Morgunblaðið - 24.07.1994, Page 12

Morgunblaðið - 24.07.1994, Page 12
12 SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ Slavneskt bandalag? Menningarsöguleg og herfræðileg rök mæla með myndun bandalags Rússlands, Úkraínu og Hvíta-Rússlands. Tvö síðar- nefndu ríkin eru hins vegar gjaldþrota og kæmu til með að sliga efnahag Rússlands eftir Ásgeir Sverrisson ýkjömir forsetar Hvíta- Rússlands og Úkraínu hafa boðað mun nánari tengsl við Rússland og hefur það verið haft til marks um að í myndun kunni að vera nýtt pan-slavneskt bandalag þessara ríkja undir for- ystu stjórnvalda í Moskvu. Hug- myndin um bandalag Slava er gömul og ristir djúpt víða í Aust- ur-Evrópu. Menn hafa getað greint kraftbirtingarform hennar m.a. í afstöðu Rússa til átakanna í Bosníu og rithöfundurinn frægi Alexander Solzhenitsyn hefur viðrað slíkar hugmyndir. Þótt upp- runa hugmyndarinnar um pan- slavismann sé ekki að finna í Rússlandi, heldur í Króatíu, fer ekki á milli mála að þeir eru ijöl- margir í Rússlandi sem fá ekki skilið hvernig Hvíta-Rússland og Úkraína geti orðið sjálfstæð ríki. Líkt og áður mótar menningar- sagan afstöðu manna en þrátt fyrir það er þó engan veginn unnt að draga þá ályktun að Rússar hyggist þvinga þjóðir þessar inn í nýtt slavneskt bandalag. Ekki að svo stöddu, að minnsta kosti. Drög að slíku bandalagi liggja hins vegar fyrir. Efnahagsástandið í Úkraínu hefur versnað jafnt og þétt eftir að lýst var yfir sjálfstæði við hrun Sovétríkjanna. Gamlir kommúnist- ar á þingi landsins hafa komið í veg fyrir að nauðsynlegum efna- hagsumbótum hafi verið hrint í framkvæmd. Óðaverðbólga hefur gert gjaldmiðil landsins verðlausan og þróast hefur vöruskiptaverslun. Framleiðsluhrun hefur orðið m.a. vegna orkuskorts í öldungis úr sér gengnum risafyrirtækjum. Sú bylgja bjartsýni og föðurlands- hyggju sem reis við hrun Sovét- ríkjanna er hnigin. Á sama tíma hefur í austurhluta landsins risið öflug hreyfing sem vill tryggja sem nánust tengsl eða sameiningu við Rússland. Spenna fer vaxandi á Krím-skaga af sömu sökum. Skorturinn getur af sér pólitískt minnisleysi, líkt og alkunna er, en vandi Úkraínumanna er auk þess sá að austurhlutinn er í raun rúss- neskt landsvæði. Klofningur landsins virðist í raun óhjákvæmi- Jegur. í hinum rússnesku iðnaðar- borgum austurhlutans telja flestir að einungis náin tengsl við Rúss- land geti orðið til þess að bæta lífskjörin sem voru afleit áður en skelfileg nú. í Hvíta-Rússlandi hafa tengslin við Moskvu verið mjög náin frá því _að Sovétríkin liðuðust í sund- ur. í janúarmánuði var gengið frá myndun myntbandalags þessara ríkja sem kosta mun Rússa gríðar- lega fjármuni. Sagt hefur verið um Hvíta-Rússland að þar sé ekk- ert það framleitt sem eftirsóknar- vert megi teljast og að vörur það- an þyki ekki einu sinni boðlegar á rússneskum markaði. Efnahags- umskipti hafa engin orðið í landinu frá því Sovétríkin liðu undir lok. Verðbólgan er talin vera um 500 prósent. Það er því ekki að undra að í ríkjum þessum hafi nú verið kjörn- ir forsetar sem boða bætta tíð í krafti nánari tengsla við Rússland. Fyrr í þessum mánuði var Alex- ander nokkur Lúkasjenko kjörinn forseti Hvíta-Rússlands en hann hét því m.a. í kosningabaráttunni að uppræta allt það sem héti „einkaeign". Hann gat þess og í sjónvarpskappræðum að af mikil- mennum sögunnar hefði hann einna mestar mætur á Felix Dzers- inskíj, hinum illræmda stofnanda öryggislögreglu sovéskra komm- únista sem síðar varð þekkt undir heitinu KGB. í seinni umferð for- setakosninganna greiddu 80% þeirra sem þátt tóku manni þess- um atkvæði sitt. Vert er að taka fram að fyrstu yfirlýsingar og embættisverk Lúkasjenkos benda til þess að þar fari ekki sá mál- svari afturhaldsins sem áður var talið. í Úkraínu bar fyrrum forstjóri stærstu eldflaugaverksmiðju heims, Leoníd Kútsjma, sigur úr býtum. I austurhlutanum hlaut hann yfirgnæfandi fylgi enda boð- aði hann samstarf við Rússland á efnahagssviðinu og aukin sam- skipti fyrrum sovétlýðvelda á vett- vangi Samveldis sjálfstæðra ríkja. I vesturhlutanum átti fráfarandi forseti, Leoníd Kravtsjúk, vísan stuðning úkraínskra þjóðernis- sinna þrátt fyrir að í valdatíð hans hafi skuldir Úkraínumanna við nágrannann öfluga, Rússland, margfaldast og efnahagur lands- ins verið lagður í rúst. Klofningur Úkraínu birtist ljóslega í úrslitum kosninga þessara. Takist hinum nýkjörna forseta ekki að sætta austur og vestur, sem engin ástæða er til að ætla, mun óvissan fara stigvaxandi í þessu ríki sem telur rúmar 50 milljónir manna. SÚ BYLGJA þjóðernishyggju sem reis í Úkraínu er tekin að hníga ekki síst í austurhluta landsins þar sem myndast hefur öflug hreyfing um sameiningu við Rússland. Það kann aftur á móti að raska þeim viðkvæma stöðugleika sem ríkt hefur á vettvangi öryggismála frá því veldi kommúnista hrundi. Eystrasaltsríkin þráast við Þróunin sem hér hefur verið lýst stuttlega er engan veginn bundin við Hvíta-Rússland og Úkraínu. Af þeim 15 lýðveldum sem áður mynduðu Sovétríkin er sjálfstæðisbaráttan enn óbuguð í aðeins þremur þeirra, Eystrasalts- ríkjunum, Eistlandi, Lettlandi og Litháen. Rússar beita ríki þessi, einkum Eistland, nú vaxandi þrýstingi og bera fyrir sig hags- muni rússneskra minnihlutahópa í ríkjum þessum. Sá þrýstingur hefur haldist í hendur við uppgang þjóðernishyggju í Rússlandi sem m.a. lýsti sér í sigri öfgamannsins Vladímírs Zhírínovskíj í þingkosn- ingunum þar eystra. Að auki teija Rússar að fullt sjálfstæði þessara ríkja og hugsanleg aðild þeirra að Atlantshafsbandalaginu (NATO) og Evrópusambandinu (ESB) geti reynst ógnun við öryggishagsmuni þeirra. Slavneskt bandalag gæti því orðið til þess að mynda á ný „stuðpúða" eða „varnarmúr" gagnvart Vesturlöndum og komið í stað leppríkjanna fyrrverandi í Mið- og Austur-Evrópu. Sunnar, í Kákasusföllum, hefur svipuð þróun átt sér stað. Efna- hagur Armeníu er í rúst vegna stríðsins við nágrannaríkið Az- erbajdzhan um yfirráð yfir hérað- inu Nagorno-Karabakh. Orku- skortur er mikill en í þeim efnum eru Armenar háðir Rússum. I Azerbajdzhan freista stjórnvöld þess að standast þrýsting frá Rússum sem sjá ofsjónum yfir ol- íuauðlindum þeim sem gengu þeim úr greipum við fall Sovétríkjanna. í Georgíu neyddist forseti lands- ins, Edúard Shevardnadze, fyrrum utanríkisráðherra Sovétríkjanna, að leita eftir hjálp Rússa til að bijóta á bak aftur uppreisn að- skilnaðarsinna í Abkhasíu-héraði. Georgíubúar og ekki síst She- vardnadze sjálfur voru í farar- broddi þegar þjóðir fyrrum Sovét- ríkjanna hófu sjáifstæðisbaráttu sína. Nú hefur Shevardnadze í raun neyðst til að fórna fullveldi landsins og þar er nú að finna rússneskar friðargæslusveitir. í Mið-Asíulýðveldunum er að finna nokkur ríki sem fá einungis þrifist vegna efnahagstengsla sinna við Rússland. Má þar nefna Úzbekistan, Túrkmenistan og Kyrgyztan. í Tadjíkistan, sem er trúlega fátækasta ríkið á þessum slóðum enda engar auðlindir þar að finna, hefur geisað borgara- styröld og þar eru tugþúsundir rússneskra hermanna, sem ætlað er að reyna að halda átökunum í skefjum. Margir hafa verið tilbúnir til að halda því fram að þróun þessi sé Rússum mjög að skapi, þeir ætli sér að endurreisa heimsveldið en í þetta skiptið án valdbeitingar. Rökin fyrir þessari skoðun eru í senn menningarsöguleg og her- fræðileg. Nýjar röksemdir kunna hins vegar að eiga við nú um stundir; hinar efnahagslegu, sem tæpast geta orðið til þess að hvetja stjórnvöld í Moskvu til að taka ríki þessi upp á sína arma. Ríki Rússa á rætur sínar að rekja til Úkraínu („Okraína“ þýðir „endimörk“ eða „landamæri“ á rússnesku). Þar, í nágrenni Kíev, varð fyrsta rússneska ríkið til á áttundu öld. Síðar, eftir að hafa sætt linnulausum árásum villi- mannaþjóða, fluttu Rússar ríki sitt til norðurs og austurs og við tók lífsbarátta þjóðar sem margir telja að aldrei muni linna. Rússar kom- I í > I b í í i I I t t ; ! I í « I I I í

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.