Morgunblaðið - 08.05.1994, Síða 18

Morgunblaðið - 08.05.1994, Síða 18
18 B SUNNUDAGUR 8. MAÍ 1994 AFMÆLI MORGUNBLAÐIÐ LATTU EKH FUMHLYKT OG RAKA VALQA ÞÉR EtGNATJÓNI! ikagleypirinn ei ódýi rakavöm se húsnœði og eigníi. Hvei áfyffing dugai 2 - 3 mónuðl á hveija 50 m3 NOTKUNAPMÖGULEIKAk: -á öllum stóóum sem eiu illa loftiœstii svo sem: kjötluram, þvottahúsum, baóheibeigjum, geymslum, vönihús, sumaibúslaóum, hjólhýsum, Ijaldvögnum bátum, bátaskýlum, sklpum ofl. ofl. EIGINLEIKAR: -diegui í sig raka og þunkai andiúmsloft. -kemui í veg fyrii fúaskemmdli og fúkkalykt. -kemui í veg fyrii myglu og lakaskemmdii. Sölustaölr: Sumarhús, Háteigsvegl, Esso afgrelOslur á höfuöborgarsvoeálnu. Húsasmlðlan, Skútuvogl og Hatnarflröl, Elllngsen, Ánanaustum, vélar og taekl, Tryggvagötu. Vélorka, Ánanauslum. Heildsölublrgðii: síml: 91-67 07 80 SAHARA rakagleypirinn verndar verlmæli OLAFIA PALINA M AGNÚ SDÓTTIR ÞAÐ BORGAR SIGAÐ PANTA KÍKTUÁ VERÐIÐ! Dömubolir bls. 135, 145, 8 litir, stærðir 10-20, verð kr. 1.303,- Barnabolir bls. 368, 3 í pk., kr. 1.449,- Barnagallar bls. 407, 2 í pk., kr. 1.884,- Herrabolir, stærðir s-xxl, frá kr. 796,- Yfir 1000 síður af vörum á góðu verði. Fullt af tilboðum. Lúxusferð til London fyrir tvo o.fl. PÖNTUNARSÍMI 52866 RM B. MAGNÚSSON HF. Hólshrauni 2, Hafnarfirði TEPPABÚÐIN HÚN ÓLAFÍA, fyrrum húsfreyja á Gilsfjarð- arbrekku í Austur- Barðastrandarsýslu, er áttræð í dag. Ólafía Pálína eins og hún heitir fullu nafni er Dalamaður að uppruna, fædd í Hvammsdal í Saurbæj- arhreppi, dóttir hjón- anna Magnúsar Guð- mundssonar og Ingi- bjargar Kristfríðar Bjömsdóttur. Þau vora búendur í Staðarhóls- seli á Efri-Múla og síð- ast í Belgsdal, en þangað flytja þau 1949 og búa þar til 1944 þegar Magnús fellur frá á sjötugasta og fjórða aldursári. Þau eignuðust sjö böm og ólu auk þess upp eitt stúlkubarn. Ölafía er næst- yngst sinna systkina, fædd 8. maí 1914. Ólafíu og Baldvin Sigurvinssyni eiginmanni hennar kynnist ég ekki að neinu ráði fyrr en yngsta systir mín, Bjarney, tekur upp sambúð við Sigurvin, yngri son þeirra hjóna. Var þó engin órafjarlægð á milli heimila okkar, aðeins innan við 20 km. í Belgsdal þar sem Ólafía er enn í föðurhúsum hefst sambúð þeirra Baldvins og eru þau þar búendur í nokkur ár ásamt Jóakim bróður Ólafíu. Þar fæðast þrjú elstu böm- in, dæturnar Jóna Guðmey, Ingi- björg Magnea og Elínborg Alda. Arið 1947 flytja þau svo að Gils- ijarðarbrekku. F'yrstu árin em þau þar leigjendur en kaupa síðan jörð- ina af Eysteini Eymundssyni sem þar bjó næst á undan þeim. í litlum bæ með lágreist þil og torfveggi hefst þeirra sjálfstæðisbarátta. Þar fæðast svo þrjú yngstu bömin, Smári Hlíðar, Sigurvin Helgi og Katrín Björk. Baldvin hafði áður verið kvæntur Kristbjörgu Bjarnadóttur og eign- ast með henni tvo syni, Indriða Elberg og Ragnar Birgi. Þau slitu sambúð. Eldri sonur þeirra, Indriði Elberg, fylgir föður sínum og geng- ur Ólafía honum í móðurstað nokk- uð stálpuðum. Mannkosti sína sýn- ir hún snemma með því að gera ekki mun á honum og eigin bömum í uppvextinum. Dvelur hann hjá þeim til fullorðinsára þar til hann stofnar eigið heimili allfjarri heima- byggð. Rétt fyrir jólin 1959 flytur fjöl- skyldan á Gilsfjarðarbrekku, í ný- byggt og glæsilegt íbúðarhús. Verður þá mikil breyting í lífi fjöl- skyldunnar, ekki síst húsmóðurinn- ar. Olíueldavél var bylting, því að á þessum áram á margt fólk til sveita á íslandi ennþá aðeins drauminn um þægindi rafmagns- ins, og langt var að bíða þess að það kæmi að Gilsijarðarbrekku. Bæjarstæði er fagurt á Gilsfjarð- arbrekku. Há fjöll eru að vísu all- nærri, en til suðvesturs sér yfir Stórholtsland og til byggða þar. Til norðausturs sér að Gjárholti á ofanverðum Brekkudal. En af út- sýninu þótt fagurt sé ræðst afkoma heimilanna ekki. Það þurfti útsjón- arsemi og fyrirhyggju, en þó um- Suðun/eri, Stigahlíð 45# sími 34852 ★ Frífilma ★ Afsláttarkort ★ Frf stækku n Ljósmyndastofa Gunnars Ingimarssonar fram allt vinnusemi, ráðdeild og nægjusemi til þess að sjá stækk- andi ijölskyldu far- borða. Túnið var ekki stórt og nauðsynlegt var að auka heyfeng- inn. Votlendar engjar neðan túns vora þurrk- aðar, land brotið upp og breytt í tún, Rækt- un hófst á fremur erf- iðu landi fram á dal og nú jókst töðufall til muna. Gilsijarðar- brekka hefur lengi ver- ið á mjólkursölusvæði. Baldvin og Ólafía voru jafnan með kýr þótt sauðfé væri aðalbústofninn. Nú var kúnum ijölgað og talsvert féll til af mjólk til frálags sem varð afkoma heimil- isins góð búbót. Búskapurinn varð þó engin auðsuppspretta frekar en var og er á jörðum sem líkt hagar til og á Gilsfjarðarbrekku. Að kom- ast af án þess að vera upp á aðra kominn var og verður verðugt markmið að keppa að. Því tak- marki náðu þau hjón. Börnin lögðu hönd að þeim verk- um á heimilinu sem vinna þurfti bæði úti og inni strax og þau höfðu til þess burði eins og alltaf hefur viðgengist í sveitum á íslandi. Þeim var ekki spillt eða þau gerð heimtu- frek með dýram gjöfum, ferðalög- um eða sjónvarpsglápi. Gæfu og hamingju æsku sinnar sóttu þau í erfíði daganna og þau viðfangsefni sem búskapnum tengdust. Ekki síst þess vegna urðu þau hinir nýtustu þegnar okkar þjóðfélags og eftir að þau fullorðnuðust og höfðu stofnað sín eigin heimili ijarri æskustöðvum og tóku að festa þar rætur voru þau ætíð tilbúin að vitja æskustöðvanna, veita þar aðstoð og hjálp á annatímum sveitanna foreldrum sem tóku að eldast og þreytast. A fyrri hluta þessarar aldar og víða fram um og yfir miðja öldina má segja að allt hafí skort sem telst til þæginda nú á tímum. Eldað var við mó, tað og timbur þar sem reki var. Ljósker voru fá og lýstu illa. Hýbýli vora köld í frosthörkum vetranna. Hreinlætisaðstaða á heimilum var afleit, aðdrættir allir erfíðir, fólk bar þungar byrðar oft langan veg s.s. úr kaupstað og all- an eldivið, jafnvel var til að bera þyrfti út allt skólp. Þrátt fyrir þetta minnist ég ekki annars en að fólk væri áður ekki síður lífsglatt en það er nú á dögum, það sem ég man aftur fyrir miðja þessa öld. Það höndlar ekki allt hamingjuna unga fólkið nú á dögum sem flytur inn í fullbúnar íbúðirnar sínar með öllum þægindunum. Staðreynd er að aðkeyptir hlutir verða ekki sjálf- krafa ávísun á farsæld og gæfu í lífínu. Hjarta mannsins heimtar meira en húsnæði og brauð. Án þess að^ hafa þekkt til á heimili þeirra Ólafíu og Baldvins fyrstu búskaparár þeirra ímynda ég mér að eitthvað líkt hafí verið hlut- skipti þeirra og lýst er hér á undan og ekki trúi ég öðru en að fram- koma þeirra öll svo og lundarfar hafí þá verið eitthvað líkt því sém það var eftir að ég kynntist þeim, góðlyndi, glaðværð og löngun til að fjalla um það sem horfði til betri vegar og jákvætt var í fari fólks. Sá þáttur í fari þeirra hjóna sem ég met mest og kynntist best var hjálpsemi þeirra og mikil gestrisni. Þjóðvegurinn til og frá Vestfjörðum liggur í gegnum túnið á Gilsfjarðar- brekku. Þar var og er jafnan mikil umferð yfír sumartímann sérstak- lega. Á vetrum verður oft margt til að tefja ferðir vegfarenda, ófærð vegna snjóa og eða aurskriðna eða bilanir á farartækjum. Öllum sem í einhverjum erfiðleikum lentu á ferðum sínum um Gilsfjörð var jafnan vís aðhlynning og aðstoð fólksins á Gilsfjarðarbrekku. Breytti engu hver í hlut átti. Hygg ég að sjaldan eða aldrei hafi verið tekið fyrir hjálp eða greiða. Mikill samgangur er á fé hér á milli bæja og byggða beggja vegna Steinadalsheiðar. Hún er lítil hindr- un fé sem sækir í góða sumar- haga. Mun meira er um að fé héð- an að norðan sæki suður yfir en að sunnanfé komi norður yfir. Ef hörð veður gerir snemma hausts og það snögglega kemur oft mjög margt fé fyrir á bæjum í Gilsfirði og er svo enn. Alltaf var þá góða fyrirgreiðslu að fá á bæjum þar. Óg þótt misjafnlega gengi að ná fé saman og margar og á stundum erfíðar ferðir þurfti til, þá var þó alltaf eitt sem aldrei brást, það var góðvildin og gestrisnin innanbæjar hjá húsfreyjunni á Gilsfjarðar- brekku. Ég ætla að geta eins atviks þó sjálfur væri ég þar reyndar ekki þátttakandi, sem sýnir vel mann- gerð þessarar konu. Allmikill snjór var kominn og Steinadalsheiðin var þá orðin ófær öllum þá þekktum farartækjum. Vitað var um norð- anfé fyrir sunnan. Átta menn úr Kollafírði og Bitru fóru suður gang- andi til fjársmölunar. Þeim gekk illa, bæði vegna þess hve fé var dreift, ófærðar og vegna kinda sem vildu ekki sætta sig við frelsis- skerðinguna. Það er orðið liðið á dag þegar fénu hefur verið náð saman í fjarðarbotninum. Menn eru orðnir þreyttir og slæptir og ákveða að ganga til bæja og fá sér hress- ingu. Þeir skipta sér í tvo jafna hópa og ganga til bæja á Kleifum og Gilsfjarðarbrekku, en þegar menn koma heim á síðarnefnda bæinn þá er þar enginn heima. Af ijárleitarmönnunum höfðu þau vit- að og gestrisninni höfðu þau ekki gleymt því að á útihurðina var fest- ur miði sem á var letrað eitthvað á þessa leið - Fórum út að Reykhól- um til læknis, komum fljótlega. Gjörið svo vel að ganga í bæinn, kaffið er á borðinu. Þessari ein- stöku hugulsemi þeirra hjóna segist sveitungi minn, Guðbjörn Jónsson í Broddanesi, aldrei munu gleyma. Segja má að þessu líkar hafí mót- tökurnar ætíð verið, það var sama hvört komið var á nóttu eða degi. Ég hygg að þau hjón hafi verið samhent um flesta hluti alla sína búskapartíð. Nákunnugur samtíð- armaður þeirra hefur sagt: „Ég heyrði aldrei þref eða þras eða styggðaryrði á milli þeirra." Skyldu þau vera mörg hjónin sem fá þenn- an vitnisburð afkomenda sinna? Mann sinni missir Ólafía í nóvember 1982 á sjötugasta og níunda aldursári eftir nokkur veik- indi. Þau hafa þá hætt búskap og flutt suður og eftirlátið Sigurvin yngri syni sínum og tengdadóttur jörðina. Það verður svo öllum sem til þekktu mikill harmur þegar hann deyr af slysförum á Ólafsdalshlíð einn dimmasta desemberdag sem komið hefur, árið 1984. Móðurinni var það ekki síst mikill missir. Sig- urvin hafði þá hafið uppbyggingu á jörðinni ásamt konu sinni Hug- rúnu Einarsdóttur. Við þennan hræðilega atburð var klippt á strenginn á milli bóndans og bú- jarðarinnar og þá var flestum ljóst að þessarar jarðar myndi fljótlega bíða það sama og alltof margra jarða á íslandi, að fara í eyði. En tíminn fer oft líknandi höndum um gömul sár. Afkomendur Ólafíu og Baldvins skipta nú nokkrum tugum. Hún héfur að því er ég best veit alla tíð verið frekar heilsuhraust og tekur enn vel á móti gestum sem að garði ber. Það ég hef nýfrétt. Best gæti ég trúað að hún sé ekki hætt að baka! Hún hefur búið á Akranesi í eigin íbúð í allmörg ár. Þar býr einnig Katrín yngsta dóttir hennar ásamt fjölskyldu. Ég hygg að þær líti hver til annarrar nokkuð reglu- lega, því að langt mun ekki vera á milli heimila þeirra. Ólafíu era sendar innilegar ham- ingjuóskir héðan af heimilinu í til- efni dagsins. Guðfinnur S. Finnbogason.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.