Morgunblaðið - 24.07.1994, Page 18

Morgunblaðið - 24.07.1994, Page 18
18 SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Hildur Friðriksdóttir GUÐBJÖRG Guðmannsdóttir hótelstjóri ásamt dótturdóttur sinni Svandísi Stefánsdóttur 9 ára. HÓTEL MEÐ HEIMILISBRA G wsnmmanwUF Á SUNNUDEGI ►Guðbjörg Guðmannsdóttir hótelstjóri á Þórs- höfn er fædd 1926. Hún hóf rekstur Hótels Jórvík- ur ásamt eiginmanni sínum, Birgi Halldórssyni, árið 1981. Þegar hann lést árið 1986 velti hún fyrir sér að hætta rekstrinum en meðal annars fyrir hvatningarorð bæjarbúa hélt hún ótrauð áfram og hefur ekki séð eftir því. eftir Hildi Friðriksdóttur Guðbjörg Guðmannsdóttir er allt í senn; hótel- stjóri, kokkur og þjón- ustustúlka. Hún segir að það bjargist með því að ná- grannarnir séu svo yndislegir að hlaupa undir bagga þegar mikið liggur við. Hótel Jórvík er stórt einbýlishús á Þórshöfn sem getur hýst 12-14 manns í sjö herbergj- um. Guðbjörg segir nafnið tilkomið vegna þess að hún er fædd á Jór- vík í Alftaveri. „Þegar ég kom hingað hétu öll hús eitthvað, því engin götuheiti voru til. Það er ákafleg falleg vík hér fyrir framan og þegar ég spurðist fyrir um hvað hún héti var mér sagt að hún væri nafnlaus. Þá sagðist ég mundu nefna hana Jórvík og hús- ið með,“ segir Guðbjörg og bendir út um gluggann á víkina. „Það kom mér á óvart að nafnið festist strax í sessi.“ Guðbjörg og Birgir Halldórsson voru búsett í Reykjavík þegar þau keyptu húsið á Þórshöfn árið 1970. „Við vorum bara ósköp venjulegir ferðamenn - rétt eins og fólkið sem kemur við hjá mér núna - þegar okkur var sagt að búið væri að byggja höll hérna, sem seldist ekki. Svo virtist sem enginn vildi eða treysti sér til þess að reka svona stórt hús sem íbúðar- hús. Þegar við skoðuðum það dans- aði sólin við hafflötinn og fuglalíf- ið var stórkostlegt. Núna er það ekki svipur hjá sjón, því minkurinn drepur fuglinn grimmt. Okkur fannst þetta paradís á jörðu, svo það varð úr að við keyptum húsið, ekki til þess að reka sem hótel heldur til að vera hér á sumrin og horfa á fegurðina," segir Guð- björg og býður blaðamanni upp á volga rabarbaratertu nýkomna úr ofninum. Búsett í Cumbernold þar sem engin gatnamót eru Guðbjörg og Birgir eyddu fyrstu sumrum sínum í húsinu og þegar Birgi bauðst síðar starf í Skot- landi þótti þeim gott að hafa at- hvarf á Þórshöfn. Þau' bjuggu í þijátíu þúsund manna bæ, Cum- bemold, sem var svotil nýbyggð- ur, utan gamla hlutans sem var tiltöluiega lítill. „Borgin var af- skaplega vel skipulögð og skemmtileg. Arkitektar alls staðar að úr heiminum komu til að skoða hana. Þar voru engin gatnamót heldur lágu götumar einhvern veginn í boga og því var engin hætta á árekstri. Meðfram götunum lágu gang- stéttir og fengi ég íslendinga í heimsókn sem ætluðu í verslanir var auðvelt að leiðbeina þeim. Það eina sem þeir þurftu að gera var að fylgja gangstéttinni þar til komið væri að verslunarmiðstöð- inni. Fólk þurfti aldrei að ganga yfir götu, því annaðhvort voru byggðar brýr yfir göturnar eða undirgöng. Brýrnar vom mjög margar, en óskaplega fallegar." Skotasögur eiga við rök að styðjast Ástæðan fyrir því að þau bjuggu í Skotlandi var sú, að á þeim tíma bjuggu Skotar við mikið atvinnu- leysi. Þeir hugðust leysa það með því að fá erlendar þjóðir til að setja á stofn verksmiðjur en settu það sem skilyrði að Skotar fengju vinnu í verksmiðjunum. „Nokkrir íslendingar stofnuðu verksmiðju sem framleiddi húsgögn og Birgir veitti henni forstöðu. Hún gekk auðvitað ekki mjög vel því vanti Skota borð eða stól leitar hann að því ódýrasta í öllu landinu. Honum dytti aldrei í hug að kaupa vönduð húsgögn frá íslandi,“ seg- ir Guðbjörg og skemmtir sér við tilhugsunina. „A heimili Skotans eru heldur aldrei fleiri stólar en fjölskyldu- meðlimir eru. Komi gestur í heim- sókn situr hann á gólfinu,“ heldur hún áfram og þegar blaðamaður lætur í ljós undrun og efasemdir segir hún: „Jú, þetta er alveg satt. Við vorum boðin víða og þetta er þeirra siður. Venjulega er einhver auður veggur sem hægt er að halla sér upp að, en maður situr á gólfinu.“ Hún segir að Skotar séu sér- staklega kátt fólk og hafí gaman af að bjóða gestum heim, enda þurfí þeir ekki að hafa fyrir því. „Sá sem býður heim þarf ekki einu sinni að baka köku því gestirnir koma með allt meðlæti. Þó kom það fyrir að ef maður kom óvænt í heimsókn að húsmóðirin byði upp á köku. Þá setti hún kökuna á mitt gólf, skar sneiðar og setti á diska. Maður fékk ekki að skera sjálfur, því þá gat sneiðin orðið of stór,“ segir Guðbjörg og hlær við. Árin í Skotlandi urðu sjö. Verk- smiðjan gekk þó ekki nema í um það bil þijú ár, en þeim hjónum fannst ekki rétt að þvæla 13 ára syni sínum aftur í íslenskan skóla, þannig að þau flentust í Skotlandi þar til hann hafði lokið framhalds- skólanámi. Starfsemin hófst með laxeiðimönnum Þessum árum eyddu þau einnig í að koma húsinu á Þórshöfn í stand. Um svipað leyti og það var orðið íbúðarhæft var skortur á húsnæði fyrir erlenda laxveiði- menn, sem veiddu aðallega í Hafralónsá og Hölkná. „Húsið var svo stórt að við gerðum það eigin- lega af gustuk að veita þeim gist- ingu. Um veturinn kom í ljós að aðstöðu vantaði fyrir skólabörn og þá voru ráðin hingað ráðskona og ráðsmaður, því við dvöldumst enn í Skotlandi," segir Guðbjörg. Þegar þau hjón voru um það bil að vera tilbúin að yfirgefa Skot- land árið 1981 veiktist ráðsmaður- inn, þannig að Guðbjörg og Birgir komu heim og gengu inn í starf ráðsmannshjónanna. „Það er eins og forsjónin taki alltaf í taum- ana,“ segir hún. Sumarið eftir gistu laxveiði- mennirnir aftur hjá þeim og svo fór að íslenskir ferðalangar föluð- ust eftir plássi líka. „Þannig flækt- umst við eiginlega inn í þessa starfsemi óviljandi - og þetta sem átti að vera hvfldarheimili fyrir okkur. Síðan hef ég aldrei losnað úr þessu,“ segir Guðbjörg og ekki er annað að sjá en hún sé sæl 1 með sitt. Hún segist raunar hafa velt því fyrir sér árið 1986, þegar Birgir varð bráðkvaddur, að hætta rekstrinum en Þórshafnarbúar hafi stutt sig vel og óskað eftir að hún yrði áfram. „Þeirri hugsun skaut einnig upp í kollinum á mér hvers vegna ég ætti að hætta og 1 hvað ég hefði að sækja til Reykja- i víkur eftir öll þessi ár. | Niðurstaðan varð sú að ég ákvað að vera áfram og nú á ég orðið svo mikið af vinum, að Hót- el Jórvík þarf ekki að auglýsa. Það er alltaf fullt út úr dyrum ef ég vil og það er svo skrýtið að það er jafnt sumar sem vetur.“ — Eru gestir þínir aðallega af íslensku bergi brotnir eða erlendu? | „Þeir eru aðallega íslendingar | og margir eru fastagestir. Hér er enginn að koma á hótel heldur • fínnst fólki það vera að koma heim, enda mega allir koma í eld- húsið og gera það sem þeim sýn- ist.“ Svissneskur auðjöfur fastagestur Meðal fastagesta má nefna svissneskan auðjöfur, sem kemur ekki til að stunda laxveiði eins og > vænta mætti heldur er hann mik- | ill náttúruunnandi. „Hann kynntist Birgi fýrir fjöldamörgum árum og hefur komið hingað á hveiju ári síðan. Hann fer mikið í gönguferð- ir og þekkir öll blóm með nafni. Við gengum einu sinni upp á Gunnólfsvíkurfjall og þá nefndi hann hvert blóm og vissi í hvaða hæð þau gátu vaxið. Hann hefur ) ferðast mikið og ég efast um að j til sé sá blettur á jörðinni sem hann hefur ekki komið til. Hann sagði strax að hér væri fegursti blettur á jarðríki og honum líkar mjög vel. Það er þó eitt sem hann hefur orð á að sé dýrt er verð á bílaleigubílum. Hann skilur ekki það verðlag." Svisslendingurinn býður Guð- björgu einu sinni til tvisvar á ári til útlanda og hefur dóttir hennar þá oft verið með í ferðum hin síð- • ari ár. Hefst ferðin alltaf í Lond- > on, þar sem tíminn er vel nýttur til að sækja óperur og leikhús. „Ég hef næstum því setið í sæti Elísa- betar drottningar í leikhúsinu,“ segir Guðbjörg og skellihlær. Hún bætir við að þeim sé einnig boðið á fræga matsölustaði, sem eru lokaðir almenningi. Pavarotti og Domingo koma fast á hæla Kristjáns Þegar Guðbjörg er spurð hvaða óperusöngvari sé í uppáhaldi seg-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.