Morgunblaðið - 08.05.1994, Side 23

Morgunblaðið - 08.05.1994, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 8. MAÍ 1994 B 23 ATVINNUAUGÍ YSINGAR Leikskólar Reykjavíkurborgar Óskum að ráða fóstrur í fullt starf á eftirtalda leikskóla: Álftaborg v/Safamýri, s. 812488. Brákarborg v/Brákarsund, s. 34748. Hálsaborg v/Hálsasel, s. 78360. Nánari upplýsingar gefa viðkomandi leikskólastjórar. Dagvist barna, Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 27277. Gæðastjórnun Nemandi við gæðastjórnunarbraut Háskól- ans á Akureyri óskar eftir sumarvinnu tengda sínu námi. Allt kemur til greina, t.d. kennsla, kynning eða vinnsla sérverkefna, hvar sem er á landinu. Hugsanleg vinnsla lokaverkefnis eftir áramót. Nánari upplýsingar gefur Davíð í sfma 96-25948. Atvinnurekendur 36 ára skipstjóri, sem hefur verið við störf erlendis undanfarin ár, vantarframtíðarvinnu til sjós eða lands. Margt kemur til greina. Upplýsingar fást í síma 610358. Starf fóstru, sem jafnframt veitir forstöðu leikskólanum Bjarkatúni, Djúpavogi, er laust til umsóknar frá 1. september nk. Nánari upplýsingar veitir sveitarstjóri Djúpa- vogshrepps í síma 97-88834. Löglærður fulltrúi Staða löglærðs fulltrúa við embætti sýslu- mannsins á ísafirði er laus til umsóknar. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum opinberra starfsmanna. Umsóknir sendist undirrituðum fyrir 3. júní nk. Sýslumaðurinn á ísafirði, 6. maí 1994. Þroskaþjálfanemi óskar eftir vinnu hálfan daginn í sumar. Barnapössun eða aðstoð í heimahúsum kemur til greina. Upplýsingar í síma 685429. Lögfræðingur Lögfræðingur óskar eftir starfi. Nánari upplýsingar í síma 689213 eftir hádegi næstu daga. Dönsk stúlka Dugleg 24 ára stúlka sækist eftir að starfa í Reykjavík frá 15. 6. '94. Allt kemur til greina. Frekari upplýsingar veitir Ólöf Óladóttir, í símum 12363 og 31860. Marianne Thygesen, Ryslinge Höjskole, D.K. 5856 Ryslinge, fax. 9045-62671955. Iðnmeistarar - iðnfyrirtæki Við höfum á skrá fjöldan allan af iðnnemum sem vantar starfsþjálfun og sumarvinnu. Ráðið iðnnema til starfa. Eflið íslenska iðnmenntun. AMIN - atvinnumiðlun iðnnema, Skólavörðustíg 19, s. 91-14318. Heimilishjálp í USA íslensk fjölskylda óskar að ráða heimilishjálp frá 15. ágúst fram til jóla. Viðkomandi þarf að vera orðinn 20 ára, hafa bílpróf og má ekki reykja. Krafist er góðrar enskukunnáttu, reglusemi og þolinmæði við börn. Kvöldskóli í ýmsum námsgreinum í næsta nágrenni. Þeir, sem hafa áhuga, vinsamlegast leggi inn skriflegar umsóknir til auglýsingadeildar Mbl., merktar: „Ameríka“, fyrir 14. maí. Verkfræðingur með MBA próf frá virtum, bandarískum háskóla og mikla starfsreynslu, óskar eftir atvinnu. Lítil fyrirtæki og eignaraðild koma vel til greina. Áhugasamir sendi upplýsingar til auglýsinga- deildar Mbl., merktar. „MBA - 0094“, fyrir föstudaginn 13. maí. VII FÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR n|^ Síðumúla 39 - 108 Reykjavík - Sími 678500 Félagsráðgjafar Laus er til umsóknar 50% staða félagsráð- gjafa við Áfangastaðinn, Amtmannsstíg. Um er að ræða heimili fyrir konur, sem hafa farið í meðferð vegna áfengis- og vímuefna- vandamála, og felst starfið m.a. í vinnu með konunum að félagslegri endurhæfingu. Æski- legt er að umsækjendur hafi reynslu af starfi með áfengis- og vímuefnaneytendum. Nánari upplýsingar um starfið veitir Svein- björg J. Svavarsdóttir, forstöðumaður, í síma 26945. Umsóknarfrestur er til 27. maí nk. Umsóknum skal skila til Félagsmálastofnun- ar Reykjavíkurborgar, Síðumúla 39, á um- sóknareyðublöðum sem þar fást. Lögreglumaður Staða lögreglumanns við embætti sýslu- mannsins á Siglufirði er laus til umsóknar. Umsækjendur skulu hafa lokið prófi frá Lögregluskóla ríkisins. Umsóknir berist sýslumanninum á Siglufirði, Gránugötu 4-6, 580 Siglufirði, fyrir 25. maí nk., en staðan verður veitt frá og með 1. júlí nk. Sýslumaðurinn á Siglufirði, 4. maí 1994. Framkvæmdastjóri Knattspyrnufélagið Fram, handknattleiks- deild, óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra. Verksvið: Markaðssetning á íþróttahúsi félagsins. Auglýsingaöflun. Bókhald Almennt utanumhald upplýsingaflæðis o.fl. Leitað er að framtakssömum einstaklingi með skipulagshæfileika og jákvætt hugarfar, sem á auðvelt með að umgangast og stjórna fólki. Laun skv. samkomulagi. Upplýsingar um aldur, menntun og fyrri störf sendist til auglýsingadeildar Mbl., merktar:. „Fram - 300“, fyrir 17. maí nk. Sölumaður óskast! Ný og öflug fasteignasala óskar eftir að bæta við sig harðduglegum sölumanni. Aðeins þjónustuliprir og áhugasamir aðilar koma til greina. Starfsreynsla æskileg en þó ekki skilyrði. Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. sem fyrst, merktar: „H - 6969“. íslenski dansflokkurinn: Framkvæmdastjóri íslenski dansflokkurinn auglýsir stöðu fram- kvæmdastjóra lausa til umsóknar. Staðan er laus frá 1. september 1994 til 3ja ára í senn og er endurráðning möguleg. Umsóknarfrestur er til 1. júní 1994. Æskilegt er að viðkomandi hafi háskólapróf í stjórnun menningarstofnana eða aðra sam- bærilega menntun. Launakjör samkvæmt launakerfi ríkisins. Umsóknir sendist íslenska dansflokknum, Engjateigi 1, 105 Reykjavík. Deildarstjóri véladeildar Opinber aðili í verklegum framkvæmdum óskar að ráða vélaverkfræðing eða véltækni- fræðing í starf deildarstjóra véladeildar. Starfssfvið Veitir véladeild forstöðu og ber ábyrgð á að rekstur hennar sé hagkvæmur og f sam- ræmi við áætlanir. Hefur umsjón með tækja- og varahlutakaupum, rekstri véla og bíla. Veitir tæknilega ráðgjöf varðandi vélar og tæki. Hæfniskröfur Leitað er að vélaverkfræðingi eða véltækni- fræðingi með reynslu í stjórnun og rekstri. Viðkomandi þarf að hafa góða samstarfs- og skipulagshæfileika. Farið verður með allar umsóknir og fyrir- spurnir sem trúnaðarmál. Nánari upplýsingar veitir Torfi Markússon milli kl. 9 og 12. Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til Ráðgarðs, merktar: „Deildarstjóri véladeildar“, fyrir 18. maí nk. RÁÐGARÐURhf. STJÓRNUNAR OG REKSTRARRÁÐGJÖF NÓATÚN 17 105 REYKJAVÍK SÍMI 686688 Frá Grunnskóla Njarðvíkur Tónmenntakennari Tónmenntakennara vantar að Grunnskóla Njarðvíkur. Sérstaklega er óskað eftir kennara (ekki leið- beinanda), sem vill koma á fót barnakór. Upplýsingar veita Gylfi Guðmundsson, skóla- stjóri, og Sigríður Ingibjörnsdóttir, aðstoðar- skólastjóri, í síma 92-14399. Skólastjóri. Bakari óskast Kaupfélag Austur-Skaftfellinga óskar eftir að ráða vanan bakara til starfa í brauðgerð kaupfélagsins á Höfn, Hornafirði. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í byrjun júní. Umsóknarfrestur er til 16. maí. Nánari upplýsingar veita Jón Finnsson, bak- arameistari, og Pálmi Guðmundsson, kaup- félagsstjóri, í síma 97-81200. KAUPFÉLAG AUSTUR-SKAFTFELLINGA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.