Morgunblaðið - 21.05.1994, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. MAÍ 1994
C 7
og þakið hvítu smelti. Eftir þetta
samdi Alexander III. við Fabergé
um að búa til páskaegg á hverju
ári. Tvö skilyrði voru sett; hönnun-
in átti að koma keisaraynjunni á
óvart og formið varð að vera eins
og egg. Þessi samningur var í gildi
meðan Alexander III. lifði, eða í
ellefu ár. Eftir lát hans hélt sonur
hans Nikulás uppteknum hætti og
gaf móður og eiginkonu sinni Alex-
öndru páskaegg eftir Fabergé. Alls
smíðaði Fabergé fimmtíu og sex
páskaegg sem voru hvert öðru fal-
legra. Það leið ekki á löngu að
páskaegg keisarans voru orðin mik-
ilvægustu gersemar sem Fabergé
bjó tii. Það varð að undirbúa smíð-
ina með löngum fyrirvara, því það
tók oft meira en ár að smíða hvert
páskaegg. Endalausar viðræður
áttu sér stað meðal Fabergé og
sérfræðinga hjá fyrirtækinu. Ótelj-
andi skissur og teikningar voru
gerðar af hveiju smáatriði. Mikil
leynd hvíldi yfir verkinu þar sem
hvert páskaegg skyldi koma keis-
araynjunni á óvart. Keisarinn hafði
enga vitneskju hvernig páskaeggin
litu út fyrr en hann fékk þau. Ein-
hvern tíma gat hann ekki leynt
forvitni sinni og spurði Fabergé:
„Hvernig lítur næsta páskaegg út.“
Fabergé svaraði: „Yðar hátign
verður ánægð.“ Sú var raunin.
Páskaegg Fabergé minna mörg
á mikilvæga atburði í sögu keisara-
fjölskyldunnar. Frægasta páska-
eggið er frá 1897 sem Nikulás II.
gaf Alexöndru móður sinni og
minnnti á krýningarathöfnina árið
1896. Páskaeggið bar sömu liti og
slá keisarans við krýninguna. I
egginu var smækkuð mynd af
skrautvagni keisarahjónanna úr
gulli, rauðu smelti og demöntum.
Páskaeggið frá árinu 1914 er
snilldarverk. Það er úr platínu,
þakið hundruð geimsteina. Mynda-
rammi fylgir með smækkuðum
vangasvipum barna keisarans.
Sama ár skrifaði keisaramóðirin
María Feodorovna til systur sinnar,
Alexöndru drottningar Bretlands:
„Páskaeggið í ár er ótrúlega fallegt
og sannkallað meistaraverk. Fa-
bergé er mesti snillingur okkar
tíma. Ég sagði honum það.“ Eggið
er í eigu Hillwood safnsins í Wa-
hington.
Fyrri heimsstyrjöldin hafði áhrif
á starfsemi Fabergés. Minna var
um pantanir. Margir af hans bestu
handverksmönnum voru kvaddir í
herinn. Engu að si'ður hélt hann
áfram að búa til páskaegg fyrir
keisarafjölskylduna. Páskaeggið
sem Fabergé hannaði fyrir keisara-
ynjuna árið 1916 er úr stáli ásamt
litlu málverki af keisaranum og
hermönnum á vígvellinum. Þetta
IÖKMENNTIR
ástæðum mjög eitt náttúrulegt fyr-
irbæri, eldingar, og það er sökum
þess veikleika sem hann týnir hesti
sínum í þrumuveðri. Þetta hrindir
af stað atburðarás sem leiðir til
þess að John Grady og vinur hans
hitta mannskepnuna fyrir og hún
reynist öllu erfiðari viðureignar en
náttúran og hrossin.
Saman við þetta einkennilega
stóðlíf fléttast auðvitað, já hvað
annað en ástarsaga. John Grady
og heimasætan á búgarðinum fella
saman hugi — hann sá hana fyrst,
já hvar annars staðar en á hest-
baki. Þau njótast á laun um skeið,
í blóra við fjölskyldu hennar, en
síðan verður ástkonan í raun til
þess að hann er framseldur fyrir
meintan heststuld með áðurgreind-
um afleiðingum. Hjónaband tekst
því ekki með Bandaríkjunum og
Mexíkó að svo stöddu.
All the Pretty Horses er skrifuð
í harðsoðnum stíl sem minnir svolít-
ið á Hemingway, þótt útgefendur
jafni höfundi, af ofrausn, við Mel-
ville og Faulkner. Hugarástand
söguhetjunnar er gefið til kynna
með lýsingum á ytri kringumstæð-
um og samtöl eru stuttaraleg. At-
burðarás er ofurhæg á fyrstu tvö
Fyrsta hænu-
eggió fró 1885
úr hvitu smeiti
og gulli.
Neftóbaksdós
úr gulli, smelti
og demöntum
sem keisarinn
gaf Otto von
Bismarck.
egg er í mikilli mótsögn við fyrri
páskaegg sem voru skreytt gulli,
smelti og gimsteinum.
Fabergé hélt áfram að vinna.
Tvö páskaegg voru í vinnslu. Þegar
kom að páskum var enginn keisari
til að veita þeim móttöku. Arið
1917 var keisaraíjölskyldan flutt
til Síberiu og líflátin árið 1918.
Sama ár tókst Fabergé að flýja
með hjálp breska sendiráðsins til
Finnlands. Það er sagt að hann
hafi aðeins tekið hattinn sinn. Ann-
að skildi hann eftir í Rússlandi.
Hann lést í Sviss árið 1920. Nýr
heimur var að líta dagsins ljós.
Fabergé heyrði sögunni til.
Augusta, eiginkona Fabergés,
lést í Suður-Frakklandi árið 1925.
Tveir elstu synir hans flúðu til
Parísar og opnuðu verslun þar und-
Páskaeggió sem minnfi á krýninguna ásamf
skrautvagninum sem Alexandra keisaraynja ók
i vió krýninguna árió 1896.
Páskaeggió frá 1916 var úr stáli.
ir nafninu Fabergé. Yngri synir
Fabergés störfuðu sem gullsmiðir
í Sviss.
Þegar Lenín lést árið 1924 var
farið að selja skrautmuni eftir Fab-
ergé á Vesturlöndum. Það var vin-
ur Lenins, bandaríski miljónamær-
ingurinn Armand Hammer, sem
hafði milligöngu og seldi talsvert
af keisara páskaeggjum Fabergés.
Tilkomumesta Fabergé-safnið er
í eigu útgáfufyrirtækins Malcolm
Forbes. Það er til húsa við fimmtu
götu í New York. Pákaegg Faberg-
és sem var selt á uppboði árið 1973
fór á 250.000 dali. Tólf árum síðar
keypti Malcolm Forbes það fyrir
tvær milljónir dollara. Páska- eða
ástaregg Fabergés frá árinu 1905
sem Nikulás II. gaf eiginkonu sinni,
var selt hjá Sotheby’s í New York
fyrir þijár milljónir dollara.
Geza von Habsburg sem hefur
sérhæft sig í listmunum Fabergés
hefur sagt: „ Þegar þú sérð eða
handleikur listmuni eftir Fabergé
skynjarðu að þeir eiga eitt sameig-
inlegt. Þeir eru fullkomnir!"
Höfundur er fulltrúi Sotheby’s á
Islnndi.
hundruð síðum bókarinnar, á löng-
um köflum virðist bókin ekki annað
en þurr leiðarlýsing. Eftir stendur
þó einhver kennd, tilfinning fyrir
mikilúðlégri náttúru, jafnvel fyrir
djúpstæðum sannleik, ef menn hafa
þolinmæði til að ljúka lestrinum.
Ekki er þó réttmætt að kveða upp
dóm yfir verkinu að svo stöddu, því
samkvæmt upplýsingum á bók-
arkápu er þetta einungis byijunin
á þríleik sem gerist við landamæri
ríkjanna tveggja, svokallaðri Bord-
er Trilogy. McCarthy kryfur þó
ekki að ráði samskipti þjóðanna
tveggja í þessu bindi, nema hvað
hann skrifar heilu samtölin á
spænsku og framandgerir þannig
hluta textans fyrir þeim sem ekki
hafa spænsku á hraðbergi.
Lér konungur gengur aftur
Maður þarf ekki á spænsku að
halda við lestur annarrar verðlauna-
sögu, A Thousand Acres, Þúsund
ekrur, eftir Jane Smiley, en þar
gæti þekking á Lé konungi aftur á
móti komið í góðar þarfir.
Jane Smiley er lslendingum að
nokkru kunn. Eitt af skáldverkum
hennar hefur verið þýtt á íslensku,
Grænlendingarnir, sem fjallar um
íslendingabyggðina á Grænlandi
forðum daga.
Nýjasta skáldsaga Smiley heitir
A Thousand Acres, og má telja víst
að skáldkonan hafi leyft sér að
brosa eftir útkomu hennar. Sagan
hreppti nefnilega bæði Pulitzer-
verðlaunin og National Book Critics
Circle verðlaunin, sem verður að
teljast bærilegur árangur. Þó hróp-
ar bókin ekki beint á athygli, gerist
til dæmis í landshluta sem fáar
sögur fara venjulega af, landbúnað-
arríkinu Iowa í miðvestrinu. Hún á
það líka sammerkt með AII the
Pretty Horses að lötra af stað;
hrynjandin í frásögninni endur-
speglar kyrrðina og fábreytnina í
sveitinni. En þegar sagan nær loks
tökum fléttast hún líka um mann
og hríslast þannig að ekki verður
aftur snúið.
Við komum inn í friðsælt ástand,
eins og í ævintýrunum, þar sem
ekkill býr ásamt tveimur dætrum
og tengdasonum; þriðja dóttirin
flutt í bæinn. Elsta dóttirin, Ginny,
segir söguna. Svo sameinast tveir
atburðir í einum: Efnt er til teitis
til að fagna týndum syni eins ná-
grannans; sá verður reyndar nokk-
urt hreyfiafl í lífi dætranna. Þá til-
kynnir faðirinn að hann hyggist
skipta búinu jafnt milli systranna
þriggja. Tveimur lýst vel á það, en
sú yngsta, lögfræðingurinn Carol-
ine, lætur í ljós efasemdir. Þeim
gamla er misboðið og hreytir í hana
að ef henni líki ekki ráðagerðin fái
hún ekkert. Þar með erum við kom-
in á slóð erkitýpísks mynsturs sem
Shakespeare gerði manna best skil,
það var í Lé konungi.
Ekki er neinum vafa undirorpið
að Smiley ætlar okkur að hafa
harmleik Shakespeares bak við eyr-
að meðan við lesum A Thousand
Acres. Lér konungur heitir hjá
henni Laurence Cook, kallaður
Larry, yngsta dóttirin heitir einnig
áþekku nafni í báðum tilvikum,
Caroline og Cordelia; hinar systurn-
ar heita Rose og Ginny hjá Smiley,
Regan og Góneríl hjá Shakespeare.
Samkvæmt þessu er það önnur
hinna „vondu“ dætra sem segir
söguna, nokkuð sem býður upp á
spennandi heilabrot þótt illskan
angi reyndar ekki af síðunum.
Smiley fylgir ekki leikritinu í
blindni; útgáfa hennar býður upp á
mörg athyglisverð frávik og kveðst
með því móti á við tímana tvenna.
Það er kannski þróun föðurins eftir
ákvörðunina sem býður upp á mest-
an samanburð við leikritið; Larry
er að mörgu leyti rifinn úr fötum
siðmenningarinnar, strípaður, en
örlög annarra sögupersóna, ekki
síst sögumannsins, eru þó ekki síð-
ur athygli verð. Smiley gæðir frá-
sögnina sérstæðri spennu með því
að láta Lé og Larry togast á um
framvinduna og dæturnar; það er
ekki síður í misgengisspennunni en
hliðstæðunni sem merkingarbrunn-
ar bókarinnar leynast. Eitt eftir-
tektarverðasta framlag Smiley er
sifjaspellið, sem reynist ein helsta
undirrótin að harmkvælum sögu-
persónanna. Þetta gæti verið einkar
athyglisverð túlkun á upphafi Lés
konungs, þar sem gamli maðurinn
lætur dæturnar tjá sér ást sína sem
mest þær mega.
En maður mætir ekki bara eilífð-
arefnum á ekrunum þúsund. Smiley
kallar til liðs nútímavanda á borð
við offramleiðslu, mengun og sjúk-
dóma henni tengda (er þar komið
eitrið sem Góneríl notar á systur
sína?). í bókinni felst því visst upp-
gjör við sveitalíf nútímans.
Rúnai' Helgi Vignisson