Morgunblaðið - 15.05.1994, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 15. MAÍ 1994 9
FRÉTTIR
Jónas R. til
Filmnet
JÓNAS R. Jónsson hefur verið ráð-
inn til starfa hjá svissneska eignar-
haldsfélaginu Nethold, eiganda holl-
ensku sjónvarpsstöðvarinnar Film-
net. Hann mun sinna ráðgjafarstarfi
og samningsgerð fyrir fyrirtækið,
a.m.k. næstu 6 mánuði og m.a. gera
samninga fyrir hönd Filmnet um
kaup á sjónvarpsefni.
Filmnet er hollensk áskriftarsjón-
varpsstöð með um 1,6 milljónir
áskrifenda í Evr-
ópu og Afríku.
Jónas R. Jóns-
son sagðist í sam-
tali við Morgun-
blaðið mundu
sinna ráðgjafar-
störfum fyrir aðal-
forstjóra eignar-
haldsfélagsins sem
auk sjónvarps-
stöðvarinnar á
m.a. vörumerkið Cartier. Hann sagði
að um nýtt starf að ræða.
Höfuðstöðvar Filmnet eru í Amst-
erdam og þar mun Jónas hefja störf
á mánudag. Hann sagði að fyrst um
sinn væri um að ræða samning til
6 mánaða og kvaðst hann mundu
verða með annan fótinn hér á landi
á þeim tíma.
Jónas sagðist ekki eiga von á því
að í starfi sínu fyrir Filmnet mundi
hann eiga samskipti við íslensku
sjónvarpsstöðvarnar.
Aðspurður hvernig þetta starf
hefði rekið á fjörur sínar sagði Jónas
R. Jónsson að skilaboð frá fyrirtæk-
inu hefðu verið komin á símsvara
sinn tveimur dögum eftir að hann
var rekinn úr starfi á Stöð 2 skömmu
fyrir mánaðamót. „Sjónvarpsheim-
urinn er svo þröngur að breytingar
eins og þessar spyijast fljótt út,“
sagði Jónas R. Jónsson.
------» ♦---------
Hagkaup og
Levi’s gera sátt
HAGKAUP og gallabuxnaframleið-
andinn Levi Strauss & Co. í Banda-
ríkjunum hafa náð sáttum um lok
máls sem bandaríska fyrirtækið
höfðaði vegna innflutnings Hag-
kaups á gallabuxum með nafni fyr-
irtækisins í október 1992. Eftir
rannsókn komust dómkvaddir mats-
menn að því að ekki væri um ekta
Levi’s buxur að ræða.
Aðilar höfðu samvinnu um að
upplýsa hver raunverulegur uppruni
buxnanna væri. í kjölfarið hefur
Levi Strauss & Co. nú höfðað mál
í Bandaríkjunum á hendur aðilum
sem taldir eru viðrinir málið. Hag-
kaup mun greiða Levi Strauss &
Co. málskostnað og bætur, eftir því
sem segir í fréttatilkynningu aðila
málsins.
------» ♦ ♦-------
Riðuveiki skýtur
upp kollinum
Egilsstöðum - Riðuveiki greindist
í rollu á bænum Desjamýri í Borgar-
firði eystra nú nýlega. Veikin kemur
upp í fjárskiptafé sem flutt var aust-
ur í kjölfar niðurskurðar á stóru
svæði fyrir nokkrum árum. Búið er
að farga öllu fé á bænum, tvö hundr-
uð fimmtíu og tveimur að tölu og
er það í annað sinn á fáum árum
sem það er gert. Sauðburður var
ekki hafinn.
Jón Pétursson héraðsdýralæknir
segir riðuveikina vera alvarleg tíð-
indi. Óvíða hafi verið staðið betur
að hreinsun en á Desjamýri. Hins
vegar kom fjárskiptaféð árinu fyrr
þangað en á aðra bæi. Desjamýri
var fjárlaus í tvö ár, en aðrir bæir
í þijú. Að sögn Jóns kann það hugs-
anlega að vera skýringin á þvi að
veikin skjóti nú aftur upp kollinum.
Eingöngu er búið með fé á Desja-
mýri og er því tilkoma veikinnar
mikið áfall fyrir ábúendur.
Jónas R.
Jónsson
VOLVO 400 LÍNAN '94
ÞAÐ ER ÓTRÚLEGT EN SATT AÐ ÞÚ GETUR KEYPT
FRAMHJÓLADRIFINN VOLVO HLAÐINN BÚNAÐI Á
1.519.000 KR. KOMINN Á GÖTUNA.
1.519.000 kr.
KOMINN Á GÖTUNA!
Vökvastýri • samlæsing • veltistýri • rafknúnir speglar
2,0 lítra vél • plussáklæöi • fellanlegt sætisbak
bílbeltastrekkjarar • sjálfvirk aðlögun belta • fjölmargar
stillingar á framsætum ásamt mörgu fleiru!
A BETRA VERÐI FYRIR ÞIG!
FAXAFENI 8 • SÍMI f 1- 685870