Morgunblaðið - 24.07.1994, Side 28

Morgunblaðið - 24.07.1994, Side 28
28 SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ hOLl FASTEIGNASALA s? 10090 SKIPHOLTI 50B, 2. hæðt.v. Hverafold 15 - bflskýli - Opið hús Góð 81 fm íbúð á 3. hæð. Parket og flísar á gólfum. Gott útsýni. 21 fm bílskúr með fjarstýringu. Verð 7,6 millj. Þessi íbúð sem er laus er á 3. hæð f.m. (03.02.) og verður til sýnis í dag, sunnudag, kl. 14-16. 362. Hörðaland 4 - Opið hús Afar björt og falleg 3ja-4ra herb. 88 fm íbúð á 2. hæð. Laus strax. Verð 7,4 millj. íbúð sem er á 2. hæð t.h. verður til sýnis í dag, sunnudag, kl. 14-17. 3705. Miðleiti 5 - Gimliblokk - Opið hús 3ja herb. 82 fm (auk sólstofu) glæsileg íbúð á 4. hæð í þessari eftirsóttu blokk. íbúðin skiptist m.a. í stofu, borðstofu, herb., eldhús, þvottahús, bað og sólstofu. Suðursv. Vandaðar innr. Bílast. í bílgeymslu. Hlutdeild í mikilli og góðri sameign. íb. getur losnað nú þegar. Verð 10,9 millj. Þessi íb. er á 4. hæð nr. 2 (04.02.) og verður til sýnis í dag, sunnudag, kl. 13-16. 3804. Skúlagata 54 - Opið hús 2ja herb. góð íbúð á 3. hæð. Suðursvalir. Góður garð- ur. Leikvöllur. Laus strax. Verð 4,4 millj. íbúðin er á 2. hæð t.h. 3884. Tvær íbúðir f sama húsi við Sörlaskjól Mjög falleg neðri hæð með bílskúr. íbúðin skiptist í 2 saml. parketlagðar stofur, 2 herb. o.fl. Nýleg eldhúsinn- rétting. Falleg lóð. Verð 9,5 millj. 3967. Rúmgóð og björt 4ra herb. rishæð, um 100 fm, auk geymsluriss. Falleg lóð. Bílskúr. Verð 8,5 millj. 3968. Hringbraut 69. Þetta virðulega hús á 3 hæöum i vesturbaanum er tll sýnis f. þig og þína fjölskyldu I dag milli kl. 14 og 17. Verð 10,9 millj. Þú ert velkominn til að skoða hjá Dóru og Hans í dag. Stórglæsil. einb. á einni hæð hér besta stað í Garðabæ. Góöur bílskúr. Vandaðr innr. Verð 17,3 millj. Þetta hús fer fljótt. Glæsil. „penthouse"-ib. Einmitt hér þar sem hjartaö slær getur þú nú eignast frábæra 2ja herb. 80 fm ib. í nýju húsi. Bílskýli. Hagstæð greiðslukjör. Verð 7,8 millj. Stórglæsil. 125 fm sérbýli á 2 hæðum i hjarta Reykjavikur. Sérhannaðar innr í eldhúsi. Þetta er íb. sem hentar unga parinu og/eða listamanninum. Ótrúiega hagstætt verð 8,4 millj. Suðurhólar Laus strax. Björt og rúmg. 4ra herb. í seilingarfjarl. frá Hóiagarði, sundlaug, skólum og SVR-stöö. Utborgun 2 millj. og 35 þús á mán. Sjón er sögu ríkari. Lyklar á Hóli. Lækjargata - miðbær Franz Jezorski, lögg. fast.sali. Veghúsastígur Tómasarhagi Falleg 105 fm hæð á þessum frábæra stað. Steinsnar frá sjónum og fjörunni v. Ægi8íðu. Nýtt þak og gler, bilskúr að auki fylgir með. Verð 9,9 millj. Laus í dag. Langamýri - Gbæ. EIGNAMIÐLUNIN % Opið á Hóli í dag kl. 14-17 OPIÐ HÚS MINNINGAR HANS JAKOB BECK + Hans Jakob Beck, fyrrum bóndi á Sómastöðum í Reyð- arfirði, fæddist 16. júlí 1907. Hann lést á St. Jósefs spítala 7. júlí síðastliðinn og var útför hans gerð frá Fossvogskirkju 15. júlí. Á FERÐ frá átthögunum eystra barst mér að eyrum andlátsfregn. Fyrrum sveitungi minn og mætur vinur, Hans á Sómastöðum, eins og mér var og er tamast að kalla hann, var allur og orðin „of seint“ ómuðu við eyrum mér. Ég minntist þess ofur vel er hann við síðustu samfundi mælti á sinn hljóða hátt, að ég mætti nú alveg líta til sín við tækifæri. Það tækifæri er end- anlega liðið og þó var engan mann betra að hitta en Hans, alltaf eins, ljúflyndið og einlægnin alltaf söm við sig, hinn einstaki hlýi hlátur ógleymanlegur. í mínum huga var hann merkisberi staðfestu, hóg- værðar og hlýju — hlýjunnar þó helzt og fremst. Hann varð hveijum manni minnisstæður sem honum fékk að kynnast, enda mikill mann- kostamaður í hvívetna svo sem hann átti kyn til í báðar ættir, þá breiðfírzku sem hina austfírzku. Hans var afar trúr maður í hverju einu og um leið einkar samvizku- samur, hann lagði öllum gott eitt til, umtalsgóður svo af bar, eðlis- greindur hið bezta og athugull vel, dugmikill og eljusamur með af- brigðum, búhöldur góður og glögg- ur fjármaður. Honum fóru öll verk vel úr hendi, aðgætinn og karskur, þó ekki væri hann ýkja hár í loft- inu. Hann var bóndi í beztu merk- ingu þess orðs, enda ævistritið bú- skapnum bundið, en vissulega hefði Hans orðið liðtækur hvar sem hann hefði borið niður. Hann var mikill ræktunarmaður og byggði myndar- lega upp á ættatjörð sinni þar sem mikil snyrtimennska einkenndi allt. Hans var rómaður fyrir umhirðu sína og umhyggju fyrir búpeningi sínum. Hann átti löngum afar vænt fé og kostaríkt. Hirðusemi hans og nýtni var við brugðið og greiðvikni sömuleiðis. Það mun sannmæli allra kunnugra í gegnum árin, að allur heimilisbragur og heimilisandi á Sómastöðum hafi til fyrirmyndar verið. Þar voru þau systkini bæði samhent hið bezta, en Hans kvænt- ist aldrei, en saman bjuggu þau stykini, Ástríður Guðrún og hann, á ættaijörð sinni í um fjóra ára- tugi. Sómastaðir eru í þjóðbraut í þess orðs fyllstu merkingu og þar allajafna miklar gestakomur, enda ekki í kot vísað hjá húsráðendum. Það var einstaklega ánægjulegt að sækja þau systkini heim, gestum tekið tveim höndum og veitingar ekki við nögl skornar í neinu. Þau voru nokkuð ólík systkinin á ytra borði, skemmtilega ólík, en hugarþel og hjartalag afskaplega áþekkt. Guðrún var kraftmeiri, ákafari og átti meira frumkvæði í orðræðunum, en athugasemdir hans um mannlífið og tilveruna ekki síður meitlaðar og oft sem þaulhugsaðar og ekki hló hann síð- ur innilega, því grómlaus var glettni þeirra beggja. Þjóðfélagsmál voru báðum afar hugleikin og þó grunn- hugsjón samhjálpar ætti sér ötula talsmenn í báðum og bæði væru samvinnumenn af beztu gerð voru þau þó ekki alltaf með öllu sam- stíga, en fóru svo vel með að vart mátti greina nema af vel kunnug- um, svo virtu þau skoðanir hvors annars. Þau voru stefnuföst bæði en skoðanamyndun þeirra var sjálf- stæð og einurð mikil í eftirfylgni. Mörg slík minningarbrot geymi ég þakklátum huga og þau rifjast upp nú þegar Hans hefur nú kvatt okkur, en Guðrún systir hans er látin fyrir nokkrum árum. Þessi ein- lægni félagshyggjumaður unni landi sínu og mat vel gögn þess og gæði, vildi sjá það herlaust og al- fijálst í öllu, gegnheill í því sem öðru. Hann unni fírðinum okkar og sveitinni, jörðinni sinni fallegu og búsældarlegu afar mikið og sárt var honum að þurfa að yfírgefa hana, en kraftar beggja voru á þrotum og einskis annars úrkosta. En þessi vel gerði maður með sína léttu lund og einstaka jafnaðar- geð undi hag sínum syðra ótrúlega vel, enda þar mikið af hans nánasta fólki og m.a. margt af því fólki sem hafði á yngri árum átt góða dvöl austur á Sómastöðum, en þar var alltaf gnægð slíkra sumargesta. Þá samfundi kunni Hans vel að meta svo mannblendinn sem hann var og vinmargur að sama skapi. Að leiðarlokum vil ég þakka það að hafa mátt eiga Hans að góðum sveitunga, sem veitti mér vináttu sína og hlýju. Drenglyndur mann- kostamaður er kvaddur í hljóðri þökk og hlýrri. Það er sólríkt á Sómastöðum í vörmum vestanblæn- um, en þannig kvaddi ættarsetrið hans hann á brottfarardaginn. Sól- rík minning hugþekks samferða- manns lifir í huga þeirra sem þekktu hann. Blessuð sé minning mæt og góð. Helgi Seljan. Fellsmúli 18 2.h.t.h. Til sölu glæsileg og rúmgóð 4ra herb. íbúð í Fellsmúla 18. Ein íbúð á stiga- palli. 3 svefnherb., þar af eitt forstofu- herb. Sérhiti. Húsið er allt nýmálað og sprunguviðgert. Suðursvalir. Upplýsingar fást hjá: KAUPMIÐLUN h.f. Austurstræti 17-101 Reykjavík S: 621700 Opið hús sunnudag f rá 15-18 JBí FASTEIGIUAMIDSTÖDIM" Wt SKIPHOLTÍ S0B ■ SÍMI62 20 30 - FAX 62 22 90 Opið hús Leirubakki 20 - verðhrun Falleg 93 fm 4ra herb. íb. á 2. hæð í góðu fjölbýli. Þvottah. í íb. Suðursv. Frábært verð, aðeins 6,5 millj. (Þetta er verð sem gengur á 3ja herb. sambærilegri íb.) Tækifæri sem þú mátt ékki sleppa. Allir velkomnir milli kl. 14 og 17 í dag, sunnudag. BORGIN sími 11440 5U$HI MIÐVIKUDAGS - SUNNUDAGSKVÖLD -Borð fyrirþig- BORGIN sími 11440 I.Júlísl. veitti heilbrigðisráðuneytið heimild til sölu á FAMEX 20 án lyfseðils, mest 30 töflur. Ertu sárímaga? FAMEX er lyf, sem dregur úr myndun sýru í maga og er notað til að lækna maga- og skeifu- garnarsár. FAMEX er áhrifarflct við brjóstsviða sem myndast, þegar sýra flæðir frá maga til vélinda. FAMEX fæst í apótekum. FAMEX 20 mg. Framleiðandi: OMEGA FARMA hf. Hver tafla inniheldur: Famotidinum INN 20 mg. Eiginleikor: Lyfið dregur úr myndun saltsýru f maga. Ábendingar: Sársjúkdómur í skeifugörn eða maga og fyrirbyggjandi gegn slíkum sárum. Bólga í vélinda vegna bakflæðis. Vorúð: Barnsha'fandi konur og konur með barn á brjósti eiga ekki að nota lyfið nema að lænisráði. Aukaverkanir: Niðurgangur, höfuðverkur og þreyta kemur fyrir. Skammtar handa full- orðnum: 2 töflur fyrir svefn eða I tafla tvisvar á dag. Meðferð skal standa f a.m.k. 4 vikur, þótt einkenni hverfi fyrr. Fyrirbyggjandi meðferð: I tafla fyrir svefn. Lyfið er ekki ætlað börnum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.