Morgunblaðið - 24.07.1994, Síða 20

Morgunblaðið - 24.07.1994, Síða 20
20 SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ KVIKMYNDIR/REGNBOGINN frumsýnir spennumyndina The Getaway með Alec Baldw- in og Kim Basinger í aðalhlutverkum. Þetta er endurgerð samnefndrar myndar Sam Peck- inpah frá 1972 sem þau Steve McQueen og Ali McGraw léku aðalhlutverkin í. Endurtekin undankoma Á Útopnu ALEC Baldwin alveg á útopnu í hlutverki sínu sem Doc McCoy í The Getaway. Skúrkurinn JAMES Woods fer með veigamikið hlutverk sem hinn versti skúrkur í The Getaway. Iheimi þar sem óheiðarleiki og sviksemi þykir vera rétt hegð- unarmynstur heyrir sá slyngi þjóf- ur Doc McCoy (Alec Baldwin) til undantekninga. Hann lifir nefni- lega samkvæmt ákveðnum siða- reglum og stendur við allt sem hann segir. Eiginkona hans og sökunautur, hin glæsilega Carol (Kim Basinger), er reiðubúin til að gera hvað sem er til að fá eigin- mann sinn lausan úr miskunnar- lausri refsivist í fangelsi í Mexíkó, og þótt þau séu umkringd svikum og óheiðarleika þá hafa þau lært að komast af með því að treysta og elska hvort annað. Það á hins vegar eftir að breytast. Þegar þau fremja rán af stærri gráðunni til að uppfylla skilmála sem þau ganga að til að fá Doc lausan úr fangelsinu, þá komast skötuhjúin að því að ránið sjálft var auðveld- asti hluti aðgerðarinnar, því vand- ræði þeirra byrja fyrst fyrir alvöru þegar þau reyna að komast undan á flótta. The Getaway er byggð á sam- nefndri kvikmynd, sem Sam Peck- inpah gerði árið 1972 og hefur í hugum margra öðlast sess sem klassík í kvikmyndasögunni, en í þeirri mynd fóru þau Steve McQue- en og Ali McGraw með aðalhlut- verkin. Leikstjóri þassarar nýju útgáfu myndarinnar er Roger Don- aldson, sem meðal annars hefur leikstýrt The Bounty með Mel Gib- son I aðalhlutverki, No Way Out með Kevin Costner og Gene Hack- man, Cocktail með Tom Cruise og Bryan Brown, Cadillac Man með Robin Williams og síðast White Sands með Willem Dafoe og Mic- key Rourke í aðalhlutverkum. The Getaway er gerð eftir sögu rithöf- undarins Jim Thompson og hand- ritið að báðum myndunum er gert af leikstjóranum og handritshöf- undinum Walter Hill, en í nýju útgáfunni vann hann handritið í samvinnu við Amy Jones. Handrit Hills að upprunalegu myndinni var annað kvikmyndahandrit hans sem mynd var gerð eftir, en frá 1975 hefur hann verið á bekk meðal helstu kvikmyndagerðarmannanna í Hollywood. Meðal mynda sem hann hefur gert eru The Warriors, The Long Riders, 48 Hours, Crossroads, Johnny Handsome og Another 48 Hours. Þá hefur hann verið framieiðandi Alien og tveggja framhaldsmynda sem fylgdu í kjöl- far hennar. „Það er erfítt að rifja upp hveijar hugsanir manns voru fyrir rúmlega 20 árum,“ segir Hill. „En ég man þó greinilega eftir því þegar við Sam (Peckinpah) skegg- ræddum hve slæmt það væri að nánast ómögulegt væri að gera kvikmynd sem hefði til að bera þann brodd sem skáldsaga Thomp- sons býr yfír. En við vorum engu að síður staðráðnir í að gera eitt- hvað sem væri ekki dæmigert Hollywoodkák, eitthvað sem hefði raunverulegan brodd í sér.“ Fíkinn í glæpasögur Walter Hill er ekki sá eini sem komið hefur að gerð beggja mynd- anna, þvf einn framleiðenda The Getaway, David Foster, er einnig að endurtaka leikinn frá 1972. Hann segist hafa leitað í langan tíma að heppilegri glæpasögu til að kvikmynda. „Eg er fíkinn í sög- ur af þessu tagi og hlýt að hafa lesið nokkur hundruð bóka og kvik- myndahandrita án þess að hafa fundið nokkra sem kom réttu lík- amsvessunum af stað. Þá fór ég að hugsa um The Getaway á nýjan leik því sú saga er einstaklega áhrifamikil og reyndar óháð t(ma. Auðvitað eru tímamir breyttir frá því fyrri myndin var gerð og við- horf aðalpersónanna hafa einnig tekið stakkaskiptum. Þessi mynd endurspeglar þennan mun.“ Roger Donaldson segir að það sé einn meginkosturinn við að end- urgera kvikmynd að hafa beina- grind til að vinna eftir og hægt sé að treysta á sterkustu þætti frumgerðarinnar og bæta þá sem miður fóru. „Ef Steve McQueen var rétti maðurinn í hlutverk Doc McCoy árið 1972 þá er ljóst að Alec Baldwin er kjörinn í hlutverk- ið í dag. Alec hefur sýnt og sann- að fíölhæfni sína sem leikari ekki aðeins á hvíta tjaldinu heldur einn- ig á leiksviði. Þá er hann einn af fáum leikurum sem hafa vald á því að koma til skila margslungn- um persónum við mismunandi að- stæður með raddbeytingu sinni og látbragði," segir Donaldson. í endurgerð The Getaway er persóna Carol McCoy meira áber- andi en í frumgerðinni, og þá ekki aðeins sem eiginkona Docs heldur einnig sem sökunautur. Donaldson segir Kim Basinger gæða persón- una miklu llfí þar sem henni reyn- ist auðvelt að leika bæði hörku- kvendi og mýkri manngerð. „Hún þarf bæði að koma til skila marg- slunginni skapgerð persónunnar . og fullþroskuðum persónuleika og á hún auðvelt með það,“ segir hann. Fleiri þekkt nöfn The Getaway skartar fleiri þekktum leikurum en skötuhjúun- um I aðalhlutverkunum og þar fer fremstur I flokki James Woods, sem á sínum tíma var tilnefndur til óskarsverðlauna fyrir hlutverk sitt I Saivador. Þá fer Michael Madsen með veigamikið hlutverk, en hróður hans hefur aukist veru- lega upp á síðkastið. Hann lék I fimm kvikmyndum á síðasta ári, m.a. I Free Willy, og áður hafði hann vakið verðskuldaða athygli fyrir hlutverk sín I Thelma and Louise, The Doors og ekki hvað síst I Reservoir Dogs. Sameiginlegt með báðum gerð- um The Getaway er samband aðal- leikaranna I einkalífinu. Ástarsam- band tókst með þeim Steve McQue- en og Ali McGraw á meðan á tök- um myndarinnar stóð árið 1972 og gengu þau I hjónaband skömmu síðar, og þau Alec Baldwin og Kim Basinger hafa átt I ástarsambandi I nokkur ár og I september síðast- liðnum giftu þau sig. Saman í blíðu og stríðu au hjónakomin Alec Baldwin og Kim Basinger hafa verið nokkuð I sviðs- ljósi fjölmiðla undanfarin misseri og þá ekki síst vegna málaferla sem Basinger átti I við aðstandendur kvikmyndarinnar Boxing Helena. Þeir höfðuðu mál gegn henni og sökuðu hana um að hafa rift munnlegu samkomulagi um að hún tæki að sér aðalhlutverkið I myndinni og féll dómurinn þeim I vil. Var leikkonan dæmd til að greiða aðstandendum myndarinnar 8,9 milljónir dollara I skaðabætur og reið það fjárhag hennar að fullu. Samband þeirra hjóna hefur staðið I nokkur ár, en þau gengu loks I hjónaband I september síðastliðnum og fór það fram I kyrrþey að ósk Alec Baldwins. Kim Basinger sem stendur á fertugu er af sænskum, þýskum og indíánaættum. Hún var kosinn fegurðardrottning I heimabæ sínum, Aþenu í Georgíufylki, og gerðist fyrirsæta I New York I framhaldi af því. Þrátt fyrir að hún hefði náð nokkrum frama á því sviði ákvað hún að halda til Hollywood og freista gæfunnar í kvikmynd- um. Frumraun hennar var í myndinni Hard Country árið 1981, og skömmu síðar lék hún með Charlton Heston I Mother Lode. verulega athygli vakti hún ekki fyrr en hún lék á móti Sean Connery I Bondmyndinni Never Say Never Again árið 1983. í kjölfar- ið fylgdu svo m.a. myndimar The Natural þar sem hún lék á móti Robert Redford, 9‘A vika með Mickey Rourke og No Mercy með Richard Gere. Árið 1989 fór hún svo með hlutverk Vicki Vale I Batman og aftur lék hún á móti Richard Gere I Final Analys- is árið 1992. Síðastliðið haust lék Basinger á móti Val Kilmer í The Real McCoy og síðast sást hún I Wayne’s World 2. Alec Baldwin gat sér gott orð fyrir að leika leyniþjónustumanninn Jack Ryan í The Hunt for Red October, en meðal annarra mynda sem hann hefur leikið I eru Gleng- Samhent KEM Basinger og Alec Baldwin eru jafn samhent I einkalífinu og í spennumynd- inni The Getaway. any Glen Ross, Working Giri og Malice, en síðast lék hann I The Shadow sem verið er að frumsýna I Bandaríkjunum um þessar mundir. Upphaflega ætlaði Alec Baldwin sér hins vegar ekki að verða leikari og lagði hann stund á íþróttir áður en hann innritaðist í George Washington University til að leggja stund á lögfræðinám og stjómmálafræði. Eftir þriggja ára nám snérist honum svo hugur og fluttist hann þá til New York þar sem hann innritaðist í leiklist í New York University og hjá Lee Strasberg Institute. Fyrsta hlutverk sitt fékk hann I sápuóper- unni The Doctors og eftir að hafa leikið I nokkmm sjónvarpsþáttum og á sviði þar sem hann vann til viðurkenninga lá leiðin svo til Hollywood.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.