Morgunblaðið - 08.05.1994, Side 16

Morgunblaðið - 08.05.1994, Side 16
16 B SUNNUDAGUR 8. MAÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. MAÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ + ajasthan er eitt litríkasta hérað Ind- lands í bókstaflegasta skilningi því hvarvetna setur tignarlegt fólk í skærlitum klæðum svip á umhverfið. Konur bera mikið skart; gullkeðjur hanga úr öðrum nasavæng yfir í eyra-snepil, hand- leggir eru þaktir stórum armböndum úr beini og fætur eru skreyttir silfurhringjum. Marg- ir karlar ganga enn í dhoti, hvítum bómullar- stranga sem vafinn er um líkamann. Á höfði bera þeir vefjarhött sem bundinn er sam- kvæmt hefðum hvers héraðs og láta sér vaxa yfirskegg sem þeir snúa uppá til endanna. Nútíminn hefur að litlu leyti náð að -setja mark sitt á menningu og lifnaðarhætti fólks í Rajasthan og allsstaðar er að finna ótrúlega fallegar og íburðarmilklar hallir og virki frá liðinni tíð. Á þriggja vikna yfirreið minni um Rajasthan síðastliðið haust gafst ekki tími til annars en að fleyta ijómann af þeim sjón- rænu töfrum sem þetta hérað býr yfir. Rajputar Rajasthanhérað er í norðvestur hluta Ind- lands og liggur að landamærum Pakistan í vestri. Það er þrisvar sinnum stærra að flatar- máli en ísland en telst ekki þéttbýlt á ind- verskan mælikvarða þótt íbúar séu 160 sinn- um fleiri en allir íslendingar eða á fimmta tug milljóna. Rajasthan merkir „konunga- staður“ og er heimkynni rajputanna (kon- ungssonanna) en svo nefndust hermenn ætta- flokka sem stjórnuðu landinu um þúsund ára skeið. Ekki ósvipaðir riddurum miðalda í Evrópu. Innbyrðis sundurlyndi rajputanna veikti stöðu þeirra gegn sameiginlegum óvini og urðu þeir lénsríki mógúlska heimsveldisins í lok 16. aldar. Um miðja 18. öld þurftu rajp- utríkin að glíma við vaxandi yfirráð Breta en flest ríkin gerðu samninga við þá um sjálf- stæði og áframhaldandi yfirráð maharaj- anna. Þeir urðu í staðinn að lúta ákveðnum stjómmála- og viðskiptakvöðum. Þetta var upphafið að endalokum rajputveldisins. Þeg- ar Indland hlaut sjálfstæði árið 1947 varð ríkisstjómin að semja sérstaklega við rajput- ríkin til að tryggja friðsamlega innlimun þeirra í hið nýja Indland en leiðtogum ríkj- anna var gert kleift að halda titlum sínum og eignum auk þess sem þeir þáðu árleg laun. Fyrir þetta var tekið í upphafi stjómart- íðar Indiru Gandhi sem svipti þá titlum, tekj- um og eignum. Sumir maharajanna héldu þó velli með því að breyta virkjum í söfn og höllum í lúxushótel en aðrir urðu utangátta ölmusumenn. Ummerki þessara rajputríkja setja enn þann dag í dag verulegan svip á Rajasthan. Virki og hallir standa enn og þar er að finna fágæta myndlistar- og handverks- kunnáttu. Bleika borgin Leið okkar lá fyrst til Jaipur, höfuðborgar Rajasthan. Þar búa 1,2 milljónir manna. Borgin heitir eftir Maharaja Jai Singh II (1699-1744) sem lagði grundvöll að bygg- ingu og skipulagi hennar. Jaipur er nefnd „bleika borgin" vegna gömlu bygginganna innan borgarmúranna sem eru byggðar úr bleikum sandsteini. Þar á meðal er Hava Mahal eða Vindhöllin sem er eitt af furðu- verkum Jaipur. Hún var byggð árið 1799 og er á fimm hæðum en er lítið annað en fram- hliðin. Gegnum fíngerðar gluggaborur vind- hallarinnar gátu konur í konungsfjölskyld- unni fylgst óséðar með mannlífinu fyrir ut- an. Skammt þar frá er annað meistaravetk, Jantar Mantar, stjörnuathugunarstöð sem Jai Singh hóf byggingu á árið 1728. Hann lét byggja fimm slíkar stöðvar á Indlandi en þetta er sú stærsta og fullkomnasta. Þarna er m. a. gríðarstórt sólúr, 30 metra hátt. Skugginn sem það myndar hreyfíst allt að fjórum metrum á mínútu. Sólúrið er mjög nákvæmt en sýnir staðartíma í Jaipur. Stjömuathugunarstöðin er ekki síst áhuga- verð sem fallegur skúlptúr. Götur Jaipur eru óvenju beinar og breið- ar, hannaðar samkvæmt fornum fræðum um borgarskipulag (Shilpa Shastra). Um þær fer eitthvert það fjölskrúðugasta samsafn farar- tækja sem við höfðum augum litið: allra- handa kerrur sem flytja smávörur milli staða, handdregnar eða settar fyrir hin ýmsu drátt- ardýr svo sem uxa, kameldýr eða hesta. O Ul M CC o o o X >• S o o I Reíðhjóiin mynda þéttriðinn massa sem líður áfram, venjuleg tvíhjól eða þríhjól fyrir öku- mann og tvo farþega sem hægt er að leigja (rickshaw). Loks eru trukkar, bílar, mótor- hjól og vélknúnir þríhjóla leiguvagnar fyrir tvo farþega. Þegar fílar, kýr og geitur bæt- ast í þessa fylkingu verður hún fullkomlega súrrealísk ásýndar. Ekki vottar fyrir umferð- arreglum umfram þær sem gilda í frumskóg- um yfirleitt og sá ökumaður sem ekki liggur á flautunni og baðar út öngum telst líklega ekki ökufær. Ekki gengur ferðamaður lengi um þessar seiðmögnuðu götur Jaipur án þess að vera ávarpaður og það jafnan með spum- ingunni: „Which country sir?“. Og það er sama hvert svarið er og sama hvert umræð- an beinist, áður en langt um líður kemur í ljós að sá sem spyr er á prósentum hjá ein- hveijum hótelstjóra eða gimsteinasala. Jaipur er því miður spillt af þeirri gróðavon sem menn eygja í ferðamönnum og því er þreyt- andi fyrir ferðamenn að ganga þar um göt- ur. Þó var gaman að láta til leiðast og láta draga sig um þröngar götur Johari Bazaar og ranghaia einhverra bygginga og enda inni í litlu herbergi fullu af skúffum með gimsteinum. Þannig kynntumst við Shyam bræðrunum sem við sátum með heilan eftirm- iðdag við tedrykkju og fræddumst um gim- steina. Allra- handa farartaeki á götum bleiku borgar- innar. Rútuferðir milii borga Um Rajasthan er best að ferðast í rútum * markaói því lestimar eru hæggengar. Rútuferðir geta * Jaipur. þó hrætt úr mönnum líftóruna því ökumátinn er oft óskaplegur og þjóðvegirnir lélegir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.