Morgunblaðið - 15.05.1994, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 15.05.1994, Blaðsíða 52
varða víðtæk fjármálaþjónusta Landsbanki íslands Banki allra landsmanna MORG UNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1 103 REYKJA VÍK SÍM 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 SUNNUDAGUR 15. MAÍ 1994 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Lánin greidd að fullu 1.200 þús.kr. 1.100 900 800 Verðtryggt lán. Nafnverð 1.000- Samtals greltt kr. 1.154.490 áverðlagi 1994 Óverðtryggt lán. Nafnverð kr. 30.000. Samtals greitt kr. 703.755 áverðlagi 1994 0 --------------—— ■ ’80 '82 '84 ’86 '88 '90 '92 '94 Verðtryggð lán 64% meira greitt SÁ SEM tók þriggja milljóna gamalla króna verðtryggt lífeyr- issjóðslán árið 1979 til fimmtán ára á síðasta gjalddaga í dag hefði greitt samanlagt 64% hærri upphæð á lánstímanum en sá sem valdi að taka óverð- tryggt lán. Lánsupphæðin á verðlagi nú er tæplega ein millj- ón króna og sá fyrrnefndi hefur með vöxtum og verðbótum greitt til baka 1.154.490 kr. eða 16% umfram upphaflega lánsfj- árhæð en sá síðarnefndi 703.754 krónur eða um 70%. Síðasta afborgun verðtryggða lánsins nemur 67.677 kr. en óverðtryggða lánsins 2.265 kr. Munurinn er þrítugfaldur. Á þessum tíma árið 1979 var verðtrygging að ryðja sér til rúms og fólk átti þess kost að velja á milli óverðtryggðra og verðtryggðra kjara. Greiðslu- byrði lánanna er mjög ólík. Munur á hæstu og lægstu af- borgun verðtryggða lánsins er um 20 þúsund krónur en á óverðtryggða láninu nær 230 þúsund. Verðtryggða lánið er verðtryggt miðað við bygging- arvísitölu með 2% vöxtum en hæstu leyfílegir vextir eru á óverðtryggða láninu. ■ Skuldirnar... /10-11 Morgunblaðið/Júlíus Vornætur- stemmning í miðbænum ÞVERT á það sem ætla mætti er myndin að ofan ekki tekin á sólbjörtum sumardegi heldur árla í gærmorgun, eða rétt fyrir kl. 5 í miðborg Reykjavíkur. Ógerningur var að sjá í gegnum þvöguna, sem náði svo langt sem augað eygði í Austurstræti og Lækjargötu, og taldi lögregla að þar hefðu verið um 5.000 manns þegar mest var. Ekki urðu alvarleg meiðsl á fólki. Aftur á móti bar á smápústrum þegar líða tók á morgun. Sjálfvirk tilkynninga- skylda fyrir íslensk skip HALLDÓR Blöndal samgönguráð- herra, Ólafur Tómasson póst- og símamálastjóri og Einar Siguijóns- son forseti Slysavamafélagsins und- irrituðu um hádegi í gær samning um tilhögun sjálfvirkrartilkynninga- skyldu íslenskra skipa. Kerfið bygg- ist á íslenskri uppfinningu og mun ekki eiga sinn líka í heiminum. Bún- aðurinn byggist á staðsetningar- tækjum um borð í skipum og land- stöðvum sem taka við skeytum um staðsetningu. Póstur og sími mun annast uppsetningu og viðhald land- stöðvanna og SVFÍ annast rekstur á tilkynningaskyldunni. Vonast er til að kerfið komist í gagnið á næsta ári og uppsetningu landstöðva kringum landið Ijúki á næstu þremur til fjórum áram, að sögn Halldórs. Landstöðvar era tald- ar veita meira öryggi og vera hag- kvæmari í rekstri en gervihnettir, en sá möguleiki mun hafa verið skoð- aður. Stefnt er að því að sjálfvirkur tilkynningabúnaður verði kominn í öll íslensk skip um aldamót. Halldór sagðist gera ráð fyrir því að skylt yrði að hafa þennan búnað um borð. Búnaðurinn sendir boð um stað- setningu á 15 mínútna fresti. Ef skipinu hlekkist á berast boð um það samstundis og jafnframt um öll skip sem stödd eru í nágrenninu. Kerfísverkfræðistofa Háskóla ís- lands hefur unnið að hönnun búnað- arins frá árinu 1983, að sögn Hálf- dáns Henrýssonar deildarstjóra hjá SVFÍ. Fyrir tveimur árum voru sett tæki til reynslu í nokkur skip. Áætl- að er að búnaður af þessu tagi kosti svipað og farsími, auk þess sem GPS-staðsetningartæki þurfa að vera um borð. Davíð Qddsson um bréf forsætisráðherra Rússlands og Noregs Bersýnilega um samráð á milli ríkjanna að ræða DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra segir að ástæða sé til að taka alvarlega bréf þau sem forsætisráðherra Rússlands og forsætisráðherra Noregs sendu honum í seinasta mánuði vegna veiða íslenskra skipa í Smugunni. Hann segir að bréfin hafi borist með eins eða tveggja daga millibili og það sé bersýnilegt að samráð hafi verið milli ríkjanna um að senda þessi bréf. „Þetta er mjög vandmeðfarið mál og erfitt og afskap- lega óskemmtilegt að vera í deilum við þjóðir eins og Noreg og Rússland, sem við höfum átt ágæt samskipti við á mörgum sviðum,“ segir Davíð Oddsson. Davíð segist hafa svarað Gro Harlem Brundt- land, forsætisráðherra Noregs, með bréfi, sem hafi verið gert í samráði við úthafsnefnd Alþing- is og með fullu samþykki hennar. Einnig sé búið að semja svarbréf til Tsjernomyrdins, forsætisráð- herra Rússlands, sama efnis. Mjög- vandmeðfarið og- óskemmtilegt mál „Við lýsum réttarstöðunni eins og hún er hérna, hvaða möguleika stjórnvöld hafi en jafnframt að við séum reiðubúin til að ræða málin við báða þessa aðila með opnum huga,“ segir hann. „Við leggjum áherslu á að við séum ekki í neinni deilu við Norðmenn, það gildi ákveðinn réttur að alþjóðalögum og að íslensk stjórnvöld hafi ekki leyfi til að banna íslenskum ríkisborg- urum að notfæra sér þann rétt, nema þá því aðeins að samningur sé í gildi milli landanna. Við nefnum það í þessu bréfi að við séum tilbún- ir til þess að ræða þann möguleika," sagði Davíð. Davíð sagði það hafa komið íslenskum stjórn- völdum mjög á óvart að fá þessi bréf því ákveðn- ar óformlegar þreifingar hefðu verið í gangi en þegar bréfin bárust hefði málið færst á annað stig. Erum ekki í styrjöld Davíð var spurður hvort ekki mætti reikna með að Rússar og Norðmenn myndu grípa til aðgerða gegn veiðum íslensku skipanna; „Þetta er alþjóðlegt hafsvæði og ég hygg að norskir fræðimenn viðurkenni það en á hinn bóginn þá má búast við því að það verði að minnsta kosti amast við þessum skipum svo maður segi ekki meira,“ svaraði hann. Davíð sagði að engin tök væru á því fyrir íslensk stjórnvöld að veita skip- unum vernd. „Það á ekki að vera ástæða til þess, Við erum ekki í styijöld við Noreg eða Rússland. Þetta er ekki íslenskt hafsvæði, heldur alþjóðlegt hafsvæði og við hljótum að ganga út frá því sem gefnu að norsk og rússnesk stjórnvöld fari að alþjóðalögum í þeim efnum,“ sagði Davíð. Kjaradeila meinatækna Tilboð við- semjenda í skoðun SÁTTAFUNDI meinatækna og við- semjenda þeirra var frestað eftir 19 tíma fundarsetu kl. 4.30 í fyrri- nótt. Framhaldsfundur var boðaður kl. 13.30 í gær. Edda Sóley Óskars- dóttir, formaður Meinatæknafé- lagsins, sagðist ekki geta svarað því hvort líkur væru á að samið yrði í gær. Ekki mikil bjartsýni Hún sagði að verið væri að ræða tilboð viðsemjenda um 6% launa- hækkun meinatækna á höfuðborg- arsvæðinu. „En ég er ekkert voða- lega bjartsýn. Eftir er að ræða mik- ilvæg atriði eins og endanlega nið- urröðun í starfsheiti," sagði Edda Sóley í samtali við Morgunblaðið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.