Morgunblaðið - 08.05.1994, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 08.05.1994, Qupperneq 19
ATVINNU/RAÐ- OG SMÁAUGLÝSINGAR ATVI NNU/\ UGL ÝSINGAR Framkvæmdastjóri Héraðsnefnd Eyjafjarðar auglýsir eftir fram- kvæmdastjóra. Miðað er við hálft stöðuhlutfall og að hann hefji störf 1. júlí 1994. Reiknað er með að viðkomandi hafi aðsetur í húsi Byggðastofn- unar á Akureyri á Strandgötu 29. Aðrir mögu- leikar koma þó til greina. Umsóknum skal skila til Halldórs Jónssonar, Geislagötu 9, Akureyri, fyrir 20. maí 1994, sem jafnframt veitir nánari upplýsingar. Héraðsnefnd Eyjafjarðar. SVÆÐISSKRIFSTOFA MÁLEFNA FATLAÐRA REYKJANESI Þroskaþjálfar Svæðisskrifstofa Reykjaness um málefni fatl- aðra óskar eftir að ráða til starfa þroska- þjálfa við meðferðarsambýli fyrir fatlaða í Kópavogi. Óskað er eftir þroskaþjálfa með faglegan metnað, sem tilbúinn er að takast á við krefj- andi viðfangsefni í framsæknu starfi með öflugum, faglegum stuðningi. Umsóknarfrestur er til 18. maí. Nánari upplýsingar eru veittar í síma 641822 og umsóknareyðublöð liggja á Svæðisskrif- stofu Reykjaness, Digranesvegi 5, Kópavogi. Laus störf ★ Læknaritari (136). Vinnutími fyrir hádegi (9-12/13). Vélritun eftir segulbandi. Lögð er áhersla á góða íslensku- og vélrit- unarkunnáttu. ★ Verslunarfyrirtæki (142). Tollskjöl og al- menn skrifstofustörf. Starfsreynsla er skilyrði. ★ Framleiðslufyrirtæki (135). Tölvubók- hald, afstemmingar, uppgjör. Vinnutími frá kl. 13-17. ★ Heildverslun (148). Sölustarf (fatnaður). Vinnutími kl. 9-14 frá mánudegi til fimmtudags eða frá kl. 9-16 mánudag, þriðjudag og miðvikudag. ★ Þjónustufyrirtæki (138). Símvarsla og létt skrifstofustörf. Vinnutími frá kl. 13-18. ★ Innflutningfyrirtæki (095). Lagerstarf. Meirapróf æskilegt. Aldur 20-35 ára. Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir ásamt mynd til Ráðningarþjónustu Hag- vangs hf. á eyðublöðum sem liggja frammi á skrifstofu okkar, merktar númeri viðkom- andi starfs fyrir, 16. maí nk. Hagvangur hf Hagfræði- eða viðskiptafræðinemi Opinber stofnun í Reykjavík óskar eftir að ráða til sumarafleysinga hagfræði- eða við- skiptafræðinema. Umsóknir sendist til auglýsingadeild Mbl., merktar: „K - 4795, fyrir 12. maí. Lögmaður óskast sem meðeigandi að gamalgróinni fasteignasölu í borginni. Lítið fjárframlag. Vaxandi almenn lögfræðistörf og innheimta fyrir viðskiptamenn. Góð starfsaðstaða. Með allar umsóknir verður farið sem trúnaðarmál. Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir kl. 17, 11. þ.m., merkt: „Einstakt tækifæri - 11722“. Akureyrarbær Menntasmiðja kvenna Menntasmiðja kvenna á Akureyri óskar að ráða í tvær 50% stöður frá 15. júlí nk. til loka árs 1994, með möguleika á framhalds- ráðningu. Annars vegar er um að ræða 50% stöðu ráðgjafa/leiðbeinanda og er þar krafist menntunar á sviði félagsvísinda, s.s. ífélags- ráðgjöf eða sálarfræði. Hins vegar er 50% staða skrifstofustjóra/leiðbeinanda og er þar krafist góðrar tölvuþekkingar og reynslu af rekstri. Mikilvægt er að umsækjendur hafi reynslu af og þekkingu/þjálfun í mannlegum samskiptum. Kjör eru samkvæmt kjarasamningi STAK og Akureyrarbæjar. Menntasmiðjan er þróunarverkefni á vegum Jafnréttisnefndar Akureyrarbæjar, fjármagn- að með styrkjum, m.a. frá félagsmálaráðu- neyti og menntamálaráðuneyti auk stuðn- ings Akureyrarbæjar. Verkefnið er tilraun til næstu áramóta, en markmiðið er að tryggja framhald starfseminnar. Menntasmiðjan er 16 vikna dagskóli fyrir atvinnulausar konur, með fyrirmynd í norrænum dagháskól- um/lýðháskólum. Hún er framlag íslands til norræna verkefnisins Voks Nær - þróunar- verkefnis um fullorðinsfræðslu. Kennsla í Menntasmiðjunni, ásamt daglegri stjórn, skipulagningu og rekstri, verður samvinnu- verkefni þessara starfsmanna ásamt verk- efnisfreyju Menntasmiðjunnar. Nánari upplýsingar veita starfsmannastjóri Akureyrarbæjar, verkefnisfreyja Mennta- smiðjunar og jafnréttis- og fræðslufulltrúi Akureyrarbæjar í síma 96-21000. Umsóknareyðublöð fást í starfsmannadeild Akureyrarbæjar, Geislagötu 9. Umsóknarfrestur er til 27. maí nk. Starfsmannastjóri. Leikskólastjóri Okkur bráðvantar leikskólastjóra á leikskóla Hellissands. Starfið er laust nú þegar og þyrfti viðkomandi að geta hafið störf sem fyrst. Sveitarfélagið útvegar húsnæði og greiðir flutningskostnað. Allar nánari upplýsingar gefur sveitarstjóri í síma 93-66637. Neshreppur utan Ennis. LANDSPITALINN Reyklaus vinnustaður HANDLÆKNINGADEILD Deildarlæknar Staða deildarlæknis (reynds aðstoðarlæknis) er laus til umsóknar við handlækningadeild Landspítalans frá 1. september nk. Umsóknir berist til Jónasar Magnússonar, prófessors, handlækningadeild Landspítalans, fyrir 1. júní nk. Nánari upplýsingar veita Þórir Njálsson, Kristján Óskarsson og Auður Smith, deildarlæknar, í síma 601000 (kalltæki). GEÐDEILD Læknaritari Læknaritari óskast til starfa á geðdeild Land- spítalans nú þegar. Um er að ræða fullt starf. Nánari upplýsingar veitir skrifstofu- stjóri í síma 601701. Umsókríir, ásamt upplýsingum um fyrri störf, sendist skrifstofu geðdeildar Landspítalans fyrir 24. maí 1994. Hjúkrunarfræðingur Staða hjúkrunarfræðings á deild 33A, Landspítalalóð, er laus til umsóknar. Á deild- inni eru 15 rúm. Fjölþætt meðferð er fyrir áfengis- og vímuefnasjúklinga og einnig meðferð við almennum geðsjúkdómum. Að- lögunartími og reglubundin fræðsla eru í boði. Aðstaða á deildinni er mjög góð. Vinnutími eftir samkomulagi. Nánari upplýsingar gefur Jóhanna Stefáns- dóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í símum 601750, 602600 eða 602890. SUMARAFLEYSINGAR Sjúkraliðar Sjúkraliðar óskast til sumarafleysinga á lyf- lækningadeildir, kvennadeild, krabbameins- lækningadeild og Vífilsstaðaspítala. Upplýsingar gefa viðkomandi hjúkrunarfram- kvæmdastjórar eða skrifstofa hjúkrunarfor- stjóra í síma 601300. RÍKISSPÍT AL AR Ríkisspítalar eru einn fjölmennasti vinnustaður á íslandi með starfsemi um land allt. Sem hóskólasjúkrahús beitir stofnunin sór fyrir markvissri meðferð sjúkra, fræðslu heilbrigðisstótta og fjölbreyttri rannsóknastarf- semi. Okkur er annt um velíerð allra þeirra, sem viö störfum fyrir og með, og leggjum megináherslu á þekkingu og virðingu fyrir einstaklingnum. Starfsemi Ríkisspítala er helguð þjónustu við almenning og við höfum ávallt gæði þjónustunnar, gagn hennar og hagkvæmni að leiðarljósi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.