Morgunblaðið - 27.04.1994, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 1994
STÆRSTA
TJALDIÐMEÐ
Einn aösóknar-
mesti vestri fyrr
og síðar í Banda-
ríkjunum.
★ ★ ★Ó.H.T., Rás 2.
Sýnd kl. 4.40,6.50,9
og 11.15.
Bönnuð innan 16 ára.
FRA LEIKSTJORA „ROCKY“
OG „KARATE KID“
Luke Perry (úr Beverly Hills
þáttunum),
Stephen Baldwin og Cynthia
Geary
Byggð á sannri sögu um Lane
Frost, sem varð goðsögn í Banda-
rikjunum. Lane varð ríkur og
frægur og var líkt við James
Dean. Konur elskuðu hann,
menn öfunduðu hann og enginn
gat sigrað hann.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
BLEKKIIMG
SVIK
MORÐ
Sýnd kl. 5,7,9
og 11.
Bönnuð innan
14 ára.
Metsölublad á hverjum degi!
isnwaHlMt
SIMI: 19000
$
„...fyndin «g skcmmtileg og hjarlnæm og harmræn í
scnn...mannvæn í kómískri frásögn sinni...hrífandi
mynd...Montand cr 8tórkostlegur...“ 4.1. Mbl.
Sami leikstjóri og leikstýrði „Betty Blue“.
Stórskemmtileg og fyndin spennumynd um ótrúlegt ferðalag þremenninga, sem
fátt virðast eiga sameiginlegt.
Aðalhlutverk: Yves Montand (síðasta kvikmynd þessa vinsæla leikara),
Oliver Martinez og Sekkou Sall.
Leikstjóri: Jean-Jacques Beineix.
Sýnd kl. 5 og 9.
PÍANÓ
Þreföld Óskarsverðiaunamynd.
Sýnd kl. 4.50,6.55,9 og 11.05.
Far vel frilla mín
Sýnd kl. 9
Bönnuð innan 12 ára.
KRYDDLEGIN HJÖRTU
Aðsóknarmesta erlenda myndln í
Bandaríkjunum frá upphafl.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Hetjan Toto
Sýndkl. 5og7 Bönnuð innan 12 ára.
LÆVÍS LEIKUR Pottþéttur spennutryllir
Sýnd kl. 5,7,9 og 11. Bönnuð innan 16 ára.
Mikil aukning
í heimahjúkrun
Heilbrigðisráðherra skipar nefnd um
framtíð heimahjúkrunar í Reykjavík
„ÞESSI þjóð virðist vera að fara
sömu leið og margar aðrar þjóðir
að draga úr stofnanavistun aldr-
aðra en bjóða í staðin upp á aukna
heimahjúkrun þannig að fólk
geti dvalist lengur í heimahús-
um,“ sagði Ragnhildur Haralds-
dóttir, skrifstofusljóri í heiibrigð-
is- og tryggingaráðuneytinu.
í síðustu viku var haldin ráð-
stefna á vegum Landssamtaka
heilsugæslustöðva þar sem fjallað
var um stöðu og horfur í heima-
hjúkrun. Gífurlegar breytingar hafa
átt sér stað í þessari þjónustu á síð-
ustu árum. Víða um land hefur hún
aukist um tugi prósenta.
Árið 1987 var tekin upp sóla-
hringsþjónusta í heimahjúkrun í
Reykjavík. Við það jókst umfang
þessarar þjónustu gífurlega. Fjöldi
sjúklinga hefur á síðustu fimm árum
aukist um 40-50% og vitjanafjöldi
um 70-80%. Margrét Þorvarðardótt-
ir, hjúkrunarframkvæmdastjóri við
Heilsuvemdarstöðina í Reykjavík,
sagðist ekki sjá fram á annað en
að þessi þróun haldi áfram og um-
fang heimahjúkrunar aukist á kom-
andi árum. Þessi þróun á sér eðlileg-
ar skýringar. Búið er að skera mik-
ið niður á spítölunum, fólk er út-
skrifað fyrr heim en áður og sjúkl-
ingar vilja gjarnan vera heima frek-
ar en að dveljast á sjúkrahúsum.
„Persónulega fínnst mér þetta
jákvæð þróun, en stjórnvöld verða
náttúrulega að átta sig á því að það
þarf pening í þetta eins og allt ann-
að,“ sagði Margrét. Hún sagði að á
allra síðustu ár hefði fjármagni ekki
verið veitt til þessarar þjónustu í
takt við þá miklu aukningu sem
orðið hefði í henni. Hún sagði að
ekki væri við því að búast að hægt
sé að loka stofnunum, senda sjúkl-
ingana heim og láta hjá líða að veita
fjármagni til að hjúkra þeim heima.
140 þúsund vito'anir í Reykjavík
Á síðasta ári nutu um 1.600
manns heimahjúkrunar í Reykjavík.
Starfsmenn í heimahjúkrun fóru í
um 140.000 vitjanir. Um 80% af
skjólstæðingum heimahjúkrunar í
Reykjavík er gamalt fólk. „Þetta er
þjónusta sem fer hljótt, en er gífur-
lega umfangsmikil. Við erum sem
dæmi að fara 3-4 sinnum á sólar-
hring til sumra sjúklinga."
Á undanförnum misserum hefur
verið aflað mjög mikilla upplýsinga
um kostnað við ýmsa þætti heilsu-
gæslu alls staðar á landinu. Heil-
brigðisráðuneytið hefur t.d. borið
saman kostnað við heimahjúkrun
og innlögn á mismunandi stofnanir.
Tilgangurinn með þessum saman-
burði er að meta hvaða meðferðar-
úrræði er hagstæðast í hveiju tilviki.
Nefnd um heimahjúkrun
Heilbrigðisráðherra sagði á ráð-
stefnunni að hann ætli sér að skipa
á næstunni nefnd til að fara ofan í
þessi mál með það fyrir augum að
samræma þjónustu heimahjúkrunar
á höfuðborgarsvæðinu.
í dag sinna nokkrir aðilar þessari
þjónustu. Auk Heilsuverndarstöðv-
arinnar og heilsugæslustöðvanna
sinna sjálfstætt starfandi hjúkrun-
arfræðingar heimahjúkrun. Einnig
hafa ýmsar sjúkrastofnanir áhuga
á að fara út í heimahjúkrun með
það að markmiði að sinna sjúkling-
um sem útskrifaðir hafa verið af
sjúkradeildum. Þetta eru t.d.
krabbameinsdeildir og barnadeild
Landspítalans. Ragnheiður sagði að
með nefndarstarfinu væri fyrirhug-
að að reyna að samræma þetta
starf, t.d. vaktafyrirkomulag og
fleira, en eins að reyna að koma
með tillögu um hvert menn vilji
stefna með heimahjúkrun í Reykja-
vík.
N \Ja Ib : HHmk m . l
■ mm fiív . i 1
W i r W |i
HBKr-H .JH
L. —á —.—.—L—— -
Á
Staða heimahjúkrunar krufin
Morgunblaðið/Sverrir
annað hundrað manns sóttú ráðstefnu Landssamtaka heilsugæslustöðva um heimahjúkrun.
Fyrirlestur
fyrir verð-
andi hund-
eigendur
GUÐRÚN R. Guðjohnsen, for-
maður Hundaræktarfélags
íslands, heldur fyrirlestur um
hundahald í Gerðubergi í
kvöld, miðvikudag. Fyrirlest-
urinn er einkum ætlaður þeim
sem hug hafa á að fá sér
hund.
Fjallað verður um uppruna
hundsins, meðferð hans og þarf:
ir, atferli og tjáningarform. í
fréttatilkynningu frá HRFÍ seg-
ir að ennfremur verði rætt um
reglur og skyldur hundeigenda,
hreinrækaða hunda, blendinga,
meðalævi þeirra og annað sem
viðkemur hundahaldi.
„Hundaræktarfélag Islands
er 25 ára á þessu ári. Þetta er
hagsmunafélag allra hundeig-
enda, hvort sem hundar þeirra
eru hreinræktaðir eða ekki. Fé-
lagið veitir einnig ýmiskonar
fræðslu varðandi hundahald,
rekur m.a. hundaskóla og skipu-
leggur hundasýningar."
Fyrirlestrar verða haldnir
næstu miðvikudagskvöld í
Gerðubergi kl. 20. Aðgangur er
ókeypis.
■ ÞINGSTÚKA Reykjavíkur,
sem er sameiginlegur vettvangur
þeirra átta stúkna sem starfa í
borginni, hélt aðalfund sinn laugar-
daginn 9. apríl. Á aðalfundinum var
gerð grein fyrir starfí liðins árs og
þessar ályktanir samþykktar. 1.
Þingstúka Reyjavíkur skorar á
Alþingi og stjórnvöld að veita stór-
auknu fé til forvarnastarfs í vímu-
efnamálum og tryggja um leið að
það fé nýtist til hins ítrasta til virks
og raunverulegs fornvarnastarfs í
umsjá þeirra aðila sem ráðuneyti
heilbrigðismála felur yfirstjórn
þeirra fjármuna. 2. Þingstúka
Reykjavíkur skorar á Alþingi og
• stjórnvöld að standa fast gegn öll-
um einkavæðingsáformum varð-
andi áfengissölu og hamla sem best
gegn ásókn áfengisauðvaldsins í
auknar tilslakanir á öllum sviðum.
Hver slík tilslökun kallar á aukna
neyslu áfengis með alvarlegum og
kostnaðarsömum afleiðingum í kjöl-
farið. Aðhald sem virkast í áfengis-
málum er ótvírætt þjóðhagslega
hagkvæmt sem og gæfuauki ein-
staklingunum. Núverandi þing-
templari er Helgi Seljan fv. alþing-
ismaður.
■ MYNDAKVÖLD Kínaklúbbs
IJnnar Guðjónsdóttur, ballett-
meistara, verður í kvöld, miðviku-
dagskvöld, á heimili hennar,
Reykjahlíð 12, kl. 21. Þar verða
sýndar litskyggnur úr fyrri ferðum
Kínaklúbbsins til Kína. Þar sem
húsrýmið er takmarkað þarf að til-
kynna þátttöku.
■ FRAMBOÐSLISTI Sjálfstæð-
isflokksins í sameinuðu sveitarfé-
lagi á utanverðu Snæfellsnesi 28.
maí er þannig skipaður: Páll Ing-
ólfsson, framkvæmdastjóri, Ólafs-
vík, Ásbjöm Óttarsson, sjómaður,
Rifí, Pétur Pétursson, útgerðar-
maður, Breiðuvík, Ólafur Rögn-
valdsson, framkvæmdastjóri,
Hellissandi, Björn Arnaldsson,
skrifstofumaður, Ólafsvík, Mar-
grét Björk Björnsdóttir, hús-
freyja, Böðvarsholti, Staðarsveit,
Jóhannes Ólafsson, prentari, Ól-
afsvík, Örn Arnarson, stýrimaður,
Hellissandi, Jónas Kristófersson,
húsasmíðameistari, Ólafsvík, Sig-j
urbjörg Kristjánsdóttir, banka-
maður, Ólafsvík, Jóhann Kristins-
son, útgerðarmaður, Hellissandi,
Ólína Gunnlaugsdóttir, bóndi,
Ökrum, Breiðuvík, Gunnar Berg-
mann Traustason, verkstjóri, 01-
afsvík, Kolbrún ívarsdóttir,
verkakona, Rifi, Þórður Stefáns-
son, framkvæmdastjóri, Ólafsvík,
Jóhanna Bára Ásgeirsdóttir, hús-
freyja, Lýsuhóli, Staðarsveit, Sig-
urlaug Egilsdóttir, bókari, Ólafs-
vík og Margrét Vigfúsdóttir,
stöðvarstjóri, Ölafsvík.
Höfóar til
.fólks í öllum
starfsgreinum!