Miklaholtshreppi.
FÁSKRÚÐARBAKKAKIRKJA í Miklaholtshreppi var tekin í notkun
á ný síðastliðinn sunnudag, eftir mjög gagngerar viðgerðir og endur-
bætur hið innra. Kirkjan hefur m.a. öll verið máluð af miklu list-
fengi og smekkvísi af Jóni Svani Péturssyni, málarameistara í Stykk-
ishólmi. Þá hefur söngloft kirkjunnar verið stækkað og því breytt
og þannig rýmkað um söngfólk og organista auk þess sem ýmislegt
kom í ljós sem endurbóta þurfti við í kirkjunni þegar undirbúnings-
vinna við málninguna var hafin. Trésmiðavinna var að lang mestu
framkvæmd af Gústavi ívarssyni, málarameistara í Sauðsholti, og
vel af hendi leyst í hvívetna.
Meginbreytingin felst þó í 14
steindum gluggum sem nú prýða
kirkjuna og gefnir eru af Ingveldi
Jóhannsdóttir í Litlu-Þúfu hér í
sveit sem verður 85 ára á þessu
ári og systur hennar Ástu Láru
Jóhannsdóttur, búsett í Reykjavík,
sem verður 80 ára á þessu ári.
Gjöfin er til minningar um for-
eldra og tvo látna bræður. Er minn-
ing þeirra heiðurshjónanna Jó-
hanns Lárussonar, fyrrum bónda í
Litlu Þúfu, og Kristínar Björnsdótt-
ur, ljósmóður, sem og bræðranna
Kristjáns og Björns, mikill sómi
sýndur með þessari stórfenglegu
gjöf auk þess sem mikill fengur er
að því fyrir byggðarlagið að vera
aðnjótandi þeirrar listar sem þarna
er samankomin.
Myndsköpun og stækkun frum-
myndar þessara glugga ásamt
glervali annaðist Benedikt Gunn-
arsson listmálari en samsetningar-
vinna og uppsetning verka í kirkj-
unni var í höndum Listaglers á
Kársnesbraut 110 i Kópavogi. Allt
er þetta leyst af hendi með miklum
glæsibrag og má hiklaust telja að
Fáskrúðarbakkakirkja sé nú komin
í röð fegurri kirkna hér á landi.
Hátíðarsamkoma þessi fór fram
með einkar látlausum hætti og var
ekki í formi hefðbundinnar messu.
Fyrrverandi sóknarprestur sr.
Hreinn Hákonarson sá um bæna-
stund. Formaður sóknarnefndar,
Erlendur Halldórsson, bóndi í Dal,
flutti ávarp og skýrði frá fram-
kvæmd þessari sem hefur átt nokk-
um aðdraganda og formaður sókn-
arnefndar hefur haft veg og vanda
að framkvæmd þessari. En í stað
predikunar kom samlestur sr.
Hreins og Benedikts Gunnarssonar,
listmálara, á tilvitnunum í Biblíuna
og sálmavers þau sem Benedikt
leiðir myndverk sin af.
Að athöfninni lokinni bauð sókn-
arnefnd kirkjugestum til kaffisam-
sætis að Breiðabliki þar sem kven-
félagskonur reiddu fram veitingar
af rausnarskap.
Fáskrúðarbakkakirkju hafa á
liðnum árum borist margar stórar
gjafír frá ýmsum aðilum þótt kven-
félag hreppsins eigi þar drýgstan
hlut að máli. Við athöfn þessa var
tilkynnt um 75.000 kr. gjöf úr
minningarsjóði Guðbjargar Krist-
jánsson, fyrrum bónda og hrepp-
stjóra í Hjarðarfelli, en úr fjármun-
um þess sjóðs var fyrir nokkrum
árum veitt fé til kaupa á ljósakrón-
um og vegglömpum sem nú piýða
kirkjuna.
- Páll.
Niðjamót fransks strandamanns
í SUMAR er ráðgert að halda
niðjamót franska strandamanns-
ins Louis Henry Joseph Vander-
oruys og Valgerðar Jónsdóttur,
en skip það sem Lois var á hét
Morgunroðinn (I Aurore).
Morgunroðinn strandaði á Skála-
fjöru í Meðallandi nær því beint
niður af bænum Slýum 13. apríl
1818. Af þeim er kominn mikill
ættbogi og mun þessi ætt vera sú
alfjölmennasta og sú sem mest er
vitað um hérlendis sem rekur upp-
runa sinn til franskra sjómanna og
fískveiða þeirra hér við land.
Mörg ættmenni eru búsett í Vest-
mannaeyjum, Reykjavík, á Suður-
landi, Suðumesjum, Norðurlandi,
Austurlandi og í Bandaríkjunum.
Fyrir tveimur árum var haldið ætt-
armót afkomenda hjónanna
Oddnýjar Benediktsdóttur og Frið-
riks Gissurar Benónýssonar frá
Gröf í Vestmannaeyjum, en Friðrik
er barnabarn þeirra Vaderoruys og
Valgerðar. Það mót var haldið að
Skógum undir Eyjaíjöllum.
Mótið í sumar verður haldið á
Kirkjubæjarklaustri helgina
22.-24. júlí, þar sem þá stendur
yfir aðal ferðamannatími okkar ís-
lendinga. Þeir sem vilja panta gist-
ingu er ráðlegt að gera það fyrir
15. maí nk. Við pöntunum tekur
Jóhanna Jónsdóttir á Hunkubökk-
um.