Morgunblaðið - 24.07.1994, Blaðsíða 20
20 SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
KVIKMYNDIR/REGNBOGINN frumsýnir spennumyndina The Getaway með Alec Baldw-
in og Kim Basinger í aðalhlutverkum. Þetta er endurgerð samnefndrar myndar Sam Peck-
inpah frá 1972 sem þau Steve McQueen og Ali McGraw léku aðalhlutverkin í.
Endurtekin
undankoma
Á Útopnu
ALEC Baldwin alveg á útopnu í hlutverki sínu sem Doc McCoy í The Getaway.
Skúrkurinn
JAMES Woods fer með veigamikið hlutverk sem hinn versti
skúrkur í The Getaway.
Iheimi þar sem óheiðarleiki og
sviksemi þykir vera rétt hegð-
unarmynstur heyrir sá slyngi þjóf-
ur Doc McCoy (Alec Baldwin) til
undantekninga. Hann lifir nefni-
lega samkvæmt ákveðnum siða-
reglum og stendur við allt sem
hann segir. Eiginkona hans og
sökunautur, hin glæsilega Carol
(Kim Basinger), er reiðubúin til
að gera hvað sem er til að fá eigin-
mann sinn lausan úr miskunnar-
lausri refsivist í fangelsi í Mexíkó,
og þótt þau séu umkringd svikum
og óheiðarleika þá hafa þau lært
að komast af með því að treysta
og elska hvort annað. Það á hins
vegar eftir að breytast. Þegar þau
fremja rán af stærri gráðunni til
að uppfylla skilmála sem þau
ganga að til að fá Doc lausan úr
fangelsinu, þá komast skötuhjúin
að því að ránið sjálft var auðveld-
asti hluti aðgerðarinnar, því vand-
ræði þeirra byrja fyrst fyrir alvöru
þegar þau reyna að komast undan
á flótta.
The Getaway er byggð á sam-
nefndri kvikmynd, sem Sam Peck-
inpah gerði árið 1972 og hefur í
hugum margra öðlast sess sem
klassík í kvikmyndasögunni, en í
þeirri mynd fóru þau Steve McQue-
en og Ali McGraw með aðalhlut-
verkin. Leikstjóri þassarar nýju
útgáfu myndarinnar er Roger Don-
aldson, sem meðal annars hefur
leikstýrt The Bounty með Mel Gib-
son I aðalhlutverki, No Way Out
með Kevin Costner og Gene Hack-
man, Cocktail með Tom Cruise og
Bryan Brown, Cadillac Man með
Robin Williams og síðast White
Sands með Willem Dafoe og Mic-
key Rourke í aðalhlutverkum. The
Getaway er gerð eftir sögu rithöf-
undarins Jim Thompson og hand-
ritið að báðum myndunum er gert
af leikstjóranum og handritshöf-
undinum Walter Hill, en í nýju
útgáfunni vann hann handritið í
samvinnu við Amy Jones. Handrit
Hills að upprunalegu myndinni var
annað kvikmyndahandrit hans sem
mynd var gerð eftir, en frá 1975
hefur hann verið á bekk meðal
helstu kvikmyndagerðarmannanna
í Hollywood. Meðal mynda sem
hann hefur gert eru The Warriors,
The Long Riders, 48 Hours,
Crossroads, Johnny Handsome og
Another 48 Hours. Þá hefur hann
verið framieiðandi Alien og tveggja
framhaldsmynda sem fylgdu í kjöl-
far hennar. „Það er erfítt að rifja
upp hveijar hugsanir manns voru
fyrir rúmlega 20 árum,“ segir Hill.
„En ég man þó greinilega eftir því
þegar við Sam (Peckinpah) skegg-
ræddum hve slæmt það væri að
nánast ómögulegt væri að gera
kvikmynd sem hefði til að bera
þann brodd sem skáldsaga Thomp-
sons býr yfír. En við vorum engu
að síður staðráðnir í að gera eitt-
hvað sem væri ekki dæmigert
Hollywoodkák, eitthvað sem hefði
raunverulegan brodd í sér.“
Fíkinn í glæpasögur
Walter Hill er ekki sá eini sem
komið hefur að gerð beggja mynd-
anna, þvf einn framleiðenda The
Getaway, David Foster, er einnig
að endurtaka leikinn frá 1972.
Hann segist hafa leitað í langan
tíma að heppilegri glæpasögu til
að kvikmynda. „Eg er fíkinn í sög-
ur af þessu tagi og hlýt að hafa
lesið nokkur hundruð bóka og kvik-
myndahandrita án þess að hafa
fundið nokkra sem kom réttu lík-
amsvessunum af stað. Þá fór ég
að hugsa um The Getaway á nýjan
leik því sú saga er einstaklega
áhrifamikil og reyndar óháð t(ma.
Auðvitað eru tímamir breyttir frá
því fyrri myndin var gerð og við-
horf aðalpersónanna hafa einnig
tekið stakkaskiptum. Þessi mynd
endurspeglar þennan mun.“
Roger Donaldson segir að það
sé einn meginkosturinn við að end-
urgera kvikmynd að hafa beina-
grind til að vinna eftir og hægt
sé að treysta á sterkustu þætti
frumgerðarinnar og bæta þá sem
miður fóru. „Ef Steve McQueen
var rétti maðurinn í hlutverk Doc
McCoy árið 1972 þá er ljóst að
Alec Baldwin er kjörinn í hlutverk-
ið í dag. Alec hefur sýnt og sann-
að fíölhæfni sína sem leikari ekki
aðeins á hvíta tjaldinu heldur einn-
ig á leiksviði. Þá er hann einn af
fáum leikurum sem hafa vald á
því að koma til skila margslungn-
um persónum við mismunandi að-
stæður með raddbeytingu sinni og
látbragði," segir Donaldson.
í endurgerð The Getaway er
persóna Carol McCoy meira áber-
andi en í frumgerðinni, og þá ekki
aðeins sem eiginkona Docs heldur
einnig sem sökunautur. Donaldson
segir Kim Basinger gæða persón-
una miklu llfí þar sem henni reyn-
ist auðvelt að leika bæði hörku-
kvendi og mýkri manngerð. „Hún
þarf bæði að koma til skila marg-
slunginni skapgerð persónunnar
. og fullþroskuðum persónuleika og
á hún auðvelt með það,“ segir
hann.
Fleiri þekkt nöfn
The Getaway skartar fleiri
þekktum leikurum en skötuhjúun-
um I aðalhlutverkunum og þar fer
fremstur I flokki James Woods,
sem á sínum tíma var tilnefndur
til óskarsverðlauna fyrir hlutverk
sitt I Saivador. Þá fer Michael
Madsen með veigamikið hlutverk,
en hróður hans hefur aukist veru-
lega upp á síðkastið. Hann lék I
fimm kvikmyndum á síðasta ári,
m.a. I Free Willy, og áður hafði
hann vakið verðskuldaða athygli
fyrir hlutverk sín I Thelma and
Louise, The Doors og ekki hvað
síst I Reservoir Dogs.
Sameiginlegt með báðum gerð-
um The Getaway er samband aðal-
leikaranna I einkalífinu. Ástarsam-
band tókst með þeim Steve McQue-
en og Ali McGraw á meðan á tök-
um myndarinnar stóð árið 1972
og gengu þau I hjónaband skömmu
síðar, og þau Alec Baldwin og Kim
Basinger hafa átt I ástarsambandi
I nokkur ár og I september síðast-
liðnum giftu þau sig.
Saman í blíðu
og stríðu
au hjónakomin Alec Baldwin og Kim
Basinger hafa verið nokkuð I sviðs-
ljósi fjölmiðla undanfarin misseri og þá
ekki síst vegna málaferla sem Basinger
átti I við aðstandendur kvikmyndarinnar
Boxing Helena. Þeir höfðuðu mál gegn
henni og sökuðu hana um að hafa rift
munnlegu samkomulagi um að hún tæki
að sér aðalhlutverkið I myndinni og féll
dómurinn þeim I vil. Var leikkonan dæmd
til að greiða aðstandendum myndarinnar
8,9 milljónir dollara I skaðabætur og reið
það fjárhag hennar að fullu. Samband
þeirra hjóna hefur staðið I nokkur ár, en
þau gengu loks I hjónaband I september
síðastliðnum og fór það fram I kyrrþey að
ósk Alec Baldwins.
Kim Basinger sem stendur á fertugu er
af sænskum, þýskum og indíánaættum.
Hún var kosinn fegurðardrottning I
heimabæ sínum, Aþenu í Georgíufylki, og
gerðist fyrirsæta I New York I framhaldi
af því. Þrátt fyrir að hún hefði náð nokkrum
frama á því sviði ákvað hún að halda til
Hollywood og freista gæfunnar í kvikmynd-
um. Frumraun hennar var í myndinni Hard
Country árið 1981, og skömmu síðar lék
hún með Charlton Heston I Mother Lode.
verulega athygli vakti hún ekki fyrr en hún
lék á móti Sean Connery I Bondmyndinni
Never Say Never Again árið 1983. í kjölfar-
ið fylgdu svo m.a. myndimar The Natural
þar sem hún lék á móti Robert Redford,
9‘A vika með Mickey Rourke og No Mercy
með Richard Gere. Árið 1989 fór hún svo
með hlutverk Vicki Vale I Batman og aftur
lék hún á móti Richard Gere I Final Analys-
is árið 1992. Síðastliðið haust lék Basinger
á móti Val Kilmer í The Real McCoy og
síðast sást hún I Wayne’s World 2.
Alec Baldwin gat sér gott orð fyrir að
leika leyniþjónustumanninn Jack Ryan í The
Hunt for Red October, en meðal annarra
mynda sem hann hefur leikið I eru Gleng-
Samhent
KEM Basinger og Alec Baldwin eru jafn samhent I einkalífinu og í spennumynd-
inni The Getaway.
any Glen Ross, Working Giri og Malice,
en síðast lék hann I The Shadow sem verið
er að frumsýna I Bandaríkjunum um þessar
mundir.
Upphaflega ætlaði Alec Baldwin sér hins
vegar ekki að verða leikari og lagði hann
stund á íþróttir áður en hann innritaðist í
George Washington University til að leggja
stund á lögfræðinám og stjómmálafræði.
Eftir þriggja ára nám snérist honum svo
hugur og fluttist hann þá til New York þar
sem hann innritaðist í leiklist í New York
University og hjá Lee Strasberg Institute.
Fyrsta hlutverk sitt fékk hann I sápuóper-
unni The Doctors og eftir að hafa leikið I
nokkmm sjónvarpsþáttum og á sviði þar
sem hann vann til viðurkenninga lá leiðin
svo til Hollywood.