Morgunblaðið - 15.05.1994, Síða 4
4 SUNNUDAGUR 15. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
VIKAN 9/5-15/5.
► Morg-unblaðið og út-
gáfufyrirtækið Smekk-
leysa s.m. hf. hafa gengið
frá samn-
ingum um
að standa
sameigin-
lega að
tónieikum
Bjarkar
Guð-
munds-
dóttur í
tengslum
við Lista-
hátíð í Laugardalshöll 19.
júní. Tónleikarnir verða
fyrstu tónleikar Bjarkar á
íslandi frá því hún hóf
sólóferil sinn og einu fyrir-
huguðu tónleikar hennar
hér á landi á þessu ári.
► Samtök fiskvinnslu-
stöðva áætlað að 2,5 millj-
arða halli hafi verið á
rekstri sjávarútvegsfyrir-
tækja á siðasta ári. Sú nið-
urstaða er byggð á rekstr-
arreikningum 32 fyrir-
tækja í öllum landshlutum.
Halli á rekstri þeii^ra var
um 960 miRjónir í fyrra
og útflutningsverðmæti
um 29 milljarðar.
Bjðrk
Guðmundsdóttir
Bilun á
Grundartanga
ANNAR af tveimur ofnum Járnblendi-
verksmiðjunnar á Grundartanga bilaði
á sunnudagskvöld. Glóandi kísiljám
brenndi sér leið gegnum eins metra
þykka einangrun í ofninum og flaut út
á gólf. Talið er að um 10 tonn af
málmi hafí lekið úr ofninum áður en
tókst að stöðva lekann um kl. 3 um
nóttina.
Við Hvítá
TUTTUGU og níu ára gömul kona féll
8 til 10 metra niður hamrastál og flaut
nokkra
metra nið-
ur Hvítá á
laugar-
dag. Hún
var stödd
við Bama-
fossa ásamt þremur vinkonum sínum
og sex ára syni einnar þeirra þegar
slysið átti sér stað. Meiðsl hennar voru
minniþáttar.
Stolin hönnun
FUNDIST hafa á Spánarmarkaði gull-
og silfurpeningar með verðgildi ECU,
merktir Island og ártalinu 1993. Á
peningnum er stæling af skjaldarmerki
tíu krónu penings frá árinu 1930. ís-
lenskir aðilar kannast ekki við að hafa
komið að gerð peningsins.
► Formaður utanríkis-
málanefndar er þeirrar
skoðunar að Bandarikja-
menn séu að breyta um
stefnu í hvalamádum og
muni styðja takmarkaðar
hvalveiðar á grundvelli
vísindalegrar þekkingar i
framtiðinni. Hann segir að
hagsmunum íslendinga sé
betur borgið innan Al-
þjóðahvalveiðiráðsins en
utan þess.
Smugudeila harðnar
TSJERNOMYRDIN, forsætisráðherra
Rússlands, sendi Davíð Oddssyni, for-
sætisráðherra, bréf vegna veiða ís-
lenskra fískiskipa í Smugunni þann 20.
apríl. í bréfínu segir að hagsmunir íbúa
norðurhéraða Rússlands kalli á að
Rússar grípi til tafarlausra aðgerða til
þess að tryggja efnahagslega hags-
muni rússneskra borgara. Rússar og
Norðmenn hyggast senda varðskip í
Smuguna.
Mandela
kjörinn forseti
NELSON Mandela, leiðtogi Afríska
þjóðarráðsins, var á mánudag kjörinn
forseti Suður-Afríku, fyrstur þeldökkra
manna. Daginn eftir sór hann embætti-
seið forseta. í ræðum sínum af þessu
tilefni lagði Mandela áherslu á nauðsyn
þess að ailir kynþættir gætu lifað í
sátt og samlyndi í hinni nýju Suður-
Afríku og að landsmenn þyrftu að yfir-
vinna þann biturleika sem áratuga að-
skilnaðarstefna hvita minnihlutans
hefði kallað fram. Á miðvikudag kom
ríkisstjóm Mandela saman til fyrsta
fundar og var þá skýrt frá því að
Winnie, fyrrum eiginkona hans, yrði
aðstoðarráðherra og Mangosuthu But-
helezi, leiðtogi Inkhata-hreyfínga Zúlú-
manna, innanríkisráðherra.
John Smith látinn
► Eldflaug var skotið á
íbúðahverfi í Sanaa, höfuð-
borg Jemens, á miðvikudag
og síðar um daginn hæfði
önnur hverfi í borginni
Taiz í norðurhluta lands-
ins. Ekki færri en 23 týndu
lífi í árásinni sem her Suð-
ur-Jemens stóð að baki.
Ráðamenn í suðurhlutan-
um vi^ja aðskilnað frá
Norður Jemen.
► Mikill fögnuður braust
út á Gaza-svæðinu á mið-
vikudag er fyrstu palest-
ínsku Iögreglusveitirnar
birtust í samræmi við sam-
komulag ísraela og PLO. Á
föstudag tóku Palestínu-
menn síðan yfir stórn borg-
arinnar Jeríkó á Vestur-
bakkanum sem ísraelar
JOHN Smith, leiðtogi breska Verka-
mannaflokksins, lést úr hjartaáfalli á
fimmtudag, 55 ára að
aldri. Smith varð leið-
togi flokksins árið
1992, tók þá við af
Neil Kinnock, sem
sagði af sér eftir ósig-
ur Verkamanna-
flokksins í þingkosn-
ingum þá um vorið.
Smith var ákaft
syrgður í Bretlandi og
var það samdóma álit bæði samherja
hans og andstæðinga að með honum
væri genginn merkur stjómmálamað-
höfðu ráðið í 27 ár.
► Harðir bardagar geis-
uðu í Kigali, höfuðborg
Afríkuríkisins Rúanda í
vikunni og virðist ekkert
lát á vargöldinni í landinu.
Á föstudag bárust fréttir
þess efnis að 80 skólanem-
ar hefðu verið myrtir en
talið er að um 200.000
manns hafi verið drepnir
frá því borgarastríðið
braust út. Þá er talið að
um 850.000 manns hafi flú-
ið yfir til nágrannaríkj-
anna.
Berlusconi
forsætisráðherra
SILVIO Berlusconi, tók á miðvikudag
við embætti forsætisráðherra Ítalíu.
Stjóm hans mynda þrír fiokkar, Áfram
Ítalía, flokkur Berlusconis, Norðursam-
bandið og flokkur ný-fasista. Þetta er
53 ríkisstjórn Ítalíu frá stríðsiokum og
þykir sýnt að Berlusconi eigi. erfítt
verkefni fyrir höndum.
► Óp, listaverk norska
málarans Edward Munchs,
og einn af þjóðardýrgrip-
um Norðmanna, fannst á
laugardag í síðustu viku en
verkinu var stoiið úr Ríkis-
listasafni Noregs í febrúar.
Verkið fannst fyrir tilstilli
bresku lögreglunnar Scot-
land Yard og voru tveir
menn handteknir.
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Júlíus
Um 420
milljónir
í Suður-
landsveg
MIKLAR framkvæmdir verða við
Suðurlandsveg á þessu ári. Þegar
þeim líkur verður Suðurlandsveg-
ur tveggja akgreina vegur frá
Rauðavatni niður á Vesturlands-
veg. Við þetta minnkar mikið
umferð um Árbæjarhverfi, en öll
umferð um Suðurlandsveg hefur
farið um hverfið. Byggð verða
tvenn undirgöng undir Suður-
landsveginn, annars vegar fyrir
bíla inn á golfsvæðið við Krók-
háls og hins vegar fyrir gangandi
vegfarendur við Rauðavatn. Þá
verða gerð mislæg gatnamót við
Bæjarháls. Þessar framkvæmdir
kosta 420 miHjónir og gert er ráð
fyrir að þeim ljúki í október.
Á næsta ári er fyrirhugað að
tvöfalda Vesturlandsveg frá
Höfðabakka norður fyrir nýju
gatnamótin við Suðurlandsveg.
Einnig verða byggð undirgöng
fyrir bíla við Viðarhöfða. Þessar
framkvæmdir kosta um 100 m.kr.
Vegna framkvæmdanna verður
Suðurlandsvegi lokað í september
f hálfan mánuð. Ennfremur verð-
ur Selásbraut lokað í þrjár vikur
í september.
Að öðru leyti segjast forsvars-
menn Vegagerðar ríkisins vonast
til að vegfarendur verði ekki fyr-
ir miklum óþægindum vegna
f ramkvæmdanna.
Jens Ingólfsson framkvæmdastjóri Kolaportsins
Lifandi markaðstorg
KOLAPORTIÐ flytur í hús Tollvörugeymslunnar sunnudaginn 15. maí og
segir Jens Ingólfsson framkvæmdasi,jóri að nýja húsnæðið sé hrátt en hreint,
eins og komist var að orði. Því verði hægt að selja á nýja staðnum alls
kyns fersk matvæli og viðkvæm sem ekki mátti á þeim gamla. Segir hann
að þótt dvölin þar hafi verið ánægjuleg sé gott að losna við bílamengunina
og hvetur alla velunnara Kolaportsins og gamla vini til þess að taka þátt
í skrúðgöngunni frá gamla staðnum klukkan 16 á sunnudaginn kemur.
Jens segir að það sem helst lifi í
minningunni um Kolaport síðastlið-
inna fímm ára sé hversu hver helgi
hafi komið á óvart. „Kolaportið er
svo síbreytilegt. Það er eins og það
sé lifandi, ekki hús eða steinkassi
heldur mannlíf," segir hann.
Andrúmslofti frá gamla staðnum
verður tappað á flösku, ryki safnað
í poka og nágrönnum úr Arnarhól,
álfum, huldufólki og öðrum vættum
boðið að slást í för með skrúð-
göngunni í Tollvörugeymsluna að
sögn Jens. Mála þurfti húsnæðið,
leggja nýja raflögn og byggja hrein-
lætisaðstöðu og segir hann að mesta
breytingin á starfseminni sé sú að
nú uppfylli markaðurinn skilyrði
heilbrigðiseftirlitsins. Jens segir
einnig að til að byrja með verði opið
um helgar eins og á gamla staðnum
en enginn viti hvað framtíðin beri í
skauti sér. „Við ætlum að læra á
húsnæðið og þróa starfsemina eftir
þeim möguleikum sem það býður
upp á.“
Að hans sögn var tilgangur borg-
arinnar með því að útvega þetta
húsnæði meðal annars sá að reyna
að nýta húsnæðið á hveijum degi í
framtíðinni. Til dæmis mætti vel
hugsa sér leiksýningar, tónleikahald
og íþróttaviðburði í húsinu, sem er
3.000 m2. „Þarna eru engin fínheit,
þetta er hrátt en hreint," segir Jens
að lokum og bætir við ummælum
frá föstum viðskiptavini sem segist
koma í Kolaportið til þess að kaupa
vönduð matvæli. Þar selji framleið-
endurnir sína vöru beint og hlaupið
sé að því fyrir óánægðan viðskipta-
vin að koma aftur um næstu helgi
og skammast, því geti hann treyst
því að fá góða vöru.