Morgunblaðið - 08.05.1994, Page 2

Morgunblaðið - 08.05.1994, Page 2
2 B SUNNUDAGUR 8. MAÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ þegar ég kem næst.“ Þá varð ég rólegri." - Hvers vegna var þér svona illa við að hitta Sigurgeir? „Ég var svo hræddur við allt, ég var svo feiminn við alla hluti, bæði við að láta heyra í mér, og eins þeg- ar gestir komu og maður var sýnd- ur, þetta var afskaplega þvingandi. Ég var óvenjulega feiminn, og faldi mig þegar ég gat fyrir gestum. Ég átti yngri bróður sem Gunnar hét, hann var miklu kátari og léttlyndari en ég. Hvorugt foreldra minna, þeirra Kristjáns Árnasonar og Hólm- fríðar Gunnarsdóttur, var svona, það var mikill gestagangur heima, mikið um námsmenn, piltar úr sveitinni fengu að vera þar meðan þeir voru í skólanum á Akureyri. Pabbi rak verslun á Akureyri en hafði byijað sem verslunarstjóri hjá Magnúsi á Grund, þar er ég fæddur og þaðan á ég mína fyrstu endurminningu. Þá var ég tveggja ára og fékk að fara með þegar pabbi var að spila á orgel- ið ( Grundarkirkju, hann var organ- isti þar. Ég sat á bæjarhellunni og nagaði kleinu sem húsmóðirin hafði gefið mér. Ég var sæll og glaður og horfði á þegar hún fór að gefa hænsnunum sem þarna voru líka. í hópi þeirra var geysilega stór hani og voðalega rembingslegur. Hann sá að ég var að eta eitthvað og spígspor- aði í áttina til mín. Ég sá hann nálg- ast og varð óskaplega hræddur. Þeg- ar hann var kominn að mér svipti hann sér til og kippti af mér klein- unni. Þetta var algert sjokk, heimur minn hefur ekki verið mér samur síðan, þetta var svo ógurleg reynsla. Ég var óttalegur vonarpeningur eftir þetta, þoldi ekki þoku, var astmatísk- ur og svo mætti lengi telja. Pabbi tók við verslun Magnúsar á Akur- eyri. Hún var byggð fyrir tengdason Magnúsar. Hann missti konu sína og fór til Reykjavíkur en pabbi fór í búðina og eignaðist hana með tím- anum.“ Fór í tónleikaferó tólf ára Wagner og tónlist hans kemur til umræðu á ný: „Ég fór í tónleikaferð til Húsavíkur og víðar með Benedikt Elfar þegar ég var tólf ára. Benedikt var undarlegur maður, menntaður guðfræðingur, síðan lærði hann söng í Danmörku. Um tíma var hann söng- kennari en settist svo að í Reykjavík sem leikfangasmiður. Hann spilaði vel á harmoníum og lék t.d. mjög vel verk eftir Bach. Eg var lítið far- inn að spila hann þá og Wagner kunni ég ekki að meta fyrr en seinna. Beethoven kom fyrst til mín og Moz- art — svo Chopin þegar ég fór að verða rómantískari. Þegar ég kom til Þýskalands varð ég alveg gagn- tekinn af rómantíkinni, bæði í tónlist og bókmenntum. Ég var fímmtán ára þegar ég kom þangað, þá byij- aði ég að læra. Frændi minn Stefán Pétursson, seinna ritstjóri Alþýðu- blaðsins og þjóðskjalavörður, var þá kominn til náms í Þýskalandi. Þetta var 1921 og það var mjög ódýrt fyr- ir námsmenn að vera í Þýskalandi þá. Verðbólgan var voðaleg, markið féll og féil, menn höfðu ekki við að prenta, það var meira að segja prent- að yfir gamla seðla, allt var notað. Fólkið flýtti sér á hveijum degi að nota peningana sína því þeir urðu helmingi minna virði daginn eftir. Fyrst hækkaði markið um þúsundir á dag en það endaði með því að það hækkaði um milljarða á dag áður en það var stabflíserað árið 1924. Við fórum með peningana í töskum og alla vasa fulla til þess að kaupa brauð og mat. Ég var í námi hjá einkakennurum. Ég samdi við kenn- arann minn í hljómfræði um að greiða honum sem svaraði einu kílói af margaríni fyrir hvem tíma, ég þurfti alltaf að byija á því að fara inn í búð til þess að vita hvað margar- ínið kostaði áður en ég fór í hljóm- fræðitíma. Píanónámið stundaði ég hjá Isolde, dóttur Xavers Scharw- enka, tónskálds og píanósnillings. Hann var prófessor við frægt konser- vatoríum, frábær kennari og komp- ónisti. Hann tók mér svo vel, þessum feimna sveitapilti ofan af íslandi." Slátraöi átta konum „Lífið var bijálað í Þýskalandi á þessum tíma. Það var mikil reynsla fyrir viðkvæma sál að koma þama og fá heiminn strax inn á sig. Fyrsta sem ég las þegar ég kom þangað var að frægur morðingi hafði hengt sig í fangaklefa í axlaböndunum sín- um. Hann hafði slátrað átta konum og selt þær í pylsur. Svona var stemmningin. Morð voru framin og vændi stundað, allt slíkt var í há- marki — en tónlistarlífið stóð líka á hátindi. Til Berlínar komu allir sem eitthvað höfðu að segja í músík. Þijú ópemhús voru í Berlín þegar ég kom þangað og vom orðin fimm þegar yfir lauk. Mörg konservatoríum vom þar, allt sem hugsast gat — ég lenti þama mitt í hringiðu tónlistarinnar og lífsins. Ég hlustaði eins mikið á músík og ég gat. Waldrómantíkin þýska er fræg, ég mætti Lorelei, hexinni, í einum skóginum og hef ekki síðar fundið leiðina út úr hon- um. í Þýskalandi er rómantíkin öll bundin í skóga. í Niflungahring Wagners er þetta augljóst. Strax í Valkyijunni er komið inn í skóginn. Ég sá margar ópemr Wagners í Berlín, heyrði meira að segja Pétur Jónsson syngja í Lohengrin. Ég þekkti Pétur og kom oft heim til hans. Seinna kom hann heim og söng í Iðnó. Veran í Þýskalandi þroskaði mig, ég fór á alla mögulega staði þar, enda fylgdi ég íslensku stúdentunum hvert sem þeir fóm. Ég sá margt, kannski of margt, en það skemmdi mig ekki, ég lærði að sjá hlutina díalektískt. Lífið hefur fallegar og ljótar hliðar, það heyrir saman illt og gott. Ég taldi mig vera guðleys- ingja á þessum ámm, gaf mig þann- ig fram, en eigi að síður trúði ég á kölska, hann er andhverfa þess góða í lífinu. Ég fór í kirkjur til þess að hlusta á tónlistina þar. Landflótta Rússar, sem allt var fullt af í Berlín komu sér upp kirkjum og líka knæp- um með balalaika strengjaleik. Þeir drógu til sín mikla listamenn austan að, svo sem Horowitz, Rakhmaninoff og Karsavina. Þá má ekki gleyma Ieiklistarlífinu sem líka var á hátindi þegar þetta var. Menn eins og Max Reinhart og Wassermann stjórnuðu uppfærslum leikhúsanna. Ég sá sýn- ingar með frægum leikumm, t.d. Jannings og Palenberg, Fritzy Mass- any og Marilene Dietrich." Höndin bilaói „Námið var mér erfitt af því að ég þoldi það varla. Það bilaði á mér höndin og ég hef átt í stríði við það alla mína tíð. Liðpokinn utan um úlnliðinn fylltist af vökva svo stór kúla myndaðist á liðnum. Læknar vildu skera þetta en það vildi ég ekki, þá hefði ég verið búinn. Þetta byijaði reyndar á íslandi. Þá fór ég til lækna í Reykjavík sem töldu þetta vera berkla. Ég fór norður á Ákur- eyri og var þar í ljósum hjá Stein- grími Matthíassyni Iækni, síðar tengdaföður mínum. Þegar til kom reyndust þetta ekki vera berklar." - Þú varst heppinn að þetta var vinstri höndin, segi ég. „Nei, það var ekki heppni, ég hefði þurft að vera betri í vinstri hendinni en þeirri hægri,“ segir Árni og brosir. „Sú vinstri þarf að gera svo miklar hreyf- ingar þegar maður spilar. Þeir sem em örvhentir geta spilað Byltingar- etýðuna eftir Chopin alveg eins og ekkert sé. Best væri að vera jafnvíg- ur á báðar hendur. Ég er svo díalektískur í mér að ég sá frá upphafi eitthvað gott í því að þurfa að stríða og líða, af því lærir maður og veit að hveiju ber að stefna. Ég lærði margt gott af Brúókaupsmynd af Árna og önnu som Árni kallar kjötsúpumyndina. „Handleggurinn á mir or oins og kindarleggur sem okki hofur onn verió brot- inn til mergjar." var allt svo hart. Ég get sagt dæmi um það. Ég fór að hlusta á níundu sinfóníu Beethovens, sem er það stærsta sem ég hef upplifað og fékk svo á mig að ég vissi ekki af mér um tíma. í síðasta þættinum, kór- þættinum þar sem hann syngur til gleðinnar og tónarnir verða æ vold- ugri, þá fannst mér allt blóðið streyma út úr líkamanum. Á eftir skjögraði ég út og fékk mér titrandi sígarettu, ég var farinn að tíðka það að reykja. Þá komu til mín lögreglumenn með hjálma og í stígvél- um og bönnuðu mér að reykja. Þjóðveijar voru voðalega óþolandi þá. Þeir bönnuðu allt, það var meira að segja bannað að kyssa konur á bekkjunum við höfn- ina.“ „í Kaupmannahöfn þurfti ég stundum að hvíla höndina mánuðum saman, námið gekk því skrykkjótt og ég var oft örvæntingarfullur. En ég gat ekki hugsað mér að leggja neitt annað fyrir mig en tónlist, hún var allt mitt líf. Ég lærði af þessu að láta hveij- um degi nægja sína þjáningu og sætta mig við að áætlanir brygðust. Þetta mjak- aðist þó áfram og árið 1929 kom ég heim til Islands ásamt Kristjáni Kristjánssyni söngvara og við héld- um tónleika, þá fyrstu sem ég hélt hér. Árið 1932 flutti ég heim og kvæntist það ár Önnu dóttur Stein- gríms læknis Matthíassonar. Við höfðum vitað hvort af öðru frá æskuárum en sumarið 1931 fórum við að vera saman. Við fórum svo út til Þýskalands og ætluðum að vera þar um tíma, en þá var Hitler að komast til valda og ástandið ugg- vænlegt. Við vorum að koma af tón- leikum hjá Wilhelm Kempff þegar Hitler var veittur kanslaratitillinn af Hindenburg marskálki sjálfum. Við sáum hann standa úti á svölum kanslarahallarinnar í Wilhelmstrasse ásamt Hindenburg, það var söguleg stund og allt var krökkt af fólki og stormsveitum nasista. Skömmu síðar yfirgáfum við Þýskaland og fórum heim. Þá var ég atvinnulaus og alls- laus og hafði fyrir konu að sjá og brátt fæddist okkur sonur. Þá vildi mér til að mér bauðst kennarastaða við tónlistarskólann í Reykjavík, sem þá var nýlega tekinn til starfa." i brumi „íslenskt tónlistarlíf var í brumi þegar ég kom til starfa í Tónlistar- skólanum árið 1933. Verið var að útskrifa fyrstu fjóra nemendurna. Stundum komu gestir að utan og héldu tónleika, ég lék undir fyrir marga erlenda gesti. Konsertar, bæði á sviði og í útvarpi, voru hluti af starfsskyldum mínum auk kennsl- unnar. Þeir sem stóðu fyrir skólanum voru peningalitlir svo svigrúm til lau- nagreiðslna var ekki mikið, skólinn var líka á hrakhóium með húsnæði, stundum rigndi svo inn í kennsluher- bergið að við lá að ganga þyrfti um það á skóhlífum, og oft var kalt. En ég fékk góða nemendur, Rögnvaldur Siguijónsson var einn af þeim fyrstu og síðan komu þeir hver af öðrum sem lengst hafa náð hér og auðvitað margir fleiri. Á sumrin vann ég hitt og þetta á Akureyri, kenndi, gaf út ljóðmæli Matthíasar Jochumssonar og hitt og annað. Það var lítill gróðavegur að vera píanóleikari og tónlistarkennari á þessum tíma. Eigi að síður sá ég aldrei eftir að hafa Iagt út á tónlistar- brautina. Þótt lífið væri stundum erfitt hafði ég alltaf ánægju af mús- íkinni sjálfri. Ég eignaðist góða vini í sambandi við hana, svo sem Pál ísólfsson hollvin minn. Ég varð með tímanum hans hægri hönd við skóla- stjómina. Björn Olafsson var líka góður vinur minn, við héldum saman konserta í mörg ár, það var alltaf F.w. Árni og Björn Ólafsson fióluleikari. þessum veikindum en ýmislegt ljótt líka. Læknir, sem sagði að ég væri með berkla og vildi fá mig á sanator- ium, lét mig ganga með spíritusbindi og drekka eitt staup af eggjakoníaki á dag. Mér þótt þetta svo hryllilega vont og komst alls ekki upp á það þá. Það gerðist löngu síðar að mér fór að þykja vín gott. Nú er ég hætt- ur að geta drukkið og þykir það mjög miður. í Þýskalandi bjó ég á pensjónati og fékk þar kvöldmat, brauð og súpu. Við fórum oft félagamir á restaurant til þess að fá okkur baunir með spiki sem kostuðu 50 pfenninga. Eftir að verðlag var stabílíserað í Þýskalandi var svo dýrt að vera þar að ég fór til Kaupmannahafnar. Dóttir þýska prófessorsins, sem hafði kennt mér fyrst meðan ég var byijandi, útveg- aði mér sem kennara einn af nem- endum prófessorsins. Eftir fyrsta árið hjá þeirri þýsku gat ég spilað með henni C dúr konsertinn eftir Beethoven. Ég þurfti að æfa mig klukkustundum saman þar ytra svo það var ekki nema að von að illa gengi með höndina. Ég var í sam- bandi við allra handa Iækna út af þessum vandræðum, það vom teknar röntgenmyndir af hendinni á mér og ég var sýndur læknastúdentum, hvað þá annað. Þá var ég hættur að vera feiminn við fólk — ég var hins vegar feiminn við að spila og hef alltaf verið.“ Hin sveitalega Kaupmannahöfn „Það var skemmtilegt að koma til Kaupmannahafnar, þetta var eins og að koma út í sveit eftir að hafa verið í Berlín. Mér fannst Danir ákaf- lega vinalegir. Pósturinn var í rauð- um stökkum og gardistarnir eða líf- verðimir, sungu slagara; „Elsie med det röde haar“, það var annar tónn í hermönnunum í Þýskalandi. Þar Benedikt Elfar »g Arni fúru taman í tónleikaferó. Bernskumynd. Árni vió flygilinn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.