Morgunblaðið - 27.04.1994, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 1994
43
Hneisa Háskólans á
Frá Sveinbimi Jónssyni:
Nýlega sendi Háskólinn á Akur-
eyri frá sér skýrslu sem virðist vera
sett smábátasjómönnum á Íslandi
til höfuðs. Skýrsla þessi er bæði
ónákvæm og byggð á þröngum for-
sendum. Hún er ónákvæm vegna
þess að höfundi virðist vera ókunn-
ugt um að fyrir daga kvótakerfísins
fór nokkur hluti smábátaafla utan
við hafnarvogir, enda verkuðu
margir smábátasjómenn afla sinn í
salt og þó nokkur hluti soðfiskafla
landsmanna kom einnig af trillum
án þess að vera skráður á hafnar-
vogum. Hún er byggð á þröngum
forsendum vegna þess að þeir sem
báðu Háskólann um að gera hana
eru sjúkir menn, sjúkir af græðgi
sem hefur skaðað fjölda annarra
íbúa þessa lands auk þess að vera
vistkerfí hafsins umhverfís landið
stórhættuleg. í skýrslu þessari er
jafnvel gengið svo langt að reikna
út meint tjón einstakra skipa á
Norðurlandi vegna smábáta og
reynt að láta það líta svo út að
Norðlendingar hafí tapað hlutdeild
vegna veiða smábátanna. Stað-
reyndin er hins vegar sú að Norð-
lendingar hafa bætt hlutdeild sína
bæði hvað varðar heildarafla og
þorsk. Samkvæmt Útvegi 1992 var
þorskhlutdeild Norðurlands árið
1984 26,7% en er komin í 27,9%
1992 o g af heiidarafla var hlutdeild-
in 24,2% 1984 en er komin í 26,3%
1992. Samkvæmt skýrslunni er
smábátaafli Norðlendinga óveru-
legur og verður því ekki betur séð
en að landsvæði sem byggir afkomu
sína meira á smábátum hafí tapað
hlutdeild yfír til Norðurlands. Þetta
er staðreynd sem verkkaupi skýrsl-
unnar vill ekki hafa í hámæli enda
er tilgangur hans fyrst og fremst
sá að koma höggi á smábátasjó-
menn í þeirri von að stjómendur
þessa lands iáti blekkjast til órétt-
mætra aðgerða gegn smábátasjó-
mönnum svo hann geti fengið ein-
hvern hlut af hræinu. Til frekari
fróðleiks vil ég leyfa mér að gera
samanburð á tveim bæjarfélögum.
Annað er Suðureyri sem byggir
mjög mikið á trillum eftir að hafa
glatað mest öljum kvóta sínum, hitt
er Akureyri. Árið 1984 var þorsk-
afli á Suðureyri 3.250 t, 1,15% af
heildarþorskafla landsmanna en
1992 var hann kominn niður í 1.521
t eða 0,57% af heildinni. Árið 1984
var þorskafli Akureyringa 11.415
t, 4% af heildarþorskafla lands-
manna en árið 1992 var hann kom-
in í 15.152 t eða 5,7% af heildinni.
Þegar kvótakerfíð var sett á voru
mannréttindi fólks í sjávarþorpum
landsins eignuð útgerðarmönnum
og gerð að söluvöru. Afleiðingarnar
VELVAKANDI
SUNDURLEIT
HJÖRÐ R-LISTANS
MIG langar að koma á framfæri
þakkiæti til Leós Ingasonar í
framhaldi af grein hans sem birt-
ist í Morgunblaðinu 20. apríl sl.
í greininni tekur hann til með-
ferðar málefni sem ég held að
mörgum sé ofarlega í huga.
Hvaða fyrirbæri er hinn svokall-
aði Reykjavíkurlisti, eða R-listi,
og hvaða fólk er það sem stendur
á bak við hann? Hver er bak-
grunnur þessa fólks og hvað
hyggst það gera í málefnum
borgarinar? Stefnuyfirlýsing
þessarra íjögurra gjörólíku
stjórnmálaflokka er afar óljós og
er engu líkara en reynt sé að
forðast að gera grein fyrir mál-
unum. Þá dettur manni auðvitað
í hug að þetta blessaða fólk hafa
ekkert markvert fram að færa
og ekki er það traustvekjandi
fyrir kjósendur. Hvernig í ósköp-
unum ætlar þetta fólk líka að
samræma ólíkar stefnur og
áherslur þeirra stjómmálaflokka
sem standa að baki þeim?
ísól Fanney Ómarsdóttir
GÓÐ ÞJÓNUSTA
MIG langar fyrir hönd okkar
hjónanna að koma á framfæri
innilegu þakklæti til starfsfólks
Slysa- og gæsludeildar Borgar-
spítalans fyrir mótttökurnar þeg-
ar Sigurður, 10 ára sonur okkar,
kom þangað eftir höfuðhögg sl.
föstudag. Meðferð og umönnun
sjúklingsins var til fyrirmyndar
og við nutum öll einstakrar um-
hyggju og hjartahlýju starfsfólks-
ins.
María Einarsdóttir
TAPAÐ/FUNDIÐ
Svefnpoki tapaðist
APPELSÍNUGULUR poki sem
innihélt nýjan svefnpoka af gerð-
inni Ajungilak tapaðist af topp-
grind bíls á leiðinni frá Reykjavík
að Biskupstungum sl. fimmtu-
dagsmorgun. Finnandi vinsam-
lega hringi í síma 622339.
Næla ta.paðist
SPÍRALLÖGUÐ gullnæla tapað-
ist síðdegis laugardaginn 9. apríl
sl. Mögulegt er að hún hafa týnst
í nágrenni Kringlunnar eða Borg-
arkringlunnar. Skilvís fínnandi
vinsamlega hringi í Sigrúnu Stef-
ánsdóttur í vinnusíma 693812 eða
heimasíma 10881. Góð fund-
arlaun.
Bamateppi
HANDPRJONAÐ bamateppi
fannst við Geysishúsið síðasta
vetrardag. Upplýsingar í síma
12206. Sigrún.
Hringur tapaðist
GULLHRINGUR með tveimur
glæmm steinum og einum svar-
bláum tapaðist miðvikudaginn
20. apríl. Mögulegir staðir em á
leiðinni frá Kringlunni að Álfhóls-
vegi og þaðan í búðina 11-11 í
Þverbrekku. Skilvís finnandi vin-
samlega hringi í síma 46960.
Giftingarhringur tapaðist
GIFTINGARHRINGUR með
áletmninni „Þín Halldóra" tapað-
ist í desember á síðasta ári.
Finnandi vinsamlega hringi í sími
46960.
Skíðaskór fannst
BARNASKÍÐASKÓR fannst á
leiðinni frá Þingvöllum að Grafn-
ingsafleggjaranum. Eigandi hafí
samband í síma 674234.
GÆLUDÝR
Goðheimar - Páfagaukur
BLÁR páfagaukur flaug út um
glugga við Goðheima 23 sl.
fímmtudag. Geti einhver gefið
upplýsingar um fuglinn er hann
vinsamlegast beðinn að hringja í
síma 680418.
Læða í heimilisleit
GULLFALLEG svört og hvít fjög-
urra ára læða, róleg og heima-
kær, óskar eftir nýju heimili.
Upplýsingar í síma 40043.
Kettlingar
FJÓRIR sjö vikna kettlingar og
mamma þeirra óska eftir góðu
heimili. Upplýsingar í síma
71659.
Akureyri
eru eignarýrnun og hrikaleg óvissa
í mörgum þessara þorpa. Eina
bjargræðið sem mörg þeirra hafa
er að stórauka smábátaútgerð. ís-
lenskir smábátasjómenn geta því
verið stoltir af hlutverki sínu þessa
dagana því þeir eru ekki aðeins að
bjarga sjálfum sér heldur eru þeir
í mörgum tilfellum eina von byggð-
arlaganna. Á sama tíma hefur tog-
arafloti landsmanna stóraukist að
afkastagetu og er nú ein hættuleg-
asta umhverfisógnunin í Norður-
Atlantshafi, svo hættuleg að stór-
þjóðir umhverfis okkur skefla. Tog-
arar þessir eru í stöðugt ríkara
mæli hráefnisöflunartæki fyrir út-
lendinga enda er atvinnuleysi hér á
landi komið á hættulegt stig. Það
eru eigendur þessarar togara, sjúk-
ir af græðgi, sem kaupa Háskólann
á Akureyri til árásar á smábátasjó-
menn. Þeir hafa aldrei viljað skilja
að það eru þeir sjálfír sem bera
ábyrgð á ástandi fískistofna hér við
land en ekki trillukarlamir.
Undirritaður hefur orðið að
byggja mat sitt á vinnu Háskólans
á Akureyri á úrdrætti enda treystir
hann sér ekki til að greiða þær
15.000 kr. sem umráðamenn
skýrslunnar settu upp. Það verður
hins vegar að vera hneisa Háskól-
ans á Akureyri að neita trillukarli
um aðgang að efni sem Háskólinn
hefur látið kaupa sig til að smíða
honum til höfuðs.
Að lokum vil ég leyfa mér að
birta hér erindi sem ég sendi há-
skólarektor Háskólans á Akureyri
I kjölfar af fréttaæsingi sem átti
sér stað við útgáfu þessarar dýru
skýrslu.
SVEINBJÖRN JÓNSSON,
smábátasjómaður, Súgandafirði.
LEIÐRÉTTINGAR
Nokkrar línur
féllu niður
Nokkrar línur féllu niður úr
minningargrein séra Björns Jóns-
sonar um Svein Kristjánsson á
blaðsíðu 46 í Morgunblaðinu 21.
apríl. í kaflanum, sem fyrir hnjask-
inu varð, vom talin upp í aldursröð
börn Sveins og eiginkonu hans,
Undínu Árnadóttur, en þau urðu
sjö talsins: Rafn, kvæntur Kristínu
Jónasdóttur, þau búa á Akureyri;
Árni Kristján, dmkknaði fjögurra
ára gamall; Sveinn Brynjar, kvænt-
ur Sigurlaugu Hinriksdóttur, þau
búa á Akureyri; ívar Matthías,
kvæntur Sjöfn Magnúsdóttur, þau
búa á Neskaupstað, Árni Viðar,
kvæntur Margréti Sigmundsdóttur,
þau em búsett í Reykjavík; ogyngst
em tvíburasystkinin Ingibjörg
Hrönn, gift Pétri Kjartanssyni, og
Kristján Amar, kvæntur Gullveigu
Ósk Kristinsdóttur, sem bæði búa
í Reykjavík. Barnabörnin em 14
talsins o g tvö langafabörn hafa litið
dagsins ljós.
Sagt var í greininni, að Sveinn
hefði unnið hjá syni sínum við versl-
unarrekstur, en þar átti að standa
sonarsyni.
Hlutaðeigendur em innilega
beðnir afsökunar á þessum mistök-
um.
ÖRYGGIS OG
GÆSLUKERFI
FRÁ ELBEX
Var fæddur 1911
Á undan minningargrein Hauks
Eggertssonar um Benedikt Sigfús-
son úr Forsæludal er ranglega farið
með fæðingarár Benedikts; hins
vegar er rétt með það farið í grein-
inni sjálfri, hann fæddist í For-
sæludal í Vatnsdal 21. maí 1911.
Hlutaðeigendur eru innilega beðnir
afsökunar á þessum mistökum.
SPARIÐ TÍMA FÉ
OG FYRIRHÖFN
og skapið öruggari
vinnu og rekstur með
ELBEX sjónvarpskerfi.
Svart hvítt eða í lit,
úti og inni kerfi.
Engin lausn er of
flókin fyrir ELBEX.
Kynnið ykkur möguleikana.
Einar Farestvett & co hf.
Borgartúni 28, sími 91-622900
XJöfðar til
XJL fólks í öllum
starfsgreinum!
QUATTRO stigateppi
HENTUG - SMEKKLEG - ÓDVR
Þola hreinsun með klórblöndu!
] LITRÍKUR
SPRETTHLAUPARI
Innlæst litakorn tryggja varanlega og samfellda litun.
EKKERTBERGMÁL
Hljóðeinangrandi eiginleikar Imprel-CR tryggja
gott hljóöfsog.
GLEOUR AUGAÐ
Samræmdir og skýrir litir gera teppið
eins og gamalt málverk í nýjum
ramma. Litir falla saman í eina heild á
stórum sölum.
SANNURHARÐJAXL
Þrlsfrenda formið I nylonþræðinum tryggir
frábært álagsþol.
BLÁSie Á BLETTI
Flestir óhappablettir hverfa auöveldlega.
Á erfiðari bletti má nota klórefni.
ENGIN RAFSTUÐ
BEKINOX leiöandi málmþráður ofinn í
garnið gerir teþþið varanlega
afrafmagnað.
Engin óþægileg stuð
vegna
stöðuspennu.
ENGAR TROÐNAR 5LÓÐIR
Þristrend bygging Imprel-CR nylonþráðanna tryggir
frábært fjaðurmagn og endurreisn á teppaflosinu. Hinn
þétti svampbotn er gerður úr Baysal T — hágæða
latexi frá Bayer.
AUÐÞRIFIÐ
Teppin eru auðþrtfin án þess að litir láti á sjá —
' jafnvel á miklum álagssvæðum.
BRUNAPOLIÐ
BS 4790 brunaþolspróf: Imprel—CR teppi á
actionbotni sýna lítinn íkveikjuradíus (WIRA-prófað).
□RKUSPARANOI
Imprel-CR teppi eru mjög einangrandi og draga því
úr hitunarkostnaöi.
Stigahúsatilboð til 21. mai
20% afsláttur af Quattro
stigateppum en það samsvarar
ÓKEYPIS LÖGN
á stigahúsið. Leitið tilboða.
Við mælum, sníðum og leggjum, fljótt
og vel. Fjarlægjum gömul teppi.
SUÐURLANDSBRAUT 26 - SÍMI 681950